Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 38

Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÖVEMBER 1990 * Oskar G. Gissurarson rafvirki - minning Mig langar til að minnast með fáeinum orðum vinar míns og sam- starfsmanns, Óskars Gísla Gissur- arsonar, sem lést 3. nóvember sl. Óskar átti við vanheilsu að stríða um margra ára skeið en það mót- læti bar hann með þvílíku jafnaðar- geði og þolinmæði að einstakt verð- ur að teljast. Ég hef ætíð talið það mikla gæfu að hafa fengið að kynnast Óskari þegar ég hóf störf við ljósadeild Þjóðleikhússins en þar hafði Óskar unnið sem ljósamaður sfðan 1966. Betri leiðbeinanda og samstarfs- mann get ég ekki hugsað mér og tel að þar hafí ráðið miklu hæfileiki hans til samstarfs við aðra að ógleymdri góðri skapgerð sem ekk- ert fékk raskað. Það er mikils virði að hafa notið nærveru Óskars Giss- urarsonar bæði persónulega og í starfi. Ég færi frú Hólmfríði og ljöl- skyldunni mínar innilegustu samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning Óskars Giss- urarsonar. Páll Ragnarsson „Hann Óskar er dáinn, hann skildi við í nótt,“ sagði móðir mín við mig í símann síðastliðinn laugar- dag. Við vissum öll að hveiju dró en dauðinn kemur samt alltaf ilía við mann. Ég fékk hnút í magann og upp í huga mér komu fjölmarg- ir ástvinir Oskars sem nú eiga um sárt að binda; eftirlifandi eiginkona hans, Hólmfríður Gunnlaugsdóttir, Margrét mágkona mín og Steinar bróðir í Noregi, bróðursonur minn Hrafn og litli sólargeislinn hún Ása, sem aldrei auðnaðist að sjá afa sinn, synir þeirra Óskars og Hólmfríðar, Grétar og Gylfi, og fjöl- skyldur þeirra. Elsti bróðir minn,_ Steinar, kynnt- ist Margréti dóttur Oskars og Hólm- fríðar á unglingsárum. Okkur yngri bræðrunum varð Margrét strax sem kær systir og foreldrum mínum, Guðlaugi Þorvaldssyni og Kristínu Kristinsdóttur, hefur hún alla tíð verið sem besta dóttir. Raunar var ég svo ungur þegar hún kom inn í fjölskylduna að ég man ekki tilver- una öðruvísi en Magga, eins og hún er jafnan kölluð, hafi verið hluti af fjölskyldunni, _ Ég þekkti Óskar aldrei náið. En hann kom mér fyrir sjónir sem hóg- vær og lítillátur maður sem unni Ijölskyldu sinni mest af öllu. Hann var bamgóður með afbrigðum og fengum við bræðurnir að njóta þess í æsku okkar. Ég man alltaf eftir tilhlökkuninni þegar Óskar bauð okkur í Þjóðleikhúsið, þar sem hann starfaði sem rafvirki og ljósamaður uns heilsan gaf sig. Dimmalimm, Litla-Kláus og Stóra-Kláus og önn- ur öndvegisverk leikbókmenntanna sáum við á fjölunum sem hjálpaði okkur án vafa að skilja betur það furðuverk sem tilveran var í okkar augum. í hugum okkar bræðranna var Óskar góður maður. Ég sá Óskar sjaldnar hin seinni ár eftir að erfið veikindi fóru að hijá hann, sem urðu honum svo að aldurtila. En þótt heilsunni hrakaði var alltaf til staðar blikið í augunum sem einkenndi alla tíð þennan góð- iega mann. Ég fann líka svo vel þá djúpu virðingu og væntumþykju sem Steinar bar til tengdaföður síns. Sonur Margrétar og Steinars, Hrafn, dvaldist jafnan hjá afa sínum og ömmu í Bólstaðarhlíðinni þegar hann kom hingað frá Noregi til að dvelja sumarlangt. Hrafni þótti svo undurvænt um afa sinn og ég man hvað honum þótti sárt að þurfa að kveðja hann þegar hann fór aftur til Noregs í ágúst. Missir Hrafns er mikill. Hólmfríður er aðdáunarverð kona. Án allrar aðstoðar sinnti hún manni sínum af ástúð og umhyggju í veikindum hans allt fram í andlát- ið. Ég veit að það var erfitt og stundum svo að hún var nánast ráðþrota. En aldrei lét hún bugast. Nú sér hún á eftir ástríkum og góðum eiginmanni en getur huggað sig við ljúfar minningar sem