Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1990
ÚR DAGBOK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
24. - 26. nóvember 1990
Fangageymsluna gistu 43,
flestir vegna rúðubrota, slags-
mála, minniháttar meiðinga, ölv-
unaraksturs, ósæmilegrar hegð-
unar við lögreglumenn, heimilisó-
friðar, innbrota og þjófnaða.
458 færslur voru í dagbók:
33 arekstrar og 5 umferðar-
slys. Arekstur varð með tveimur
bifreiðum á föstudagsmorgun á
gatnamótum Höfðabakka og
Vatnsveituvegar. Farþegi úr ann-
arri bifreiðinni var fluttur á slysa-
deild. Ökumaður og farþegi
meiddust í árekstri tveggja bif-
reiða skömmu eftir miðnætti á
föstudag á Reykjanesbraut við
Staldrið. Um svipað leyti var bif-
reið velt í Svínahrauni. Um miðjan
dag á sunnudag valt bifreið á
Kjósskarðsvegi við Fremri-Háls.
Þá um kvöldið varð slys er tvær
bifreiðir lentu saman á Bæjarhálsi
við Bæjarbraut.
6 líkamsmeiðingar: Flestar
urðu þær á „skemmtistöðúm" og
mest í ryskingum við dyraverði.
Tveir ungir menn voru handteknir
í Árseli — félagsmiðstöð Árbæjar-
hverfis — eftir að hafa reynt að
komast þar inn undir áhrifum
áfengis og lent í átökum við
starfsfólk.
5 innbrot: í áhaldahús Seltjarn-
arn. v/Bygggarða (handtaka), í
íbúð við Kleppsveg (handtaka), í
bifreið á bifreiðastæði við Hraun-
bæ, í nýbyggingu við Leiðhamra
og á vínveitingastað í Þingholts-
stræti.
12 þjófnaðir: Tilkynnt var um
að 3 reiðhjólum hefði verið stolið,
veski á skemmtistað, bensíni af
bifreið víð Krummahóla, símtóli
úr bifreið við Ystabæ, fatnaði og
skóm á stigagangi húss í Víkurási,
vélsleðakerru við Ásgarð, mynd
af vegg stigagangs í Espigerði,
þvotti af snúrum húss í Víkurási
og hljómtækjum úr bifreið við
Mánagötu.
9 rúðubrot: Skólav.stígur 28,
Þórscafé v/Brautarholt, Reykjá-
víkurapótek (handtaka), Lauga-
vegur 60, Austurstræti (hand-
taka), Laugavegur 157 (hand-
taka), Laugavegur 118, Þverholti
og Mjóstræti.
7 skemmdarverk: Skorið á dekk
á bifr. v/Öldugranda 9, spegill
brotinn á bifreið við Rauða ljónið,
rúða brotin í bifreið í Tryggva-
götu, rúða brotin í bifreið við
Hótel Island, sparkað í bifreið á
Reynimel (handtaka), lakki skvett
á bifreið við Hraunbæ 170 og
dælduð bifreið við Naustin.
20 grunaðir um ölvun við akst-
ur: Þrír af þeim lentu í umferðaró-
höppum. M.a. var bifreið velt á
Suðurlandsbraut gegnt Aski á
sunnudagsmorgun. Þrennt var
flutt á slysadeild.
1 vinnuslys. Maður datt af
vinnupöllum við hús nr. 140 við
Kleppsveg á föstudagsmorgun.
3 búðarhnupl: 3 stúlkur voru
teknar í Bónus í Skeifunni eftir
að hafa reynt að hnupla hver
sínum: sælgætispokanum. Einn
var staðinn að því að reyna að
hnupla nýju alfræðiorðabókinni í
Bókahöllinni í Glæsibæ. Þá var
eldri maður staðinn að því að
reyna að ná sér í ósoðinn matar-
bita í matvöruverslun.
JARLINN 3ja ára
AFMÆLIS-
HLBOD
í dag, miðvikudag og fimmtudag
HAMBORGARI
OG KÓK
' AÐEINS
Alþýðubandalagið á Yesturlandi:
Skúli Alexandersson gef-
ur ekki kost á sér á þing
Mælt með að Jóhann Ársælsson skipi fyrsta sætið
SKÚLI Alexandersson, alþingismaður Alþýðubandalagsins í Vest-
urlandskjördæmi, lýsti því yfir um helgina að hann gæfi ekki kost
á sér á lista flokksins við næstu alþingiskosningar. í framhaldi
af yfirlýsingu Skúla kom stjórn kjördæmisráðsins og uppstillinga-
nefnd saman til fundar og ákvað að gera tillögu um að Jóhann
Ársælsson skipasmiður á Akranesi skipi fyrsta sæti á lista flokks-
ins við næstu kosningar.
