Morgunblaðið - 10.11.1990, Side 37

Morgunblaðið - 10.11.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1990 37 Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORGRfMSSON&CO Ármúia 29, Reykjavík, sími 38640 Stefnumótun framtíðarinnar eftir Guðrúnu Stellu Gissurardóttur Við íslendingar stöndum núna frammi fyrir einum þeim mestu breytingum sem orðið hafa í heim- inum í áratugi sem allar hníga í átt til aukins frelsis í viðskiptum og samvinnu á milli ríkja. Aðeins eru rúmlega tvö ár þangað til að Evrópubandalagið mun opna sinn innri markað og hafa aðildarríki þess unnið markvisst að þessari sameiningu með því að samræma sín lög og reglugerðir til að tak- markinu verði náð. Meðal annars felast breytingarnar í því að dregið er úr opinberum styrkjum til fyrir- tækja og atvinnuvega til að skapa eðlilegan samkeppnisgrundvöll á milli þessara ríkja þar sem einn markaður mun rísa í framtíðinni. Hér á landi hefur hið gagnstæða verið uppá teningnum því síður en svo hefur dregið úr sjóðabákninu svokallaða og ríkisheimilið rekið með haila sem skiptir milljörðum króna ár hvert. Þessi gegndarlausi hallarekstur hefur kallað á meiri og meiri lántökur sem valda þenslu í þjóðfélaginu og kynda undir verð- bólgu. Lán eru veitt í óarðbæran rekstur og við blasir hvert gjald- þrotið á fætur öðru sem skattborg- ararnir súpa síðan seyðið af. Okkur Islendingum er nauðsynlegt að snúa þessari þróun við ef við eigum ekki eftir að heltast úr lestinni og sigla hraðbyri inn í moldarkofana á ný. Við verðum að aðlaga okkar hag- stjóm að þeim breytingum sem eiga sér stað til að vera undir það búin að geta tekið þátt í þessari sam- vinnu því vera má að það verði óhjákvæmiiegt að sækja um áðild að bandalaginu. Innan aðildarríkja Evrópubandalagsins eru okkar stærstu útflutningsmarkaðir á sjáv- arfangi einni helstu auðlind landsins og það mun verða íslendingum afar þungur biti að kyngja ef sá markað- ur mun hrynja eftir öll þau skakka- föll sem átt hafa sér stað. Lands- menn hafa verið seinþreyttir þrátt fyrir þverrandi kaupmátt, stóraukið atvinnuleysi og stigvaxandi skatt- heimtu. Nú er þó svo komið að menn eru hreinlega að gefast upp undan okinu. Matarskattar eru hér hærri en tíðkast í flestum nálægum ríkjum og vinna þarf miklu lengri vinnudag til að halda uppi þeim lífskjörum sem þykja sjálfsögð ann- ars staðar. Neikvæður búferlaflutn- ingur hefur verið frá landinu síðast- liðin tvö ár en svo hafði ekki verið til fjölda ára. Þetta eru skilaboð til þeirra sem með valdið fara að þeim hafi tekist illa upp. Við höfum yfir að ráða vel menntuðu fólki, gjöful- „Nú er þó svo komið að menn eru hreinlega að gefast upp undan okinu.“ um fiskimiðum, vannýttum orku- auðlindum, óspjallaðri náttúru og besta lambakjöti í heimi sem allt gefur mikla möguleika í komandi framtíð ef sá grundvöllur er skapað- ur sem þarf til að atorka og hugvit einstakiinganna fái notið sín. Eg er einn af þeim fimmtán þátttak- endum sem mun taka þátt í próf- kjöri sjálfstæðismanna á Reykjanesi á laugardaginn kemur en ég hef gefið kost á mér af því ég tel mikil- vægt að við unga fólkið fáum að taka þátt í stefnumótun framtíðar- innar því það erum jú við sem munum erfa landið. Ég hef óskað eftir stuðningi í 6. sætið og vona að sjálfstæðisfólk í kjördæminu sjái sér fært að Veita mér þann stuðn- ing. Uöfundur er kennnranemi og þáttiakandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi. Guðrún Stella Gissurardóttir >1 \s fS I pt’ ‘t-C ■'A jr ■ BASAR Kvenfélags Háteigs- sóknar verður sunnudaginn 11. nóvember og hefst kl. 13.30 í Tónabæ. Á boðstólum verða kökur, handavinna, ullarvörur, ýmiskonar gjafavörur o.fl., ásamt heitu kaffí og íjómavöfflum. Kvenfélag Há- teigssóknar hefur á liðnum árum unnið ómetanlegt starf fyrir kirkju og söfnuð. Ber þar hæst nýjasta afrek félagsins, kórmynd kirkjupn- ar, Krossinn og ljós heilagrar þrenn- ingar, eftir Benedikt Gunnarsson listmálara. Margt annað sem ber fyrir augu í kirkjunni er sömuleiðis frá því runnið. Það er fleira mikil- vægt í starfi félagsins en fjáraflan- ir, vaxandi er þáttur félags-j fræðslu- og mannúðarmála. í nútímasamfélagi, þar sem einstakl- ingurinn týnist eða einangrast í fjöldanum, er brýn nauðsyn að mæta margyíslegum þörfum fólks á því sviði. Ég vil nota þetta tæki- færi til þess að færa félaginu þakk- ir fyrir mikið og blómlegt starf, fyrir hvatningu og stuðning og láta þá ósk í ljósi að það megi dafna áfram til að vera salt og ljós í söfn- uðinum. Söfnuður og hollvinir Há- teigskirkju eru hvattir til þess að fjölmenna á basarinn í Tónabæ og styrkja þannig kvenfélagið til dáða. 'YNING ÓVENJULEG HÚSGAGNASÝNING 9.-11. NÓVEMBER HIN FULLKO FALLEG OG FORVITNILEG Sérkennilega falleg húsgögn hönnuð af Þórdísi Zoéga húsgagnaarkítekt FHI. Stól- arnir eru úr stáli og klæddir steinbítsroði. Nýstárleg og þægilég húsgögn sem óneitan- lega vekja athygli. KINNARPS GÆÐI OG GLÆSILEIKI Kinnarps er hin fullkomna lausn fyrir allar stærðir og gerðir af skrifstofum. Hér er hugsað fyrir öllum smáatriðum. Gullfalleg hönnun og toppgæði á góðu verði. Nær óendanlegir uppsetningarmöguleikar. Þar að auki gefur að líta úrval vandaðra húsgagna frá ýmsum löndum. Líttu inn á sýninguna okkar í Faxafeni 9, - 9.-11. nóv- ember og sjáðu hvað hægt er að gera fyrir skrifstofuna þína eða heimilið. Opið laugardag kl. 10-17 og sunnudagjd. 13-18. i.-r FAXAFENI 9 0679399

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.