Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 30

Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 Umræður um skýrslu utanríkisráðherra: Utanríkisstefna við breyttar aðstæður UTANRÍKISRÁÐHERRA, Jón Baldvin Hannibalsson, gerði samein- uðu alþingi grein fyrir skýrslu sinni um utanríkismál síðdegis í gær. Menn voru helst einhuga um að miklar breytingar hefðu átt sér stað og ættu eftir að eiga sér stað, en þá greindi á um túlkun og afleiðingar þessara atburða. Utanríkisráðherra sagði síðustu sex mánuði hafa verið örlagaríka, í Evrópu hefðu orðið afgerandi umskipti og í þeirra kjölfar væri verið að leggja grunn að nýrri skip- an örryggismála í Evrópu. Ráðherra fór í nokkru máli gegnum einstaka kafla skýrslunnar. T.d. fagnaði hann því að sameinað Þýskaland yrði innan vébanda Atlantshafs- bandalagsins, NATO. Utanríkisráð- herra taldi að bandalagið myndi áfram gegna veigamiklu hlutverki við að varðveita jafnvægi og stöð- ugleika í Evrópu. Þrátt fyrir sam- komulag um afvopnun yrðu Sov- . étríkin áfram langstærsta herveldið á meginlandi Evrópu. En utanríkis- ráðherrann benti á að öll Evrópu- ríki þyrftu að vera virk í ákvörðun- um um nýja skipan öryggismála í álfunni og í því samhengi hefði Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu hafa úrslitaþýðingu en áréttaði að Ráðstefnan myndi ekki leysa NATO af hólmi. Jón Baldvin sagði ánægjulegt að Sameinuðu þjóðunum hefði vaxið ásmeginn og fór nokkrum orðum um Samtökin og störf íslendinga þar. Einnig var innrás íraka í Kúvæt harðlega for- dæmd. Um stjórnmálasamband við Eystarsaltsríkin var m.a. sagt að með öllu óvíst væri að Eystrasalts- ríkin geti á þessari stundu staðið við skuldbindingar gangvart örðum ríkum að þjóðarrétti en það kom líka fram að viðurkenning íslands á fullveldi þeirra árið 1922 væri enn í fullu gildi. Utanríkisráðherrann benti á að samingar um takmörkun vígbúnað: ar í Evrópu verða ekki heilstæðir nema þeir taki einnig til vígbúnaðar á höfunum en umræðan um þau mál og traustvekjandi aðgerðir hafi enn ekki verið til lykta leidd. Atlant- hafsbandalagið hafi hvorki sam- • } þykkt að hefja slíkar viðræður né hafnað því endanlega. í lokasamantekt sagði Jón Bald- vin m.a. að aðildin að NATO og tvíhliða varnarsamningurinn milli íslands og Bandaríkjanna hafi verið hornsteinn íslenskrar öryggis- og utanríkistefnu. Á íslandi hefði verið litið á þetta sem tvö aðskilin en tengd mál. Atburðir á pólitíska svið- inu kynnu að leiða til'þess skilin milli þessarra tveggja stoða varnar- stefnunnar skerpist. Utanríkisráð- herra hvatti til þess síðar í ræðu sinni að huga að varnar- og við- skiptahagsmunum Islands í víðu samhengi. í varnarmálum hefði tvíhliða varnarsamningurinn við Bandaríkin aukist að mikilvægi en jafnframt væri stærsti markaður fyrir útfiutning okkar innan Evr- ópubandalagins. Hjá bandamönn- um okkar í Vestur-Evrópu væru horfur á frekari samtvinnun efna- hagssamstarfs og samvinnu á sviði öryggismála. En hjá okkur væri hætt við að þessir tveir þættir greindust að í auknum mæli. NATO áfram vettvangur varnarsamstarfs Þorsteinn Pálsson (S/Sl) var í meginatriðum sáttur við það efni og stefnu sem fram kemur í skýrslu utanríkisráðherra. En taldi nokkur áhöld um að hún væri fyllilega í samræmi við skoðanir allra Alþýðu- bandalagsmanna sem hefðu lagt niður stefnuskrá sína. Þorsteinn taldi að Ráðstefnan um öryggi og samvinnu í Evrópu myndi ekki leysa NATO af hólmi. Atlants- hafsbandalagið yrði áfram vett- vangur fyrir varnarsamstarf. Þor- steinn gagnrýndi nokkuð það sem fram kemur í skýrslunni að ríkis- stjórnin hefur aukið hlut ríkisins í íslenskum Aðalverktökum og sagði eðlilegt að bjóða starfsemina út á fijálsum og opnum grundvelli al- mennra