Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.11.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 11 Ljóðrænt - umbúðalaust Það má segja, að það mætist tveir ólíkir heimar í myndverkum þeirra Önnu Líndalog Bjargar Örv- ar, sem lagt hafa undir sig salar- kynni Nýlistasafnsins. Þær stöllur hafa þann háttinn á sem fleiri, er sýnt hafa þarna und- anfarið, að vera með tvær sjálfstæð- ar sýningar og deila með sér húsa- kynnunum eftir þörfum og eðii myndverkanna. Þær róa, sem fyrr segir, hvor í sína áttina og þannig eru myndir Önnu í senn hugmyndafræðilegar sem ljóðrænar. Hún notar ýmis efni og aðferðir til að ná marki sínu og blandar jafnvel óskyldum hlutum saman í eina myndheild svo sem í verkinu „Án titils“, þar sem koma fram á vegg sjö einingar í svartri umgjörð og í tveim samsíða röðum. Önnur röðin er offset-litógrafía í svart-hvítum tilbrigðum, en hin er einfaldlega torf, — fyrir neðan á gólfi eru svo 9 einingar af mislaga gijóti í óskipulegri röð. Einingarnar sjö bera nöfn og heita Lækjarmót, Horn Enscede, Esjufjöll, Berlín, London, Reykjavík og hefði verið forvitnilegt að vita af hveiju. Maður meðtekur slíkt ekki þegjandi og hljóðlaust, þótt aðrir hafi gert líkar myndir út frá sinni hugmyndafræði erlendis. . Fari maður að spá í slíkt, þá er upplagt að gerandinn kunni að gera lítið úr útlistan viðkomandi og segi allt aðra hugsun í sínu verki! Þess vegna er mikilvægt að fólk geri nokkra grein fyrir hugmynda- fræði sinni og er eiginlega lág- markskrafa. Auðvitað er viss hugsun að baki slíkri list, þótt verkið sé nafnlaust og oftar en ekki ákveðin heims- og lífspeki. Þetta er fyrsta einkasýning Önnu og ber hún þess vott, að margt velkist um í huga hennar, sem hún hefur'kynnst ytra, en einnig minnir hún mig á ýmislegt, sem maður sá á sýningum Súmmara forðum daga, en það var víst fyrir hennar tíð. En satt að segja eru skyld við- horf í listinni komin upp aftur. — Hvað Björgu Örvar snertir, þá er hún mun sjóaðri í sýninga- haldi, því þetta er hennar sjöunda einkasýning og af þeim hefur hún haldið tvær erlendis. Það eru nokkur ár síðan fram komu í verkum Bjargar sterk áhrif frá nýja málverkinu svonefnda og hefur hún haldið tryggð við þann myndstíl til þessa. Vinnubrögð hennar eru fijálsleg og óþvinguð ásamt því, að hún víkk- ar út svið hins hefðbundna mál- verks með einingum, sem á ýmsan hátt vaxa út frá hinu staðlaða formi málverksins. Þetta höfum við áður séð hjá henni t.d. í listhúsinu Nýhöfn fyrir ári eða svo og þar nutu verk henn- ar sín mun betur en í Nýlistasafn- inu. Það er eiginlega dálítið erfitt að átta sig á málverkum hennar á þessum stað, því sýningin virkar sundurlaus, eins og henni er deilt niður á þijár hæðir. Björg sýnir í þessum myndum sínum nokkra staðfestu, eða eigum við kannski heldur að orða það íhaldssemi, því margur fulltrúi ný- bylgjumálverksins hefur þróað stíl sinn í átt að hnitmiðaðri tjáningu, og enn aðrir hafa yfirgefið það til hags fyrir það, sem þeir voru að gera fyrir áratug og meir í hug- myndafræðilegu listinni. Myndir Bjargar virka í þessum húsakynnum mun hrárri en þær eru í raun og veru og hinn sérstaki boðskapur þeirra kemst ekki auð- veldlega til skila. Þetta varð ég var við, er ég skoðaði sýninguna öðru sinni, en þá höfðuðu sum málverk- anna mun sterkar til mín. Þótt heilmikið sé spunnið í mörg formanna í myndum hennar, vill heildarmyndin iðulega verða nokk- ur brotin og þá ósjaldan fyrir þá sök, að óskyld og framandi form íjúfa myndskipunina og án sýnilegs tilgangs. Hvorug sýningin nær nægiléga sterkum tökum á skoðandanum og hefur það vakið undrun og umtal hve metnaðarlausar og daufar sýn- ingar í Nýlistasafninu hafa verið frá opnun þess í nýjum húsakynnum og máttleysislega að þeim staðið. Möguleikarnir sýnast nefnilega miklir og spennandi salarkynni bíða átakamikilla sýninga, þar sem hriktir í stoðum listheimsins. Anna Líndal og Björg Örvar. Tökum þátt í opnu prófkjöri sjálfstæðismanna í dag Kjósum Áma M. Mathiesen í 3. sæti Benedikt Sveinsson, hæstaréttar- lögm. Garðabæ Eggert ísaksson, fyrrv. bæjarfltr. Hafnarfirði Geirmundur Kristinsson, aðst.sparisjóðsstj. Keflavík Gunnar Már Torfason, bifreiðastjóri, Hafnarfirði Helga Stefánsdóttir, frú, Hafnarfirði Hjörtur Nielsen, framkv^stj. Seltjamamesi Hulda Sigurjónsdóttir, húsfrú, Hafnarfirði Jónas Bjarnason, yfirlæknir Hafnarfirði Kristinn Kristinsson, bygginga- meistari, Kópavogi Kristján Arason, handknattleiksm. Hafnarfirði Lýður Friðjónsson, framkvæmda- stjóri, Garðabæ Magnús Gunnarsson, skrifstofum. Hafnarfirði Magnús Sigsteinsson, ráðunautur, Mosfellsbæ Mcirgrét Pálsdóttir, húsmóðir, Sandgerði Ólafur Garðarsson, hdl, Seltjarnarnesi Ólafur B. Schram, verslunarmaður, Bessastaðahreppi Páll Ólafsson, hreppstjóri, Brautarholti Ragna Bjarnadóttir, sölukona, Seltjarnamesi Sigfríður Sigurgeirsdóttir, kennari, Njarðvík Sæþór Þorláksson, verkamaður, Grindavík Þorgeir Haraldsson, flugmaður, Hafnarfirði Kosningaskrifstofa fyrir Hafnarfjörð, Garðabœ og Kópavog er að Bœjarhrauni 12 Hafnarfirði, símar 51727 - 52088 - 650211. Auk þess upplýsingar í símum: 612296 fyrir Seltjarnarnes, 666520 fyrir Mosfellsbœ, Kjalarnes og Kjós, 654395 fyrir Bessastaðahrepp, 92-15703 fyrir Njarðvík, Hafnir og Voga, 92-68459 fyrir Grindavík, 92-37475 fyrir Sandgerði, 92-27123 fyrir Garð og 92-13808 fyrir Keflavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.