Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 49

Morgunblaðið - 09.11.1990, Page 49
MORGÚNBLÁÐIÐ FÖSTÚDAGUR 9. NÖVEMBER-1990 49 SJálfstæðisfólk athugið! Athugasemd frá Dagsbrúnarmanni Til Velvakanda. í síðasta tölublaði Dagsbrúnar- blaðsins (3.tbl. 41.árg. okt. 1990) er minnst á lög félagsins og þar segir meðal annars: „í 12. grein er ákvæði sem vafasamt er að standist landslög: „Skyldur er hver félagsmaður að stuðla að því eftir mætti að verkamenn gangi í félag- ið. Fáist maður ekki til þess er fé- lagsmönnum óheimilt að vinna með honuin.“ í greininni segir einnig: „Hitt er svo víst, að ýmsu mætti Stefán Valdimarsson Til Velvakanda. Ég óska eftir að fá upplýsingar um fjarskyldan ættingja minn, Stef- án Valdimarsson. Iiann var 24 ára þegar þessi mynd var tekin 1914 en ég veit ekki hvar hún var tekin. breyta í lögum félagsins og í raun- inni er sjálfsagt að hafa þau í stöð- ugri endurskoðun þannig að þau taki ævinlega mið af aðstæðum á hveijum tíma.“ Samkvæmt 15. grein laga Dags- brúnar ber formanni og varafor- manni í forföllum hans að hafa eftirlit með því að lögunum sé fylgt í öllum greinum. Geti þeir það ekki hljóta þessir forystumenn að gera félagsmönnum grein fyrir því og ástæðunum fyrir vanda sínum. Það hafa þeir hins vegar ekki gert í fjöldamörg ár. Hvorki Guðmundi J. Guðmundssyni formanni né Halldóri Björnssyni varaformanni hefur dottið í hug að leggja til breytingar á lögum Dagsbrúnar frekar en að fara eftir 15. grein- inni. Til dæmis hefur aðalfundur félagsins ætíð verið haldinn of seint miðað við lög félagsins undanfarna áratugi. Guðmundur J. hefur haldið því fram, að félagsmálaráðuneytið hafi svarað kærum vegna brota á lögum Dagsbrúnar. Þeim hefur ekki öllum verið svarað, þannig að formaður- inn fer með rangt mál. Þótt ég hafi oft farið fram á skriflegt svar frá félagsmálaráðuneytinu um gildi laga Dagsbrúnar fæ ég það ekki. Þegar á það er litið hvernig for- ystumenn Dagsbrúnar hafa lög fé- lagsins að engu vaknar sú spurn- ing, hvort félagsmenn eigi að fara eftir þeim. Hvernig á að grípa á þessum málum, þegar í lögunum segir, að hver sá sem ekki virðir þau skulu brottrækur úr félaginu? Á að reka Guðmund J. og stjórn- ina? Á hann að njóta réttinda sem aðili að líféyrissjóði félagsins eða vegna sjúkrabóta? Miðstjórn Alþýðusambands ís- lands hefur ekki svarað neinum aðfinnslum vegna laga Dagsbrún- Þessir hringdu . . . Alvarlegt mál Barnakarl hringdi: „Hvar erum við á vegi stödd þegar 7 til 10 ára börn verða fyr- ir ógnunum eldri barna á leið í skólann og krafin um greiðslu með hótunum um að þau verði lögð í einelti ef þau greiða ekki 500 krónur reglulega? Fjallað var um þetta í Sjónvarpinu fyrir skömmu og m.a. rætt við séra Karl Sigurbjörnsson. Það hlýtur eitthvað að vera hægt að gera í þessu máli, því þetta er alvarlegt mál og sýnir að eitthvað meira en lítið er að. Það er margt sem kemur upp og er blásið upp í frétt- um en gleymist svo von bráðar en þetta mál er alvarlegra en svo að því megi gleyma. Þessi mál ætti að kanna niður í kjölinn og gera viðeigandi ráðstafanir sem allra fyrst.“ Skiptið peningunum Verkakona hringdi: „Hann Guðmundur J. ætti að hætta að hafa svona miklar áhyggjur af vaxtamálum og þess- um peningum sem Dagsbrúnar á í sjóðum og get ég bent honum á einfalda lausn. Það ætti einfald- lega að taka þessa peninga og skipta þeim á milli Dagsbrúnar- fólks. Þetta kæmi sér vel fyrir marga og þannig væri þessum peningum best varið. Vil ég benda honum og öðrum ráðamönnum í félaginu á þessa lausn.“ Guilhálsmen Gullhálsmen, spjald með egypsku myndletri, týndist föstu- daginn 2. nóvember, líklega við Laugaveg. Finnandi er vinsamleg- ast beðinn að hringja í Ingibjörgu í síma 651065. Köttur Svartur og hvítur köttur með fjólubláa ól kom í hús við Vatn- smýrarveg fyrir skömmu. Upplýs- ingar í síma 43363. Vanvirðing við umsækjendur Kona hringdi: „Ég er avinnulaus og hef sent fjölda umsókna æsamt umbeðnum upplýsingum til fyrirtækja. Aldrei berast nein svör frá fyrirtækjum og ekkert er sent til baka. Þetta finnst mér bera vott um vanvirð- ingu við umsækjandann. Um per- sónulegar upplýsingar er að ræða og liggja þær hjá Pétri og Páli út um allan bæ. Það ætti að skylda fyrirtæki til að senda slík gögn til baka.“ ar, þrátt fyrir margítrekuð tilmæli frá mér um svör. Hið eina sem þessir menn segja, er að farið skpli að lögum Dagsbrúnar. í síðasta tölublaði af Dagsbrún- arblaðinu segir Guðmundur J.: „Það er hinsvegar fráleitt að vera að hringla með lögin fram og til baka, lög á að gera svo vel úr garði að þau haldi um einhvern lengri tíma.“ Hvernig væri að form- aðurinn færi eftir þessum snilldar- lögum? Þorsteinn Sch. Thorsteinsson Viktors B. Kjartanssonar eru í Keflavík að Hafnargötu 50, sími 11599 og í Garðabæ að Garðatorgi 1, símar 656850 og 656851. Opið virka daga kl. 1 6-22 og hejgidaga kk 14-22. Ungan mann í barátfusæfiö Víktor í 5. sætiö Stuðningsipeno hægíndastóla eru tíl sýnis í verslun okkar og nær allar gerðírnar fást aðeíns hjá okkur Stóíí sem stendur tipp fyrír þíg. Relax stóllínn frá Hukla er rafdrifinn og stiílanlegur á allan hugsanlegan hátt. Það er gott að verða gamall í svona gersemisstól. REGENT MOBEL A ISLANDI FAX 91-673511 mm—........... ■t.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.