Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 09.11.1990, Qupperneq 52
LAIMDSBÓK JT La ísl - -• ' • ' Bank ndsbanki slands jfgmifybifttfei FOSTUDAGUR 9. NOVEMBER 1990 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR, Borgarspítali: Halli á rekstrinum fyrstu 9 mánuðina FYRIRSJÁANLEGT er að hátt í 50 milljóna kr. halli verði á rekstri Borgarspítalans á þessu ári og fáist ekki aukafjárveiting verður að draga úr starfseminni. Undanfarin tvö ár hefur rekstur spítalans verið hallalaus. Borgarspít- alinn var settur á föst fjárlög í upp- hafi þessa árs. Að sögn Jóhannesar Pálmasonar, framkvæmdastjóra Borgarspítalans, er orsaka hallans einkum að leita í auknu umfangi á starfsemi spítalans pg samdrætti á öðrum ríkisspítölum. Tfyrstu níu mánuði ársins fjölgaði legudögum um 6% miðað við árið á undan og sjúklingum fjölgaði um 6.700 á þessu tímabili. Jóhannes sagði áhrif vegna virðis- aukaskatts af vöru og þjónustu sem áður hefði borið söluskatt einnig hafa mikil áhrif á reksturinn. Áætlað er að Borgarspítali greiði um 17 millj. kr. í virðisaukaskatt í ár. Framkvæmdastjórn Borgarspítal- ans hefur sent Guðmundi Bjarnasyni heilbrigðisráðherra bréf þar sem greint er frá slæmri fjárhagsstöðu spítalans og óskað eftir aukaljárveit- ingu til starfseminnar. Sagði hann að ef ekki bærust jákvæð svör við erindinu yrði að draga úr þjónustu þeirri sem veitt er á spítalanum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Matartími í Húsdýragarðinum Með miklum bægslagangi keppast selirnir í Húsdýragarðinum um að næla sér í fiskinn sem að þeim er réttur, en kötturinn á bakkanum mænir löngunaraugum á krásimar. 830 milljóna króna húsbréfabirgðir Landsbréfa hf.: Landsbankinn ræðir við Seðlabankann um úrlausn VIÐRÆÐUR eru að hefjast milli fulltrúa Landsbankans og Seðla- bankans um að Seðlabankinn létti á Landsbankanum vegna óseldra húsbréfa. Landsbréf hf., verðbréfafyrirtæki Landsbank- ans, er nú með um 830 milljónir króna í óseldum húsbréfum. Jakob Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar: Beitilönd loðnu sem eyðimörk síðustu ár JAKOB Jakobsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, segir að þótt loðnuleitarleiðöngrum sé engan veginn lokið, og því óvarlegt að fullyrða um niðurstöður, bendi allt til að loðna finnist ekki nú á •naustmánuðum. Kom þetta frani I ræðu sem hann flutti á aðal- fundi Landssambands íslenskra útvegsmanna í gær um ástand fiskistofna við Island. Jakob sagði að hann teldi ástæð- una fyrir því að loðnan fyndist ekki vera fyrst og fremst þá að minna væri um hana nú en fyrir nokkrum árum, og gat hann þess að veturinn 1988 hefði-orðið mikil breyting á hafsvæðunum djúpt norður af landinu. „Undanfarin tvö ár hafa þessi beitilönd loðnunnar verið sem eyðimörk, enda eru loðnugöngur allt aðrar heldur en þær voru á tímabil- inu fyrir og eftir hrun lpðnustofnsins 1981-1983. Reynsla okkar á íslands- miðum, svo og í Barentshafi, hefur kennt okkur að mjög miklar sveiflur geta verið í stofninum, sem virðist háður breytingum í straumakerfi og umhverfisþáttum. Meðan loðnu- stofninn stendur höllum fæti er að- gæslu þörf vegna þess lykilhlutverks sem loðnan óneitanlega gegnir í vist- kerfí íslandsmiða og á ég þar við þá staðreynd að í venjulegu ári er loðna um 50% af fæðu þorsksins." Jakob sagði að ef niðurstöður rannsókna reyndust réttar, og- að minnsta kosti fjórir lélegir árgangar fengjust í þorskstofninn, yrði að fara aftur til 1957-1960 til að finna sam- bærilegt ástand en þá klöktust út fjórir lélegir árgangar í röð. „Þá var hins vegar veitt úr stofni, sem var 1.700-1.900 þúsund tonn, tvisvar sinnum stærri en sá stofn, sem nú er á íslandsmiðum," sagði hann. