Morgunblaðið - 10.11.1990, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990
Ljóðabók
eftir
Krislján
Karlsson
ÚT ER komin hjá Almenna
bókafélaginu Kvæði 90 eftir
Kristján Karlsson.
Bókin er kvæðaflokkur sem
ber heitið Engey í þröngum
glugga og vísar það til þess sem
á er horft.
í tilkynningu útgefanda segir
m.a.: „Kvæðin mynda sterka
heild þar sem uppistaðan er út-
sýni frá Reykjavík og grennd.
Efnið er sett fram í litsterkum
myndum og út frá þeim hrannast
minningar fjölbreyttrar ævi sem
einnig stíga fram í myndum og
líkingum."
Kvæði 90 er sjötta ljóðabók
Kristjáns Karlssonar.
Kristján Karlsson
Bókin er 38 bls. að stærð,
prentuð í prentsmiðjunni Stein-
holti hf. Bókband annaðist Fé-
lagsbókbandið-Bókfell hf. Útlits-
hönnun var í höndum Arnar
Guðnasonar.
Forsljórar olíufélaganna:
Sammála um að olíuvið-
skipti eigi að vera frjáls
Eftir sem áður að ýmsu leyti gott að kaupa af Rússum
ALLIR forstjórar olíufélaganna
þriggja, Olís hf., Olíufélagsins hf.
og Skeljungs hf., segjast vilja
fijáls olíuviðskipti. Þeir eru jafn-
framt sammála um, að eftir sem
áður yrði að ýmsu leyti eftirsókn-
arverít að kaupa olíu af Sovét-
mönnum, einkum vegna gæða og
í sumum tilvikum einnig vegna
hagstæðara verðs. Þeir voru innt-
ir álits á þessu í tilefni af ummæl-
um Þorsteins Pálssonar í umræð-
um um skýrslu utanríkisráðherra
á Alþingi þessefnis, að tímabært
væri að gefa olíuinnflutning
frjálsan. Þá sagði Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
að olíufélögin hefðu sjálf óskað
eftir að kaupa olíu af
Sovétmönnum.
Kristinn Björnsson forstjóri Skelj-
ungs hf. segir að olíufélögunum eigi
VEÐUR
VEÐURHORFURIDAG, 10. NOVEMBER
YFIRLIT f QÆR: Um 750 km vestur af íslandi er 980 mb lægð,
sem þokast norðaustur en yfir Grænlandi er 1.027 mb hæð. Hrti
breytist fremur lítið.
SPÁ: Austan- og suðaustanátt, stinningskaldi við suðurströndina.
en annars hægara annars staðar. Súld sunnanlands, en að mestu
þurrt í öðrum landshlutum.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðaustanátt, ailhvöss
eða hvöss víð suður- og vesturströndina, en hægari í öðrum lands-
hlutum. Rigning verður um sunnan- og austanvert landið en úrkomu-
laust að mestu annars staðar. Hiti 7 til 11 stig.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus
HeiAskfrt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. • V * Skúrir
A V Él
*(~Mk Léttskýjað r r r r r r r Rigning Þoka
A HálfSk”8ð r r r * r * 5 5 5 Þokumóða Súld
ö51**4 r * r * Slydda r * r oo Mistur
* * * 4 Skafrenningur
j ^ Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 skýjað Reykjavík 8 skýjað
Bergen 6 skýjað
Helsinki 4 skýjað
Kaupmannahöfn vantar
Narssarssuaq 10 skýjað
Nuuk <•2 þokumóða
Ósló 0 þoka
Stokkhólmur 8 skýjað
Þórshöfn 8 alskýjaö
Algarve 19 afskýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Barcelona 16 alskýjað
Berlfn 4 þokumóða
Chicago 3 snjókoma
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 8 léttskýjað
Glasgow 5 mistur
Hamborg 4 þoka
Las Palmas 25 léttskýjað
London 7 mistur
LosAngeles 13 heiðskírt
Lúxemborg 3 mistur
Madríd 14 aiskýjað
Malaga 21 hálfskýjað
Mallorca 17 rigning
Montreal +7 léttskýjað
New York 1 alskýjað
Orlando 23 alskýjað
París vantar
Róm varrtar
Vín 8 mistur
Washíngton 2 skýjað
Winnipeg +3 hoiðskírt
að vera frjálst að „kaupa sína olíu
hver sem þau telji að þau geti náð
hentugustu samningum. oVið förum
fram á það, og teljum að það sé
eðlilegast, að Skeljungur hf. fái að
kaupa inn sitt eldsneyti, hvar sem
okkur býður við að horfa, hvort sem
það er í Rússlandi eða Rotterdam,"
segir hann.
Hann kveðst ekki kannast við að
olíufélögin hafi beðið um eða vilji
hafa innkaupin með einum eða öðr-
um hætti. oÞað er hins vegar ljóst
að við erum i dag að kaupa eina
tegund af olíu frá Sovétríkjunum
sem við höfum ekki getað fundið
jafn góða annars staðar, það er
svartolían.“ Hann segir að svartolia
sem stendur til boða víðast hvar í
Vestur Evrópu sé ekki jafn góð og
hann geri ráð fyrir að menn vilji
halda áfram að kaupa hana frá
Sovétríkjunum.
oAuðvitað er það skoðun okkar
hér hjá Skeljungi að það eigi að
treysta okkur,“ segir Krsitinn.
