Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 18
mniiuvw
fit
18
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
1
Hvar er Dúlsínea?
eftir Matthías Kjeld
HEFUR ÞU
KYNIMTÞÉR
HAMAX
SNJÓÞOTUR
í
KAUPFÉLAGINU
OG
SPORTVÖRUVERSLUNUM
$
VERSLUNARDEILD
HOLTAGÖRÐUM • SÍMI 6612 66
Á spjöldum sögunnar koma alltaf
annað slagið menn, sem kallast geta
mikilmenni eða afreksmenn vegna
hugmynda og starfa, sem hafa létt
veru manna á þessari jörð. En við
höfurn líka mátt reyna hið gagn-
stæða, menn, sem hafa valdið þjóð-
um heims hörmungum á stuttri eða
langri ævi sinni, og er slíkra einnig
getið í sögum.
Einn var sá maður spánskur að
kyni, sem réðist með djörfum hug
á hesti sínum gegn vindmyllum.
Þéssi maður, Don Quixote, hefur
verið frægur mjög, og ekki að
ástæðulausu. Það var hin djarfa
athöfn, hinar háu hugmyndir aftur
úr öldum, sem lyfta krossfararridd-
aranum yfir hina samborgarana.
En Don Quixote hafði ekki tiltakan-
legan áhuga á raunveruleikanum,
og hina heittelskuðu Dúlsíneu, sem
hann dýrkaði og barðist fyrir, hafði
hann aldrei séð.
En við erum heppin þjóð og ham-
ingjusöm. Nú er útlit fyrir að einn
slíkur maður sé kominn meðal vor,
með hugmyndir aftan úr fortíðinni
til að berjast fyrir. Við skulum kalla
hann Donka til styttingar. Miðstýr-
ing heilbrigðiskerfisins er hjartans
mál Donka og einhvers staðar í því
kerfi telur hann, að Dúlsíneu sé að
finna, heitmey riddarans. í héil-
brigðiskerfinu finnur hann margar
önnum kafnar dugandi stofnanir
(vindmyllur?), sem standa einar og
sér, og snúast af krafti með arði
og árangri fyrir land og lýð. Hér
finnur Donki fjandmenn sína, sem
hafa kannski fundið Dúlsíneu og
halda henni fanginni. Ríður hann
nú úr virki sínu rammgerðu með
burtstöng á lofti.
Fyrir sakir mikillar elsku beinist
afbrýði Donka að nánast öllu í heil-
brigðiskerfinu. En þegar svo háttar,
aðV menn þeir, sem vinna verkin,
ráða sér sjálfir og taka ákvarðanir
um framkvæmdir, ellegar lands-
menn ráða sjálfir hvert þeir leita
og hvað þeim líkar best, fyllist Donki
réttlátri reiði. Hvers vegna skyldi
fólkinu og læknum treystandi fyrir
samskiptum sínum? Hvers vegna
þarf hann að þola lækningastarf-
semi, sem ekki er flokkspólitísk?
En Donki kann ráð við þessu.
Hann fer bara í sjónvarpið svona
af og til og segir frá einhveijum
tölum. Það ku t.d. hafa orðið þré-
föld hækkun á greiðslum til sérfræð-
inga, sem vinna sjálfstætt, yfir 6
ára tímabil. Auðvitað er ekki nefnt
að sjúkrahúsin hafa verið iokuð
meira og minna á þessu tímabili.
Donki er ekki heiðarlegur eins og
farandriddarinn frá La Mancha.
Hann nefnir ekki aukna þjónustu,
ekki aðrar hækkanir í kerfmu. Get-
ur þess t.d. ekki, að framlög til
Veðurstofunnar hafa tvöfaldast á
sama tímabili. Veðurspár hafa batn-
að mjög en veðrið ekkert og snýr
ennþá vindmyllum að vild sinni.