hann skilur eftir sig. í dag verður til moldar borinn góður maður. Guð blessi minningu hans. Styrmir Guðlaugsson María G. Bjöms- dóttir - Kveðjuorð Fædd 4. nóvember 1912 Dáin 2. nóvember 1990 Með örfáum orðum langar okkur til að kveðja Maríu, sem við vorum svo gæfusöm að fá að kynnast. Garðar afi kynnti okkur fyrir henni fyrir rúmu ári, en um það leyti flutti hann inn til hennar á Haga- melinn. í fáum orðum má segja að María hafi heillað okkur , öll frá fyrstu stundu með glaðværð sinni, já- kvæðni og einlægni. Ekki máttum við stíga inn fæti án þess að þiggja kaffisopa, en kaffisopa fylgdi hlaðið borð með kræsingum. Þrátt fyrir veikindi sín síðustu mánuðina var María alltaf jákvæð og glaðvær og leit björtum augum á framtíðina. Fallegra og einlægara par en Maríu og Garðar höfum við ekki séð og er missir hans mikil. Biðjum við góðan Guð að styrkja Garðar afa í söknuði sínum svo og alla ættingja Maríu og vini. Brynja og Garðar í dag verður til moldar borin kær vinkona okkar hjóna, María Gíslína Björnsdóttir frá Norðfirði. Hún var fædd og uppalin í Gröf í Reyðar- firði, Suður-Múlasýslu, dóttir hjón- anna Bjöms útgerðarmanns Gísla- sonar og Rannveigar Jonsdóttur er bjuggu í Gröf allan sinn aldur. Þar ólst María upp á þvf myndarheimili ásamt systkinum sínum, þeim Þór- unni Elísabetu, sem kennd var við Exeter í Reykjavík og var hún gift Björgvini Jonssyni, sem kenndur var við Sæbjörgu, og Jóni Jóhanni yfirfískmatsmanni á Austurlandi, búsettum á Reyðarfírði, sem er lát- inn. Ung að árum gekk María að eiga Bjöm Jónsson, og byggðu þau sér bæinn Miðbæ í Norðfirði. Þau bjuggu þar við góð efni og í harh- ingjusömu hjónabandi þar til Björn lést árið 1964. Þeim varð eigi barna auðið, en tóku að sér stúlku, Sigríði Flosadóttur er þau ólu upp og gaf lífí þeirra fyllingu. Hún var þeim sem dóttir og var mikill kærleikur þeirra á milli. Árið sem María varð ekkja flutt- ist hún til Reykjavíkur og festi sér íbúð við Hagamel 45 og þar bjó hún allan sinn aldur. Um sama leyti hóf hún störf á Hótel Borg við af- greiðslu í veitingasal hótelsins og vann þar til eftirlaunaaldurs. Við hliðina á íbúð Maríu bjuggu foreldrar mínir, Anna Nordal og síra Ingólfur Þorvaldsson frá Ólafs- fírði. Með þeim hófst vinátta sem entist út ævina. Eftir að faðir minn lést, 1968, styrktust vináttuböndin milli móður minnar og hennar og leið varía svo dagur að þær hittust ekki. Þegar heilsu móður minnar fór- að hraka sýndi María henni þvílíka hugulsemi og nærgætni, að með eindæmum var og ómetanlegt fyrir okkur hjónin og bræður mína, vegna fjarlægðar heimila okkar að Hagamel 45. Hún lést fyrir nokkr- um árum. María var óvenju glæsileg kona, sem geislaði af lífsþrótti og reisn. Hún var ávallt vel til höfð í klæða- burði og hefði mátt ætla að þar færi fimmtug kona en ekki 78 ára. Hún var höfðingi heim að sækja, og átti fagurt heimili, sem hún endalaust fegraði með smekklegum hlutum, svo unun var að. Dóttir hennar, sem búsett var á Sauðárkróki, fluttist til Reykjavíkur og var það Maríu kærkomið. Varla hitti maður Maríu svo að hún talaði ekki um dóttur sína og velferð henn- ar. Um eða fyrir 1980 gekk hún að eiga hinn þekkta mann Ólaf Ágúst Kristjánsson byggingameistara og fyrrverandi b'æjarstjóra í Vest- mannaeyjum. Þau voru sérlega samrýmd og áttu saman hamingju- ríka daga. Ólafur lést fyrri hluta ársins 1989 og syrgði hún mann sinn mjög, sem orð fá eigi lýst. Nú í sumar trúlofaðist hún æsku- vini sínum, Garðari Jónssyni frá Reyðarfirði. Þau áttu saman marg- ar ánægjustundir og ferðuðúst mik- ið, þar á meðal til æskustöðva fyrir austan. Þeirra samvistir urðu ekki langar, en Garðar annaðist