oOkkur finnst að við eigum að hafa
forræði á því sjálfir hvar við versl-
um. Menn hafa hins vegar á undanf-
örnum árum og áratugum beygt sig
undir aðra hagsmuni, sem hafa ver-
ið hagsmunir fiskútflytjenda. Með
hliðsjón af sameiginlegum hagsmun-
um landsins skil ég það vel og
fínnst það ósköp eðlilegt ef þetta
er ekkert verri samningur að versla
við Sovétmenn olíu heldur en við
getum fengið annars staðar og við
getum í leiðinni lagt þeim aðilum lið
sem eru að flytja út fisk, þá finnst
mér það eðlilegt. Ef þær forsendur
eru hins vegar brostnar, þá fínnst
mér að alfarið eigi að leggja þetta
í hendur olíufélaganna sjálfra.“
Hagsmunir útflytjenda
Vilhjálmur Jónsson, forstjóri Olíu-
félagsins hf., segir það beinlínis
rangt hjá forsætisráðherra að olía
sé keypt frá Sovétríkjunum að
beiðni olíufélaganna. Ríkisvaldið
hafi ákveðið þessi viðskipti vegna
hagsmuna útflytjenda, olíufélögin
hafi aðeins verið góðu börnin og
gert það sem þau hefðu verið be'ðin
um.
„Ef þessir útflutningshagsmunir
eru ekki lengur fyrir hendi eða hafi
kannski aldrei verið, er sjálfgefið að
gefa olíuinnflutninginn fijálsan
þannig að olíufélögin semji um inn-
kaupin hvert fyrir sig,“ sagði Vil-
hjálmur. Hann sagði þó ráðlegt að
fara gætilega í breytingar nú um
þessár mundir vegna ástandsins við
Pet-saflóa. Enginn vissi hvað gerist
þar næstu daga eða mánuði. Olíu-
mannvirki gætu eyðilagst í átökum
og það leitt til olíuskorts og vand-
ræða. Þá væri gott að hafa tryggan
samning við ’ Sovétmenn sem stæðu
utan þessarra átaka.
Frjáls verðlagning
Óli Kr. Sigurðsson forstjóri Olís
segir að ef breyta eigi kerfínu frá
því sem það er í dag, verði að
fylgja því að öllum lögum um olíuvið-
skipti verði breytt og til dæmis öll
verðjöfnunargjöld verði felld niður.
oAnnað hvort erum við í samkeppn-
inni eða ekki. Þá fmnst mér eðlilegt
að ég fái að kaupa þá olíu sem mér
þóknast, flytja hana inn þangað sem
mér þóknast og afgreiða hana á því
verði sem mér þóknast," segir hann.
oÞað er ekki nóg bara að hætta að
kaupa af Rússum, ég mundi jafnvel
halda áfram að kaupa af þeim, því
að þaðan fæ ég bestu vöruna og
jafnvel ódýrari."
Óli sagði fyrir sitt leyti rétt, að
hann hafi viljað halda áfram að
versla við Sovétríkin, þar sem þaðan
hafi fengist betri olía og í sumum
tilvikum ódýrari, einkum þegar
fengin er gasolía sem þolir frost, sú
olía sé ekki með neinu aukagjaldi
frá Sovétríkjunum eins og yfirleitt
sé þegar hún er keypt annars staðar.
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra:
Olíukaup frá Sovét-
ríkjunum hugsan-
lega endurskoðuð
JÓN Sigurðsson viðskiptaráð-
herra segir það rangt að ekki
hafi gengið upp að kaupa olíu frá
Sovétríkjunum í fyrra til þess að
greiða fyrir útflutningi þangað,
eins og haft var eftir Þorsteini
Pálssyni formanni Sjálfstæðis-
flokksins á baksiðu Morgunblaðs-
ins í gær. Jón segir að fyrirkomu-
lag olíukaupa frá Sovétríkjunum
verði tekið til endurskoðunar, ef
samningar um olíukaup greiði
ekki fyrir útflutningi sjávaraf-
urða og annarra vörutegunda til
Sovétríkjanna.
Viðskiptaráðherra vill gera athug-
asemd vegna ummæla Þorsteins
Pálssonar formanns Sjálfstæðis-
fiokksins og Kristjáns Ragnarssonar
formanns Landssambands íslenskra
útvegsmanna í blaðinu í gær þar sem
því var haldið fram að ekki hafi
gengið upp að kaupa olíu frá Sov-
étríkjunum í fyrra til þess að greiða
fyrir útflutningi þangað. Jón segir
að þvert á móti hafi þetta.gengið
upp. Viðskiptaaðilar í Sovétríkjunum
hafí fallist á kaup á saltsíld og fleiri
afurðum héðan eftir að olíusamning-
ur hafi verið undirritaður.
Á næstunni muni aftur hefjast
samningaviðræður um olíukaup frá
Sovétríkjunum. „Ef samningar tak-
ast, mun á ný verða látið á það
reyna hvort olíukaupin greiða fyrir
útflutningi sjávarafurða og fleiri
vörutegunda. Ef svo reynist ekki
mun fyrirkömulag okkar á olíukaup-
um frá Sovétríkjunum verða tekið
til endurskoðunar," segir Jón Sig-
urðsson viðskiptaráðherra.
Veitingahöllin:
Fjórir íhuga
tilboð í eign-
ir og rekstur
EKKI hafa fengist kaupendur að
eignum og rekstri Veitingahallar-
innar hf., sem var tekin til gjald-
þrotaskipta fyrir tveimur vikum,
en fjórir aðilar íhuga nú að gera
tilboð í eignirnar.
Bústjóri þrotabúsins auglýsti
eignir og rekstur Veitingahallarinn-
ar til sölu sunnudaginn 28. október.
Tilboð verða borin undir skiptaráð-
anda, en berist mörg og mismun-
andi tilboð gæti þurft að kalla
helstu kröfuhafa saman.
Þeir fjórir aðilar, eða hópar
manna, sem íhuga nú að gera tilboð
í eignir og rekstur Veitingahallar-
innar, tengjast allir veitingarekstri.