Morgunblaðið - 01.12.1990, Blaðsíða 26
MÖ!ÍGtJNltf,ÁÐÍÐ LAUGARBAGUR lí DBSEMBBR 199ff
STJÓRNMALASTAÐAN EFTIR SAMÞYKKT ÞINGFLOKKS SJÁLFSTÆÐISMANNA UM BRÁÐABIRGÐALÖGIN:
Jón Baldvin
Hannibalsson:
Starfsstjórn
gæti sett
bráðabirgða-
lögin á aftur
JÓN Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að komi til
þess að
Steingrímur
Hermannsson
forsætisráðherra
rjúfi þing og boði
til kosninga,
muni ríkissljórn-
in sitja áfram
sem starfsstjórn
á meðan verið sé
að undirbúa og
framkvæma
kosningar. „Lögfræðilega spurn-
ingin er þessi: Hefur starfssljórn
sömu völd og skipuð ríkisstjóm,
þegar brýna þjóðarnauðsyn ber
til að forða þjóðarvá? Hefur hún
valdsvið tö þess að setja bráða-
birgðalögin á aftur? Eg er þeirr-
ar skoðunar að svo sé,“ sagði Jón
Baldvin í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Ég styðst í því
efni mjög við eftirtektarverða
álitsgerð Björns Bjamasonar,
aðstoðarritstjóra Morgunblaðs-
ins, þar sem hann kemst að þeirri
niðurstöðu að starfsstjórn hafi
þetta vald.“
Jón Baldvin sagði að rökin fyrir
því að starfsstjóm hefði vald til
þess að setja bráðabirgðalög væru
auðvitað þau að starfsstjómin væri
þar með að vísa málinu um þjóðar-
sáttina til þjóðarinnar. „Það verður
þá kosið um hana og þeir sem vilja
viðhalda þjóðarsátt og viti í íslensk-
um efnahagsmálum verða þá að
kjósa stjómarflokkana og hafna
Sjálfstæðisflokknum," sagði Jón
Baldvin.
„Samþykkt þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins um það að þingflokkur-
inn muni í heild fella þjóðarsáttina,
er þess eðlis að ég læt segja mér
tvisvar. Það er sér á parti þótt Sjálf-
stæðisflokkurinn vilji flest til vinna
að koma þessari ríkisstjóm frá, sem
er nú á förum. En að hann vilji
allt til vinna, vekur furðu,“ sagði
Jón Baldvin er hann var spurður
um pólitíska stöðu stjómarflokk-
anna, eftir að þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksin ákvað að greiða at-
kvæði gegn staðfestingu á bráða-
birgðalögum stjómarinnar um
kjarmasamninga BHMR.
Utanríkisráðherra sagði að þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins virtist
með þessari samþykkt sinni vilja
axla ábyrgðina af afleiðingum þess
að bráðabirgðalögin væru felld, og
væri helst hægt að líkja því við
íkveikju. „Vilja þeir kveikja í þjóðfé-
Iaginu, jafnvel þótt það kosti þá
sjálfa að farast í brunanum?" spurði
Jón Baldvin. „Ég trúi því nú eigin-
lega ekki að þingflokkur Sjálfstæð-
isflokksins samanstandi af pólitísk-
um brennuvörgum. Ég held því ró
minni og læt segja mér þetta tvi-
svar.“
„Ég vísa til þess sem Einar Odd-
ur bjargvættur hefur sagt um mál-
ið: Gerist þetta, þá verður auðvitað
þing rofíð og efnt til kosninga. Þá
verða þær kosningar um það hvort
menn vilja kveikja í eða ekki. Ut
frá einhverri flokkapólitík og um
stöðu einstakra flokka, þá er auðvit-
að verið að spila öllum trompum
upp í hendumar á stjómarflokkun-
um, með því að nema bráðabirgða-
lögin úr gildi. Stjómarflokkamir
hafa náð umtalsverðum árangri í
efnahagsmálum, skapað forsendur
fyrir þjóðarsátt, keyrt niður verð-
bólgu og vexti og lagfært rekstrar-
grundvöll atvinnuvega. Ef Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar að stilla sér
upp í kosningum með það að hann
heimti að BHMR fái hinn algalna
samning sinn í gildi og síðan taki
við víxlhækkanir með kollsteypu
upp í 100% verðbólgu á nokkmm
mánuðum, þá get ég ekkert um það
sagt, annað en ég vona í lengstu
lög að svo heillum horfnir séu eng-
ir menn á íslandi. Það munu allir
þjóðhollir íslendingar snúast til
vamar," sagði Jón Baldvin
Utanríkisráðherra var spurður
hvort atkvæðagreiðslan á Alþingi
um bráðabirgðalögin væri ekki í
raun og vem atkvæðagreiðsla um
eigið klúður ríkisstjómarinnar, sem
gerði kjarasamninginn við Banda-
lag háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna: „Nei, það er ekki verið að
kjósa um það, vegna þess að við
settum lög. Það er verið að kjósa
um þessi lög. Vissulega er margt
klúðrið, en það er ekki verið að
kjósa um það. Menn geta gagnrýnt
það að samningurinn hafí verið
gerður. Það höfum við gert sjálfír,
sumir hveijir. Þetta vom mistök frá
upphafí til enda, en það var bætt
fyrir mistökin með því að setja þessi
lög, sem verið er að kjósa um,“
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Þorsteinn Pálsson:
skellur á þegar lögin falla úr gildi,
gerist það ekki jafnt í september
eins og núna?“ spurði formaðurinn.
