Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 25

Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 25 Kosningarnar í Bandaríkjunum: Demókratar telja sig geta sigrað Bush 1992 Washington. Reuter. FORMAÐUR kosninganefndar bandaríska Demókrataflokksins sagði í gær að úrslit þing- og ríkisstjórkosninganna sem fram fóru á þriðjudag gæfu ástæðu til að ætla að demókrötum gæti tekist að sigra George Bush Bandaríkjaforseta er hann sækist eftir endur- kjöri árið 1992. Stjórnmálaskýrendur vestra eru á einu máli um að kjósendur hafi kveðið upp afdráttarlausan áfellisdóm yfir banda- rískum sljórnmálamönnum í kosningunum en aðeins 35% þeirra sem höfðu kosningarétt sáu ástæðu til að nýta sér hann. Formaður kosninganefndar demókrata, Ron Brown, sagði úr- slitin mikið áfall fyrir George Bush Bandaríkjaforseta og kvaðst telja að forsetinn væri engan veginn ör- uggur um sigur í kosningunum 1992 en að öllu óbreyttu er fullvíst talið að Bush komi til með að sækj- ast eftir endurkjöri. Brown sagði að í kosningunum á þriðjudag hefðu demókratar færst nær því yfirlýsta markmið sínu að ná aftur völdum í Hvíta húsinu í Washington, sem þeir glötuðu í kosningunum 1980 er Ronald Reagan sigraði Jimmy Carter, þáverandi forseta Banda- ríkjanna. Repúblíkanar, flokksbræður Bush, sögðu hins vegar að úrslitin væru vel viðunandi og lögðu áherslu á að þeim hefði verið spáð mun meira fylgistapi í kosningunum. Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkjaforseta, sagði hins vegar á fundi með blaðamönnum að Bush hefði orðið fyrir vonbrigðum í kosn- ingunum. Margir stjórnmálaský- rendur í Bandaríkjunum segja að Reuter Brunarústir í Universal-kvikmyndaverinu í Los Angeles. Eldsvoði í Universal-kvikmyndaverinu: Sviðsmyndir frægra mynda eyðilögðust Los Angeles. Reuter. GIFURLEGUR eldsvoði varð í Universal-kvikmyndaverinu í Los Angeles í Bandarikjunum aðfaranótt miðvikudags en um þriðjungur versins, sem er hið langstærsta í veröldinni, varð eldinum að bráð. Svo mikið var eldhafið í kvik- myndaverinu að það tók 400 slökkviliðsmenn fimm klukkustund- ir að ráða niðurlögum hans. Meðal þess sem brann voru sviðsmyndir kvikmyndanna „Dick Tracy,“ „Back to the Future" og „The Sting“. Universal kvikmyndaverið er meðal fjölsóttustu ferðamanna- staða Bandaríkjanna. Nær það yfir átta hektara svæði og brann allt sem brunnið gat á þriðjungi þess eða 2,5 hekturum. Stinningskaldi varð til þess að gíæða bálið sem sást úr mikilli íjarlægð. Þá voru allar sviðsmyndirnar sem brunnu úr timbri. Talsmenn kvikmyndafyrirtækis- ins sögðu að tjón þess næmi tugum milljóna dollara. Engar fregnir fóru af mannatjóni eða slysum á fólki í brunanum. Eldsupptök eru ókunn. Finnar og EB: Umsókn um aðild sögð vera ótímabær Helsinki. Reuter. UMSÓKN um aðild að Evrópubandalaginu (EB) er ekki í deiglunni, sagði í yfirlýsingu frá finnska jafnaðarmannaflokknum, stærsta stjórn- arflokki Finnlands, í gær. í yfirlýsingu flokksins var hvatt til þess að samningar Fríverslunar- bandalags Evrópu (EFTA) og EB um evrópska efnahagssvæðið (EES) yrðu til lykta leiddir sem fyrst. Finnar eiga aðild að EFTA og af hálfu finnsku ríkisstjórnarinnar, en að henni standa þrír flokkar, hefur verið sagt að aðild að EB stangaðist úrslitin séu í senn áfall fyrir forset- ann og siðferðislegur sigur fyrir Repúblíkanaflokkinn. Horfa menn þá einkum til þess að flokkurinn tapaði ríkisstjórakosningum bæði í Texas og Florida þrátt fyrir þann stuðning sem forsetinn veitti fram- bjóðendum repúblíkana í ríkjum þessum. Tapið í þingkosningunum var á hinn bóginn minna en menn höfðu ætlað en síðdegis í gær hermdu fréttir að demókratar hefðu bætt við sig níu mönnum í fulltrúa- deildinni í Washington. Gangi það eftir munu þingmenn demókrata í þeirri deild alls verða 267 gegn 167 repúblíkönum og einum sósíalista sem vann óvæntan sigur í Ver- mont-ríki. Demókratar unnu hins vegar eitt sæti í öldungadeildinni og hafa þar nú 56 þingmenn gegn 44 repúblíkönum. Mörg helstu dagblöð Banda- ríkjanna túlkuðu niðurstöður kosn- inganna á þann veg í gær að al- menningur hefði lýst yfir van- trausti á bandaríska stjórnmála- menn. Almenn svartsýni væri ríkjandi, menn teldu horfurnar á vettvangi efnahagsmála dapurlegar og vildu sýnilega draga úr afskipt- um stjórnmálamanna. Sú vel þekkta staðreynd að bandarískir kjósendur væru almennt og yfirleitt andvígir hvers kyns skattahækkunum hefði enn á ný sannast auk þess sem al- menningi væri sýnilega farið að ofbjóða auglýsingamennskan og óhófið sem einkenndi kosningabar- áttu í Bandaríkjunum. ATH.! Vegna mikillar eftirspurnar bjóóum vió nú dagtíma meó barnapössun. Hringið og fóið upplýsingar ísímo 83730. Suðurveri, s. 83730 Hraunbergi, s. 79988 á við hlutleysisstefnu þjóðarinnar. „Spurningin um aðild Finnlands að EB er ótímabær því bandalagið er ekki tilbúið að taka við nýjum aðildarríkjum og ekki liggur fyrir hvaða skyldur og kvaðir bandalagið mun setja aðildarríkjunum á sviði öryggis- og utanríkismála," sagði í yfirlýsingu Jafnaðarmannaflokksins. Sveinn Hjörtur Hjartarson leggur áherslu á: ★ að dregið verði úr ríkisumsvifum á öllum sviðum þjóðlífsins ★ að sjávarútvegur og önnur atvinnu- starfsemi eflist í Reykjaneskjördæmi ★ að atkvæðisréttur verði jafnaður, t.d. með einmenningskjördæmum eða fækk- un þingmanna ífámennustu kjördæ- munum ★ að tollar í milliríkjaviðskiptum lækki og þar með vöruverð ★ að skynsamlegt og raunhæft hús- næðislánakerfi fyrir ungt fólk nái fram að ganga Ég heiti á alla Reyknesinga að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæð- isfiokksins laugardaginn 10. nóv. nk. og efla þannig lýðræðið í landinu. Jafnframt fer ég fram á stuðning þinn til að skipa þriðja sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi við næstu alþingiskosningar. Ég heiti því á móti að leggja öllum þeim málum lið á Al- þingi, sem til heilla horfa fyrir íslenskt þjóðfélag og jafn- framt leggja mig allan fram til þess að efla veg Reykjaneskjördæmis.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.