Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
Vorum að taka upp glæsilegan vetrarfatnað
frá franska tískuhúsinu Revillon.
Til dæmis loðskinnsfóðraða dömujakka
og loðskinnsfóðraða herrafrakka og einnig
hina eftirsóttu loðskinnsfóðruðu
Revillon dömufrakka.
Verð frá 48.000 krónum.
w
Ennfremur eigum við glæsilegan
íslenskan og franskan mokkafatnað.
CP*
EGGERT
jetíshri
Efst á Skólctvörðustígnum, sími II121.
Af prófkjörum og lífs-
kjörum Reyknesinga ,
eftir Gissur Pálsson
„Sagt hefur það verið um suðurnesjamenn
fast þeir sóttu sjóinn og sækja...“
.. .nú um atvinnuleysisbætur.
Reglubundin fækkun í flota
Reyknesinga raskar ekki svefnró
kjördæmisins frekar en fyrri dag-
inn, ásamt staðsetningu væntan-
legs álvers, sem þingmenn vorir
vilja gjarnan setja niður alls staðar
annars staðar en á Reykjanesi.
Við sölu skipa úr kjördæminu flyst
að sjálfsögðu kvóti þeirra í önnur
kjördæmi. Nýleg sameining fjöl-
margra banka í Islandsbanka, vek-
ur mann til umhugsunar, hvort
sameina eigi fleiri banka. Til dæm-
is væri hugsanlegt að sameina
Selvogsbanka Dornbanka og svo
mætti lengi telja. í umræðu iðnað-
arráðherra hefur verið notuð setn-
ingin að róa upp á hlut, þegar
rætt hefur verið um orkuverð fyr-
ir væntanlegt álver. Það eru for-
réttindi þeirra er hafa skipspláss
að fá tækifæri til þess að róa upp
á hlut, og ljóst er að ekki er reikn-
að með að Suðurnesjamenn fái
skipspláss, heldur standi niðri á
kaja á marhnútadorgi. Þessari
stefnu þurfum við að breyta og
leggjast á eitt um þingmenn sem
bera hag kjördæmisins fyrir
brjósti.
Miðstýringarstefna ríkisstjórn-
ar vorrar hefur tekist að leggja í
ijúkandi rástir efnahag lands-
manna og þrátt fyrir að þjóðar-
sáttarfallhlífin hafi hægt eilítlega
á aftökunni verður henni þó full-
nægt ef ekki verður gripið til for-
varnaraðgerða þegar í stað. Hluti
af þeim aðgerðum af hendi sjálf-
stæðismanna væri að setja núver-
andi þingmenn sem sofa á vakt-
inni í land og breyta um áhöfn.
í framboði fyrir prófkjör sjálf-
Gissur Pálsson
stæðismanna á Reykjanesi eru
margir mjög hæfir nýir menn sem
rétt er að veita tækifæri til að rífa
Reykjanesið upp úr bónbjargar-
staðli þeim sem settur hefur verið
á um lífskjör og lífstækifæri Reyk-
nesinga.
Ég skora á alla sem vettlingi
geta valdið (hér mun ekki vera
talað um sjóvinnuvettling, þar sem
þeir eru vandfundnir í kjördæm-
inu) að taka sig saman og skipta
um forystusveit sjálfstæðismanna
á Reykjanesi og velja sér nýja for-
ystu sem leitt gæti Reykjanesið
farsællega inn í framtíðina. Sá
maður sem undirritaður þykir
hæfastur i það hlutverk, er Sigurð-
ur Helgason, fyriTerandi sýslu-
maður og núverandi frambjóðandi
í prófkjöri sjálfstæðismanna á
Reykjanesi. Veitum honum braut-
argengi og okkur skipspláss á
þjóðarskútunni.
Höfundur er verkfræðingur.
- samkvæmt reglum flokksins -
Atkvæðaseðill
KJippið seðilinn út og merkið við þá, sem þið styðjið
og hafið seðilinn til hliðsjónar í kjörklefanum.
Sigríður A. Þórðardóttir, kennari, Mosfelli, Mosfellsbæ.
Árni Ragnar Árnason, fjármálastjóri, Vatnsvegi 22 A, Keflavík.
Ólafur G. Einarsson, alþingismaður, Stekkjarflöt 14, Garðabæ.
Guðrún Stella Gissurardóttir, nemi, Hamraborg 36, Kópavogi.
Salome Þorkelsdóttir, alþingismaður, Reykjahlíð, Mosfellsbæ.
Þröstur Lýðsson, framkvæmdastjóri, Brattholti 4A, Mosfelisbæ.
Lilja Hallgrímsdóttir, húsmóðir, Sunnuflöt 9, Garðabæ.
Viktor B. Kjartansson, tölvunarfræðingur, Heiðarhvammí 9, Keflavík.
Hreggviður Jónsson, alþingismaður, Daltúni 30, Kópavogi.
Árni M. Mathiesen, dýralæknir, Suðurbraut 10, Hafnarfirði.
María E. Ingvadóttir, viðskiptafræðingur, Vallarbraut 20, Seltjarnarnesi.
Sveinn Hjörtur Hjartarson, hagfræðingur, Brekkutúni 7, Kópavogi.
Sigurður Helgason, viðskipta- og lögfræðingur, Þinghólsbraut 53 A, Kópavogi.
Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, Heiðvangi 60, Hafnarfirði.
Lovísa Christiansen, innanhúss arkitekt, Kirkjuvegi 15, Hafnarfirði.
Athugið að kjósa skal 7 aðila hvorki fleiri né færri.
Hverjir mega kjósa:
• Allir þeir, sem eru orðnir 18 ára og styðja Sjálfstæðisflokkinn
í þessu prófkjöri.
• Allir 16-18 ára, sem skráðir eru í félög ungra sjálfstæðismanna
í kjördæminu.
• Allir íbúar Reykjaneskjördæmis, sem voru á kjörskrá við
bæjarstjórnarkosningarnar 1990, og allir þeir, sem hafa flutt
í kjördæmið síðan og sýna flutningsvottorð.
Sjálfstæðisfélögin í Hafnarfirði
Sigríður A. Þórðardóttir Árni Ragnor Árnason Ólafur G. Einarsson Gudrún Stella Gissurordóttir Salome Þorkelsdóttir
Þröstur Lýðsson Lilja Hallgrímsdóttir Viktor B. Kjartansson Hreggviður Jónsson Árni M. Mathiesen
.
\
>
-