Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÖVEMBER 1990
Bretland:
John Major spáir batn-
andi efnahag á næsta ári
Lundúnum. Reuter.
JOHN Major sagði í árlegri haustræðu fjármálaráðherra Bretlands
á þingi landsins í gær að samdráttur hefði verið í efnahag lands-
ins og fyrirsjáanlegt væri að útgjöld ríkisins ykjust. Hins vegar
spáði hann því að efnahagurinn batnaði á næsta ári.
Hann kvaðst
búast við að
verðbólgan yrði
um 5,5% á
síðustu þremur
mánuðum næsta
árs en hún er nú
tæp 11%. Tals-
maður Verka-
mannaflokksins
í efnahagsmál- “n Major
um, John Smith,
sagði að stjórn íhaldsflokksins
hefði fjórum sinnum áður spáð
minnkandi verðbólgu og því væri
ekki hægt að taka mark á orðum
ráðherrans.
Major tilkynnti einnig að útgjöld
ríkisins yrðu 200 milljarðar punda
á fjárhagsárinu sem hefst í apríi
næstkomandi. Gert er ráð fyrir að
útgjöldin hækki um hartnær átta
milljarða punda og verði hærri en
nokkru sinni fyrr.
Ráðherrann kvað hagvöxtinn
verða um 1% á árinu en um 2% á
næsta ári.
Aukakosningar fóru fram í
tveimur einmenningskjördæmum í
gær, Bradford og Bootle. íhalds-
flokkurinn hefur hvorugt þingsæt-
ið en mikið fylgistap gæti reynst
áfall fyrir Margaret Thatcher for-
sætisráðherra og stjórn íhalds-
flokksins, sem nýtur nú mun minna
fylgis en Verkamannaflokkurinn
samkvæmt skoðanakönnunum.
Reuter
Ramaswamy Venkataraman forseti Indlands (t.v.) og Vishwanath
Pratap Singh forsætisráðherra.
Gandhi hafnar boði um að
taka að sér sti ómarmyndim
Vvíii Holii; Rmdor
Nýju Dehli. Reuter.
RAJIV Gandhi, fyrrum forsætis-
ráðherra Indlands, hafnaði í gær
í Lóninu Hótel Loftleiðum
Um næstu tvær helgar, dagana 9. og 10. og 16. og 17. nóvember,
verðum við með okkar vinsæla villibráðarhlaðborð í Lóninu á Hótel Loftleiðum.
Við stöndumst ekki freistinguna og birtum matseðilinn í allri sinni mynd:
FORRÉTTUR:
’/áf_
V/i/4
m
fi
7
A-
£
Villibráöarseyöi
Hreindýrapaté
Sjá va rréttaþaté
Grafinn silungur
AÐALRÉTTUR:
Heilsteiktur hreindýravöövi
Ofnsteikt villigœs
Pönnusteikt lundabringa
Smjörsteikt rjúpubringa
Ofnsteikt önd
Hreindýrapottréttur
EFTIRRÉTTIR:
Heit eþlakaka
Ferskir ávextir
Ostar
>
Þar sem búast má við mikilli aðsókn borgar sig að panta borð strax í
síma 2 23 21. Verið velkomin.
HÓTEL LÖFTLEIÐIR
boði um að taka að sér stjórnar-
myndun og leiða Indland út úr
efnahagskreppu og mannskæð-
um átökum hindúa og múslima.
Ramaswamy Venkataraman for-
seti fól Gandhi stjórnarmyndun en
hann afþakkaði og sagðist heldur
myndu kjósa að styðja stjóm flokks-
brots Chandars Shekhars.
Shekhar bauðst í byijun vikunnar
til að mynda stjórn en hefur ekki
verið kvaddur á fund forsetans og
í gær sagði talsmaður Venkatara-
mans að ekki væri að honum kom-
ið enn. Chekhar er leiðtogi hóps
þingmanna sem klofið hafa sig frá
Janata Dal, flokki Vishwanaths
Prataps Singhs forsætisráðherra
sem sagði af sér í fyrradag eftir
að hafa orðið undir í atkvæða-
greiðslu á þingi um vantrauststil-
lögu. Greiddu 346 þingmenn at-
kvæði gegn stjórninni en aðeins 142
með.
