Morgunblaðið - 27.11.1990, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
Ævisaga hug-
mynda - Helgispjall
-eftir Matthías Johannessen
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
eftir Matthías Johannessen
skáld og ritstjóra. Nefnist hún
Ævisaga hugmynda - Helgispjall
og inniheldur hugrenningar
höfundarins sem áður hafa birst
á síðum Morgunblaðsins og
kallst Helgispjall.
í formála Heimis Pálssonar seg-
ir m.a.: „Það fer að sönnu ekki á
milli mála að hér heldur skáld á
penna og nýtir sér út í æsar það
frelsi sem eseyjan veitir. En um
leið gerist skáldið sjándi og rýn-
andi, það sér sýnir og túlkar þær,
ekki eins og vísindamaður heldur
eins og skáld. Þannig á það líka
að vera og þess er full þörf. Þessi
kaldgeðja efnishyggjuöld þarf ein-
mitt öðrum öldum fremur á því að
halda að skáldin haldi vöku sinni,
hvessi skilning okkar og skerpi sýn
okkar á hinn eilífa vanda (...) Hvort
sem lesendur þessarar bókar fall-
ast á skoðanir höfundarins eða
ekki geta þeir hrifist af mælskunni
og hugarfluginu, glaðst við að fá
að glíma við svo marksækna hugs-
un, svo skáldlega gáfu, fagnað því
að hafa í höndum bók sem hægt
Forsíða bókarinnar Ævisaga
hugmynda - Helgispjall.
er að fræðast af, gleðjast við, reið-
ast við en umfram allt nota til
þess að aga hugsun, mál og
mennsku. Það er mikilvæg bók.“
Bókin er prentuð í Odda hf.
Framkvæmdir vegna álvers:
Frumvarp til heimildar-
laga lagt fram eft-
ir jólaleyfi Alþingis
Utboð stærri framkvæmda um áramót
með fyrirvara um samkomulag
FRESTAÐ hefur verið að leggja fram á Alþingi heimildarlaga-
frumvarp fyrir framkvæmdum vegna byggingar álvers á Keilis-
nesi. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segir ýmislegt hafa tafið
undirbúning og því verði frumvarpið ekki lagt fram fyrr en í
byijun þings að afloknu jólaleyfi. Hann segir þó að áætlun um
að Ijúka samningum í mars standi óbreytt þrátt fyrir þessar taf-
ir og að útboðsgögn vegna stærri framkvæmdaþátta verði send
út um áramót, með fyrirvara um að samningar náist.
Jón segir hafa komið í ljós að
undirbúningur málsins tefjist af
ýmsum ástæðum. „Ég tel ekki rétt
að leggja fram heimildarlagafrum-
varpið fyrr en skýrari línur eru
komnar um það sem ólokið er í
bæði aðalsamningi og orkusamn-
ingi,“ segir hann. „Það hefiir orðið
skýrara á síðustu fundum í málinu
að viðræðuaðilar okkar í málinu
eru ekki komnir alveg nægilega
langt í samningum sín í milli, sem
eru margvíslegir, til þess að ljúka
megi málinu."
Hann segir að ekki megi gera
neitt af íslendinga hálfu sem tor-
veldi Atlantsálshópnum að ná
sínum innbyrðis samningum. „Svo
er það nú, eins og vel er kunnugt,
að ýmiss konar umræður á íslandi
um málið hafa ekki flýtt fyrir því
svo ég kveði vægt að orði,“ segir
Jón. „Niðurstaðan er sú að ég
stefni nú að því að leggja heimild-
arlagafrumvarpið fram í upphafí
þings að loknu jólafríi."
Iðnaðarráðherra segir að bjóða
þurfi stærri verkþætti út um ára-
mót til þess að hægt sé að ráðast
í verkin á næsta ári og vinna þann-
ig heilt ár í tekjum af álverinu og
af Blönduvirkjun. „Það er hægt
að senda út útboðsgögn vona ég,
enda hafí þá ekkert komið fram
sem gefur ástæðu til að ætla að
ekki takist samningar. Ég tel það
alveg Ijóst að ásetningur beggja
aðila um að ljúka málinu á fyrsta
Qórðungi nýja ársins sé óbreyttur.