hana með umhyggju og ástúð þá þijá mánuði er hún Iá veik á sjúkrahúsi og þar til yfir lauk. Óllu venslafólki Maríu óskum við velfamaðar og samhryggjumst vegna fráfalls góðrar og göfugrar konu, sem við viljum öll minnast. Margar ógleymanlegar stundir áttum við hjónin með Maríu og Ólafi og skiptumst á heimsóknum. Við Álfheiður og bræður mínir Ragnar og Sigurður og kona hans JÓhanna, þökkum endalausa vin- áttu og ástúð, sem María sýndi móður okkar. guð veri með henni um alla eilífð. Vilhjálmur Ingólfsson Ólöf Guðmunds- dóttir — Kveðjuorð Fædd 17. október 1912 Dáin 30. október 1990 Með nokkrum fátæklegum orð- um vil ég minnast elskulegrar mág- konu minnar Ólafar Guðmundsdótt- ur. Ólöf fæddist í Keldudal í Dýra- fírði 17. október 1912. Systkinin urðu alls sex, auk þess var á heimil- inu drengur náskyldur þeim. For- eldrar Ólafar voru Guðrún Björns- dóttir ljósmóðir og Guðmundur Guðmundsson skipstjóri. Árið 1921 fluttist íjölskyldan til Þingeyrar og ólst hún þar upp í systkinahópnum. Þegar hún hafði aldur til fór hún á Kvennaskólann á ísafirði og lauk þaðan prófi með ágætum. Fjölskyldan flytur til Reykjavíkur árið 1933 og var Ólöf í foreldrahús- um á Laugarnesveginum þar til að hún giftist árið 1936 Bjarna Jóns- syni frá Gröf í Húnaþingi. Bjarni lést fyrir nokkrum árum. Ólöf átti heima á Akureyri til dauðadags. Ekki verður sagt með sanni að líf hennar hafi verið neinn dans á rós- um. Hún missti fjögur barna sinna á unga aldri og hafði hún þá annast þau í langri veikindabaráttu. Síðar á ævinni þurfti hún enn að sjá á eftir syni sem var kominn til fullorð- ins ára og hafði lokið verkfræði- prófi og var orðinn hafnarstjóri á Akureyri og var það henni þungt áfall. En Ólöf var stórbrotin kona og segja má að hún kannski bogn- aði, en brotnaði ekki. Systkini hennar, sem látin eru: Guðmundar, Björn og Jóhannes uppeldisbróðir hennar. Þau, sem eftir lifa eru: Bergljót, Ingibjörg og Gissur. Þau búa öll í Reykjavík. Synir hennar, Jón og Stefán, búa báðir á Akureyri ásamt eiginkonum sínum, einnig býr þar fyrrverandi tengdadóttir hennar. Óll hafa þau verið nærgætin og indæl við hana í veikindum hennar, enda hefur alltaf verið mikið og gott samband í Ijölskyldunni. Ólöf var mjög ljóðelsk og kunni ókjör af vísum og kvæðum. Henni var nóg að heyra vísu einu sinni og hafði hún þá lært hana. Maður hennar átti það til að kasta fram vísu við hin ýmsu tækifæri og hefur Ólöf geymt mikið af vísum, sem þannig urðu til. Við hjónin ásamt börnum og barnabörnum færum henni innileg- ar þakkir fyrir allar þær ánægju- stundir, sem við höfum notið í sam- vistum við hana. Ekki voru sístar stundimar í sumarbústað hennar á Svalbarðseyri. Hvíli hún í friði, friður guðs hana geymi. Ingólfur Stefánsson Myrkhærða nótt, já, þú ert móðir dagsins, mjúkhent og gjöful veitir þreyttum frið, og þú ert drottning, drottning sólarlagsins, draumanna veldi, það er lágnættið. (Bjami Jónsson frá Gröf, Húnvetningaljóð.) Ólöf Guðmundsdóttir fæddist á Hrauni í Keldudal í Dýrafirði, en þar bjuggu foreldrar hennar, Guð- rún Björnsdóttir ljósmóðir í Þing- eyrarhreppi og Guðmundur Guð- mundsson skútuskipstjóri. Þau áttu sex börn og var Ólöf þriðja í röð- inni. Auk þess ólu þau upp systur- son Guðrúnar. Að Ólöfu stóðu sterkir stofnar. Meðal forfeðra hennar og náinna ættingja í báðar ættir eru bæði harðduglegar konur og nafnkunnir sjómenn og skip- stjórar, fiskimenn og farmenn, hörku lið. Það varð að duga eða drepast á þeim slóðum hér á árun- um. Ólöf lærði snemma að vinna og leggja sitt af mörkum til lífsbarátt- unnar og það mátti greina alla tíð, svo hörkudugleg sem hún var auk annarra góðra