Skúli sagði frá ákvörðun sinni á
fundi Alþýðubandalagsfélags Nes-
hrepps sem haldinn var á Helliss-
andi. „Eg staðfesti þarna þá
ákvörðun, sem ég raunar tók í upp-
hafi kjörtímabilsins eða jafnvel í
kosningabaráttunni, að sitja ekki
lengur út þetta kjörtímabil á Ai-
þingi,“ sagði Skúli. Hann hefur
verið alþingismaður frá árinu 1979
en kom inn á þing sem varamaður
í nokkur skipti áður. Hann er 64
ára.
Skúli sagði að viss eftirsjá væri
að hverfa frá samstarfi við gott
fólk úr öllum flokkum á Alþingi.
Ákveðinn kunningsskapur skapað-
ist við svo náið samstarf sem væri
í þinginu en þau tengsl þyrftu ekki
að rofna. „Eg er heldur ekki hættur
í pólitík þó ég fari út af þingi.“
„Ég hef nóg að gera heima“,
sagði Skúli þegar hann var spurður
hvað tæki við hjá honum í vor.
Hann sagðist fara vestur á Snæ-
fellsnes og taka aftur við rekstri
fyrirtækisins síns, Jökuls hf., sem
rekur fiskverkun á Hellissandi.
Stjórn kjördæmisráðs Alþýðu-
bandalagsins á Vesturlandi og upp-
stillinganefnd voru á félagsfundin-
um á Hellissandi. Þegar Skúli hafði
tilkynnt ákvörðun sína komu þessar
nefndir saman til að ræða fram-
boðsmálin og ákváðu að óska eftir
því við Jóhann Ársælsson skipasmið
á Akranesi að hann tæki fyrsta
sæti listans í stað Skúla. Jóhann
hann gaf samþykki sitt fyrir því
að uppstillinganefndin mælti með
þeirri skipan mála við kjördæmisráð
og var ákveðið að gera það. Jóhann
Skúli Alexandersson.
skipaði annað sæti listans við
síðustu aiþingiskosningar og hefur
komið nokkrum sinnum inn á þing
sem varamaður Skúla. Hann hefur
verið í forystusveit Alþýðubanda-
lagsins undanfarin ár, meðal annars
átt sæti í bæjarstjórn Akraness.
Ólympíuskákmótið í Novi Sad:
Islenska skáksveitin þok-
ast nær toppbaráttunni
Skák
Karl Þorsteins
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ í Novi
Sad er rúmlega hálfnað. Átt-
unda umferð af fjórtán á mót-
inu var tefld á sunnudaginn og
að henni lokinni eru Sovétríkin,
Tékkóslóvakía og England með
21 'h vinning. Fast á hæla þeim
kemur sveit Bandaríkjanna
með 21 vinning. Mótið núna er
mun jafnara en undangengin
Ólympíumót og vinningshlut-
fall efstu sveita lægra. Til sam-
anburðar var enska sveitin með
23 'h vinning eftir jafn margar
umferðir á Ölympiuskákmótinu
í Daubai árið 1986. íslenska
sveitin hefur 20 vinninga og er
í líklega í 11-12 sæti á mótinu.
Staða efstu sveita eftir átta
umferðir:
1.-3. Sovétríkin 21 'Avinn.
1.-3. England 21 v2
1.-3. Tékkóslóvakía 2Vh
4. Bandaríkin 21
5.-8. V-Þýskaland 20'h
5.-8. Búlgaría 20 Vz
5.-8. Júgóslavía a-sveit 20 'h
5.-8. A-Þýskaland 20 'h
11.-12. ísland 20
Efstu sveitirnar hafa teflt inn-
byrðis í síðustu viðureignum. Sov-
éska sveitin og sú tékkneska
skildu jafnar í áttundu umferð á
meðan England vann Bandaríkin
2 ’/a — 1 'h. Bandaríska sveitin sem
tók forystu í upphafi mótsins hef-
ur misst toppsætið eftir tvo ósigra
í röð. íslenska sveitin hefur á
sama tíma þokast nær toppbarát-
tunni. Heigarumferðirnar voru
hagstæðar íslensku skáksveitinni
eins og úrslitin. bera með sér.
6. umferð: ísland — Filipps-
eyjar 2'A — 1'h
Torre — Helgi Ólafsson 0—1
Margeir Pétursson — Rogello
'/2 -'h
Alaan — Jón L. Ámason 1—0
Jóhann Hjartason — Garma 0—1
7. umferð: Island — Mexíkó
3 'h— 'h
Helgi Ólafsson — Sisniega 1—0
Hernandez — Marg. Péturss.