Við íslendingar, og gagnaðilinn,
erum jafn ásáttir um að ljúka því
í mars. Það sem gerist er að nokkr-
ar millidagsetningar færast svolítið
aftar, en ef vel og skipulega er á
málinu haldið á að vera hægt að
ljúka því á þinginu, sem ráðgert
er að staridi til miðs mars.“
Jón segir margt vera að gerast
þessa dagana í sambandi við álver-
ið. í þessari viku fari fram samn-
ingar um hafna- og lóðamál, í þes-
asri viku komi hingað forstöðu-
menn mengunarvama í álveri Al-
umax í Suður Karólínu til þess að
kynna hvernig staðið er að málum
þar, bæði í byggðarlaginu þar sem
ráðgert er að álverið rísi og ann-
ars staðar, fundir verða í næstu
viku um orkumálin og um önnur
atriði samninganna á næstu dög-
um. „Þannig að það er unnið eins
skipulega og af jafn miklum krafti
og kostur er,“ segir Jón Sigurðs-
son.
Fréttablöðin
eru ekki seld
VEGNA fréttar í Morgunblað-
ínu fyrir nokkru um upplag
fréttablaða er rétt að fram
komi, að fréttablöðin, sem
nefnd voru, eru ekki seld,
heldur er þeim dreift fólki að
kostnaðarlausu.
Þannig kom fram í fréttinni,
að sala Vestfirska fréttablaðsins
hefði dregist saman á tímabilinu
júní-september, frá tímabilinu
febrúar-maí. Hjá Vestfirska
fréttablaðinu fengust þær upp-
lýsingar, að fyrra tímabilið var
gerð tilraun með að dreifa blað-
inu í Strandasýslu, en síðar var
því hætt, enda voru ekki auglýs-
ingar þaðan í blaðinu.
FRAMLENGING ÞJOÐARSATTARSAMNINGA
Mínní hækkun
búvöruverðs en
almenns verðlags
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ og Þórarinn Þórarinsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ eftir að samkomulag um framlengingu þjóðarsátt-
ar hafði verið undirritað.
AÐILAR vinnumarkaðarins og
ríkisins framlengdu kjarasamn-
ingum þeim sem gerðir voru í
febrúar á þessu ári, þjóðarsáttar-
samningunum svonefndu, síðast-
liðinn laugardag og gilda samn-
ingarnir til 1. september á næsta
ári. Þeir eru uppsegjanlegir 1.
maí nk. Eina breytingin sem gerð
var á samningunum er bókun um
að launafólki verði veitt hlutdeild
í þeim viðskiptakjarabata sem
verða kann umfram forsendur
samninganna á seinni hluta
samningstímans. Viðskiptakjörin
verða tekin til sérstakrar skoð-
unar í febrúar og maí á næsta
ári. Samkvæmt kjarasamningun-
um mun búvöruverð ekki hækka
umfram almennt verðlag.
Laun félaga í BSRB hækka um
2,55% 1. desember næstkomandi
og Iaun félaga í ASÍ hækka um
2,83%. Næstu almennu launahækk-
anir verða í byrjun mars og júní
en þá hækka Iaun um 2,5% og 2%.
Samningamir gera ráð fyrir að
búvömverð hækki minna en al-
mennt verðlag, eða um 3-4% á
móti 7% hækkun á almennu verð-
lagi. Samið var um að búvöruverð
hækki um 1% 1. desember nk., 1%
1. mars og 1% 1. júní. Ríkisvaldið
fellst á að stuðla að minni hækkun
búvömverðs en almenns verðlags
með því að lækka kjamfóðurgjald
um helming frá og með 1. janúar
nk., úr 50% í 25%. Niðurgreiðslur
til landbúnaðar verða óbreyttar en
einhverjar tilfærslur verða þó innan
- niðurgreiðslukerfisins.
Þá er í forsendum samningsins
gert ráð fyrir óbreyttu verði á
bensíni fyrstu mánuði ársins og
verðhækkanir í takt við almennar
verðlagsbreytingar á árinu að því
tilskildu að ástandið við Persaflóa
versni ekki.
Einu frávikin frá ráðgerðum
hækkunum á opinberum gjald-
skrám er að þær taka gildi í tveim-
ur áföngum, en ekki í upphafi árs
eins og gert var ráð fyrir í fjárlög-
um. Að öðm leyti var ekki að fullu
gengið frá dagsetningum á ráð-
gerðum hækkunum á opinberum
gjaldskrám heldur varð um þær
munnlegt samkomulag.
Ráðgert er að verðlag á áfengi
og tóbaki fylgi almennum verðlags-
breytingum. Gjaldskrá Pósts og
síma átti samkvæmt fjárlögum að
hækka um 8% í 1. janúar 1991. í
samningunum er hins vegar kveðið
á um að hækkuninni verði skipt í
tvennt, 3,5% hækkun í febrúar nk.
