Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
35
Hreint klúðursmál
- segir Stefán Valgeirsson
Þingsályktunartillögu Stefáns
Valgeirssonar (SJF-Ne) um að
afla lögfræðilegs álits umboðs-
manns Alþingis var vísað frá að
viðhöfðu nafnakalli. Guðrún
Helgadóttir (Ab-Rv), forseti sam-
einaðs þings, taldi vera mikla
meinbugi á tillögu Stefáns.
Flutningsmaður aftur á móti
- taldi að menn þyrðu ekki að fá
slíka álitsgerð í hendur.
Tillaga Stefáns er um að Alþingi
feli forsetum þingsins að afla lög-
fræðilegrar umsagnar og álitsgerð-
ar hjá umboðsmanni Alþingis sam-
kvæmt 11. gr. laga nr. 13. frá 1987,
um hvort bráðabirgðalög um launa-
mál, nr. 89/1990 brjóti í bága við
grundvallarreglur um stjórnskipun
lýðveldisins og stjórnarskrá þess.
Umrædd brágðabirgðalög eru oft
kennt við BHMR, Bandalag há-
skólamenntaðra ríkisstarfsmanna.
Stefán Valgeirsson sagði þetta
mál vera „hreint klúðursmál frá
upphafí“ og enginn vafí léki á um
að siðferðilega hefði ranglega verið
að þessu máli staðið. Eftir því sem
hann velti þessu máli meira fyrir
sér þá hallaðist hann að því að þetta
gæti ekki staðist samkvæmt stjórn-
arskrá og hann vildi ekki láta það
henda sig að greiða atkvæði með
lögum sem hann hefði miklar efa-
semdir um að samræmdust stjórn-
arskránni.
Ræðumaður lét þess þó getið að
ef umboðsmaður Alþingis vísaði
þessu máli frá kynnu ef til vill að
Kristnisaga
Málþing á laugardegi
ALÞINGI íslendinga bauð til
málþings um samingu rits um
sögu kristni á íslandi í 1000 ár.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson
sagði m.a. í umræðum í sameinuðu
þingi 10. apríl 1986: „Verður aldrei
ofmetin þýðing þess hvemig kristni-
töku íslendinga bar að. Aðrar þjóð-
ir þurftu að þola blóðsúthellingar,
bræðravíg og ófrið áður en hinn
fomi siður þokaði fyrir fagnaðar-
boðskap kristinnar trúar. Islending-
ar leystu málið með þjóðarsátt."
Afráðið var að skrifa sögu þess-
arar þjóðarsáttar; sögu kristni á
íslandi. Forsetar Alþingis hafa skip-
að ritstjórn undir forsæti sr. Sigur-
jóns Einarssonar, en ritstjóri er dr.
Hjalti Hugason. Ritstjórnin boðaði
til málþings, sértil ráðuneytis, milli
kl. 10-17 síðastliðinn laugardag.
Til fundarins var fjölda manns boð-
ið, klerkum og kennimönnum, sagn-
fræðingum, listfræðingum, þjóð-
háttafræðingum og fræðimönnum
ýmsum.
Forseti sameinaðs þings, Guðrún
Helgadóttir, ávarpaði fundarmenn
en síðar var gengið til dagskrár.
Erindi og einkum umræður urðu
hinar fjörugustu og héldu fulltrúar
hinna ýmsu hópa sínum viðhorfum
fram. T.d. mátti ráða af máli sumra
kvenna — í óformlegu samtali við
Morgunblaðið — að því yrði ekki
alls kostar tekið af kristilegu um-
burðarlyndi ef hlutur kvenna í
kristnisögu yrði enn fyrir borð bor-
inn. Ýmsir sagnfræðingar lögðu
áherslu á samræmi verksins og
nauðsyn ákveðinnar ritstjórnar. Dr.
Gunnar Karlsson prófessor rakti
nokkur víti til að varast og greindi
frá nokkrum merkum og gagnleg-
um afmælisritverkum en sem væru
því miður næsta ósamstæð og
hverra ritunartími farið nokkra ára-
tugi fram yfir áætlanir. Ljóst þótti
að ritnefnd væri því nokkur vandi
í þeirri vegsemd að franifylga vilja
Alþingis um ritun kristnisögu.
