Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
19
Eins dauði er annars brauð
eftir Oddrúnu Ástu
Sverrisdóttur
Laugardaginn 10. nóvember nk.
ganga sjálfstæðismenn í Reykja-
neskjördæmi að kjörborðinu og
velja frambjóðendur flokksins í
komandi alþingiskosningum.
Fimmtán hæfir einstaklingar gefa
kost á sér til framboðs að þessu
sinni. Ein af þessum fimmtán er
Sigríður Anna Þórðardóttir, sem í
ver sem leið flutti búferlum með
fjölskyldu sinni frá Grundarfirði til
Mosfellsbæjar, þar sem éiginmaður
hennar tók við starfi sóknarprests.
Sigríður Anna bjó í Grundarfirði
í sextán ár og ávann sér traust og
virðingu allra sem kynntust henni.
Hún sat í sveitarstjórn fyrir sjálf-
stæðismenn í Grundarfirði í 12 ár
og var oddviti okkar í 6 ár og for-
maður í stjórn þeilsugæslustöðvar-
innar að auki. Árangur ötuls starfs
hennar á þeim vettvangi er frábær.
í dag er í Grundarfirði H-1 heilsu-
gæslustöð vel búin tækjum þar sem
starfar hið hæfasta fagfólk. Sigríð-
ur Anna beitti sér einnig fyrir úrbót-
um í atvinnu-, menningar og skóla-
málum af miklu harðfylgi og dugn-
aði.
Aðalsmerki hennar eru heiðar-
leiki og áræði.
Sigríður Anna er formaður í
Landssambandi sjálfstæðiskvenna.
Hún á sæti í miðstjórn Sjálfstæðis-
flokksins frá árinu 1987 og situr
nú í fimm manna framkvæmda-
stjórn flokksins. Að auki hefur hún
gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyr-
ir flokkinn jafnt innanlands sem
utan.
Sigríður Anna Þórðardóttir er sá
frambjóðandi sem sjálfstæðismenn
í Grundarfirði vildu fá í fyrsta sæt-
ið á framboðslista í Vesturlands-
kjördæmi og veit ég að hún hefði
átt vísan stuðning kjósenda í því
kjördæmi, en eins og máltækið seg-
ir „eins dauði er annars brauð“.
Kjósendur í Reykjaneskjördæmi, -
ég óska ykkur til hamingju með
glæsilegt framboð Sigríðar Önnu
og vona einlæglega að þið berið
gæfu til að gera veg hennar sem
mestan í komandi prófkjöri.
Iíöfundur er póstafgreiðslumaður
í Grundarfirði.
Oddrún Ásta Sverrisdóttir
Á Alþingi þarf fólk með mikla reynslu af sveitarstjórnamálum
og brennandi áhuga á atvinnumálum
Sigríöur Anna
sat í sveitarstjórn í 12 ár, þar af
6 ár sem oddviti;
er formaður Landssambands sjálf-
stæðiskvenna;
- situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokks- - er íslenskufræðingur og hefur starf-
ins og í 5 manna framkvæmda- að við kennslu síðastliðin 14 ár.
stjórn hans;
Framboð Sigríðar Önnu styrkir Sjálfstæðisflökkinn
til sigurs í komandi kosningum.
Kjósum Sigríði Önnu Þórðardóttur
í öruggt sæti
í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi
laugardaginn 10. nóvembernk.
Kosningaskrifstofa í símum: 52140, 52755 og 53143.
KÓRÓNAÐU
V E R K I Ð
NMC-SVIPLISTUM
0G RÓSETTUM
Ahrifarík í einfaldleika
sínum og ljá íbúðinni
svipmót sem hæfír
þinum smekk.
...0GR0NDÓ
VENEZIANO
VEGGFÓÐRI
Sterkt og fæst
blæbrigðum.
Síðumúla 15, sími 84533