útboða, þær breytingar sem gerðar hefðu verið stefndu í þveröf- uga átt. Einnig taldi hann að það væri Alþingis; fjárveitingarvaldsins að ákveða hvernig ríkisfé skyldi varið. Þorsteinn ítrekaði þá skoðun sýna að íslendingum bæri að viður- kenna Eystrasaltsríkin hið fyrsta. Einnig var utanríkisráðherra gagn- rýndur fyrir að gera ekki nægjalega skýra grein hvernig skyldi bregðast við breytum aðstæðum í samskipt- um okkar og tengslum við Evrópu- bandalagið, Hið evrópska efnahags- svæði væri einungis bráðabirgða- lausn. Þorsteinn var þeirrar skoðun- ar að gefa ætti olíuviðskipti frjáls. Draga úr umferð kjarnorkukafbáta Steingrími Hermannssyni for- sætisráðherra var það áhyggjuefni að afvopnun á höfunum skuli enn ekki vera inni í afvopnunarviðræð- um lét þess getið að fregnir hermdu að kafbátar, kjarnorkuknúnir sem farist hefðu tærðust mun fyrr en áður hefði verið í láti veðri vaka og íslendingar hlytu að leggja áherslu á að úr umferð kafbáta drægi. Forsætisráðherra ítrekaði að eldri viðurkenningar’á fullveldi Eystarsaltsríkjanna væru í gildi og íslendingar ættu að hjálpa þessum þjóðum s.s. í viðskiptum. Steingrím- ur fordæmdi blóðbað á hernumdum svæðum undir stjórn ísrael. Steingrímur var þess fullviss að værum á réttri braut í viðræðum um evrópska efnahagssvæðið. Um olíukaupin frá Sovétríkjunum lét hann þess getið að olíufélögin hefðu beinlínis óskað eftir þessum við- . skiptum og engin væri neyddur til þessarra kaupa. Steingrímur fór ekki í launkofa með þá skoðun sína að þróunarhjálp íslendinga væri til skammar. Sagði það vera sína hug- mynd að við legðum hluta af okkar tekjum í alveg sérstakan sjóð til að koma skikki á þessi mál. Steingrimur tjáði sig sammála því sem fram kæmi í skýrslunni að hlutverk varnarstöðvarinnar á ís- landi breytist, eftirlitshlutverk hennar yrði þýðingameira. Og vel kæmi til greina að íslendingar hefðu frumkvæði að viðræðum um breytta stöðu okkar. Kristín Einarsdóttir (SK/Rv) sagði m.a breytingar síðasta ár gefa tilefni til bjartsýni, óvina- ímyndin hyrfi en skýrslan bærj ekki friðarvilja. Kristin gagnrýni einnig þann skilning að samstarf á sviði viðskipta og hernaðar færi saman. íslendingar ættu að standa utan við hernaðarbandalög og ekki binda sig um of í viðskiptum. Kristín lét þess getið að ekki þjónaði okkar hags- munum að tengast Evrópubanda- laginu of nánum böndum. % m.mSi. ^kj.129 UTANRÍKISMÁL Skýrsla Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra til Alþingis haustið 1990 Reykjavfk Nóvembcr 1990 Þarf nýja utanríkisstefnu Ólafur Ragnar Grímsson ijár- málaráðherra fór nokkrum orðum um þær breytingar í heimssmálum sem hefðu og ættu sér stað og taldi skilning aukast á því að þörf væri á nýjum vinnubrögðum og lífshátt- um jarðarbúa. Einnig sagði Ólafur Ragnar m.a. að ljóst væri að sú ógn sem hefði verið orsök fyrir stofnun NATO væri ekki lengur fyrir hendi. Reyndar væri álitamál hvort Sov- étríkin í sinni núverandi mynd yrðu til innan fáeinna ára. Að minnsta kosti væri Varsjárbandalagið í upp- lausn og sameiginlegur herafli, sem beint yrði gegn Vestur-Evrópu væri ekki til lengur. Kúvæt-deilan sýndi að stórveldin hefðu sameiginlegra hagsmuna að gæta og verðust þeim hættum, sem ógnuðu sameiginlegu öryggiskerfi þeirra. Ólafur Ragnar sagði að þessir þættir hlytu að hafa mikil áhrif á utanríkisstefnu íslendinga. Tíma- bært er að viðurkenna að meginfor- sendurnar fyrir stofnun Atlants- hafsbandalagsins og varnarsamn- ingnum við Bandaríkin eru ekki lengur gildar, sagði hann. Ólafur sagði deilur um utanríkismál hafa skipt íslenzku þjóðinni í tvær fylk- ingar í hartnær 40 ár, en nú væru forsendur þessara deilna úr sög- unni. Skylda þingmanna og þjóðar- innar væri að hefjá