Morgunblaðið - 09.11.1990, Side 42

Morgunblaðið - 09.11.1990, Side 42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1990 , ■ ■ ... .................—.............. STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Sneiddu hjá félagsstússi og “ frístundaiðju í dag og vertu ekki með óþarfa viðkvæmni í sam- skiptum þínum við annað fólk. Sýndu hins vegar tillitssemi og varfærni gagnvart tilfinningum annarra. Naut (20. apríl - 20. maí) irfft Hlutimir ganga skrykkjótt heima fyrir núna. Ættingi þinn er eitt- hvað miður sín og návist hans eykur á spennuna á heimilinu. Haltu ró þinni og hafðu samræmi í öllu sem þú gerir. - Tvíburar (21. maí - 20. júní) Það getur orðið erfitt fyrir þig að halda vinnugleðinni vakandi núna. Annað hvort sækir svona mikill doði að þér um þessar mundir eða þú hefur engan áhuga á þvi sem þú ert að gera. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Þér hættir til að eyða of miklu í dag þar sem slaknað hefur á dómgreindinni í bili. Náinn ætt- ingi eða vinur á erfitt með að gera upp hug sinn. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Aðrir ætlast til mikils af þér í dag og það getur orðið erfitt fyr- ir þig að fá tíma til eigin ráðstöf- unar. Gættu þess að nota kvöldið til hvíldar og hressingar. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þér fmnst þú ekki vera upp á þitt besta núna eða kannski þú sért bara ekki fyrir félagsskap í dag. Það getur orðið þrautin þyngri að fá að njóta þess næðis sem þú þráir svo mjög. Þú ert á báðum áttum í rómantíkinni. * Vog (23. sept. - 22. október) Félagslífið verður þér kostnað- arsamara en þú bjóst við. Fjöl- skyldan tekur sinn hluta af tíma þínum í kvöld svo að persónuleg- ar þarfír þínar verða út undan. Sporðdreki (23. okt. — 21. nóvember) Þú hugsar of mikið um afstöðu annarra til tilfinninga þinna og dregur þannig úr afköstum þínum og árangri. Þú verður að læra að víkja persónu þinni Lil hliðar endrum og eins. Bogmaóur ^j(22. nóv. — 21. desember) Þú verður að sýna ríka tillitasemi í umgengni þinni við annað fólk í dag. Tilraunir þínar til að gefa vinsamleg ráð geta verið mis- skildar sem yfirráðagimi. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Pengingar em viðkvæmt mál núna milli þín og eins vina þinna. Taktu mark á tilfinningum þínum og líttu ekki á það sem sjálfsagð- an hlut að hlaupa undir bagga jafnvel þótt aðrir reyni að ýta undir sektarkennd þína. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Eigðu aldrei svo annríkt að þú akynjir ekki þörf ástvina þinna og vandainanna fyrir hjálp. Sum- ir samferðarmanna þinna eru við- kvæmir um þessar mundir. / Fiskar (19. febrúar - 20. mars) T&j Því meira sem þú leggur þig fram í dag þeim mun lengra finnst þér í að þú komist yfir allt sem þú þarft að gera. Þér finnst einn vina þinna vera heldur kröfuharð- ur. AFMÆUSBARNIÐ er tilfrnn- ingavera og svolítið háspennt. Það þarf nauðsynlega að fá útrás tyrir sterkar tilfinningar sínar. Það hefur oft áhuga á stjórnmál- um og öðrum störfum í þágu al- mennings og vinnur best þegar það er innblásið. Það hefur sterka þörf fyrir öryggi og leggur hart að sér til að komast áfram í lífinu. