Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
I
Kristján R. Jessen doktor í taugalíffræði:
Grundvallarrannsóknir sú undir-
staða sem meðferð getur byggst á
„ÞAÐ sem við höfum verið að gera síðustu árin er að afla okkur
vitneskju um þroskun og starfsemi taugafruma og fylgifruma
þeirra, glia-fruma, í úttaugakerfinu. Við upphaf rannsóknarinnar
spyijum við ákveðinna spurninga og leitumst síðan við að svara
þeim með tilraunum. Hins vegar leiðir tilraunastarfsemin okkur
oft inná óvæntar brautir sem mann óraði ekki fyrir í upphafi. Slík
óskipulögð ævintýri eru vafalaust skemmtilegasti þáttur vinnunnar
og að jafnaði sá árangursríkasti. Sagan sýnir að fjölmargar, ef til
vill flestar, mikilvægustu uppgötvanir vísindanna verða óvænt eða
„af tilviljun" fremur en innan þröngs ramma þrauthugsaðrar
vísindaáætlunar. Það er stöðugt verkefni vísindamanna að reyna
að auka skilning fjárveitingavaldsins og almennings á þessum gangi
mála, því enn eru menn að jafnaði tregari til að fjármagna opnar
rannsóknir en veriœfni sem virðast „markvissari" á blaði“. Þetta
segir Krislján R. Jessen líffræðingur sem hélt nýlega fyrirlestur
á ráðstefnu um rannsóknir í læknadeild Háskóla íslands.
Kristján R. Jessen hélt til Bret-
lands í framhaldsnám eftir- próf í
líffræði frá Háskóla íslands og
lauk hann doktorsprófí í taugalíf-
fræði við University College í Lon-
don árið 1980. Þar hefur hann
starfað síðan og stjómar nú rann-
sóknastofu sem fæst við rannsókn-
ir á tauga- og glia-frumum út-
taugakerfisins þar sem starfa
10-12 manns. Öðru hveiju bregður
hann sér til íslands og heldur fyrir-
lestra við Háskóla íslands og Há-
skólann á Akureyri.
Mikið gerst hérlendis
„Mér bauðst tækifæri til að
starfa að frekari rannsóknum í
Bretlandi og þess vegna hef ég
starfað áfram þar enda öll aðstaða
góð. Rannsóknir eru þó ekki bara
bekkir eða borð og mælitæki held-
ur samfélag og samstarfsmögu-
leikar við starfsbræður og á því
sviði eru í flestum tilvikum meiri
tækifæri erlendis en hægt er að
búast við á íslandi. Hér hefur hins
vegar afar mikið gerst síðustu árin
og það kemur mjög vel í ljós á
þessari ráðstefnu. Hér starfa sér-
fræðingar í fjölmörgum greinum
læknavísindanna og skyldra fræða
og aðstaðan er alltaf að batna
þannig að hér hafa menn á ýmsum
sviðum náð geysilega langt.“
Sem fyrr segir flutti Kristján
R. Jessen fyrirlestur á ráðstefn-
unni um rannsóknir sínar. „Þær
taugafrumur sem við höfum eink-
um haft áhuga á liggja í meltingar-
vegi en starfi hans er stjómað af
gífurlega flóknu kerfí taugafruma
sem falfö er í vegg meltingarvegar-
ins sjálfs. Að undanskildu mið-
taugakerfínu, heila og mænu, auð-
vitað, er þetta langumfangsmesti
hluti taugakerfísins og sá sem
margbreytilegastur er að gerð.
Margt er enn á huldu um starf
þessa stjómkerfís en við fundum
áður óþekktan þátt þess sem er
kerfi taugafruma sem nota boð-
efnið GABA. Framum af þessu
tagi hafði áður verið lýst í heila
og mænu og þetta boðefni, GABA,
er eitt af mikilvægustu boðefnum
miðtaugakerfísins.
Meðal annars fundum við að
þessar framur mynda þétt net
taugaþráða eða síma, sem liggja
til hringvöðvalags meltingarvegar-
ins og hann sér um flutning fæðu
og fæðuúrgangs frá maga til enda-
þarms. GABA-framumartakaþátt
í stjórn þessa flutnings en á honum
byggist allt annað meltingarstarf.
