Morgunblaðið - 01.12.1990, Qupperneq 35
MORGUNKLADID LAUGAHDAGUR 1. DKSEMBER ,199fl
M
Látum ekki sjálf-
stæðið fyrir baunadisk
eftir Kristínu
Einarsdóttur
Nú dregur senn til loka samn-
ingaviðræðna EFTA og EB um
sameiginlegt efnahagssvæði. í upp-
hafi viðræðnanna var lögð á það
ofuráhersla af hálfu íslenskra ráð-
herra að fríverslun með fisk væri
megin hagsmunamál íslendinga.
Þess vegna væri mjög mikilvægt
að taka þátt í samningaviðræðum
við EB ásamt öðrum EFTA-þjóðum.
Ekkert tillit var tekið til þeirra
ábendinga að ef fríverslun yrði sam-
þykkt væri ekki hægt að reisa
skorður við útflutningi á hálfunnum
og óunnum fiski og því væri slík
krafa varasöm. S.trax í upphafi
samningaviðræðna kom það skýrt
fram hjá talsmönnum EB að ekki
kæmi til greina af þeirra hálfu að
samþykkja fríverslun með fisk.
Þeirra umboð til samninga inniheld-
ur einnig ákvæði þess efnis að fyr-
ir tollfijálsan aðgang að mörkuðum
EB fyrir fisk EFTA-ríkjanna komi
heimildirtil að veiða innan fiskveiði-
lögsögu þeirra, þar á meðal Islands.
Mikið „happ“ að ekki var
gengið að okkar kröfu!
Það átti því ekki að koma neinum
á óvart þegar samningamenn EB
gerðu samningamönnum EFTA
ljóst að það stæði sem þeir hefðu
sagt,. að ekki kæmi til greina að
semja um fríverslun með fisk. En
nú brá svo við að ráðherrar töldu
það hið mesta happ að EB skyldi
ekki samþykkja kröfu okkar um
fríverslun með fisk. Hvað er hér á
ferðinni? Eru mennirnir svo áfjáðir
í að komast inn í EB með einum
eða öðrum hætti að hvað sem EB
menn segja þá telja þeir það ein-
mitt það besta fyrir okkur?
Hver greiðir reikninginn?
Eins og fram kom á Alþingi í
haust lætur utanríkisráðherra að
því liggja að aðrar Norðurlanda-
þjóðir innan EFTA séu reiðubúnar
að taka á sjg „fórnarkostnað"
vegna íslands. í umræðum um þessi
mál hefur utanríkisráðherra látið
svo sem Svíar og Norðmenn muni
verða fúsir til að hleypa skipum
EB inn í lögsögu landanna sem
endurgjald fyrir aðgang íslenskra
sjávarafurða að mörkuðum EB. Enn
hefur fiskur ekki verið til umræðu
í samningunum og er erfitt að átta
sig á hvers vegna utanríkisráðherra
telur aðrar EFTA-þjóðir tilbúnar til
að greiða aðgöngumiðann fyrir
íslenskan fisk inn á markaði EB.
Ekki bara verið að
semja um fisk
Samningurinn um evrópska efna-
hagssvæðið er ekki viðskiptasamn-
ingur milli sjálfstæðra ríkja, heldur
er verið að opna allt efnahagskerfi
þessara ríkja upp á gátt. Með samn-
ingnum eru ríkin m.a. að ákveða
að afnema hindranir á fjármagns-
flutningum, þjónustuviðskiptum og
flutningi vinnuafls á milli landa.
Ekki má mismuna fólki eftir þjóð-
erni, heldur hafa allir þegnar á
svæðinu sama rétt. Þannig geta
íslendingar ekki krafist þess að
þeir gangi fyrir vinnu hérlendis
hafi forkaupsrétt á landi eða öðrum
fasteignum, sitji einir að 'ákveðnum
atvinnugreinum og fleira mætti
telja. Réttur erlendra aðila verður
sá sami og innlendra til að setja á
stofn fyrirtæki t.d. í ferðaþjónustu
sem svo mikið hefur verið litið til
sem vaxtarbrodds í íslensku atvinn-
ulífi.
