Morgunblaðið - 01.12.1990, Qupperneq 10
10
MOUGUNBLAÐIÐ UAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1990.
BABIJAR
_________Tónlist____________
JónÁsgeirsson
Fyrstu tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í þeim
flokki, sem nefnist „utan áskrift-
ar“ voru haldnir sl. fimmtudags-
kvöld í Háskólabíói. Á efnis-
skránni voru verk eftir Arvo
Párt, Mussorgskíj og Shostak-
ovitsj. Flytjendur voru, auk Sin-
fóníunnar, danski bassasöngvar-
inn Aage Haugland, samsafn
karlaradda úr Karlakórnum
Fóstbræður, Karlakór
Reykjavíkur og hópi enskra at-
vinnusöngvara. Stjórnandi var
Eri Klas frá Eistlandi.
Fyrsta verkið, sem er eftir
eistneska tónskáldið Arvo Párt,
nefnist „Til minningar um Benj-
amín Britten“ og er það ákaflega
einfalt í gerð og ekki óáheyrilegt
en ákaflega litlaust. Það er nærri
að öllu leyti byggt á síendurtekn-
um sama fallandi tónstiganum
og að því leyti til í anda „minim-
alistanna“, sem leggja áherslu á
einfaldleikann.
Aage Haugland flutti „Söngva
og dansa dauðans" eftir Muss-
orgskíj og gerði það mjög vel en
á nokkuð of látlausan hátt. Þessi
verk bera í sér svipgerðir fárán-
leikans og því má gæða þau
meiri leikrænni túlkun en Haug-
land gerði. Haugland hefur hlýja
og fallega bassarödd og ræður
yfir mikilli raddtækni, svo að
söngur hans er með öllu
áreynslulaus.
Stórvirki kvöldsins var flutn-
ingur þrettándu sinfóníunnar
eftir Shostakovitsj. Bassakórinn
var mjög góður en þjálfun hans
var í höndum Peter Locke. Söng-
ur Aage Hauglands var glæsileg-
ur og leikur Sinfóníuhljómsveitar
Islands að öllu leyti mjög góður,
undir frábærri stjórn Eri Klas.
Þrettánda sinfónían eftir Shos-
takovitsj er meðal þeirra verka
sem ekki aðeins eru vel gerð,
heldur og þrungin af boðskap
er á erindi til allra þjóða heims,
fæst við mikilvæg grundvallarat-
riði í samskiptum einstaklinga
og rétt mannsins til að hugsa
og vera fijáls. Þetta var í raun
barátta tónskáldsins og er verkið
mettað af alls konar stórkostleg-
um tónhugmyndum sem undir-
striká þessa baráttu á ótrúlega
Morgunblaðið/Sverrir Vilhelmsson
Áheyrendur fagna hljómsveit, kór, einsöngvara og hljómsveitarstjóra að loknum flutningi 13. sin-
fóniu Shostakovitsj (Babi Jar).
áhrifamikinn hátt. Inntak verks-
ins og frábær flutningur þess
mun skipa þessum tónleikum í
flokk eftirtektarverðustu tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.
Ljóðið Babi Jar, eftir Jevtúsh-
enko er notað í fyrsta þættinum
og var það prentað í efnisskrá
en textann fyrir hina fjóra þætt-
ina vantaði. Það er orðin föst
venja að prenta orðréttar þýðing-
ar á söngtextum og hér hefur
því stjórn SinfóníUnnar slegið
nokkuð af um vönduð vinnu-
brögð, þó efnisskráin sjálf og
prentun ljóðsins Babi Jar hafi
verið til fyrirmyndar.
Iðnlánasjóði slegn-
ar fasteignir Stálvíkur
Keyptu á 35 milljónir - Metnar á 190
IÐNLÁNASJOÐI voru slegnar fasteignir þrotabús skipasmiðjunnar
Stálvíkur hf. í Garðabæ síðastliðinn þriðjudag, fyrir 35 milljónir
króna. Landsbankinn átti næsthæsta boð, 31 milljón. Fasteignir Stálvík-
ur voru metnar á 190 milljónir króna þegar fyrirtækið fór í þrot.
Um er að ræða skipasmiðjuna
sjálfa, sem er stórt stálgrindarhús,
4000-5000 fermetra lóð, lagerhús,
skrifstofu- og starfsmannahús og
minni stálgrindabyggingu, sem hýsti
gróðurpinnaverksmiðju Ræktar hf.,
sérstaks hlutafélags í eigu Stálvík-
ur, sem einnig er orðið gjaldþrota.
íRætt hefur verið um að verktak-
ar, erlendir eða innlendir, sem taka
myndu að sér verkefni í tengslum
við byggingu álvers á Keilisnesi,
kynnu að hafa áhuga á fasteignum
Stálvíkur. Að sögn Stefáns Melsted,
lögfræðings Iðnlánasjóðs, hafa engir
sýnt eignunum áhuga, enda stutt
síðan þær komust í eigu sjóðsins.
