Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 18

Morgunblaðið - 10.11.1990, Page 18
18 MORGUNRLAÐIÐ LAUGARDAGUR. 10. NÓVEMBER 1990 ■n ARCTIC CAT VÉLSLEÐAR FYRSTA SENDING VETRARINS ER KOMIN TIL LANDSINS OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10-17 Staöfestió pantanir strax Li IL'' trmúla 13 - 108 Reykjavík - s681200-31236 Höfum við efni á að reka stóru sjúkrahúsin? eftirÞorvald Veigar Guðmundsson Fyrir þremur árum var lagt mjög hart að okkur á Landspítalanum að spara og fara ekki fram yfir þau fjár- lög, sem þingið hafði sett spítalanum. Með því að skera niður framkvæind- ir og fresta tækjakaupum tókst að halda eyðslunni innan þeirra marka, sem lög gerðu ráð fyrir. Þá var sagt, við vissum að þið voruð að eyða í óþarfa og nu skuluð þið spara 4% meira á næsta ári, þið ráðið hvernig. Læknaráð Landspítalans benti mjög eindregið á það opinberlega, að ekki væri hægt að spara svona án þess að það kæmi niður á þjónustunni. Svörin voru lítil og alls ekki á fagleg- um grundvelli, en helst komu hótan- ir um að skera niður námsstyrki til lækna. Spítalastjórnin brást við auknum kröfum um sparnað með því að loka ákveðnum deildum, þeim deildum, sem læknar og hjúknana- rfræðingar spítatans töldu, að vel athuguðu máli, mundi líklega skaða minnst að loka um tíma. Þá fóru hópar óánægðra aðstandenda til heil- brigðisráðherra og bréf kom frá ráðuneytinu sem sagði, „nei, þið máttuð ekki spara á þessari deild, það vildum við ekki“. Fjármálaráð- herra vildi einnig hafa áhrif á hvar ekki mátti spara. í ár átti enn að spara, en nú hélt stíflan ekki. Þrátt fyrir miklar til- raunir og lokanir deilda mun fjöldi legudaga á Landspítalanum aukast um 10 þúsund og allar líkur eru á, að kostnaður við Landspítalann verði 200 milljón krónum meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Athyglisvert er að skoða þessa upphæð nánar. Þvert ofan í það sem margir ætla, greiddu sjúkráhúsin söluskatt og tolla af mörgu sem keypt var til þeirra og þegar breytt var umskattakerfi og virðisaukaskattur tekinn upp, óx skattbyrði Landspítalans um 43 milljónir króna. Þ.e. af 200 milljón króna tapi renna 43 milljónir beint í ríkiskassann, en það gleymdist að taka tillit til þess við íjárlagagerðina. A Landspítalanum eru gerðar rann- sóknir fyrir aðrar sjúkrastofnanir og aflar spítalinn tekna á þann hátt. I áætlanagerð spítalans var gerð nokk- uð raunhæf áætlun um tekjur þessa árs. I fjárlögum var tekjuáætlunin hækkuð án nokkurra raka og nú lítur út fyrir að tekjurnar verði 32 milljón- um minni en óraunhæf tekjuáætlun tjárlagafrumvarpsins gerði ráð fyrir. Þetta tvennt sem skýrir 75 milljónir af þeim 200 milljónum sem vantar á rekstrarfé Ríkisspítalanna, er dæmi um lítt vönduð fjárlög, sem spítalan- um er þó gert að fylgja. Nú stendur Landspítalinn frammi fyrir þeim bráða vanda að 200 millj- ónir króna vantar til að hægt sé að reka spítalann út árið. Þar sem stór huti þess er tilkominn eins og lýst - var, tel ég líklegt að stjórnvöld munu á einhvern hátta bjarga þeim vanda, svo ekki þurfi að loka spítalanum alveg í desember. En Landspítalinn stendur frammi fyrir ennstærri vanda, sem er afleiðing af fjársvelti um árabil og engar líkur til að því linni (og raunar er svipað að segja um Borgarspítalann og Landakot). Kröfunum um sparnað sem gerðar hafa verið á undanfömum árum hef- ur verið mætt að nokkru með auk- inni hagræðingu en einnig með því Kaupum „Veðriðu eftir Veturliða Gunnarsson Um þessar mundir gistir ísland eitt fegursta og stórbrotnasta lista- verk skapað af íslendingi. Það er málverkið „Veðrið“ eftir Svavar Guðnason. Hann málaði það uppi í Sjómannaskóla 1963. Það var Statens kunstfond í Kaupmanna- höfn sem bað Svavar um skissur að mósaíkmynd, en skissurnar urðu aldrei til. Mósaíktækni hentaði ekki skapi Svavars og túlkun hans á íslensku veðri. Eftir ýmsa hrakninga í hafi og dramatíska lendingu í Höfn, var myndin sýnd hjá listamannafélag-. inu Grönningen 1964 og vakti þeg- ar gífurlega athygli og aðdáun. Síðar var henni komið fyrir í stúd- entahúsinu í Árósum. Þessi stór- brotna mynd er nú höfuðverk á sýningu Svavars í Listasafni íslands sem lýkur nú um helgina (13. nóv.). Það er mikið sárt til þess að hugsa að myndin skuli hverfa héðan af landi. Hér er hún sköpuð og hér á hún heima. Eigum við ekki að sameinast um að reyna að eignast þetta listaverk? Getum við ekki fengið það lánað um nokkurn tíma og rætt málið við okkar elskulegu Dani? Það væri mikil íslandssaga að gerast ef myndin fengi samastað í Listasafni íslands. Og mikið væri maður nú stoltur að vera Islendingur og geta labbað sig hérna niður á safn, bent á „Veðrið“ og sagt: „Þessi mynd er ekki aðeins besta verk Svavars, heldur og eitt glæsilegasta afrek íslenskrar myndlistar. Danir höfðu hana lengi að láni, en fyrir gamlan og góðan vinskap gáfu þeir okkur hana aftur ...“ Og nú er „Veðrið“ komið heim. Þetta er ísland í einni mynd. Það er heilög skylda okkar að þakka Ástu og Svavari fyrir list þeirra og tilveru. Höfimdur er listmáluri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.