„Ég hef verið þeirrar skoðunar
frá upphafí, að rétt væri að fara
viðræðuleiðina og óska eftir því að
háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn
tækju þátt í þessari launaþróun og
ég er enn þeirrar skoðunar,“ sagði
Þorsteinn. Hann kvaðst sannfærður
um að þannig mætti ná samkomu-
lagi um að ekki ýrðu gerðir kjara-
samningar sem röskuðu þeim verð-
bólghumarkmiðum sem sett hefðu
verið.
Olafur Ragnar
Grímsson:
Verður að
meta á næst-
unni hvenær
þjóðin kveður
upp sinn dóm
Hagsmuna-
samtökgeta
ekki sljórnað
Sjálfstæðis-
flokknum
ÞORSTEINN Pálsson formaður
Sjálfstæðisflokksins segir það
vera mjög eðli-
legt að forsvars-
menn atvinnu-
rekstrar haldi
því að ríkis-
stjórninni að hún
standi við það
sem hún hafði
lofað. „Þessir
fulltrúar at-
vinnurekenda
höfðu ekki gert
neina samninga við Sjálfstæðis-
flokksins og gagnrýni þeirra
hlýtur að beinast að þeim sem
þeir sömdu við. Mér fyndist eðli-
legra að þeir beindu spjótum
sínum þangað, en ekki að Sjálf-
stæðisflokknum,“ sagði Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið
í gær, er hann var spurður hverju
hann svaraði gagnrýni forrystu-
manna atvinnurekenda á sam-
þykkt þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins um að fella bráða-
birgðalögin um kjarasamninga
BHMR og ríkisins.
Þorsteinn var spurðunhvort þessi
mikla gagnrýni úr röðum atvinnu-
rekenda væri ekki vísbending um
mjög skiptar skoðanir innan Sjálf-
stæðisflokksins í garð bráðabirgða-
laganna: „Það er auðvitað augljóst
að þeir forystumenn atvinnurek-
enda sem bera fram þessa gagnrýni
og eru sjálfstæðismenn, eru ekki
sammála okkur í þessum efnum.
Það liggur í augum uppi að það er
ekki samstaða milli okkar og þeirra
um þessa afstöðu,“ sagði Þorsteinn.
Þorsteinn sagði að auðvitað vildi
Sjálfstæðisflokkurinn eiga góð
samskipti við hagsmunasamtök at-
vinnurekenda og launafólks, sem
annarra í þjóðfélaginu. „En hags-
munasamtökin geta ekki stjómað
Sjálfstæðisflokknum. Við emm ekki
að taka á okkur neina ábyrgð á því
að launahækkanir skelli yfír. Ég
minni á að það var núverandi ríkis-
stjóm sem gerði þennan samning
við BHMR og í öðru lagi bendi ég
á að núverandi bráðabirgðalöggilda
fram í september á næsta ári. Ég
spyr hvað er það sem hægt er að
gera þá, sem ekki er hægt að gera
núna? Ef verðbólguheimsendir
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
formaður Alþýðubandalagsins,
segir að eftir
ákvörðun þing-
flokks Sjálfstæð-
ismanna um að
greiða atkæði
gegn bráða-
birgðalögunum,
sé komin upp
gjörbreytt staða
í stjórnmálum.
Þjóðin verði
æðsti dómari og
valið standi á milli ríkisstjórnar-
flokkanna og þjóðarsáttarinnar
annars vegar og hins vegar
skemmdarverka Sjálfstæðis-
flokksins á þjóðarsáttinni. Aðeins
sé spurning um einhveijar vikur
eða mánuði hvenær þjóðin kveði
upp sinn úrskurð þó of snemmt
sé að taka ákvörðun um hvenær
það verði. Ólafur neitar að hafa
gefið forsætisráðherra rangar
upplýsingar um stuðning þing-
manna Alþýðubandalagsins til
bráðabirgðalaganna í sumar.