tímabærar og naúðsynlegar umræður um nýja utariríkisstefnu. Ólafur sagðist telja að öryggis- samstarf Sameinuðu þjóðanna, sem gert hefði verið ráð fyrir við stofnun þeirra, væri nú fyrst farið að virka. Nú stæðu íslendingar frammi fyrir því hvorí þeir væru tilbúnir að leggja fram fjármuni til að byggja þetta öryggiskerfi upp, fjármagna friðargæzlusveitir, búnað þeirra og aðstöðu, þótt í litlum mæli væri. „Ég segi. það hiklaust hér að ég tel það bæði rétt og óhjákvæmilegt að Islendingar sýni stuðning sinn við nýtt öryggiskerfi SÞ með því að vera reiðubúnir að leggja fram verulegt fé til þess að standa undir kostnaðinum við slíkar Öryggis- svejtir," sagði hann. Ólafur Ragnar gérði þróunarað- stoð íslendinga að umtalsefni og tók. undir hugmynd forsætisráðherra, um að láta greiða atkvæði í þjóðar- atkvæðagreiðslu um það hvort hver íslendingur skyldi greiða ákveðna upphæð í þróunarverkefnasjóð. Ól- afur sagðist telja að þetta þing ætti að taka afstöðu til þessarar hugmyndar. Féð ætti að renna beint í þróunarverkefnasjóð óskert, en ekki koma f ríkissjóð. Þorhildur Þorleifsdóttir (SK/Rv) tók til máls, m.a. gagnrýndi hún „ódugnað og siðferðisbrest", þ.e.a.s. lág framlög til þróunar- hjálpar. Einnig benti hún á að ekki þurfti alltaf mikið að koma til. Anna Ólafsdóttir Björnsson (SK/Rn) sagði nú væri talað um afvopnun og enn einu sinni sætum við Islendingar hjá. Jón Baldvin Hannibalsson steig í ræðustól til að gera ýmsu skil sem fram hafði komið í umræðunni og kom víða við í ræðu sinni t.d. um Gatt-samninganna o.fl. Um hugs- anlega uppsögn tvíhliða varnar- samningsins við Bandaríkin sagði hann að núverandi ríkisstjórn hefði ekki verið mynduð um það mál. Að frumkvæði forsætisráðherra var sett fram tillaga um að mynda starfshóp að skoða hvaða kostir væru fyrir hendi til að nýta betur þá þá aðstöðu sem íslendingar hafa á Keflavíkurflugvelli til að efla at- vinnulíf þar. í tengslum við þá til-. lögu reifaði fjármálaráðherrann þau sjónarmið að setja bæri upp hóp manna tii að skoða ný viðhorf varð- andi framtíð og hlutverk varnarliðs- ins. En það var ekki tillaga heldur hugleiðingar. Jón Baldvin sagði Þorvald Garðar Kristjánsson um margt hafa flutt athyglisverða ræðu fyrr um daginn um að ekki væri nægjanlega fjallað um hlutverk varnarstöðvarinnar á íslandi í ljósi breyttra aðstæðna. Og hvort við sjálfir áttum að-leysa fleiri verkefni af hendi. Jón Baldvin sagði að það sem gerst hefði og væri að gerast mynd koma til með að hafa áhrif á hlutverk hennar sem eftirlitsstöðar. Meginhlutverk henn- ar hefði verið að tryggja öryggi siglingaleiða, liðs- og vopnaflutn- inga og því hlutverki þyrfti áfram að sinna. Ef bandarískur hér færi frá Evrópu yrði enn þýðingarmeira að tryggja flutninga á liðsauka ef á reyndi. Ef svo friðvænlegt yrði samningar tækjust um afvopnun á' höfunum, yrði að hafa með þeim eftirlit ogjiað myndi kalla á eftir- litsstöð á Islandi. Afmæliskveðja: Jens í Kaldalóni „Það þarf ekki að segja þá sögu, sem gerðist eftir síðustu kosning- ar. Allir okkar ágætu alþingismenn gerðu þá svo rækilega í bólið sitt að eftir verður munað — og afleið- ingar þess koma nú fram í óvitleg- asta ráðleysi. Það var hreint sem þeir teldu sig kosnir hefðu verið til að snúast hver um annan þveran í hringekju vitleysunnar ... og því vitna ég í róðrarveru mína frá Bol- ungarvíkur-MöIum forðum daga, þar sem hver höndin annarri hjálp- aði, þá í nauðir rak, að svo mættu okkar ágætu þingmenn virða manngildi sitt og tiltrú alla til þeirra borna, — ... og landsfólkið ætlast til að þeir leggi að hönd og huga.