Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NOVEMBER 1990
Irak;
Fréttum um morð á skóla-
stúlkum vísað á bug
Bagdad. Reuter.
ÍRAKAR hafa vísað á bug fréttum þess efnis að átta skólastúlkur
hafi verið myrtar í Bagdad. írakar segja að veggjakrot, þar sem
sagði að morðin væru hefnd fyrir börn sem féllu í Kúvæt við innrás
íraka, hafi verið grín nokkurra barna og séu skilaboðin skrifuð með
fuglsblóði en ekki mannsblóði.
í frétt frá Jteufers-fréttastofunni
á laugardag sagði að morðingjar
hefðu skorið átta skólastúlkur í
Bagdad á háls og skrifað orðsend-
ingu með blóði þeirra á veggi í skól-
um og íbúðarhúsum þar sem kom
fram að um væri að ræða hefnd
vegna barna sem fallið hefðu í
Kúvæt. Var þetta haft eftir ferða-
mönnum sem talað höfðu við fólk
sem sagðist ■ hafa séð lík stúlkn-
anna. Sagði það að íbúar Bagdad
væru skelfingu lostnir og margir
þyrðu ekki að senda böm sín í skól-
ann. Meira en tugur skóla hefði
fengið hótunarbréf eða ógnandi
símtöl undanfarið, Haft var eftir
einum sjónarvotti að hann hefði séð
stúlku liggjandi andvana fram á
skólaborð sitt snemma í síðustu
viku eftir að hún hafði verið skorin
á háls. Annað vitni, nemandi í við-
komandi skóla, sagði að allar stúlk-
umar átta hefðu verið skornar á
háls og skólastýrunni hefði verið
ógnað með byssu.
í yfirlýsingu frá íraska innanrík-
isráðuneytinu sem lesin var í sjón-
varpi á laugardagskvöld sagði að
ekki væri vitað um neitt glæpsam-
legt athæfi af þessu tagi. Sjónvarp-
ið sýndi hins vegar myndir af tutt-
ugu börnum á aldrinum 10-16 ára.
Sagði í fréttinni að þau væru félag-
ar í leynisamtökunum Svörtu hönd-
inni og bæru ábyrgð á áðumefndu
veggjakroti. Þar sagði að tíu ára
gamall drengur hefði viðurkennt
að hafa vætt hönd sína með fugls-
blóði og skrifað skilaboðin á vegg
skóla síns. Sjónvarpið sagði að ann-
ar drengur, fimmtán ára gamall,
hefði hringt í bróður sinn frá hóteli
í Bagdad og hótað því að hann yrði
myrtur. „Þetta átti að vera brand-
ari,“ hafði sjónvarpið eftir piltinum.
Vinningstölur laugardaginn
24. nóv. 1990
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1. 5af 5 0 5.916.863
O puÆtekfiUl 4. 4 af 5^(0 5 120.339
3. 4af 5 124 8.370
4. 3af 5 4.948 489
Heildarvinningsupphæð þessa viku:
9.976.010 kr.
UPPLYSINGAR: SIMSVARI
681511 - LUKKULÍNA 991002
KJÖRBÓK
...kjörin leið
til spamaðar
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Reuter
Helmut Kohl, kanslari Þýskalands og leiðtogi kristilegra demókrata,
heilsar stuðningsmönnum sínum á kosningafundi í Berlín um helgina.
Kosningar í Þýskalandi;
Jafnaðarmenn stefna
að sigri eftir fjögnr ár
Berlín. Frá Birni Bjarnasyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
LOKAVIKA fyrstu kosningabaráttu í sameinuðu Þýskalandi er hafin.
Öllum ber saman um að Helmut Kohl, kanslari og leiðtogi kristilegra
demókrata, verði að halda ákaflega illa á málum síðustu daga kosninga-
baráttunnar til að úrslitin verði slæm fyrir hann á sunnudaginn. Strax
við komuna til Berlínar um helgina mátti heyra það á kjósendum jafnað-
armanna, að þeir byggjust ekki við sigri að þessu sinni, en hins vegar
skyldu menn bíða og sjá hvað þeir gætu eftir fjögur ár.