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvól. Spár af þessu tagi £%yggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staðreynda. rCDIMIVI A Mr% rtKLIIIMAIMlJ SMÁFÓLK I WALKEP ACR055 TWE | 5TREET WITH HER... 5 TMAT'5 ALL I (71(7 f 1 Ég bara labbaði með henni yfir götuna ... annað var það nú ekki! YOU KNOW UJMAT 5WE 5AIP7SHE SAlP ''THANK5, MI5TER" Veiztu hvað hún sagði? Hún sagði, „Takk fyrir, herra.“ |‘M ONLV TU)0 M0NTH5 OLPEKTHAN 5HE I5,ANP 5HE CALL5 ME "MI5TER"!Í Ég er bara tveim mánuð- um eldri en hún, en samt kallar hún mig „herra“!! I WALKEP ACK055 THE 5TREET UIITH A 61RL ONCE, ANP 5HE SAlP, "50 L0N6,N00PLENECK!" Fyrir löngu gekk ég yfir götu með stelpu, og hún sagði: „Bless, þöngul- haus!“ BRIDS Þrátt fyrir töluverðan slemmumetnað, láta NS sagnir falla niður. í 4 spöðum. Sem er eins gott, því jafnvel geimið er í taphættu. Suður gefur; NS á hættu. Norður ♦ D10985 VÁD5 ♦ DG10 *K5 Suður ♦ ÁKG6432 V 642 ♦ Á + 83 Vestur Norður Austur Suður — — — 1 spaði Pass 2 grönd Pass 3 tíglar Pass 3 hjörtu Pass 3 spaðar Pass 4 lauf Dobl 4 tíglar Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Útspil: laufdrottning. Svar norðurs á 2 gröndum gefur til kynna slemmuáhuga í spaða og spyr jafnframt um stuttlit. Suður sýnir einspil eða eyðu með 3 tíglum, en síðan taka við eðlilegar þreifíngar. Eftir dobl austurs á 4 laufum dvínar áhugi norðurs veralega. En hvernig á sagnhafi að tfyggja sér 10 slagi? Hættan er auðvitað sú að gefa tvo slagi á hjarta til viðbót- ar við laufslagina tvo, sem vörn- in á bersýnilega. Og sú getur hæglega orðið niðurstaðan ef austur á hjartakóng og vestur tígulkóng: Norður Vestur ♦ - V G1097 ♦ K6432 + DG104 ▼ JL/vJ 1U + K5 Suður ♦ ÁKG6432 V 642 ♦ Á + 83 Austur + 7 VK83 ♦ 9875 + Á976Í Spilið tapast ef sagnhafi setur laufkónginn upp í- fyrsta slag. Vestur fær næsta laufslag og skiptir yfir í hjartagosa. Og þá er ekkert til bjargar. En fái vestur að eiga slaginn á laufdrottningu er hægt að búa í haginn fyrir innkast. Vestur gerir best í því að skipta yfír í hjartagosa, sem sagnhafi drepur á ás, hreinsar upp tígulinn og spilar sig út í laufi. Austur lend- ir inni og verður að spila frá hjartakóng eða út í tvöfalda eyðu. SKÁK Á sovézka meistaramótinu í ár, sem pú stendur yfir, kom þessi staða upp í skák stórmeistarans Leortid Judasin (2.610), og al- þjóðameistarans Ilya. Smirín (2.555), sem hafði svart og átti leik. Báðir teflendur voru í miklu tímahraki og hvítur lék síðast gróflega af sér er hann hirti svart frípeð á c3 og lék 40. De5xc?? í staðinn hefði 40. Hbl — b8 verið unnið á hvítt. En svartur endur- galt greiðann og fann ekki glæsi- lega vinningsleið. 40. - Bc5+??, 41. Kfl - Dh3+, 42. Kel — Hd8? (Ljótur leikur, en 42. - Hg2?, 43. Hb8+ - Bf8, 44. Hxf8+! var einnig unnið á hvítt) 43. Bx(18 og svartur gafst upp. I staðinn fyrir þessi ósköp hefði svartur getað unnið með glæsi- legri hróksfórn: 40. — Dh3!, 41. Dxd2 - Bc5+, 42. Df2 - Dxg3+, o.s.frv.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.