“ Þessar hressilegu glefsur eru úr einni af ótalmörgum þjóðmálagre- inum Jens í Kaldalóni, sem birtist í Morgunblaðinu 10. febrúar 1983. Eins og svo oft fyrr og síðar þá er Jens að segja alþingismönnum þjóðarinnar til syndanna á sínu kjarnmikla máli í postillustíl — og nú er þessi heiðurskarl áttræður í_ dag, 9. nóvember. Sonur hjónanna Sigríðar Helgu Jensdóttur og Guð- mundar Engilbertssonar bónda á Lónseyri við Kaldalón í Snæfjalla- hreppi, norðanvert við ísafjarðar- djúp. Guðmundur var fjórði ættlið- urinn sem þar bjó og höfðu allir setið jörðina sem leiguliðar þangað til hann keypti hana stuttu eftir að hann hóf búskap. Sigríður Helga Jensdóttir fædd- ist og ólst upp í Bolungarvík. Gift- ist þar Hreggvið Þorleifssyni báta- formanni, hann fórst með bát frá Isafirði, sem hann reri frá Hnífsdal. Þau Sigríður og Hreggviður eign- uðust tvö börn, Rögnvald Ágúst og Elísabet, en hún giftist síðar Elíasi Borgarssyni á Tyrðilmýri. Ekkjan réðst síðan sem vinnukona með tvö ungbörn til Kristjáns Sig- urðar bónda Ólafssonar á Laugal- andi í SKjaldfannardal í Nauteyrar- hreppi. Þess má geta í framhjá- hlaupi, að Hjörtur skáld og skóla- stjóri Kristmundsson (bróðir Steins Steinars) fæddist á Laugalandi og ólst upp til sjö ára aldurs hjá Kristj- áni bónda, en var þá tekinn í fóst- ur af Halldóri bónda Jónssyni á Rauðamýri, sem Hjörtur rómaði mjög alla tíð. Nokkru eftir vistráðningu Sigríðar Helgu að Laugalandi varð amma Jens, Ólafía Þórðardóttir, fyrir því óláni að lærbrotna. k heimilinu voru einungis hjónin, Ól- afía og Engilbert bóndi og fræða- þulur Kolbeinsson og Guðmundur sonur þeirra, þá ungur maðut'. Síðan var leitað til Kristjáns bónda á Laugalandi og það varð úr að Sigríðut' Helga fékk gefín eftir vist- arráðin og fór að Lonseyri. En Guðmundur lét konuna ekkert frá sér fara eftir það og þau giftust og eignuðust ellefu börn. Jens er næstyngstur, en yngstur er Engil- bert bóndi á Hallsstöðumí Nauteyr- arhreppi, f. 16. des. 1912. Jens bóndi fór líkt að og Guð- mundur faðir hans, því að kona hans Guðmunda Marsibil Helga- dóttir, kom sem kaupakona að Lónseyri og höfðinginn sleppti ekki af henni hendinni eftirþað. Foreldr- ar Guðmundu hétu Pálína Sigurð- ardóttir og Helgi Jonsson. Helgi, sem var kunnur hagyrðingur vestra var ættaður úr Gufudalssveit, en kenndi sig ávallt við Súðavík, þar sem hann bjó og starfaði um ára- bil. Árið 1928 gekkst hann fyrir stofnun Verkalýðs- og sjómannafé- lags Álftfirðinga í Súðavík ásamt Halldóri Guðmundssyni og var rit- ari í fyrstu stjórn þess, en Halldór formaður. — Guðmunda og Jens eiga sex börn, tvo syni og fjórar dætur, sem eru öll gift og eiga börn. Auk þess ólu þau upp fóstur- börn. Á bernskuárum Jens þurftu börn að taka snemma til hendinni og hann var ekki nema átta ára þegar honum var sagt að sitja yfir kvíám. Eitt sinn komst hann svo að orði við mig er hjásetuna bar á góma. „Ég hafði verið nestaður með köku, smjöri og mjólk, en er ég kom fram- fyrir túnið settist að mér einmana- kennd og kvíði og brast í grát. Ég hef aldrei ákallað almættið jafn heitt, því ég Iapti guðsbænir ala leið fram að Miðgili". Framan af ævi stundaði Jens sjómennsku og daginn eftir ferm- ingu réðst hann í skipt'úm til bræð- ranna á Tyrðilmýri, Elíasar og Halldórs Borgarssona. Eftir það stundaði hann hana meðal annars frá Hnífsdal, Bolungarvík og Flat- eyri, en tvítugur að aldri, 1930, tók hann við búi á Lónseyri. — Til gamans má geta þess, að árið eftir seldi Jens tvö lömb í Sláturfélag Vestfjarða og fékk greiddar 12 kr. fyrir skrokkinn. Með 24 krónur fór hann í kaupfélagið á ísafirði og keypti sér þurrabatterí í útvarps- tækið fyrir upphæðina, en viðtæki kostaði þá 150 krónur. Svo eru menn að tala um dýrtíð á íslandi nútímans! Kaldalón var ekki brúað fyrr en 1964 og fram að þeim tíma þurfti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.