1991 og 3,5% í júlí. Ekki liggur ljóst
fyrir hve mikið tekjutap Pósts og
síma verður af þessum sökum.
Þá var gert ráð fyrir 7% hækkun
á sementi 1. janúar 1991 sam-
kvæmt fjárlögum en þeirri hækkun
verður skipt í tvennt. Sement hækk-
ar þannig um 3-4% á vordögum
1991 og annað eins síðla sumars.
Ráðgerð var 2% hækkun á raf-
magni í upphafí næsta árs að
óbreyttu verði frá Landsvirkjun.
nýgerðum samningum hækkar raf-
magn um 1% í upphafi næsta árs
og 1% á miðju næsta ári. Gert var
ráð fyrir 4% hækkun á gjaldskrá
Ríkisútvarpsins í upphafí næsta árs
og sú hækkun kemur óbreytt.
Ingvi Örn Kristinsson, formaður
Sambands íslenskra bankamanna,
lítið nýtt væri í þessum samningum
að undanskildri bókun um að launa-
fólki verði veitt hlutdeild í viðskip-
takjarabata verði hann einhvér á
samningstímanum. „Menn binda
náttúrulega vonir við að svo verði
og að launamenn fái hlutdeild í
þeim bata sem þá kynni að hafa
orðið. Það var rætt um breytingar
á launaskatti sem eiga verða núna
um áramótin en ég held að það
hafi engin fyrirheit verið gefin um
breytingar á honum. Samningsaðil-
ar gerðu sameiginlega verðbólgu-
spá þar sem byggt var á forsendum
um olíuverð, búvöruverð og verð-
hækkanir á opinberri þjónustu sem
ef til vill má túlka sem skuldbind-
andi fyrir ríkisvaldið," sagði Ingvi
Öm.
*
Ovissa um
anna þar til olíuverðhækkanir í kjöl-
far Persaflóadeilunnar tóku að hafa
áhrif. Miklar verðhækkanir á út-
flutningsafurðum gefa þó vonir um
að þróunin verði betri á næsta ári.
Vegna þeirrar sérstöku óvissu
um þróun viðskiptakjara sem leitt
hefur af olíuverðhækkunum eru
aðilar sammála um að taka við-
skiptakjörin til sérstakrar skoðunar
í febrúar og maímánuði nk. Hafí
þau þá batnað með marktækum
hætti umfram forsendur samninga
munu aðilar í sameiningu taka af-
stöðu til þess á hvem veg launa-
fólki verður veitt hlutdeild í þeim
viðskiptakjarabata sem verða kann
umfram forsendur samninganna á
síðari hluta samningstímans. Skal
þeirri skoðun lokið fyrir 20. dag
útreikningsmánaðar.“
þróun
viðskipta-
kjara
í BÓKUN sem samningsaðilar
gerðu var fjallað um þá óvissu
um þróun viðskiptakjara og varð
samkomulag um að þau mál yrðu
skoðuð sérstaklega í febrúar og
maí á næsta ári. Bókunin er svo-
hljóðandi:
„Aðilar eru um það sammála að
forsendur núgildandi kjarasamn-
inga hafi í meginatriðum gengið
eftir. Verðbólga hefur lækkað og
er nú náfiast sú sama og gert er
ráð fyrir í samningunum. Kaup-
máttarmarkmið kjarasamninganna
hafa einnig náðst. Það er afar mikil-
vægt að þessi mikli árangur verði
tryggilega festur í sessi á síðari
hluta samningstímans þannig að
markmiðum samninganna um að
treysta kaupmátt og stöðugleika í
verðlagi verði sem best náð.
Viðskiptakjör þjóðarbúsins bötn-
uðu umfram forsendur samning-
Meiri kaup-
máttur
gagnvart
bóvörum
-segir Asmundur _
Stefánsson forseti ASI
ÁSMUNDUR Stefánsson, forseti
Alþýðusambands íslands, segir
eðlilegt að gerð hafi verið bókun
um að taka viðskiptakjör til sérs-
takrar skoðunar í febrúar og
maí. „Þetta er eðlilegt með hlið-
sjón af þeirri óvissu sem er fram-
undan,“segir hann.
Ásmundur sagði að viðræður við
bændur og ríkisvaldið hefðu leitt
til þess að Þjóðhagsstofnun hefur
nú að fengnum breyttum forsend-
um lækkað fyrri spá um verðbólgu-
þróunina á næstu mánuðum um
eitt prósentustig. „Það kemur fram