Alltaf hafi verið ljóst að einstak-
ir þingmenn myndu ekki styðja
þau, en það sé mikill munur á
því og eindreginni afstöðu
flokksins sjálfs.
„Sjálfstæðisflokkurin hefur kosið
að stilla málinu þannig upp að ann-
ars vegar er efnahagslegur stöðug-
leiki og víðtæk þjóðarsátt sem ríkis-
stjómin, samtök atvinnulífsins og
yfir 90% launamanna standa að og
hins vegar er atlaga Sjálfstæðis-
flokksins að þjóðarsáttinni og stöð-
ugleika efnahagslífsins,“ sagði
hann.
Ólafur sagði að nú væri komin
upp óvenju skýr staða. „Valið er á
milli þess sem við höfum verið að
gera og skemmdarverka Sjálfstæð-
isflokksins. Það eru stór tíðindi í
íslenskum stjómmálum og afar
óvenjulegt að svo ským kastljósi
sé varpað á það val sem blasir nú
við þjóðinni.“
Ólafur sagði að ríkisstjórnin hefði
staðið í erfiðum verkefnum sl. tvö
ár. „Við höfum endurreist atvinn-
ulífið, gengið er orðið stöðugt, halli
á ríkissjóði farið minnkandi, vextir
lækkað og viðskiptahallinn minnk-
að. Eriendar efnahagsstofnanir
hafa kveðið upp jákvæðan úrskurð
um þennan árangur. Forystumenn
atvinnulífsins hafa tekið höndum
saman við ríkisstjómina og rösklega
90% launafólks í landinu að varð-
veita þennan árangur. Þá birtist
þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
með eldfæri í höndum og ætlar að
kveikja í öllu saman og hefur af-
hjúpað ábyrgðarleysi sitt og
skammsýni. Hann skilur ekki hinar
stóru stundir í efnahagsmálunum.
Ólafur Ragfnar
Grírasson
Þess vegna hella forystumenn at-
vinnulífsins og launafólks reiðilestri
yfir Sjálfstæðisflokkinn þessa dag-
ana,“ sagði Ólafur.
„I þessu máli verður þjóðin æðsti
dómári en það er of snemmt að
taka ákvarðanir um með hvaða
hætti það verður og hvenær. Það
er búið að stilla málunum þannig
upp að annars vegar er ríkisstjórnin
og þjóðarsáttin, hins vegar er Sjálf-
stæðisflokkurinn. Það er bara
spuming um einhvetjar vikur eða
mánuði hvenær þjóðin kveður upp
sinn úrskurð," sagði Ólafur.
Hann var spurður hvort hann
væri að boða þingrof og kosningar
fyrir lok kjörtímabilsins. „Ég tel að
ríkisstjómin. hljóti að hugleiða í
mikilli alvöru að stuðla að því að
dómur þjóðarinnar fái að koma
fram með skýrum og ótvíræðum
hætti,“ sagði hann.
-Forsætisráðherra sagðist hafa
fullan stuðning við bráðabirgðalög-
in en annað hefur komið í ljós.
Gafst þú Steingrími rangar upplýs-
ingar um afstöðu þingmanna AI-
þýðubandalagsins? „Nei, ég gaf
Steingrími ekki rangar upplýsingar.
Það hefur alltaf verið ljóst að ein-
stakir þingmenn í Alþýðubandalag-
inu myndu ekki geta stutt bráða-
birgðalögin af persónulegum
ástæðum en afstaða flokksins var
alveg skýr. Stofnanir flokksins tóku
afdráttarlausa afstöðu með bráða-
birgðalögunum, þjóðarsáttinni og
efnahagsstefnunni. Við höfum hins
vegar aldrei lagst á þá menn sem
treysta sér ekki til að ganga þá
leið. Það er mikill munur á því og
stefnu flokksins."
-Var þá ekki meirihluti fyrir
bráðabirgðalögunum? „Það er ekki
venja að fara nákvæmlega yfír slíkt
hjá hverjum og einum. Það er líka
stjórnarskrárbundið að þingmönn-
um er fijálst að skipta um skoðun
frá því að bráðabirgðalög eru sett
og þar til þau koma til atkvæða.
Það tíðkast ekki að binda hendur
þingmanna um langan tíma. Aðal-
atriðið er hvort þeir flokkar sem
að stjórninni standa taka flokkslega
afstöðu með lögunum eða ekki og
það gerðu allir flokkarnir þó ljóst
væri að einstakir þingmenn hefðu
aðra afstöðu."
