Morgunblaðið - 11.11.1990, Blaðsíða 32
MOKGUNBLAÐIÐ ATVIMWA/RAÐ/SWIÁ 11. NÓVEMBER 1990
32
Æ*. ■TVMBJII ■ /\ / 1(^1 Y^ltKir^AI?
mMKk.■ W ■ Wl^ifUP/\L/vJ7L / vJ>// \vJ7/v/\
Plötusnúður
Sölumaður
Hótel ísland óskar eftir að ráða plötusnúð.
Æskilegt er að umsækjandi sé ekki yngri en
20 ára. Reynsla og góðurtalandi nauðsynleg-
ur.
Upplýsingar á Hótel íslandi, mánudag og
þriðjudag, milli kl. 16 og 17.
Ármúla 9
Fulltrúi
Opinber stofnun auglýsir eftir félagsmála-
og upplýsingafulltrúa í fullt starf.
Góð íslenskukunnátta og einhvertungumála-
kunnátta, svo sem í ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli. Reynsla í blaðamennsku
og háskólamenntun æskileg og lipurð í
mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Laun skv. kjarasamningum opinberra starfs-
manna.
Umsóknir sendist Morgunblaðinu merktar:
„Fulltrúi - 12569“ fyrir 20. nóvember.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og þeim svarað.
Ritari
Lögmannsstofa vill ráða vanan ritara til
almennra skrifstofustarfa eins og þau gerast
á lögmannsstofu. Þekking á innheimtukerfi
lögmanna kemur sér vel. Fullt starf. Góð
laun eru í boði. Allir umsækjendur látnir vita.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
nk. þriðjudag, merktar: „Þ - 9299“.
Tæknimaður - tölvur
Tölvufyrirtæki óskar eftir að ráða tæknimann
í viðhaldsdeild. Starfið er fólgið í viðhaldi og
þjónustu á einkatölvum. Viðkomandi þarf að
hafa haldgóða reynslu af tölvuviðgerðum og
geta unnið sjálfstætt og skipulega. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl.
merktar: „Tæknimaður - 8166“.
Prentsmíði
Óskum að ráða prentsmið til starfa sem
fyrst. Einnig starfsþjálfunarnema í prent-
smíði.
SVANSPRENT HF
Auðbrekku 12 Sími 4 27 00
Prentsmiðjustörf
Óskum eftir að ráða í bókband:
1. Bókbindara.
2. Nema.
3. Aðstoðarfólk í heils- og hálfsdagsstörf.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
auglýsingadeildar Mbl. fyrir 16. nóvember
merktar: „Prent - 8160“.
Yfirvélstjóri
Yfirvélstjóra vantar á m/b Sólrúnu ÍS-1 sem
gerð er út frá Súðavík.
Upplýsingar í síma 94-4913 eða 94-3983 á
kvöldin.
Sölumaður óskar eftir vel launuðu starfi á
Stór-Reykjavíkursvæðinu. Hefur bíl til um-
ráða. Getur byrjað mjög fljótlega. Margt kem-
ur til greina.
Upplýsingar í síma 96-26970.
Innflutningur
(t.d. viðskiptafræðingur)
Ungur, drífandi og kröftugur viðskiptafræð-
ingur eða aðili með reynslu og þekkingu á
innflutningi óskast til starfa hjá rótgrónu inn-
flutningsfyrirtæki til að hafa yfirumsjón með
innflutningi, verðlagningu, pöntunum og lag-
er fyrirtækisins.
Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir
þriðjudagskvöld, merktar: „V - 9300“.
Laus störf:
Ritari (622)
(Markaðsdeild)
Fyrirtækið er stórt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Vinnutími 8.30-16.30. Vinnuað-
staða mjög góð.
Starfssvið: Sjálfstæð ritarastörf fyrir mark-
aðsstjóra, sem snerta kynningarmál, auglýs-
ingar og útgáfumál o.fl.
Við leitum að ritara, sem er tilbúinn að
starfa sjálfstætt, hefur góða kunnáttu í
íslensku og ensku, tölvukunnátta er einnig
nauðsynleg. Reynsla af starfi úr markaðs-
deild æskileg.
Bókari(571)
Fyrirtækið er þekkt útgáfufyrirtæki í
Reykjavík. Vinnutími 9-17. Starfið er laust
strax.
Starfssvið: Færsla tölvubókhalds, s.s. merk-
ingar, færsla og afstemmingar.
Við leitum að manni, sem hefur unnið að
bókhaldsstöfum í nokkur ár og er tilbúinn
að axla mikla ábyrgð í starfi. Æskilegur aldur
25-40 ára. Verslunarmenntun skilyrði (stúd-
entspróf).
