Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 35

Morgunblaðið - 09.11.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 35 gamli“ hafði skokkað léttfættur eins og smaladrengurinn forðum í Reykjadal. Eftir að við Þórunn eignuðumst jeppann hefur tilhlökkunin hvert sumar verið öðru fremur sú að fara í ferð með Braga um óbyggð- ir. Aðdragandinn er þannig: Upp úr áramótum er lagt fyrir hann að finna einhveija leið sem sjald- farin er og helst sem enginn veit um að jeppar geti komist, að ekki sé nú talað um að á korti séu ein- ungis reiðslóðir merktar. Þetta lyftir ekki síst sjálfsánægju jeppa- eigandans að ferð lokinni, því að þótt hann geti aldrei munað lands- lag með nöfnum kann hann vel að segja frá ágæti fararstjórans. Svo er það, oftast í ágúst, að fyrir ligg- ur hernaðaráætlun, oftast valkvæð á ýmsa vegu, þar sem allt er út- reiknað með tilliti til bensíns og brúsa, matar og gistingar. Svo er bara lagt í hann. Þess verður þó að geta að kvöldið fyrir ferðadag byijar Bragi að ganga um gólf og hefur hárfína umræðu um væntan- legan fótaferðartíma tengdasonar- ins. Þá er t.d. tekið svo til orða: „Varstu kannski að hugsa um að fara upp úr Eyjafirði? Þar er fal- legt eldsnemma á morgnana." Eða: „Eg held að hann verði skelli- bjartur fram að hádegi.“ Loks: „Þórunn var eitthvað að tala um að þið ætluðuð snemma.“ 0g þá hrekk ég við. Ég hafði kristilegan fótferðartíma í huga, svona um klukkan niu. Það þýðir klukkan sex á úri Braga. Og þá er að drepa tímann. Það gerir Bragi með því að fara inn í Kjarnaskóg í sitt daglega morgunskokk. Það er svo við manninn mælt að Bragi er búinn að taka sig til, fá veðrið, skrá það í dagbókina, hlusta á fréttír, hita kaffi og leggja á borð, þegar bílstjóranum þóknist að lyfta höfði frá kodda. A ferðalagi með Braga er ekki þörf á landakorti því að hann kann landið betur en lært verði af bókum eða kortum. Gildir þá einu hvort farið er um byggð, afrétti eða ör- æfi. Meira að segja man hann flest bæjanöfn, að mér finnst hvar sem er á landinu, nýbýla jafnt og gró- inna höfuðbóla. Það er því engin tilviljun að hann hafi staðið að stór- virkinu Göngum og réttum. Mér er til efs að annar hefði getað unnið það verk. Ég kynntist Braga fyrst 19 ára menntaskólapiltur á Akureyri er ég sótti dóttur hans, bekkjarsystur mina og konuefni, í föðurrann. Siðan finnst mér ég hafa átt annað heimili á Bjarkarstíg 7. Fyrir óro- fatryggð, stuðning og vinsemd hans og Helgu, leyfi ég mér nú að þakka opinberlega fyrir mína hönd og minna. Mun þó Braga eflaust finnast ég gera honum bjarnargreiða með þessum skrif- um. Þá reynir á æðruleysið. Hvað sem um það er, verður í dag oft hellt.upp á í Bjarkarstíg 7. Þá verður nú tengdamóðir mín aldeilis í essinu sínu, því hún er konan eins og konan mín sem hef- ur haft-það að leiðarljósi í lífinu að „kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt“. Svo höldum við Þórunn áfram að hlakka til næstu öræfaferðar. Og þá verður nú gaman. Björn Þ. Guðmundsson Það er ekki tryggt að verkfæri iðnaðarmanna séu notuð á löglegan hátt! En meö nýju IÐNAÐARMANNATRYGGINGUNNI frá SJÓVÁ-ALMENNUM geta iðnaöarmenn ;ging tryggt sig eins og best verður á kosið. IÐNAÐARMANNATRYGGINGUNNI eru allar helstu tryggingar sem iðnaðarmenn þurfa, settar saman á eitt skírteini. Allir góðir fagmenn ættu að kynna sér þessa langþráðu nýjung strax. SJOVAOrrALMENNAR REX skrifstofuhúsgögn fyrír heimilið og fyrirtækið AYIQ * W%1 ^ AX/S HIJSGÖGN HF. | SMIÐJUVEGI9, KÓPAVOGI, SÍMI 43500. 3 ° 1 gerkerfi lyrír irubreltí gfleira ii í ii Með þessu stórkostlega fyrirkomulagi næst hámarksnýting á lagersvæði. Mjög hentugt kerfi og sveigjanlegt við mismunandi aðstæður. Greiður aðgangur fyrir lyftaraog vöruvagna. Ávallt fyrirliggjandi. Leitið upplýsinga. UMBOÐS OG HEILDVERSLUN SSpaasmssr BÍLDSHÖFÐA 16 SÍMI 6724 44 ...hja ok ur J GAMLA KOMPANilð rKRISTJÁN SIGGEIRSSON Hesthálsi2-4 ) Reykjavík. Sími 91G72110

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.