Verk sitt vinna þær á óbeinan
hátt með því að ráða boðefnalosun
frá öðram frumum, sem aftur
stjóma hreyfíngum hringvöðvanna
milliliðalaust.“
Að undanförnu hafa rannsóknir
Kristjáns beinst æ meir að fylgi-
frumum taugaframa, svokölluðum
glia-framum, einkum Schwann-
framum sem er mikilvægasti hópur
glia-frama í úttaugakerfínu. Allir
símar úttauga era umluktir
Schwann-framum og er eðlilegur
flutningur rafboða um taugar háð-
ur þessum framum. Sumar mynda
fítuslíður eða mýli um digra síma
en aðrar umlykja granna síma í
opnum rennum á yfírborði sínu.
„í þessum rannsóknum leitumst
við við að skilja hvemig hin reglu-
bundna bygging og starfræn sam-
skipti fruma og vefja sem einkenna
úttaugar og era forsenda starfs
þeirra, verða til í fósturþroskun
og hvaða hormón, vaxtarþættir,
viðtakar, frymisboð og svo fram-
vegis koma þar við sögu. Þekking
á þessum þáttum er sá grandvöllur
sem skilningur á óeðlilegu eða
sjúklegu taugakerfí og þar með
meðferð eða lækning mun í síaukn-
•um mæli byggjast á.“
Samskiptin við ónæmiskerfið
Nú fæst þú við grannrannsóknir
en ekki klíníska vinnu. Hins vegar
er væntanlega eitthvert samband
þar á milli?
Kristján R. Jessen doktor í tauga-
líffræðí var gestafyrirlesari á
ráðstefnu um rannsóknir í
læknadeild Háskóla íslands.
„Það er rétt. Grandvallarrann-
sóknir sem þessar beinast ekki
beint að lækningu tiltekinna sjúk-
dóma, heldur að hinu að leggja þá
undirstöðu almennrar þekkingar
sem klínískur skilningur og síðan
meðferð byggist á. Þannig er vissu-
lega um samband að ræða, þótt
það sé misnáið eftir atvikum og
sumar grundvallarrannsóknir nýt-
ist ekki beint í klínískri vinnu fyrr
en fjölmörgum áram eftir að þær
era gerðar. Snertiflöt milli grund-
vallarrannsókna og klínískra
vandamála má í okkar vinnu sjá
til dæmis í tengslum við GABA-
taugaframur meltingarvegar sem
ég nefndi áðan. Sú vinna hefur nú
Móðirvor
. SEM ERTÁ fÖRÐU,
HEILAGT VERl NAFN ÞITT.
KOMI RÍKI ÞITT,
OG VERI VIL|I ÞINN FRAMKVÆMDUR í OSS,
EINS OG HANN ER í ÞÉR.
EINS OG ÞÚ SENDIR HVERN DAG ÞÍNA ENGLA,
SENDU ÞÁ EINNIG TILOSS.
FYRIRGEF OSSVORAR SYNDIR,
EINS OG VÉR BÆTUM FYRIR
ALLAR VORAR SYNDIR GAGNVART ÞÉR.
OG LEIÐ OSS EIGl TIL SJÚKLEIKA,
HELDUR LEIÐ OSS FRÁ ÖLLU ILLU,
ÞVÍ ÞÍN ER JÖRÐIN,
LlKAMINN, OG HEILSAN.
Amen
Friðarboðskapur Jesú Krists er fyrstu aldar frumhandrit úr
leyniskjaiasafni Vatikansins. Hrein og ómenguð orð Jesú
Krists, töluð fyrir nær tvö þúsund árum, um lækningamátt
Móður Jarðar, engil jarðarinnar, vatnsins, loftsins og
sólarljóssins. Hversvegna hefurþessari mikilvægu
þekkingu um hina Jarðnesku Móður verið haldið frá
almenningi? Ritið varpar nýju Ijósi á fræðslu Krists og
lætur engan nútímamann ósnortinn. Fæst í bókabúðum.
Vfsdómsútgáfan
Fri^oöskapur
/estJ Krists
í
*Bæn úr Friðarboðskap Jesú Krists eftir lærisveininn Jóhannes. Hinir Aramelsku og gömlu Slavnesku frumtextar. Þýddir af
Edmond Székely, sem ásamt Nóbelsverðlaunahafanum Romain Rolland, stofnaði 1928 International Biogenic Society.
íslensk þýðing Ólafur Ragnarsson með aðstoð Óskars Ingimarssonar.
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SlMI: 62 84 50
--^---------
Canon
REIKNIVELAR
í>ú heyrir munmn
r'W.
i Canon reiknivélamar með
bleksprautuimi er bylting. Vinna
nær hljóðlaust og hratt.
Skrifstofuþægindi fást með Canon
ikrifvélin hf CATIOTI
M\l II VCIII 1 I 11 SKRIFSTOFUTÆKI
Suðurlandsbraut 22 s: 91-685277