Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 10.11.1990, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/LESBOK 256. tbl. 78. árg._______________________________LAUGARDAGUR 10, NÓVEMBER 1990________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, og Helinut Kohl, kanslari Þýskalands, í Bonn í gær þar sem þeir undirrituðu víðtækan vináttu-, samstarfs- og griðasáttmála ríkjanna. Ár síðan múrinn var rofinn: Griðasáttmáli Sovét- manna og Þjóðverja Bonn, Berlín. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, kom í gær í opinbera heimsókn til Þýskalands. Undirritaði hann ásamt Helmut Kohl kansl- ara vináttu- og samstarfssamning ríkjanna til tuttugu ára og felast meðal annars í honum heit um gagnkvæm grið. Heimsókn Gorbatsjovs ber upp á fyrstu ártíð Berlínarmúrsins ef svo má að orði komast. Rofs múrsins var minnst með látlausum hætti í Berlín. Gorbatsjov gerði svipaðan samn- ing við Frakka þegar hann var í París fyrir skemmstu ’nema hvað hin- ir síðarnefndu sáu ekki ástæðu til að gera griðasáttmála. Þess má geta að síðasti samningurinn af því tagi sem Sovétmenn og Þjóðverjar gerðu með sér var kenndur við Hitler og Stalín og gerður árið 1939. Gorbatsjov átti í gær viðræður við Kohl kanslara og Richard von Weiz- sácker, forseta Þýskalands, í Bonn. Kohl þakkaði Gorbatsjov fyrir hlut hans í sameiningu landsins en marg- ir Þjóðveijar líta svo á að enginn einn maður hafi átt meiri þátt í því að sameinin^in varð að veruleika. Hrun Berlínarmúrsins 9. nóvem- ber fyrir ári markaði upphafið að sameiningu Þýskalands. Sambands- ráðið, efri deild þýska þingsins, kom saman í Berlín í gær af þessu til- efni. Borgarstjórar Berlínar afhjúp- uðu skjöid á brú í Bornholmerstrasse sem liggur milli Austur- og Vestur- Berlínar. Á skildinum stendur: „Á Bornholmerstrasse-brúnni var múr- inn rofinn aðfaranótt 10. nóvember 1989 í fyrsta skipti síðan 13. ágúst 1961. Berlínarbúar voru sameinaðir á ný. Svo vitnað sé í orð Willy Brandt [fyrrum kanslara]: Berlín mun lifa en múrinn falla.“ En þessi dagur er einnig tengdur við dekkri hliðar þýskrar sögu. Þýskir gyðingar minntust í gær kristalsnæturinnar, 9. nóvember 1938, en gyðingaof- sóknir hennar reyndust forsmekkur- inn að helför gyðinga í Þýskalandi nasismans. Noregur: Stjórnin fær byr í skoð- anakönnun Ósló. Frá Helge Sorensen, fréttaritara Morgunblaðsins. Persaflóadeilan: Gorbatsjov segir að samstaða stórveldanna verði ekki rofin Hvetur þjóðir heims tilað vera fastar fyrir í baráttunni við fraka Bonn, Washington. Reuter. MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sagði er hann heimsótti Bonn í gær að þjóðir heims þyrftu að vera fastar fyr- ir í baráttunni fyrir því að írak- ar kölluðu hersveitir sínar í Kúvæt heim. Hann kvað ekkert geta rofið samstöðu Banda- ríkjamanna og Sovétmanna i Persaflóadeilunni. James Bak- er, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sagði að Sovétmenn væru engu bjartsýnni en Banda- ríkjamenn á að unnt yrði að leysa deiluna með friðsamleg- um hætti. „Við verðum að vera föst fyrir og einhuga í anda ákvarðana Sam- einuðu þjóðanna og öryggisráðs- ins. Enginn skal fá að ijúfa sam- stöðu okkar,“ sagði Gorbatsjov og bætti við að Persaflóadeilan væri prófsteinn á samvinnu austurs og vesturs eftir að kalda stríðinu lauk. „Það hefði mjög alvarlegar afleið- ingar ef við