Tölvari (633)
Fyrirtækið er stórt þjónustufyrirtæki í
Reykjavík. Vinnutími kl. 8.30-16.30. Starfið
er laust í desember.
Starfssvið: Starfsmaðurinn vinnur í tölvu-
deild og sér um viðhald og viðgerð á pc-tölv-
um fyrirtækisins.
Við leitum að rafeindavirkja eða manni með
reynslu á þessu sviði. Viðkomandi þarf að
geta unnið undir miklu álagi.
Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar númeri viðkomandi starfs.
Hagva neurhf C—s
Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir
Sjálfstætt starf
Atvinnueflingarfélag Hafnarfjarðar óskar eftir
að ráða mann með viðskipta- eða tækni-
menntun til starfa við þróun og eflingu at-
vinnustarfsemi í Hafnarfirði.
Umsóknir sendist í pósthólf 243,222 Hafnar-
firði, með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf, fyrir 24. nóvember.
Atvinnueflingarfélag Hafnarfjarðar.
Atvinna á
Suður-Spáni
Einstaklingur, eða hjón, óskast til starfa í
þjónustumiðstöð stórfyrirtækis á Suður-
Spáni. Verkefnið er að aðstoða íslendinga,
sem búa um lengri eða skemmri tíma á þess-
um slóðum, og ýmis verkefni því tengdu.
Enskukunnátta nauðsynleg og spænsku-
kunnátta væri kostur, en ekki skilyrði. Þjón-
ustulund, reglusemi, og áhugi fyrir að að-
stoða aðra, er nauðsynlegt.
Vinsamlega sendið nafn, símanúmer og
helstu uppl. á auglýsingadeild Mbl., merktar:
„SÓL - 90“, fyrir 15. nóv. nk.
LANDSPITALINN
Hjúkrunarfræðingar
takið eftir!
Nú eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga á
handlækningadeild 3, (11-G). Bæði er um
að ræða 80-100% stöður og 50% stöður,
þar sem vinnutími yrði 12 klst. 3ju hverja
helgi og 3-4 vaktir á milli helgarvakta. Hand-
lækningadeild 3 er brjóstholsaðgerðadeild,
sem hefur verið í örri þróun sl. þrjú ár vegna
fjölgunar hjartaaðgerða hér á landi. Unnið
er samkvæmt markmiðum og hjúkrunin er
fjölskyldumiðuð.
Sérstök starfsaðlögun ásamt fræðslunám-
skeiði er í boði strax eftir áramót.
Nánari upplýsingar gefur Anna Stefánsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601366, eða Lilja Þorsteinsdóttir, hjúkrunar-
deildarstjóri, í síma 601340.
Á taugalækningadeild 32-A eru lausar stöð-
ur hjúkrunarfræðinga. Á deildinni eru sjúkl-
ingar með vefræna taugasjúkdóma. Fyrir-
huguð er fræðsla til hjúkrunarfræðinga sem
miðar að því að auka gæði hjúkrunar á deild-
inni. Fræðslan hefst í janúar.
Boðið er upp á aðlögun með reyndum hjúkr-
unarfræðingi. Vinnuhlutfall eftir samkomu-
lagi.
Nánari upplýsingar gefur hjúkrunardeildar-
stjóri, Jónína Hafliðadóttir, í síma 601653,
eða Laufey Aðalsteinsdóttir, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri, í síma 610290 eða 601300.
Laus er staða hjúkrunarfræðings á lyflækn-
ingadeild 14-G, sem er gigtar- og nýrnasjúk-
dómadeild. Hlutavinna kemur til greina. At-
hygli skal vakin á því, að séu unnar þrjár
næturvaktir í viku eru laun greidd samkvæmt
deildarstjórataxta. Aðeins er unnin þriðja
hver helgi. Góð aðlögun í boði.
Nánari upplýsingar gefur Laufey Aðalsteins-
dóttir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í síma
601290 eða 610300.
Hjúkrunarfræðinga vantar á krabbameins-
lækningadeild 11-E. Um er að ræða hjúkrun
einstaklinga með krabbamein og einstakl-
inga með blóðsjúkdóma sem eru í lyfja-
og/eða geislameðferð. Hjúkrun þessara ein-
staklinga er krefjandi og áhugaverð.
Markmið deildarinnar er að veita heildræna
hjúkrun og unnið er í þverfaglegum hópum.
Vinnuhlutfall og vinnutími eftir samkomulagi.
Unnið er 4. hverja helgi, 12 tíma vaktir.
Umsóknir sendist skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra.
Nánari upplýsingar gefur Kristín Sóphusdótt-
ir, deildarstjóri, f síma 601225 og Birna G.
Flygenring, hjúkrunarframkvæmdastjóri, í
síma 601290 eða 601300.