-Blasir þá ekki við að bráða-
birgðalögin eru í raun fallin eða
leynast huldumenn innan stjórnar-
andstöðunnar? „Það er aukaatriði í
dag. Aðalatriðið er að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur sýnt þjóðinni hvert
hann vill fara og þjóðin þarf nú að
velja á milli stjórnarflokkanna og
þjóðarsáttarinnar annars vegar og
Sjálfstæðisflokksins hins vegar.
Það verður svo að meta á næstunni
hvenær það val fer fram,“ sagði
Ólafur.
Páll Halldórsson:
>»
Osk um við-
ræður verður
tekin til at-
hugunar
PÁLL Halldórsson, formaður
BHMR, segist lítið geta tjáð sig
um hvaða mögu-
leiki verði á því
að senya við aðra
ríkisstjórn ef sú
sem nú situr fari
frá, eins og Þor-
steinn Pálsson,
formaður Sjálf-
stæðisflokksins,
hefur krafist að
hún geri. Þor-
steinn hefur jafn-
framt sagt að ný stjórn ætti að
leita eftir viðræðum við BHMR
og aðra aðila vinnumarkaðarins
til þess að leysa það vandamál
sem upp kynni að koma ef samn-
ingur BHMR og rlkisins öðlist
gildi.
„Okkar krafa er auðvitað sú að
samningur okkar taki gildi. En ég
get lítið tjáð mig um hvaða mögu-
leikar eru á því að semja upp á
nýtt. Það er hlutur sem stéttarfélög-
in yrðu að taka til 'athugunar þegar
þar að kæmi. Það hefur aldrei ver-
ið óskað eftir því að ræða við okkur
fyrr en allt hefur verið komið í
óefni, en ef einhver óskar eftir því
að taka upp viðræður við stéttarfé-
lögin verður það tekið til athugunar
af þeim. Heildarsamtök fara ekki
með hið eiginlega samningsumboð.
Við verðum að athuga að þessi
samningur, sem bráðabirgðalögin
voru sett á, er ekki samningur
BHMR og ríkisins heldur 22 stéttar-
félaga og ríkisins, þó BHMR hafi
staðið fyrir þessu sajnfloti félag-
anna á sínum tíma. í umræðunni
hafa heildarsamtökin dálítið verið
látin yfirskyggja stéttarfélögin, sem
fara með hið raunverulega samn-
ingsumboð,“ sagði Páll Halldórsson.
Páll sagði sér hefði þótt dálítið
merkilegt að heyra það í sjónvarp-
inu á fimmtudagskvöld „er Einar
Oddur [Kristjánsson, formaður
VSÍ] sagði, að í febrúar hafi ríkis-
stjórnin lofað, og handsalað það
loforð, að ekki yrði staðið við samn-
inginn við okkur. Það hefur ekki
komið fram með svo afdráttarlaus-
um hætti að þeir hafi handsalað
Vinnuveitendasambandinu loforð
þess efnis að þeir myndu ekki
standa við samning sem þeir voru
áður búnir að gera sjálfir. Það er
dálítið magnað í sjálfu sér. Þeir
höfðu ekkert samband við okkur
þá, og í raun og veru hefur ekkert
verið rætt við okkur um annað en
að hirða af okkurþennan samning."
Júlíus Sólnes:
Markmiðið
að standa
vörð um
þjóðarsáttina
ofar öllu
JÚLÍUS Sólnes, umhverfisráð-
herra og formaður Borgara-
flokksins, segist
andvígur því að
þing verði rofið
og boðað til kosn-
inga.
Steingrímur
Hermannsson,
forsætisráðherra,
hefur lýst því yfir
að verði bráða-
birgðalögin á
samning BHMR
ekki staðfest, komi til þingrofs. Þá
hefur Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, krafist þess
að stjórnin fari þegar frá þar sem
hún hafi ekki meirihluta.
„Þvert á móti finnst mér allir sem
það geta eigi að taka höndum sam-
an og standa vörð um þennan efna-
hagsárangur sem náðst hefur, um
þjóðarsáttina, og það ætla ég mér
að gera þó það kunni að baka mér
ýmis óþægindi og amstur á næst-
unni. Ég tel að það markmið eigi
að vera ofar öllu,“ sagði Júlíus Sól-
nes. við Morgunblaðið.
En hvernig metur Júlíus stöðu
Borgaraflokksins í hugsanlegum
kosningum, ef svo færi að þing
yrði rofið? „Það er eiginlega ómögu-
legt að átta sig á þvi. Ég verð var
við að mjög stór hluti kjósenda er
óákveðinn. Er að leita fyrir sér að
einhveiju nýju; menn eru þreyttir á
gömlu flokkunum og þessu hags-
munapoti þeirra, og það er ómögu-
legt að segja hvað gæti orðið,“ sagði
Júlíus Sólnes.