Stærstu kröfuhafar í þrotabú
Stálvíkur eru Iðnlánasjóður, Lands-
bankinn, ríkisábyrgðasjóður, ríkis-
sjóður, Garðakaupstaður og Iðnþró-
unarsjóður. Ljóst er að kröfuhafar
tapa talsverðu fé.
911 RH 91 97H L^RUS Þ' VALDIMARSS0N framkvæmdastjóri
L I I0v"LIv/v KRISTINNSIGURJÓNSSON,HRL.LÖGGILTURFASTEIGNASALI
Til sýnis og sölu meðal annarra eigna:
Nýlegar 2ja herb. íbúðir - bílskúr
v/Nýbýlaveg, Kóp. ó 2. hæð vel með farin. Sólsvalir. Góð sameign.
Bílsk. m/upphitun. Ný heimrein. Húsnlán kr. 1,0 millj. Vinsæll staður.
V/Stelkshóla á 2. hæð vel með farin suðuríb. Rúmg. sólsvalir. Ágæt
sameign. Góður bílsk. m/upphitun. Laus strax.
Glæsilegt tvíbýlishús - útsýni
í Skógahverfi m/6 herb. íb. á efri hæð og rúmg. 2ja herb. séríb. á
neðri hæð. Góður bílsk. Rúmg. vinnuhúsn.
Glæsilegt einbhús á Álftanesi
á útsýnisstað 170 fm auk bílsk. um 40 fm. Langt komið í byggingu.
Frág. skv. óskum kaupanda. Ræktuð eignarlóð 947 fm. Eignask. mögul.
í þríbhúsi á Nesinu
m/öllu sér 4ra herb. jarðhæð 106 fm nt. Ný vistgata. Vinsæll staður.
Með miklum húsnæðislánum
Nokkrar eignir - íb. og einb. - m/miklum húsnl. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Einarsnes - Hofsvallagata
Góðar 2ja herb. íb. á þessum eftirs. stöðum. Vinsaml. leitið nánari uppl.
Lítil íbúð - gott lán
3ja herb. íb. á efri hæð í þríbhúsi v/Skeggjagötu. Nýtt eldhús. Nýl.
sturtubað. Húsnlán kr. 2,3 millj.
Nýtt einbhús - hagkvæm skipti
Steinhús 153,6 fm nt. m/4ra-5 herb. íb. á tveimur hæðum, ekki fullg.
Bílsk. 23,6 fm. Húsnlán 4,5 millj. Húsið stendur á ræktaðri lóð 642 fm
v/Bæjargil, Garðabæ.
Gott atvinnuhúsnæði v/Höfðatún
á 1. hæð 142 fm auk lítillar geymslu í kj. og kaffistofu í risi. Laust 1.
jan. nk. Nánari uppl. aðeins á skrifst.
• • •
Opið í dag kl. 10.00-16.00.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 12. júlí 1944.
AIMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 SfMAR 21150 - 21370
fiösmíM máD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 5f
>6. þáttur
„Farið ekki með dár og spé,
góðir dreingir, sagði öldúngur-
inn þá. Þetta er gömul klukka.“
Svo segir í fyrsta kafla íslands-
klukkunnar eftir Halldór Lax-
ness.
Dár er fjörgamalt tökuorð í
máli okkar og merkir háð og
spott. Að dára er svo að spotta
og gabba og dári flón, dárskap-
ur (dáraskapur, dáru-
skapur)=flím, flimtan.
Svipuð orð eru í málum
frænda okkar á öðrum norður-
löndum, og bak við þetta má
greina þýsku sögnina bedör-
en=gabba, hafa að fífli, enda
heitir fíflið der Tor á þá tungu.
Jón Vídalín sagði að einn dári
yrði aldrei vís, hvernig sem hann
málaði sig utan.
Er grund og tindi glóey heit
tók gullna sveiga að vefa,
einn dári kvað, er ljósblik leit
um ljóra á dáraklefa:
Hæ, sól með björtu baugunum,
þú burðast við að skína*
- en ef að ég loka augunum,
er úti um birtu þína!
(Nils Johan Einar Ferlin (1898-1961);
Magnús Asgeirsson þýddi úr sænsku).
★
Orðið spé í líkri merkingu og
dár er ekki eins gamalt í
íslensku og hið síðarnefnda.
Elstu dæmi eru frá 15. öld. Spé
mun líka ættað úr þýsku og
merkir upphaflega „spýting",
þ.e. að spýta á eitthvað eða ein-
hvem í háðungarskyni eða lítils-
virðingar. Af spé kemur sögnin
að spéa sem breyttist oftast í
spjá, en jafnvel í spja. Heyrt
hef ég sagt „hætt og spjað“.
