Morgunblaðið - 11.11.1990, Síða 30

Morgunblaðið - 11.11.1990, Síða 30
LC 30 0801 93HMSVÖÍÍ . ttHUDAÁlllííMUri MORGUNBLAÐIÐ ATVINf SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1990 I % Forstöðumaður viðurkenningar- deildar Löggild- ingarstofunnar Vegna aukinna og breyttra verkefna Löggild- ingarstofunnar er nú unnið að endurskipu- lagningu hennar, en stofnuninni er nú m.a. ætlað að taka að sér viðurkenningu (accredit- ation) á vottunar- og prófunarstofum í sam- ræmi við Evrópustaðla EN 45 Oxx. Leitað er eftir starfsmanni til þess að byggja upp og veita forstöðu viðurkenningardeild Löggildingarstofunnar. Hann þarf að hafa háskólapróf í verkfræði eða skyldum greinum auk reynslu í skipulagningu og stjórnun á gæðakerfum. Leitað er að manni, sem hefur góða framkomu og á auðvelt með samskipti við aðra, jafnt innanlands sem utan. Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf skal senda til viðskiptaráðuneyt- isins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, eigi síðar en föstudaginn 14. desember nk. Upplýsingar um starfið veitir Finnur Svein- björnsson, viðskiptaráðuneytinu, í síma (91)609436. Viðskiptaráðuneytið, 6. nóvember 1990. ra Fóstrur - þroskaþjálfar Á leikskólann Grænatún vantar okkur fóstru, þroskaþjálfa eða starfsmann með aðra upp- eldismenntun til stuðningsstarfa vegna barns með sérþarfir. Um er að ræða 50% starf fyrir hádegi. Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður í síma 46580. Á skóladagheimilið við Ástún vantar einnig fóstru, þroskaþjálfa eða starfsmann með aðra uppeldismenntun til stuðningsstarfa vegna barns með sérþarfir. Um er að ræða 50% starf eftir hádegi. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 641566. Auk þess veitir dagvistarfulltrúi upp- lýsingar um störfin í síma 45700. Umsóknum skal skila á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á félagsmálastofn- un Kópavogs, Digranesvegi 12. Félagsmálastofnun Kópavogs. Skrifstofumaður með tækni- eða efnafræðimenntun Fyrirtækið er lögmannsstofa í Reykajvík. Starfið felst í sjálfstæðum bréfaskriftum í ritvinnslu (Macintosh) á ensku og þýsku ásamt almennum skrifstofustörfum. Um er að ræða hálfs dags starf. Hæfniskröfur eru að viðkomandi hafi mennt- un á tæknisviði eða í efnafræði ásamt reynslu af sjálfstæðum skrifstofustörfum. Ensku- og þýskukunnátta skilyrði. Umsóknarfrestur er til og með 16. nóvem- ber 1990. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15. Afleysmga- og raðnmgaþionusta Lidsauki hf. W Skólavordustig 1a - 101 fíeykpivik Sirrn 6?130F) Félagsmálastofnun Hafnarfjarðar Stuðningsstarf Óskum eftir að ráða fóstru, þroskaþjálfa eða annan uppeldismenntaðan starfsmann til stuðningsstarfa með fötluðum börnum á leik- skólanum Hvammi, Staðarhvammi 9, í Hafn- arfirði. Um er að ræða 50% starf. Upplýsingar gefur forstöðumaður, Hulda M. Valdimarsdóttir, á staðnum eða í síma 652495. Hefur þú áhuga... á skapandi starfi, ertu jákvæð/ur og gefin/n fyrír börn? , Þá er leikskóli rétti staðurinn. Okkur á Álfabergi vantar starfskraft eftir hádegi. Nánari upplýsingar veitir forstöðukona á staðnum eða í síma 54674. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði. Sölufólk óskast sérstaklega konur Vegna stóraukinna umsvifa vantar okkur sölufólk til starfa. Starfið felst í því að heimsækja fyrirtæki og stofnanir með ýmsar rekstrarvörur, svo sem hreinsiefni, pappír, vélar og tæki til hrein- gerninga o.fl. Um er að ræða mjög sam- keppnisfærar vörur með mikla möguleika. Umsækjandi verður að hafa eigin bíl til um- ráða. Aðeins samviskusamt, heiðarlegt og duglegt fólk á aldrinum 24-40 ára kemur til greina. Vinsamlegast sendið eiginhandarumsóknir, með upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, til okkar fyrir 10. nóvember nk. Upplýsingar ekki gefnar í síma. Fullum trúnaði heitið og öllum umsóknum svarað. Nýbýlavegi 18, pósthólf 136, 202 Kópavogi. Ritari Jötunn, búvéladeild, vantar nú þegar ritara til starfa. Um er að ræða 50% starf fyrir hádegi. Verslunar- eða stúdentspróf æskilegt. Tölvu- og tungumálakunnátta skilyrði. Umsóknir sendist til starfsmannastjóra Sam- bandsins, Kirkjusandi. SAMBANDIÐ ST. JÓSEFSSPÍTALISU3 HAFNARFIRÐI Aðstoðarmaður óskast á rannsóknastofu spítalans frá 1. desember eða eftir nánara samkomulagi. Umsóknir berist fyrir 19. nóvember. Nánari upplýsingar gefur yfirmeinatæknir í síma 50188 eftir hádegi. Tollstjórinn í Reykjavík auglýsir Starfsfólk vantar á skrifstofu Tollstjórans í Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 30. nóvem- ber 1990. a) Staða dejldarlögfræðings í eftirstöðvadeild. b) Staða fulltrúa í gjaldadeild. Laun samkvæmt Iaunakerfi starfsmanna ríkisins. Frekari upplýsingar gefur stárfsmannastjóri. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Toll- stjórans í Reykjavík, Tryggvagötu 19, sími 600300. Tollstjórinn í Reykjavík, 4. nóvember 1990. Sölumenn - „TIMES ATLAS" Nú er hafin sala á nýjustu útgáfu TIMES ATLAS á íslandi. Verkið hefur verið ófáan- legt í á þriðja ár. Atlasinn verður eingöngu seldur í síma- og farandssölu og því leitum við að nokkrum kraftmiklum sölumönnum, sem geta hafið störf strax. Um er að ræða bæði símasölu á kvöldin og um helgar og dagsölu í skólum og fyrirtækjum. Frekari upplýsingar eru veittar í síma 625233 milli kl. 14.00-22.00 í dag. Arnarsson og Hjörvarsf. Sölufólk - kvöldvinna Óskum að ráða fólk til áskriftasöfnunar fjög- ur kvöld í viku, mánudaga til fimmtudaga, frá kl. 18.00-22.00. Upplýsingar gefur Guðrún Ólafsdóttir í síma 82300 frá kl. 10.00-15.00. FRÓDI BOKA (• RIAÐAIJ IC.Af \ Styrktarfélag vangefinna Dagheimilið Lyngás, Safamýri 5, óskar eftir að ráða starfsmann til aðstoðar í eldhús nú þegar. Um er að ræða afleys- ingu, 50-75% starf, um óákveðinn tíma. Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 38228. 30% starf Óskum eftir barnfóstru. Hún þarf að vera hörkudugleg, þolinmóð og vön börnum. Þarf að geta byrjað strax. Upplýsingar veittar á staðnum. ftukc & STÚDÍÓ JÓNlNU & AGÚSTU Skeifunni 7, s. 689868.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.