Helgi Skúli Kjartansson dósent
og félagi í ritstjórn sleit málþing-
inu, þakkaði fjölda ábendinga sem
ritstjórn muni vel gagnast.
vera hlutlausir aðilar sem gætu
gefið álit.
Það kom einnig fram í máli Stef-
áns að hann hefði verið með varnað-
arorð þegar við hann var talað á
sínum tíma í sambandi við þessi
lög, það eina sem hann hefði viljað
gangast inná hefði verið að fresta
þessum greiðslum á meðan værið
verið að athuga og úz-skurða hvort
það væri hægt, og löglegt að svipta
rétti samkvæmt samningi sem fjár-
málaráðherra hefði í umboði ríkis-
stjórnarinnar skrifað undir.
Stefán fór þess á leit að tillögu
hans yrði vísað til félagsmálanefnd-
ar og síðari umræðu.
Meinbugir
Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv)
taldi verulega meinbugi á tillögu
Stefáns Valgeirssonar. Umboðs-
maður Alþingis væri óháður og því
ekki forseta Alþingis að segja hon-
um til. Einnig að starfssvið umboðs-
manns næði ekki til starfssviðs Al-
þingis né dómstóla. Þessi bráða-
birgðalög væru nú til umfjöllunar
í fjárhags- og viðskiptanefnd neðri
deildar. Samþykkt þessarar þings-
ályktunar myndi taka frarji fyrir
hendur háttvirtar þingnefndar.
Ennfremur kom fram að BHMR
hefði höfðað mál fyrir bæjarþingi
Reykjavíkur og umboðsmaður Al-
þingis fjallaði ekki um lög sem
væru fyrir dómi. Guðrún Helgadótt-
ir lagði til að tillögu Stefáns Val-
geirssonar yrði vísað frá.
Friðrik Sophusson (S- Rv).
Sagði þetta mál kannski fyrst og
fremst um það snúast hvort forsæt-
isráðherra hefði sagt rétt frá þegar
hann hefði Iýst því yfír að meiri-
hluti væri fyrir þessum lögum. Nú
lægi fýrir að tveir stjórnarliðar,
Hjörleifur Guttormsson (Ab-Al) og
Geir Gunnarsson (Ab-Rn), myndu
greiða atkvæði gegn bráðabirgða-
lögunum. Ef Stefán Valgeirson
greiddi einnig atkvæði gegn lögun-
um þá væri Ijóst að meirihluti sá
sem forsætisráðherra minntist á
væri ekki fyrir hendi. Friðrik lýsti
sig sammála ræðu Guðrúnar Helga-
dóttur og ástæðu til að samþykkja
hennar tillögu. Stefán Valgeirsson
gæti ekki skotið sér bak við umsögn
umboðsmanns, því umboðsmaður-
inn myndi aldrei leggja fram álits-
gerð um þetta mál, enda hefði hann
ekki til þess heimild.
Stefán Valgeirsson (SFJ-Ne)
tók til máls og sagði m.a. að um-
boðsmaðurinn yrði fijáls að því
hvort hann legði fram álitsgerð og
að það hefði komið fram í sinni
ræðu að hann myndi sætta sig við
að það yrðu aðrir sem til þess hefðu
þekkingu leggðu fram slíka álits-
gerð. Guðrún Helgadóttir og Friðrik
Sophusson þyrðu ekki að fá álits-
gerð í hendur.
Taktn til baka
Árni Gunnarsson (A-Ne) tók
undir að stórir meinbugir væru á
tillögu Stefáns Valgeirssonar og
hvatti hann til að draga hana til
baka.
Stefán Valgeirsson sagði menn
forðast að skoða þetta mál. Hann
beindi því til Guðrúnar Helgadóttur
að draga sína tillögu til baka.
Danfríður Skarphéðinsdóttir
(SK-Vl) taldi bráðabirgðalögin um-
deiidu ekki einungis vera siðlaus
heldur biytu þau einnig tvær stjórn-
arskrárgreinar. Hún hvatti þess að
fjárhags- og viðskiptanefnd hraðaði
sínum störfum svo bráðabirgðalög-
in kæmust sem fyrst til atkvæða.
