Morgunblaðið - 27.11.1990, Page 56
ÞRIÐJUDAGUR 27. NOVEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
SYKURLAUSTWff?
H V S A F I. Ó I
F&sfcni&ssker
i
Hvammstangi
0 F Jóhannes HU 127 sendi
frá sér neyöarkali um kl.
-10 1 18.00 á sunnudag. Brak
úr bátnum fannst svo
við Fáskrúössker um
1-20 km hádegi í gær.
Fyrirheit stjórnarinnar þýðir
að ekki verða skattahækkanir
Samkomulag um endurskoðun þjóðarsáttarsamninganna:
- segir Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSI
LAUNANEFNDIR aðila vinnumarkaðarins sem stóðu að þjóðarsátt-
arsamningunum í febrúar samþykktu á laugardag að framlengja
samningana að lokinni endurskoðun þeirra. Urskurðuð var 2,83%
launahækkun frá og með 1. desémber meðal félagsmanna í Alþýðu-
sambandinu en hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, Kennara-
sambandi íslands og Sambandi bankamanna hækka laun um 2,55%,
þar sem hluti hækkunar framfærsluvísitölu hefur þegar verið bætt-
ur með 0,27% hækkun 1. október. Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands, segir að fyrirheit
ríkisstjórnarinnar um verðlagsmarkmið samningsins á næsta ári
þýði að ekki verði af hugmyndum um skattahækkanir sem rætt
hafi verið um að undanförnu.
í tengslum við samkomulagið á
laugardag lagði fjármálaráðherra
fram munnlegt loforð um að áform-
aðar breytingar á sköttum hins
opinbera muni engin áhrif hafa á
verðlag. Að sögn Þórarins gera þær
verðlagsforsendur sem miðað er við
ráð fyrir um 7% verðbólgu og fyrir-
heit ríkisstjórnarinnar um að hún
muni standa með aðilum vinnu-
markaðarins að verðlagsmarkmið-
um samninganna geri það að verk-
um að skattahækkanir upp á rúma
tvo milljarða sem leggist á atvinnu-
reksturinn verði ekki framkvæmd-
ar.
Már Guðmundsson, efnahagsráð-
gjafi ijármálaráðherra, sagði að
ríkið hefði ekki fallið frá áformum
um launa- og hafnargjöld. Hins
vegar verði jöfnunargjald lækkað
um 400 milljónir og hugsanlega
aðstöðugjald. Heildaráhrif skatta-
breytinga á verðlag verði því engin.
Samkvæmt úrskurði launa-
nefnda munu laun hækka um 2,5%
í mars og gert er ráð fyrir 2%
hækkun í júní en rautt strik er í
samningnum í mai'. Ásmundur Stef-
ánsson, forseti Alþýðusambandsins,
sagði að breytingar á spá Þjóðhags-
stofnunar um þróun verðlags þýði
að verðbólga lækki um eitt pró-
sentustig frá fyrri spá. Kaupmáttur
verði 0,3% minni en gert hafi verið
ráð fyrir í samningunum í febrúar.
í spánni er gert ráð fyrir óbreyttu
verði á bensíni og að búvöruverð
hækki minna en almennt verðlag.
Viðræður við bændasamtökin og
ríkið leiddu til þeirrar niðurstöðu
að kjarnfóðurgjald verður lækkað.
Reiknað er með 3-4% lækkun á
eggjum um næstu mánaðamót og
lækkun á kjúklingum og svínakjöti
sem' taki gildi annaðhvort 1. des-
ember eða 1. janúar, Guðmundur
Sigþórsson, ritari sexmannánefnd-
ar, staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið, að rætt væri um að taka
olíuverðshækkunina frá því í
síðustu viku inn í verðlagsgrund-
völl buvörunnar í áföngum til 1.
rnars. í samkomulaginu er gengið
út frá að almennt búvöruverð hækki
um 1% 1. desember, 1% 1. mars
og 1% 1. júní. Þá er byggt á lof-
orði ríkisstjórnarinnar um að fyrir-
huguöum hækkunum á opinberri
þjónustu og gjaldskrám nokkurra
ríkisstofnana verði dreift yfir árið.
Sjá „Framlenging þjóðarsátt-
ar“ á bls. 22-23.
Miðbærinn fær á sigjólasvip
Morgunblaðið/Júlíus
Þó enn séu tuttugu og sjö dagar til jóla er að verða jólalegt í helstu verslunargötum borgarinnar.