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson er væntanlegt úr loðnuleiðangri í dag eða á morgun, og segir Sveinn Svein- björnsson, leiðangursstjóri, að loðn- an sem fundist hefði gæfi ekki til- efni til bjartsýni með loðnuvertíðina. Sverrir Hermannsson banka- stjóri segir of snemmt að segja með hvaða hætti Seðlabankinn komi að þessu máli, viðræður séu að hefjast. Hann segist von- góður um að Seðlabankinn að- stoði vegna þessa. Sverrir segir vonir standa til að nýhækkuð ávöxtunarkrafa upp í 7,05% liðki fyrir sölu húsbréfanna. „Við höfum selt rúman milljarð af þessu, eigum einhveijar átta hundruð milljónir. Við erum að vonast eftir því að þetta örvi söl- una,“ segir hann. „Við erum í viðræðum við Seðla- bankann vegna málsins og það mun liggja fyrir á næstu dögum hvernig þeir koma til skjalanna, því að það er eins og segir í lögun- um að Seðlabanka er ætlað það hlutverk að gæta þess að jafnvægi ríki á þessum markaði,“ segir Sverrir. Hann var spurður hvort þetta þýddi ekki, að Landsbankinn færi fram á að Seðlabankinn kaupi húsbréfin af Landsbankanum. „Eg vil ekki neitt ræða um aðferðina sem viðhöfð kann að verða, en við eigum von á því að Seðlabankinn komi á einhvern hátt til skjalanna. Embættismenn okkar eru að byija að ræða málin.“ Sverrir kveðst ekki vilja taka svo sterkt til orða að húsbréfabirgðir Landsbankans séu vandamál. „Við lítum alls ekki á þetta sem vanda- mál, heldur lítum við svo á, og höfum reynslu fyrir því, að það tekur alltaf lengri tíma að brydda upp á nýjungum á verðbréfamark- aði og sjálfur er okkar verðbréfa- markaður ungur og ótraustur enn, en við bindum miklar vonir við þetta.“ Ekið á sex ára dreng í Eyjum EKIÐ var á sex ára gamlan dreng á Kirkjuvegi í Vest- mannaeyjum á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Öku- maður sá ekki drenginn sem hljóp út á götuna og lenti framan á bifreiðinni. Drengurinn lærbrotnaði og handleggsbrotnaði og var lagð- ur inn á Sjúkrahús Vestmanna- eyja. Þorsteinn Pálsson: Olíuinnflutningur verði gefinn frjáls ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir tíma til kominn að hætta opinberum innkaupum olíu frá Sovétríkjunum og gefa olíuverzlun frjálsa, leyfa olíufélögunum að kaupa olíu hvar sem þau vilja, í samkeppni um verð. Þorsteinn gaf yfirlýsingu þessa efnis í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra á Alþingi í gær. son í samtali við Morgunblaðið í gær. „Það hefur nú sýnt sig að þessi aðferð stjórnarinnar gekk ekki upp. Það liggur fyrir að þegar við nú förum fram á fimm ára viðskipta- samning þá svara Rússarnir um hæl að þeir séu að hverfa frá miðstýrðu efnahagskerfi yfir í markaðsbúskap og geti ekki rætt slíka hluti.“ Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra sagði í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra að ekki væri verið að neyða neinu upp á olíufélögin. Þau hefðu sjálf óskað eftir að hafa það form á olíuviðskipt- unum, sem tíðkazt.hefði. Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands útvegsmanna, lýsti sig á sömu skoðun á aðalfundi LÍÚ í gær en nánar er greint frá ræðu hans þar á miðopnu. „í fyrra kom upp ágreiningur milli ríkisstjórnarinnar og okkar um það hvernig skyldi staðið að við- skiptasamningunum við Sovétmenn. Við töldum að ætti að halda þessum viðskiptum áfram yrðf að tengja saman olíukaupin og síldarsöluna. Ríkisstjórnin hafnaði því og taldi að eina færa leiðin til að ná síldarsö- lusamningi væri að hafa áður ákveð- ið opinber innkaup á olíu frá Sov- étríkjunum," sagði Þorsteinn Páls-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.