Ef maður ber nú tölur Donka
saman við tölur, sem unnar hafa
verið á vegum Háskólans úr ýmsum
opinberum gögnum yfir tímabilið
1960 til 1988, (kandídatsritgerð
Benedikts Árnasonar í viðskipta-
fræðideild vorið 1990), hlýturmaður
þó að spyija hvort hann hafi nú
brotið leikreglur krossfarariddara
og ríði nú brynjulaus á sópskafti
um loftin blá. í ritgerð Benedikts
kemur fram, að miðað við fast verð-
lag 1980 voru útgjöld til heilbrigðis-
mála 15% af heildarútgjöldum ríkis-
ins árið 1960, en voru orðin 20%
árið 1988. Á þessum 28 árumjókst
neysla á heilbrigðisþjónustu um 4,4-
falt í heilsugæslu, 4,9-faIt í stjórn-
un, 5,0-falt hjá sérfræðingum, 6,1-
falt á lyfjum, 9,6-falt á sjúkrahús-
um, 14-falt hjá tannlæknum og
ýmis annar sjúkrakostnaður 15,9-
falt. Á þessu tímabili verður um
300% hagvöxtur í landinu og lækn-
isþjónusta eykst að miklum mun.
En sanntrúaður farandriddari er
ekki hingað kominn til þess að upp-
lýsa fólk um staðreyndir eða hafa
í frammi einhvern kjánalegan sam-
anburð, t.d. hvað bílaeign lands-
manna hefur aukist á tímabilinu
ellegar sólarlandaferðir. Læknahóp-
urinn, sem Donki er að reyna að
gera tortryggilegan með þessum
smekklega hætti, fær minna en 3%
BLUEBIRD
Sch
greitt af því fé, sem fer til heilbrigð-
isþjónustu hérlendis og læknisverk
þessa hóps eru með því ódýrasta,
sem þekkist á Vesturlöndum. Um-
ræddir sjálfstætt starfandi læknar
sjá um hálfa milljón sjúklingaheim-
sókna á ári og mjög mikla þjónustu,
sem annars hefði orðið að sinna
inni á sjúkrahúsunum, þarsem legu-
dagurinn kostar einhvers staðar
milli 30-45 þúsund kr. á dýrustu
einingunum.
Hinn hjartaprúði, valdafælni
Donki boðar nýja tíma. Hví ekki
koma lækningum framtíðarinnar
fyrir í kaupfélögunum, svo þau
hefðu betri samkeppnisstöðu, t.d.
gagnvart Hagkaupum. Og þar
mætti hafa auga með fólkinu og
lækningunum. Þar mætti fýlgjast
með því að fólk sé ekki að rápa til
„kaupfélagslæknisins" að óþörfu,
eða a.m.k. farinn úr því mesti vind-
urinn áður. Með vel útfærðri mið-
stýringu í þessu kerfi mætti ef til
vill spara bæði penicillín og verkja-
lyf, jafnvel svefnlyf, þar sem fólkið
þyrfti minna að hugsa. Allt í nafni
heittelskraðrar Dúlsíneu.
Það er ekki nema á færi snillinga
á borð við Donka að sjá fyrir sér
yfirstjóm spítalanna í Reykjavík.
Stjórn, sem sér um fjármálin, sam-
eiginlega tækjakaup, mannaráðn-
ingar, matarkaup, sprautur, allt.
Hvílík yfirvættis þekking á heil-
brigði^málum og stjórnsnilli liggur
hér að baki. Það þarf ekkert að
útskýra þetta, það sparast milljón-
irl! Það má setja aðra stjóm ofan á
þessa og svo aftur ofan á hana
o.s.frv. án þess að svo mikið sem
starfsfólkið verði vart við það. —
Og vinnulýðinn má gleðja með 2-3
stjómm, eins og glassúr, ofaná allt
saman, sem síðan gætu farið í sjón-
varpið með Donka á góðum dögum
til að segja Búlúlala, ellegar inn á
Alþingi að mótmæla mylluvindi.
Donki unir sér ekki hvíldar. Ef
hann er ekki úti á Rósinante ein-
hvers staðar á þeysispretti, leggur
hann dag við nótt í virki sínu við
að vinna að endurskipulagningu
svokallaðrar „sjúkraþróunar“ á Is-
landi. Nú er nýkomið fram fmm-
varp um almannatryggingar. Þar
er eftirfarandi að finna: „Ráðherra
getur í samráði við Tryggingaráð
ákveðið, á grundvelli Ijárlaga hvetju
sinni, hversu mikla heilbrigðisþjón-
ustu utan sjúkrahúsa ríkið kaupir
og þann fjölda einstaklinga, sem
Matthías Kjeld
„En við erum heppin
þjóð og hamingjusöm.
