Morgunblaðið - 27.11.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
Hafa talsmenn Efnahagsbandalags
Evrópu ekki lesið Islandssögima?
Til Velvakanda.
Sunnudaginn 11. nóvember birt-
ust í Morgunblaðinu viðtöl við 8
menn varðandi afstöðu þeirra til
inngöngu íslands í EB. Eitt þessara
viðtala fannst mér mjög athyglis-
vert, en það var viðtalið við Eyjólf
Konráð Jónsson, alþingismann og
fýrrverandi ritstjóra Morgunblaðs-
ins.
Hann bendir réttilega á að eftir
að við værum orðnir fullgildir aðilar
að EB ættum við það undir öðrum
þjóðum, hvort eða að hve miklu
leyti við verðum sjálfstæð þjóð. Ég
vil alveg sérstaklega þakka honum
fyrir það sem kemur fram í viðtal-
inu og ég vona að augu sjálfstæðis-
manna opnist í tæka tíð fyrir þeim
sannleika að ef við göngum í EB
er styttra en margan grunar í að
við glötum fullveldi okkar og sjálf-
stæði.
Það hefur komið mér nokkuð á
óvart að ýmsir af forystumönnum
Sjálfstæðisflokksins hafa hvatt til
inngöngu í þetta bandalag, þar á
meðal formaður og varaformaður
flokksins. Hins vegar kom mér ekki
á óvart þó Jónamir í Alþýðuflokkn-
um jörmuðu eins og aðrir kratar í
Evrópu.
Margir yngri menn, sem fæddir
eru fyrir lýðveldisstofnunina eða
voru þá börn, gera sér ekki grein
fyrir þeim gífurlegu breytingum
sem orðið hafa hér á landi síðan
lýðveldið var stofnað 1944. Það er
í heild sinni það langmesta blóma-
skeið sem þjóðin hefur lifað.
En hafa talsmenn EB ekki lesið
Islandssöguna? Eru þeir búnir að
gleyma ártalinu 1262 og hátt í 700
ára áþján sem þjóðin hefur mátt
þola? Ég vil leyfa mér að hvetja
alla íslendinga til að hugleiða þetta
mál rækilega og rasa ekki um ráð
fram. Að lokum endurtek ég þakk-
læti mitt til Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar fyrir gott innlegg í þetta mál
í viðtalinu í Morgunblaðinu og vona
að hann beiti sér af fullri hörku í
þingflokki Sjálfstæðisflokksins til
þess að þetta óheillaspor verði ekki
stigið.
Sigurður Lárusson
P900 körfuboltaskór
með A-Flex systemi. Leður. Mjög léttir.
Verökr. 8.520,-
P457 körfuboltaskór úr leðri á góð
verði. Verð kr. 4.990.-
P510 körfuboltaskór úr leðri á góðu
verði. Verö kr. 5.690,-
M580 joggingskór. Léttir millivega-
lengdaskór í hæsta gæðaflokki.
Verö kr. 5.390,-
NEW BALANCE
íþróttaskór
W740 dömujoggingskór. Léttir milii-
vegalengdaskór í hæsta gæðaflokki.
Verö kr. 5.960,-
r A
UTIUF
TdLVUPRENTARAR
SP2000A1
Góður fyrir ritvinnslu,
nótur og gíróseðla
&IKOSHA
SP-2000AI
• 160/40 stafir á sekúndu • Sjálfþræðandi
• Sjálfvirk pappírsfærsla • Hlið- og raðtengi
• Grafískur
• Fjórar leturgerðir
VERULEG
verð:
19.500.-
m/vsk. stgr.
VERÐLÆKKUN
1