Ef hár manna var' illa klippt var
sagt í minni sveit, að maðurinn
væri spéskorinn, en um mis-
kunnarleysi heimsins var sagt:
„Allir spjá (spja) auðnuiausan.“
Ókenndum þér, þó aumur sé,
aldrei til leggðu háð né spé.
Þú veist ei hvöm þú hittir þar
heldur en þessir Gyðingar.
(Hallgrimur Pétursson: Passíu-
sálmar, XIV, 19)
★
Ætli það sé ekki best, úr því
sem komið er, að taka spottið
líka, því að það er talið af sömu
frumrót og spé og merkir hið
sama, háð og gys. Þetta er þá
sem sagt skylt spýta=hrækja,
spýja og spúa, spudda=hrækja
(dönsku spytte) og spúla=skola
með vatni, en sú sögn er tekin
úr dönsku og þangað komin úr
þýsku. Spúll er vatnsslanga, og
til eru sagnirnar að spúlka og
spolka=tútna út.
Spott er mjög gamalt í
ísiensku. Veturinn 1220-21
„færðu Breiðbælingar [í
Fljótshlíð] Loft [Pálsson í Ytra-
Skarði] í flimtan og gerðu um
hann dansa marga og margs
konar spott annað“, segir Sturla
Þórðarson (1214-1284) ííslend-
ingasögu.
Um spottið, hversu iang-
drægt það er, segir máltækið:
Spott veit að spýta um tönn,
en það þýðir Blöndal á dönsku:
„Spot kan spytte langt.“
★
Sá ríss upp með sigri og höppum
sæmdar maðr á nyrsta jaðri
ýta fróns, þar er Island heitir,
ungr og vænn, sem rós hjá klungrum;
skírður var, þegar fæddist fyrða
fríðr ættstuðull og nefndur síðan
Guðmundr er þá giftu hendi
gott að elska, en hafna spotti.
(Ami Jónsson ábóti, 14. öld; hiynhenda.)
★
Sigurður Jónsson á Patreks-
firði skrifar mér hið vinsamleg-
asta bréf, og er margt sem hon-
um þykir stinga í augu og eyru
í „fjölmiðlaneyzlu" nútímans.
Nefnir hann til ofnotkun orða,
t.d. kannski og bætir svo við
orðrétt:
„Annað mál vil ég orða við
þig, og varðar það nýyrðasmíði.
Með því að umhverfismál eru
nú mjög á oddinum, og eiga
vafalaust eftir að verða enn
meira áberandi næstu misserin
og árin, þá Tæ ég ekki leynt
þeirri skoðun minni, að mér virð-
ist vanta þjált og gott íslenzkt
orð fyrir það sem Þjóðverjar
nefna „umweltfreundlich“ og
Svíar „miljövánlig“. Úmhverfis-
vingjarnlegur er afleitt, þótt
bein þýðing sé, og í útvarpi hef
ég heyrt orð eins og umhverfis-
vænn og vistarvænn. Síðast
talda orðið vakti raunar athygli
mína, en ég tel það þó ekki nógu
þjált, sérstaklega vegna -ar
eignarfallsendingarinnar. Kom
mér í því sambandi í hug, að
fræðigreinin um umhverfið,
lífríkið heitir ekki vistarfræði,
heldur vistfræði. Væri þá hægt
að notast við vistrænn? Ekki
finnst mér það, en sting upp á
öðru: vistkær. Merking þess er
þá það sem kært er vistkerfinu,
lætur sér annt um það og fer
vel með það. Andheiti orðsins
gæti verið óvistkær eða vistfár,
sbr. andstæðurnar kærleikar
og fáleikar ...
Kær kveðja.“
Af þessu má sjá að bréfritari
er málkær og málkænn. En ekki
fellir umsjónarmaður sig við til-
lögur hans um samsetningar af
orðinu vist. Ég ráðgaðist sem
oftar í vanda við Islenska mál-
stöð. Próf. Baldur Jónsson sagði
mér að margir hefðu leitað
þangað sömu erinda og menn
velt þessu fyrir sér misserum
saman. Samband hefði verið
haft við opinberar stofnanir sem
umhverfismál láta til sín taka.
Tillaga Baldurs, sett fram með
nokkrum semingi þó, að um-
hverfishollur, og telur hann
það enn illskásta kostinn, en
vill gjarna að fleiri spreýti sig
enn frekar á þessu.
★
Hlymrekur handan kvað:
Vort líf er því lögmáli bundið,
að löngum mun týnt reynast fundið,
það er að segja
ef yfir til eyja
menn þora að sigla yfir sundið.
P.s. í síðasta þætti mislagðist
síðkastið milli lína
(,,síðkas-tið“). Beðist er afsök-
unar á því.