Guðrún Helgadóttir forseti sam-
einaðs þings leitaði afbrigða svo
frávísunartillaga hennar kæmist til
atkvæða. Og var hún samþykkt
með 28 atkvæðum, nei sögðu þrír,
Karvel Pálmason (A-Vf), Skúli
Alexandersson (Ab-Vl) og Stefán
Valgeirsson (SFJ-Ne). Sex þing-
menn Samtaka um kvennalista sátu
hjá. Fjarverandi voru tuttugu og
sex þingmenn.
Stuttar þingfréttir:
Fjarvinnsla
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi
6. nóvember síðastliðinn að ráðu-
neyti og opinberar stofnanir flytji,
eftir því sem föng eru á, gagna-
skráningu og ritvinnslu til fjar- ■
vinnslustofa á landsbyggðinni.
Ríkisstjórnin hefur falið Byggða-
stofnun, í samvinnu við Vinnumála-
skrifstofu félagsmálaráðuneytis og
Fjárlaga- og hagsýslustofnun, að
kanna hvaða gagnavinnsluverkefni
gætu hentað til fjarvinnslu á lands-
byggðinni. Gert er ráð fyrir að veija
allt að 3-4 millj. kr. til þess að
leggja fram mótframlag á móti •
stofnkostnaði stofnana sem kjósa
að semja um ijarvinnslu við fjar-
vinnslustöðvar á landsbyggðinni.
Þessi samþykkt ríkisstjómarinnar
er gerð í framhaldi af þingsályktun-
artillögu sem samþykkt var á Al-
þingi 19. mars síðastliðinn.
Br eiðafj arðarferja
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
svarað kostnaði fyrirspum Eiðs
Guðnasonar (A-Vl) um kostnað við
smíði Breiðafjarðarfeiju. í svarinu
kemur fram að: a) Smíðakostnaður
nemur 256.849.759 kr. b) Hönnun-
ar- og eftirlitskostnaður 12.403.110
kr. c) Fjármagnskostnaður og ann-
ar lántökukostnaður 144.931.938
kr. Samtals: 414.183.938 kr. Svarið
er með fyrirvara um að smíði feij-
unnar er ekki að fullu lokið.
Bankaráð Seðlabanka
KOSNING í bankaráð Seðlabanka
íslands til fjögurra ára frá 1. nóv-
ember 1990 til 31. október 1994
var á dagskrá sameinaðs þings í
gær. Kosningin fór þó ekki fram.
Upphaflega var gert ráð fyrir að
þessari kosningu væri lokið fyrir
síðustu mánaðamót en hún hefur
frestast og frestaðist aftur í dag.
Tafír þessar hafa vakið nokkra eft-
irtekt og orðið tilefni til ýmissa
bollalegginga.
MMIMSI
Vetnisframleiðsla,
eldsneyti framtíðar
KRISTÍN Einarsdóttir hafði í
gær framsögu fyrir þingsálykt-
unartiliögu sinni og fimm ann-
arra þingmanna Samtaka um
kvennalista, þess efnis að fela
ríkisstjórninni að hefja skipu-
lagðar rannsókir og undirbúning
Rétt skal vera rétt
Geir H. Haarde gagnrýnir sérprentun félagsmálaráðuneytis
GEIR H. Haarde óskaði eftir að
ræða þingsköp eða „afglöp“ fé-
lagsmálaráðuneytisins á fundi
sameinaðs þings í gær.
Geir H. Haarde hafði borist í
hendur sérprent um lög um Hús-
næðismálastofnun ríkisins. En lögin
í sérprentuninni voru ekki fullkom-,
lega samhljóða lögum þeim sem
voru samþykkt á Alþingi í vor.
Breytingar þessar voru leiðrétting-
ar á ákveðnum tilvísunum í laga-
greinar. Hér væri um að ræða meira
en leiðréttingu á vélritunarvillu.