Allt þetta hefur ríkisstjórnin eins
og hún leggur sig, með formann
Framsóknarflokksins í broddi fylk-
ingar, skrifað upp á.
Hagsmunir okkar
ekki tryggðir
Þar sem ljóst er að hagsmunir
íslands verða ekki tryggðir með
samfloti við önnur EFTA-ríki er
farsælla fyrir okkur að ganga til
samninga við EB á okkar eigin for-
sendum. Forsvarsmenn EB segjast
ekki tilbúnir til samninga við ein-
stök EFTA-ríki rneðan viðræður EB
og EFTA eru á dagskrá. Þessar
viðræður hafa því tafið fyrir nauð-
synlegum samningum um tollfijáls-
an aðgang að markaði EB fyrir
okkar afurðir. Utanríkisráðherra
sagði nýlega að ef ekkert yrði úr
samningum um Evrópskt efnahags-
svæði yrðum við að leita á náðir
Bandaríkjanna. Þetta er fráleitur
málflutningur sem ber vott um van-
trú á að íslendingar geti staðið
efnahagslega á eigin fótum.
Viðskiptasamninga
við fleiri en EB
Við höfum viðskiptasamning við
EB sem mun ekki falla úr gildi
Kristín Einarsdóttir
„Þar sem ljóst er að
hagsmunir Islands
verða ekki tryggðir
með samfloti við önnur
EFTA-ríki er farsælla
fyrir okkur að ganga
til samninga við EB á
okkar eigin forsend-
um.“
þótt ekki takist samningar um sam-
eiginlegt efnahagssvæði. Við höfum-
á undanförnum árum haft viðskipti
við Bandaríkin og eigum auðvitað
að efla þau. Auk þess eru nýir
markaðir að opnast í Austur-Asíu,
sérstaklega Japan. Eins má búast
við að markaðir opnist í Mið- og
Austur Evrópu fyrir afurðir okkar.
Því er mikilvægt að binda ísland
ekki fast á einum markaði sem or-
sakar jafnframt að verulega dregur
úr möguleikum okkar til samninga
við önnur svæði.
Samskipti án afsals sjálfstæðis
Aðild að stóru efnahagssvæði
hefur þá hættu í för með sér afr
ísland einangrist í útjaðri svæðis-
ins. Afleiðingin gæti orðið sú að
aðalútflutningsvara okkar yrði
óunninn fiskur og hráefni frá stór-
iðjuverum. Við eigum fremur að
nýta þá möguleika sem sérstaða
okkar skapar en gerast hráefnis-
framleiðendur fyrir verksmiðjur á
meginlandi Evrópu.
A sama tíma og miðstýrt stórríki
er að brotna niður í Austur-Evrópu
er verið að mynda annað vestar í
álfunni sem heitir Evrópubandalag.
Með aðild að því stórríki blasir sý.
hætta við, að íslensku þjóðinni veit-
ist örðugt að varðveita menningu
sína og tungu og þar með kann hún
að glata þjóðerniseinkennum sínum
og sjálfstæði.
Iíöfundur er þingmaður
Kvennalistans í Reykjavík.
EIGNASKIPTIMARKAÐURINN
SÍMI628818
DraumQbíll Pontiac Trons Am '82
e. 82. þús. milur. Skipti oth. S. 681258.
Mcico SSho. Crass/Enduro '87. S. 628818.
Nissan Puisar SLX A-T '89 e. 37. þús.
Skipti 6 sjólfsk. Toyoto '88. S. 93-61236.
Toppeintak Ford Bronco '77 allur end-
ursmíðaður '87. Uppl. s. 667195.
Vatnsrúm 2 óro, hvitt 180X200. S. 673262.
Soguleg málverk eftir Valdimar Bjarn-
freðsson. Skipti hugsanleg 6 bilum o.fl.
S. 16948 - 628818.
100 fm. einbýlishús á tveim hæðum i
nágrenni væntonlegs álvers. S. 92-16928.
Þvottavél m/innb. þurrkaro, 2 þurrkarar,
borðstofuborð o.fl. S. 642554.
V