Nú er útlit fyrir að einn
slíkur maður sé kominn
meðal vor, með hug-
myndir aftan úr fortíð-
inni til að berjast fyrir.
Við skulum kalla hann
Donka til styttingar.“
þjónustan er keypt af.“ Þessi vina-
lega klausa kemur áreiðanlega tár-
um í miðstýrð augu Dúlsíneu.
Ríkisstofnanir hafa haft forgöngu
um að sýna nauðsynlegan aga, svo
að þegnamir megi finna öryggis-
kennd, t.d. lokun á síma ef greiðsla
berst ekki í tíma, hótun á eignaupp-
töku, ef dregst að greiða skattinn
o.s.frv. Það olli þess vegna nokkurri
undmn að sjá ekki í tilvitnuðu frum-
varpi klausu, sem hefði getað verið
eitthvað á þessa leið: „Nú veikist
atkvæðisberi með íslenska kennitölu
og er það ekki á grundvelli fjárlaga
og skal þá sá hin sami deyja drottni
sínum og kennitala hans gerð upp-
tæk til ríkisins.“
Nú vitum við ekki, þegnar ríkis-
ins, hvort von sé til þess nokkur,
að Donki stígi af baki Rosinante
einhvern tíma og brynni honum
ásamt asnanum hans Saneho Pansa
í einhveijum ríkisbmnninum. En
það er von okkar sumra, dauðlegra,
að þá mætti kannske spyrja hann,
„Heyrðu, Donki, er ekki Dúlsínea
ennþá í Rúmeníu?“
Höfundur er læknir.
f iii ittii 11 iimi; imm / / m iii
ttH.lt.ll 1J1»Í\ lltt\%l /// /
k 20 a <
& 2
ff I
Kópal innanhúss-
málning er med
fimm gljástig
Kópal Tónn 4
Gcfur matta áfcrð.
Hcntar cinkar vcl
þar scm minna
mæðir á, t.d. í
stofum, borðstof-
um, í svcfnhcrbcrgi
og á loft.
Kópal Glitra 10
Hcfur örlítið mciri
gljáa cn KÓPAL
TÓNN og þar af
lciðandi bctri
þvotthcldni. Hcntar
vel þar scm mcira
mæðir á.
m
Kópal Birta 20
Gcfur silkimatta
áfcrð. Hcntar vcl
þar scm mæðir
talsvcrt á vcggflcti,
t.d. á ganga, barna-
hcrbcrgi, cldhús, og
þar scm óskað cr
eftir góðum gljáa.
Kópal Flos 30
Hefur gljáa scm
kcmur að góðum
notum á lcikhcr-
bcrgið, stigaganga,
barnahcrbcrgi,
baðhcrbcrgi, þvotta-
hús o.fl. Hentar
cinnig á húsgögn.
Kópal Geisli 85
Gcfur mjög gljáandi
áfcrð og hcntar þar
scm krafist cr
mikillar þvotthcldni
og styklcika, t.d. í
bílskúrinn, í
gcymsluna og í
iðnaðarhúsnæði.
Hcntar einnig á
húsgögn.
KÓPAL er samheiti á innan-
hússmálningu sem uppfyllir
kröfur um ómengandi máln-
ingarvöru til innanhússnota á
Norðurlöndum. KÓPAL
yfirmálning er vatnsþynnan-
leg, fæst með fímm gljástigum
og í staðallitum og nær ótelj-
andi sérlitum skv. KÓPAL
tónalitakortinu. KÓPAL
yfirmálning er auðveld í með-
förum, slitsterk og áferðar-
falleg og seld í öllum málning-
arverslunum landsins.
Imálninglf
■ það segir sig sjdlft -
^ s/iE t /m/ miÆiinwm %\\x%m/ i
m//w/\ i»m\f.\ \«f i«i#'i \tt mtMiV': \\\
s
s