Oskar Lafontaine, kanslaraefni
jafnaðarmanna og forsætisráðherra
í Saarlandi, var fyrir nokkrum mán-
uðum kynntur sem pólitískt undra-
barn, er myndi auðveldlega hafa í
fullu tré við hinn stirðbusalega Helm-
ut Kohl. Þegar blaðamaður Morgun-
blaðsins var á ferð hér i Berlín í lok
janúar sl. voru straumarnir þannig
að búist var við sigri jafnaðarmanna
ekki aðeins í austur-þýsku kosning-
unum, sem fram fóru í mars sl. held-
ur einnig í hinum vestur-þýsku.
Þrennar kosningar í Austur-Þýska-
landi síðan hafa farið illa fyrir jafnað-
armenn, Lafontaine hefur ekki náð
að afla sér trausts íbúanna i austur-
hluta Þýskalands og hann á einnig
undir högg að sækja í vesturhlutan-
um.
Á sunnudaginn verður ekki aðeins
kosið til þýska sambandsþingsins
heldur einnig ný borgarstjórn hér í
sameinaðri Berlínarborg. Síðan 1989
hafa jafnaðarmenn stjórnað borginni
í samvinnu við græningja. Þessi sam-
steypustjórn sprakk fyrir skömmu
meðal annars vegna ágreinings um
viðbrögð við hústökumönnum sem
hafa lagt undir sig mannauð hús í
austurhluta borgarinnar.
í kosningum í Austur-Þýskalandi
hefur komið í ljós að jafnaðarmenn
hafa átt töluverðu fylgi að fagna í
austurhluta Berlínar á meðal fyrrum
starfsmanna kommúnistastjómar-
innar þar og menntamanna. Kristi-
legir demókratar hafa á hinn bóginn
verið sterkir í vesturhlutanum. Kann
meiri spenna að vera í kosningunum
í Berlín en til sambandsþingsins.
Jafnaðarmenn hugga sig við að
þeir geti unnið eftir fjögur ár. Sumir
segja meira að segja, að þá geti
Oskar Lafontaine reynt aftur. Þótt
hann fái slæma útreið núna sé ekki
að marka það, því að Kohl sé hvort
eð er ósigrandi vegna þess hvernig
hann hefur haldið á sameiningarmál-
inu og það setji mestan svip á kosn-
ingabaráttuna. Á næstu árum komi
hins vegar í ljós, að Lafontaine hafi
rétt fyrir sér þegar hann vari fólk
við skattahækkunum vegna samein-
ingarinnar.
Þegar til þess er litið að ekki eru
nema örfá misseri síðan Kohl var
spáð ósigri, af því að hann gæti ekki
ráðið við kröfur Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Bretlands, og fleiri
um að skammdræg kjarnorkuvopn
yrðu áfram í V-Þýskalandi, hljómar
það næsta ósannfærandi, að menn
geti á þeim breytingartímum sem
nú eru séð fyrir næstu íjögur ár í
þýskum stjórnmálum. Hins vegar eru
þessi viðhorf jafnaðarmanna skýr
vísbending um stjómmálaástandið í
Þýskalandi á líðandi stundu. Til þess
að herða enn frekar á styrkleika
Kohl segja þeir, að jafnvel Willy
Brandt hefði ekki getað sigrað hann,
en um tíma var það draumur ýmsra
að jafnaðarmaðurinn Brandt yrði
kallaður af pólitískum eftirlaunum
til að verða fyrsti kanslari endursam-
einaðs Þýskalands.
BOR^
verslana- og þjónustumiðstöð
í hjarta Kópovogs
„við erum í leiðinni. . .
... næg bílastæði"
Opið alla laugardaga til kl. 16.00
HAMRABORG
rAllt á einum stað"
Eftirtalin fyrirtæki standa að þessari auglýsingu:
Bakhúsið • Blómahöllin • Bræðraborg • Búnaðarbanki íslands • Bylgjan hárgreiðslustofa og snyrtivöruverslun
Doja tískuverslun • Filman • Gleraugnaverslun Benedikts • Hannyrðaverslunin Mólí • íslandsbanki • Klukkan
Kópavogs Apótek • Mamma Rósa • Nóatún • Óli Prik • Ratvís • Sevilla • Skóverslun Kópavogs • Sólarland
Sportbúð Kópavogs • Sveinn Bakari • Telefaxbúðin • Tónborg • Veda bókaverslun • Verslunin Inga
Vídeómarkaðurinn • VÍS - Vátryggingafélag íslands