Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990
39
ef leið lá norður hin síðari ár, hlaut
góðar viðtökur-og undum við okkur
hið besta við bjartar minningar frá
liðinni tíð. Einkar áhugasöm var
hún um hagi og velferð annarra,
bæði mína og yfirleitt allra gamalla
kunningja og vina heimilisins.
Með þungu heimili gat Ólöf ekki
sinnt félagsstörfum að ráði, en hún
gerðist félagi í Oddfellow-reglunni
á Akureyri, og traustar heimildir
hef ég fyrir því, að þar vai' hún
með afbrigðum vinsæl svo sem
vænta mátti. Hún átti við talsverð-
an heilsubrest að stríða mörg hin
síðari ár. Krabbamein og kransæða-
sjúkdóm lagði hún að vísu að velli
með aðstoð laghentra" skurðlækna,
en fyrir nokkrum mánuðum sóttu
að henni alvarleg veikindi er höfðu
að endingu sigur.
Ólöf var heilsteypt kona og sterk-
byggð og stóð sem klettur, hversu
þungar byrðar sem á hana voru
lagðar. Jafnaðargeði hennar og
óbugandi dugnaði, ábyrgðar- og
réttlætiskennd var við brugðið. Hún
var með öllu frábitin því að trana
sér fram, hlédræg, yfirlætislaus og
blátt áfram í öllu viðmóti, með heil-
brigt, raunsætt lífsviðhorf og af-
stöðu til allra mála, gefandi í öllum
samskiptum sínum, alltaf aflögu-
fær. Sjálfshátíðleiki fyrirfannst
aldrei hjá henni. Þótt lífsganga
Ólafar væri kalviðrasöm á köflum,
var hún aldrei bitur eða lokuð. Hún
var í senn viðkvæm, hugulsöm og
glaðlynd, og stutt var alltaf í
kímnina, brosið og glettnisglamp-
ann. Þessir eiginleikar mótuðu líf
hennar og nærveru. Hún var mann-
kostakona, gætt æðruleysi og
hreinlyndi. Minning Ólafar Guð-
mundsdóttur er björt og flekklaus.
Ég votta henni virðingu og þökk
fyrir góða samfylgd og ástvinum
hennar samúð.
Magnús Skúlason
Vjterkurog
O hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Aukasending af sérútbúnum
BMW Bavaria og BMW Edition
Það er mikil reynsla að aka BMW í fyrsta
skipti og njóta þeirra gæða og fágunar sem
einkenna þennan eðalvagn.
BMW er framleiddur af einum þekktasta og
virtasta bifreiðaframleiðanda veraldar, þar
sem það besta er sjálfsagður hlutur.
Útlit BMW segir allt um hið innra; hönnunin
er óaðfinnanleg og frágangurinn tákn um
fullkomnun.
Sportlegt útlit, frábærir aksturseiginleikar og
105 hestafla vél með tölvustýrðri beinni
innspýtingu uppfylla síðan kröfur þínar um
hinn fullkomna bíl.
Eignist þú BMW ertu kominn í hóp stoltra
eigenda sem ekki láta sér nægja nema það
besta hverju sinni.
Við bjóðum nú sérstaka aukasendingu af
BMW Bavaria og BMW Edition til afgreiðslu
strax, á verði sem mun koma þér á óvart.
Dæmi um verð:
BMW Bavaria. 2ia dvra. frá kr. 1.590.000,-
BMW Edition, 4ia dvra oq siálfskiptur,
frá kr. 1.790.000.-
Þetta er síðasta tækifærið til að eignast
BMW Bavaria og BMW Edition á þessu
hagstæða verði.
Söludeildin er opin alla virka daga frá kl. 8 til
18 og laugardaga frá kl. 13 -17.
Reynsluakstur allan daginn.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1 -3, Reykjavík, sími 686633
Engum
líkur