Morgunblaðið - 11.11.1990, Side 44
Léttöl
Bögglapóstur
um ullt lond
MORGUNBLADW, AÐALSTRÆTl 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 6S1S11. PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: 11 AFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1990
VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR.
ISAL krefst
skaðabóta
vegna lakra
rafskauta
ÍSLENSKA álfé-
lagið hefur gert
kröfur um 12
milljónir króna í
skaðabætur frá
fyrirtækinu Alu-
chemie í Hollandi vegna lélegra
rafskauta sem ÍSAL fékk send
síðastliðið sumar.
Fyrir fáeinum vikum varð fyrir-
tækið einnig að senda aftur
súrálsfarm sem vatn hafði komist
í og sagði Christian Roth, forstjóri
Alusuisse, að slíkt hefði komið fyrir
áður.
Hann sagði að þetta væri í fyrsta
sinn á þessu ári sem ISAL fer fram
á skaðabætur vegna lélegra skauta
en árið 1988 voru gerðar þijár
slíkar-kröfur.
Unnið hefur verið að stækkun
steypuskála og settur hefur verið
upp nýr ofn sem afkastar á við
átta eldri ofna í steypuskálanum.
Kostnaður vegna stækkunar
steypuskálans er 645 milljónir
“króna.
Einnig er unnið að endurbótum
á kerum í kerskála 1 og á næsta
ári er fyrirhugað að gera endurbæt-
ur kerum í kerskála 2. Auk þessa
verður settur upp nýr rafbúnaður
við kerin og iðntölvur. Fjárfesting-
arnar sem hér um ræðir eru metnar
á 4-5 milljarða króna.
35.000 bólusett-
ir gegn flensu
REIKNAÐ er með
að um 35 þúsund
Islendingar verði
bólusettir gegn
inflúensu á þessu
hausti og er bólu-
setning þegar hafin.
Olafur Ólafsson landlæknir segir
að nú sé búist við svo kallaðri
Sjanghæ-flensu hingað, en hennar
hafi þegar orðið vart á meginlandi
Evrópu. „Það er æ algengara að
fyrirtæki kjósi að bólusetja starfs-
fólk sitt, til að koma í veg fyrir
veikindafjarvistir. Bólusetning
gegn inflúensu veitir vörn í 70%
tilfella."
Kólnun undir Vatnajökli dreg-
ur úr krafti Skeiðarárhlaupa
íshellan yfir Grímsvötnum hefur þykknað um 80 metra á 30 árum
DREGIÐ hefur
úr afli jarðiiita-
svæðisins í
Grímsvötnum í
miðjum Vatna-
jökli, og því er
búist við vatnsminni hlaupum í
Skeiðará með minni hættu fyrir
hringveginn og brýrnar á
sandinum. Varmaaflið hefur
minnkað á undanförnum þrem-
ur áratugum og á sama tíma
hefur íshellan ofan á þeim
þykknað um 70-80 metra, er nú
250 m á þykkt. Við það að kóln-
að hefur í eldstöðinni hefur flat-
armál Grímsvatna minnkað um
þriðjung. Vatnsgeymirinn sem
bræðsluvatnið safnast í áður en
það brýst fram er orðinn minni.
IGrímsvötnum bráðnar ísinn
vegna ' jarðhitans urtdirí
Bræðsluvatnið safnast saman í
lægðinni og brýst út í jökulhlaupi
þegar vatnsborð er komið í vissa
hæð og fellur 50 km leið undir
jökli niður á Skeiðarársand. Brýst
þá fram gífurlegt flóð í Skeiðará,
sem kunnugt er. Þegar hringveg-
urinn var lagður voru því gerðar
þar langar brýr og viðbúnaður til
að taka við þessum hamförum.
Helgi Björnsson jöklafræðingur
bendir þó á að virkni i eldstöðvum
á íslandi geti verið sveiflukennd.
Búast megi við vatnsminni hlaup-
um, nema ef eldgos yrði undir jökl-
inum, einkum ef það yrði norðan
við vötnin með þeim afleiðingum
að heitt bræðsluvatn félli niður i
vötnin og ylli snöggu stórhlaupi.
Sjá viðtali við dr. Ilelga
Björnsson jöklafræðing á bls.
20 og 21.
Gísli Si g-
urðsson
kominn
til Bagdad
GÍSLI Sigurðsson læknir, sem
varð innlyksa í Kúvæt þegar Ir-
aksher hernam landið í sumar,
er nú kominn til Bagdad, höfuð-
borgar Iraks. Utanríkisráðuneyt-
ið fékk staðfestingu á þessu á
föstudag frá ræðismanni íslands
í Amman í Jórdaníu, sem rætt
hafði við Gísla símleiðis.
Að sögn Finnboga Rúts Arnar-
sonar í utanríkisráðuneytinu
hringdi Gísli í ræðismanninn í
Amman á föstudag og var hann
þá kominn til Bagdad. Segir Finn-
bogi að ráðuneytið geti nú beitt sér
frekar fyrir því að hann fái að yfir-
gefa landið, enda séu brottfarar-
leyfi eingöngu gefin út í Bagdad.
Birna Hjaltadóttir, eiginkona
Gísla, segir að hann hafi reynt að
hringja til íslands en ekki náð sam-
bandi. Hann hafi hins vegar náð í
kunningja þeirra hjóna í Svíþjóð og
í samtali þeirra hafi komið fram,
að halm hafi ekki getað farið til
Bagdad fyrr vegna þess að enginn
hafi verið til að leysa hann af á
sjúkrahúsinu í Kúvætborg þar sem
hann starfaði.
Blíða fram
yfir helgi
AF veðurblíð-
unni sem ríkt
hefur á landinu
undanfarnar vik-
ur, er ekki að sjá
að komið sé fram
undir miðjan nóvember. Hitinn
hefur verið um 7 til 10 stig og
búist er við að góða veðrið vari
vestanlands fram yfir helgi en
lengur í öðrum landshlutum.
Að sögn Jóns Ólafssonar, bónda
að Eystra-Geldingaholti í
Gnúpveijahreppi og fréttaritara
Morgunblaðsins, hefur mikil veð-
urblíða ríkt á Suðurlandi undanfar-
ið.
„Ekki er enn farið að taka fé á
gjöf vegna veðurblíðunnar og
haustverk ganga öll betur þegar
tíðin er svona góð,“ sagði Jón, í
samtali við Morgunblaðið.
Að sögn Jóns er veðrið þessa
dagana svipað og það var í fyrra-
haust, en þá var tíðin ágæt allt fram
að jólum.
„Áður en þessi hlýindakafli hófst
nú fyrir skömmu var veðrið hins
vegar slæmt og illviðri var í fjall-
ferðum," sagði Jón.
Að sögn Braga Jónssonar veður-
fræðings hjá Veðurstofunni er útlit
fyrir áframhaldandi hlýindi fram
yfir helgina, en búist er við því að
á þriðjudag fari að kólna vestan-
lands. Áfram verður hins vegar
gott veður í öðrum landshlutum.
„Hlýindakaflar eins og þessi sem
stendur yfir nú, koma alltaf með
ákveðnu millibili. Auðvitað telst
þetta frekar óvenjulegt, miðað við
árstíma, en allt er þetta þó innan
ramma hins venjulega," sagði Bragi
í'sámtali við Morgunbláðið.