I gærkvöldi'var vaskt lið frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur í sinum árlegu jólaskreytingum. Vann
það fram á nótt við að hengja upp jólaljós í Austurstræti, þar sem þessi mynd var tekin.
Tveggja manna saknað með trillu:
Hlutir úr bátnum
finnast í mikilli leit
TVEGGJA manna, Dagbjarts M. Jónssonar, 45 ára, og Jónasar Sigfús-
sonar, 18 ára, er saknað á Húnaflóa með trillunni Jóhannesi HU 127
frá Hvammstanga,. sem sendi frá sér neyðarkall um klukkan 18 að
kvöldi sunnudagsins. Lausir hlutir úr bátnum, svo sem fiskiker, línub-
ali og austurtrog, fundust í gær við klettinn Fáskrúð, skammt norð-
ur af Vatnsnesi en þrátt fyrir umfangsmikla leit 25 báta, um 50
björgunarsveitarmanna, varðskips, þyrlu og flugvélar, höfðu menn-
irnir ekki fundist fyrir myrkur í gær.
í dag er ráðgert að halda leit
áfram. Þá verða meðal annars fjör-
ur gengnar allt að Skagaströnd.
Menflirnir eru báðir búsettir í
Víðidal. Dagbjartur M. Jónsson,
sem er kvæntur og á tvo syni, býr
í Víðigerði. Hann er eigandi Jóhann-
esar HU og hefur einnig gert út
rækjubátinn Jón Kjartan. Jónas
Sigfússon býr í foreldrahúsum í
Gröf í Víðidal.
Mennirnir létu úr höfn frá
Hvammstanga um hádegi á sunnu-
dag en um klukkan 18 heyrðist
neyðarkall þar sem aðeins kom
fram nafn bátsins og að hann væri
að sökkva. Hæglætisveður var en
nokkur undiralda. íjöldi báta hélt
þegar til leitar og alls leituðu 25
bátar þar til á fimmta tímanum í
fyrrinótt og fóru þeir aftur út fyrir
klukkan níu í gærmorgun. Þyrla
og Fokker-flugvél Landhelgisgæsl-
unnar héldu norður til leitar, svo
og varðskipið Týr. Um 50 manns
úr björgunarsveitum gengu fjörur
frá Hvammstanga og fyrir Vatns-
nes, að Þingeyrarsandi, í dimmu
- veðri, suðlægri átt, og gekk á með
rigningu. Um hádegi fann þyrlan
hluti á floti og er talið fullvíst að
þeir séu úr bátnum. Eftir það var
leit á sjó beint í norður frá Vatns-
nesi enda hafði svæðið innar á fló-
anum verið fínkembt. Ekkert hafði
fundist fyrir myrkur.
Jóhannes HU 127 er 4,5 tonna
plastbátur, smíðaður í Hafnarfirði
1983. Mennirnir voru að fara til
línuveiða og höfðu fjögur bjóð.
Stefán Valgeirs-
son um bráða-
birgðalögin:
Mun greiða
atkvæði á
móti þéim
Ekki meirihluti
í neðri deild
Þingsályktunartillögu
Stefáns Valgeirssonar um að
afla lögfræðilegs álits um-
boðsmanns Alþings á bráða-
birgðalögum þeim sem kennd
eru við BHMR, var vísað frá
að viðhöfðu nafnakalli. „Al-
þingi vill ekki að um þetta
mál sé fjallað og það þýðir
að ég greiði atkvæði á móti,“
sagði Stefán í samtali við
Morgunblaðið.
Aðspurður kvaðst Stefán ef-
ast um að unnt myndi reynast
að leita álits annarra hlutlausra
aðila en umboðsmanns Alþingis.
Þeir yrðu að vera óháðir fram-
kvæmdavaldinu og mættu held-
ur ekki vera í þeim samtökum
sem um væri að ræða.
Tveir þingmenn Alþýðu-
bandalagsins, Hjörleifur Gutt-
ormsson og Geir Gunnarsson,
hafa einnig lýst því yfir að þeir
greiði atkvæði gegn staðfest-
ingu bráðabirgðalaganna. Ef
allir þingmenn stjórnarandstöðu
greiða atkvæði á sama veg nýt-
ur frumvarpið um staðfestingu
þeirra ekki meirihluta í neðri
deild.
Sjá þingsíðu, bls. 35.