reynumst ekki fær um að vinna saman að lausn vandamála sem koma upp á þessu nýja friðartímabili," sagði forset- inn. Gorbatsjov hafði áður sagt við fréttaritara Reuters að enginn ágreiningur væri á milli Banda- ríkjamanna og Sovétmanna vegna Persaflóadeilunnar og að stórveld- in væru bæði að reyna að finna friðsamlega lausn á henni. Sovésk stjórnvöld hafa hvað eftir annað lagt áherslu á að leysa beri deiluna með samningum en Edúard Shev- ardnadze, utanríkisráðherra Sov- étríkjanna, útilokaði ekki í fyrra- dag að gripið yrði til hernaðarað- gerða gegn írökum. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær eftir að hafa rætt við sovéska ráðamenn að Sovétmenn væru engu bjarix sýnni en Bandaríkjamenn á að hægt yrði að koma írösku hersveit- unum úr Kúvæt án þess að beita hervaldi. Hann sagði sovésk stjórnvöld mjög vonsvikin yfir því að ferðir sendimanns Míkhaíls Gorbatsjovs til Bagdad skyldu ekki hafa borið árangur. Baker kom í gær til Lundúna og ræddi þar við Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, se_m ítrekaði þá skoðun sína að ef írakar drægju sig ekki til baka frá Kúvæt á næstunni yrði að grípa til hern- aðaraðgerða. Willy Brandt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, kom í gær- kvöldi til Frankfurt ásamt 173 Vesturlandabúum, sem hann fékk lausa úr gíslingu í írak. Anker Jargensen, fyiTverandi forsætis- ráðherra Danmerkur, kom til Bagdad til að freista þess að fá danska gísla lausa. Enn eru um eru um 2.000 gíslar í landinu. Minnihlutastjórn Gro Harlems Brundtland, leiðtoga Verka- mannaflokksins í Noregi, hefur nú setið í viku og skoðanakannan- ir sýna hratt vaxandi fylgi við flokkinn. Hann fær stuðning 46,5% aðspurðra í könnun Gallup en Hægriflokkur Jans P. Syse, fyrrverandi forsætisráðherra, fær minna fylgi en hann hefur nokkru sinni haft eftir stríð. Fylgi Verkamannaflokksins hefur aukist um 10% síðan í ágúst. Þótt stuðningur við Sósíalíska vinstri- flokkinn hafi minnkað verulega hafa flokkarnir tveir nú samanlagt um 56% stuðning. Fáir gera ráð fyrir að Verkamannaflokkurinn geti hald- ið þessu fylgi til frambúðar en ljóst þykir að kjósendur séu sáttir við umskiptin. Robinson kjörin forseti Irlands Dyflinni. Reuter. MARY Robinson, 46 ára lögfræðingur og fram- bjóðandi vinstrimanna, sigraði í forsetakosningun- um á írlandi en atkvæðatalningu lauk í gær. Sig- ur Robinson er mjög glæsilegur þar sem sigurlík- ur hennar voru taldar einn á móti þúsund þegar hún tilkynnti framboð sitt. Hún er fyrsta konan seni kjörin er forseti Irlands. Eftir aðra talningu kom í ljós að Robinson hafði fengið 86.000 fleiri atkvæði en mótframbjóðandi henn- ar, Brian Lenihan. Ilún fékk 52,8% greiddra at- kvæða, sem voru rúmlega 1,5 milljónir, en hann 47,2%. Lenihan var frambjóðandi stjórnarflokksins Fianna Fail en þetta er í fyrstá skipti í 60 ár sem flokkurinn tapar forsetakosningum. Helstu baráttumál Robinson voru aukin kvenrétt- indi og réttarbætur til handa eignalausu fólki, auk þess sem hún lagði áherslu á frjálslyndari löggjöf um hjónaskilnaði, samkynhneigð og getnaðarvarnir. Robinson sagðist í gær fagna því að sigur hennar bæri upp á fyrstu_ ártíð falls Berlínarmúrsins og að hún vildi helst fagrta honum með því að fara út á götu og dansa. Mary Robinson fagnar sigri í gær. Reuter

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.