Krishan Advani, hinn herskái
leiðtogi hindúa, sagðist einnig hafa
hafnað boði um að mynda stjórn
en flokkur hans, Bharatiya Janata,
er orðinn næst stærstur á þingi.
Advani sagðist vilja að efnt yrði
til nýrra þingkosninga vegna þeirr-
ar stöðu sem upp væri komin en
forsetinn er sagður afhuga því
vegna hatrammra deilna hindúa og
múslima undanfarna tvo mánuði.
Yfírvöld létu hlera
símtöl Norieg-a
New York. Reuter.
LÖGFRÆÐINGAR Manuels Antonios Noriega, fyrrum einræðisherra
í Panama, sögðust í gær ætla að fara fram á að ákærurnar á hend-
ur honum yrðu felldar niður á þeim forsendum að bandarísk sljórn-
völd hefðu látið hlera einkasímtöl hans, að sögn bandarísku frétta-
stofunnar Cable News Network.
f V:
0
V
Fréttastofan.
kvaðst hafa und-
ir höndum hljóð-
ritanir af sam-
tölunum sem
stjórnvöld teldu
sanna að Nor-
iega hefði rætt
við félaga sína í
Panama um að
undirbúa endur-
komu hans
þangað.
En fréttastofan átti einnig viðtal
við Frank Rubino, aðallögfræðing
Noriega, þar sem hann staðhæfði
að stjórnvöld hefðu líka látið hlera
Noriega
og hljóðrita samtöl Noriega við veij-
endur sína.
„Þetta er óskammfeilið brot á
stjórnarskrárvemduðum rétti skjól-
stæðings míns,“ sagði Rubino.
Hann bætti við að útilokað væri
að hér hefði verið um slys að ræða
þar sem samtölin hefðu verið svo
löng.
Samkvæmt bandarískum lögum
mega stjórnvöld hlera samræður
fanga, ef þeir eru grunaðir um að
vera að undirbúa afbrot, en undir
engum kringumstæðum er leyfilegt
að hlera samtöl fanga við lögfræð-
inga þeirra.
Filippseyjar:
Bandarískar orrustu-
þotur á brott á næsta ári
Manila. Reuter.
Bandarísk stjórnvöld tilkynntu
á miðvikudag að allar orrustu-
þotur Bandaríkjanna yrðu fjar-
■ MOSKVU - Maðurinn sem
hleypti af tveimur skotum við há-
tíðahöld á Rauða torginu í fyrradag
í tilefni af 73 ára afmæli byltingar
bolsévíka, verður ákærður fyrir til-
raun til að fremja hermdarverk.
Talsmaður sovésku örggislögregl-
unnar, KGB, sagði að byssumaður-
inn væri 38 ára atvinnuleysingi,
fyrrum verkamaður í verksmiðju í
Leníngrad. Y firvöld hafa ekki upp-
lýst hvort hann hafi ætlað að myrða
Míkhaíl Gorbatsjov, forseta Sov-
étríkjanna, eða aðra ráðamenn en
þeir voru aðeins 150 m frá mannin-
um þegar hann hleypti skotunum
af.
lægðar frá Filippseyjum á næsta
ári. Þetta hefur verið ein megin-
krafa filippseyskra stjórnvalda í
■ viðræðum um framtíð banda-
rísku herstöðvanna.
Það var Richard Armitage, sendi-
maður Bandaríkjastjórnar, sem til-
kynnti Raul Manglapus, utanríkis-
ráðherra Filippseyja, þessa ákvörð-
un. í dag hefst ný lota í viðræðum
ríkjanna um framtíð herstöðvanna.
Manglapus fagnaði yfirlýsingunni
um orrustuþoturnar og sagðist hafa
búist við að þurfa að standa í þræt-
um um þær. Hann sagði að enn
væri ósamið um mörg atriði:
„Bandaríkjamenn vilja fá að nota
herstöðvarnar eins lengi og hægt
er en við Filippseyingar viljum hafa
þann tíma sem stystan.“