Breytingin hefði efnislega þýðingu
og snerti ákveðnar reiknireglur. Það
væri e.t.v. til marks um hve málið
hefði verið illa undirbúið að leiðrétt-
ingar þyrfti að gera. En félagsmála-
ráðuneytið hefði ekki leyfi til þess
að gefa út í sérprenti önnur lög en
þau sem Alþingi hefði samþykkt.
Geir taldi þetta stórlega ámælisvert
og fór fram á að þessari tilvísun
yrði þá breytt með lögum.
Guðrún Helgadóttir, forseti
sameinaðs þings, þakkaði ábend-
inguna og kvaðst mundu setja emb-
ættismenn í að rannsaka þetta mál.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra sagði að óþarfí hefði
verið að beina þessu máli til forseta
Aiþingis, félagsmálaráðuneytinu
væri kunnugt um þetta mál og í
ráði væri að breyta þessu og leggja
fyrir þingið.
Halldór Blöndal (S-Ne) kvaðst
skilja ummæli félagsmálaráðherra
þannig að ráðuneytið hefði með vilja
gefið út sérprentið í samræmi við
hugsanlegar breytingar síðar.
Guðrún Helgadóttir,
forseti sameinaðs þings, kvaðst
mundu beita sér fyrir því að dreif-
ing þessa sérprents yrði stöðvuð.
að framleiðslu vetnis til notkunar
sem eldsneyti til innanlandsnota
og til útflutnings. Iðnaðarráð-
herra segir að hugað sé að þess-
um málum en telur enn langt í
land.
Framsögumaður sagði mörg efni
hafa verið nefnd til sögunnar sem
eldsneyti framtíðarinnar en nú höll-
uðust flestir að því að hreint vetni
yrði fyrir valinu en ekki efni sem
innihéldu kolefni og myndu við
bruna auka koldíoxiðmagn and-
rúmsloftsins og þar með gróður-
húsaáhrifín svonefndu.
Hreint vetni er framleitt með
rafgreiningu og telja flutningsmenn
að vetnisframleiðsla sé vænlegur
kostur í atvinnu- og orkumálum
íslendinga. Vetnisframleiðsla sé
ekki mengandi og vel geti hentað
að byggja nokkrar fremur smáar
verksmiðjur. Stórar einingar séu
tillölulega lítið hagkvæmari e'n litl-
ar. Því verði hægt að reisa verk-
smiðjur allvíða um land.
Einnig kom fram að áætlanir um
notkun vetnis í Þýskalandi og fram-
leiðslu vetnis í Kanada væru allvel
á veg komnar. Og gert væri ráð
fyrir umtalsvert hærra raforkuverði
en rætt hefði verið um í sambandi
við álver á Keilisnesi.
Jón Sigurðsson, iðnaðarráð-
herra, gerðf grein fyrir því að þessi
áform um vetnisnotkun og fram-
Ieiðslu væru ekki eins langt komin
og flutningsmaður héldi. En iðnað-
arráðuneytið fylgdist grannt með
þessu málum. T.d. hefðu hann og
Martin Bangemann, einn fram-
kvæmdastjóra Evrópubandalags-
ins, ákveðið að stefna að því að
koma á fót samstarfsverkefnum um
eldsneytisframleiðslu. Og í október
síðastliðnum hefðu fulltrúar frá iðn-
aðarráðuneyti, Landsvirkjun, Iðn-
tæknistofnun, Járnblendifélaginu
og Háskóla íslands farið til Ham-
borgar og m.a. skrifað undir minn-
isblað um samstarf við Vetnisfélag-
ið svonefnda um möguleika á fram-
leiðslu vetnis hér á landi.
Flutningsmaður fagnaði því að
þessum málum væri sinnt. Einnig
kom fram í máli Kristínar að henn-
ar heimildum og iðnarráðherrans
bæri ekki saman. Hún lagði einnig
áherslu á að mikilvægt væri að ís-
lendingar væru virkir þátttakendur
í samstarfi um vetnisframleiðslu.
Iðnaðarráðherra ítrekaði að hug-
að væri að þessu máli en lét þess
jafnframt getið að ekki væri rétt
að gefa í skyn að þetta væri hand-
an við hornið.