persónueinkenna sem síðar skal greint. Sextán ára fluttist Ólöf úr, for- eldrahúsum til Reykjavíkur til starfa þar. Skömmu síðar fór hún í Kvennaskólann á ísafirði og lauk þar námi. Hún giftist 1935 Bjarna Jónssyni úrsmiði frá Gröf í Víðidal í Húnavatnssýslu, en einnig ættuð- um af Svalbarðsströnd. Þau fluttu til Akureyrar árið 1939 og bjuggu þar eftir það. Bjarni var skarp- greindur, skáld gott og prýðilega hagmæltur, gæddur skopskyni og léttleika sem gerðu margar stökur hans fleygar og landskunnar. Það átti fyrir Ólöfu og Bjarna að liggja að mæta sjaldgæfu álagi, mótlæti og sorg í einkalífi sínu. Þau misstu fjóra syni í barnæsku og þann fimmta á fullorðinsaldri, glæsilegan afbragðsmann í blóma lífsins. Þeim Ólöfu og Bjarna varð alls sjö sona auðið. Elstur var Jón, þá Guðmundur, Pétur, Kristófer og Stefán, en þeir Guðmundur og Krístófer létust báðir í bernsku með stuttu millibili. Yngstir voru svo tvíburar sem báru hin sömu nöfn, Guðmundur og Kristófer. Þeir voru líkamlega heilsuveilir, en andlega var þeim ekkert að vanbúnaði, ágætlega skýrir til náms, lífsglaðir og hvers manns hugljúfi. Smám saman varð ljóst að hvetju dró. Læknavísindin komu engum vörn- um við. Litlu drengirnir veiktust og létust nær samtímis aðeins tíu ára að aldri. Eftir lifðu þá Jón, Pétur og Stefán, allir farsælir og þrótt- miklir atorkumenn, félagslyndir og vinsælir, hneigðir til íþrótta, ferða- laga og útilífs, eins og fjölskyldan öll. Þeir Jón og Stefán fetuðu í fót- spor föður síns og námu úrsmíði og starfa nú að henni á Akureyri af myndarskap. Pétur hélt til Þýskalands að loknu stúdentsprófi og varð vélaverkfræðingur og réðst síðan til Akureyrarbæjar í starf hafnarstjóra þar. Pétur kvæntist þýskri konu, Giselu Rabe-Stephan, og eignuðust þau þijú börn, byggðu sér hús og komu upp fallegu heim- ili, en 1976 veiktist Pétur snögglega af illkynja sjúkdómi og innan fárra daga var hann allur, aðeins 37 ára. Var hann harmdauði öllum er til hans þekktu. Eftir lifa því aðeins þeir Jón, kvæntur Sigrúnu Helga- dóttur og eiga þau þijú björn, og Stefán, kvæntur Hugrúnu Hólm- steinsdóttur sem eiga tvö börn. Barnaböm Ólafar og Bjarna eru öll hin mannvænlegustu, heilbrigð og dugleg til náms og starfa. Bjarni lést á heimili þeirra Ólafar 1980 í sterkum örmum Ólafar, í bókstaf- legri merkingu, eftir langvinnan heilsubrest. Eftir það bjó hún ein. Stefán Stefánsson á Svalbarði, móðurbróðir Bjarna, gaf þeim Ólöfu snemma á hjúskaparárum þeirra fallegan skika af jörð sinni og þar reistu þau sumarbústað, gróður- settu fallegan tijálund og hlúðu vel að öllu. Af þessum stað höfðu þau bæði og fjölskyldan mikið yndi og þar má í gróðri og öllum frágangi sjá margt óeigingjarnt og fallegt handverk þeirra Bjarna og Ólafar. Þarna dvaldi hún oft á sumrin með drengina, en Bjarni sinnti starfi sínu á Akureyri. Fyrir örfáum árum, síðsumars, slóst ég í för með Ólöfu að skoða þennan fallega stað. Hún gætti þess vel að frá öllu væri snyrtilega gengið. Kynni mín af Ólöfu hófust á ár- unum 1952-53, en þá kynntist ég syni hennar og skólabróður mínum, Pétri, og bundust við nánum vin- áttuböndum sem héldu meðan báðir lifðu. Um þá góðu sögu skal ég vera stuttorður að sinni. En ég var heimagangur hjá Ólöfu upp frá því öll skólaárin á Akureyri. Þar var alltaf glatt á hjalla, mikið drukkið af súkkulaði og borðað af tertum, legið yfir skákinni og námsbókun- um og lífsgátan leyst og er þó fátt eitt talið af þeim starfa. Ólöf var hinn besti félagi sona sinna og vina þeirra. Mjög ástsæl var hún af tengdadætrum sínum og barna- bömum. Jafnan heimsótti ég Ólöfu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.