'/2-'h
Jón L. Árnason — Espinega 1—0
Del Campo — Jóh. Hjartarson 0—1
8. umferð: ísland — Kína 2—2
Margeir Pétursson — Zu Jun
V2-V2
Y. Jiangch. — Jón L. Ámas. 0—1
Jóh. Hjartars. — Y. Rongg. 'h— 'h
Wang Zili — Héð. Steingrímss.
1-0
Sigurinn gegn Filippseyjum
hefði raunar mátt vera stærri en
góður sigur gegn Mexíkó á laug-
ardaginn bætti það upp. Sveit
Mexíkó er alls ekki skipuð aukvis-
um. Alþjóðlegi meistarinn Sisni-
ega á fyrsta borði hefur tæp 2500
Elo skákstig en þau dugðu
skammt gegn Helga Ólafssyni á
fyrsta borði. Helgi mætti ákveðinn
til leiks eftir sigurinn gegn Torre
deginum áður. Helgi stýrði hvítu
mönnunum og vann peð eftir byrj-
unina. Annað peð féll í valinn
nokkru síðar og skákina vann
Helgi eftir 58 leiki. Byrjunin var
Sikileyjarvörn í viðureign Mar-
geirs og Hernandez á öðru borði.
Skákin var allan tímann í jafn-
vægi og jafntefii samið eftir 30
leiki. Jón L. hóf snemma sókn á
þriðja borði sem andstæðingur
hans réð ekki við og hann gaf
taflið eftir 34 leiki. Jóhann Hjart-
arson var í ham á fjórða borði.
Hann fórnaði drottningu fyrir
hrók og riddara í miðtaflinu og
vann glæsilegan sigur. Skákin
fylgir hér á eftir.
Kínveijar hafa oft reynst ís-
lendingum skeinuhættir á
Ólympíumótum. Nú varð jafntefli
2—2 í viðureign sveitanna í átt-
undu umferð. Jón L. sigraði á
öðru borði eftir að skákin fór í
bið. Margeir og Jóhann gerðu
jafntefli en Héðinn Steingrímsson
fékk snemma erfiða stöðu og tap-
aði.
Hvítt: Martin Del Campos
Svart: Jóhann Hjartarson
Spánskur leikur
1. e4 - e5, 2. Rf3 - Rc6, 3. Bb5
- a6, 4. Ba4 - Rf6, 5. d4 -
exd4, 6. 0-0 — Be7, 7. e5 -
Re4, 8. Rxd4 - 0-0, 9. Rf5 -
d5, 10. Bxc6 - bxc6, 11. Rxe7+
- Dxe7, 12. Hel - He8, 13. f3
- Rd6,
Del Campos er seinheppinn í
byijunarvalinu. Jóhann þekkir
nefnilega þessa bytjun vel. Skákin
hefur teflst alveg eins og skák
Jóhanns gegn Helga Ólafssyni á
Búnaðarbankaskákmótinu árið
1984. Þar stýrði Jóhann hvítu
mönnunum og lék nú 14. b3 -
f6,15. Bb2 - Rf7,16. f4 en öðlað-
ist enga yfirburði þótt hann ynni
skákina um síðir.
14. Bf4 - Rf5, 15. Dd2 - h6,
16. Rc3 - Hb8, 17. b3 - Be6,
18. Ra4 - c5, 19. Df2 - g5!, 20.
Bcl - c4, 21. bxc4 - d4!, 22.
c3 - df3, 23. Rc5 - Bxc4, 24.
Re4 - Dxe5, 25. f4
25. — Dxe4!, 26. Hxe4 - Hxe4,
27. fxg5 - He2!
Nú dugir 28. Dxf5 skammt
vegna 28. - Hel+, 29. Kf2 -
Hf2+i, 30. Kxfl - d2+, 31. Kf2
- dlD, 32. gxh6? - Dfl+, 32.
Kg3 er skárra en 32. - Hd8 ræð-
ur þá úrslitunum.
28. Df4 - Hel+, 29. Kf2 -
Hfl+!, 30. Kxfl - d2+, 31.
Dxc4 - dlD+, 32. Kf2 - He8!,
33. Dfl - Dc2+, 34. Kgl - Rh4
Svartur hótar nú 35. - Hel!
með óveijandi máthótun á g2.
Leikur hvíts bjargar engu.
35. Bf4 - He2, 36. Khl - De4,
37. g6 — Hxg2, 38. gxf7+ -
Kxf7,
Svartur gafst upp. Mát blasir
við.