Morgunblaðið - 07.12.1990, Blaðsíða 1
128 SIÐUR B/C/D
279. tbl. 78. árg.
FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Saddam Hussein segist vilja sleppa öllum erlendum gíslum án skilyrða:
Yfirlýsingin vekur von-
ir um friðsamlega lausn
Það ríkti mikill fögnuður hjá 36 jap-
önskuin gisluin í Bagdad í gær er
þeir fréttu að þeir yrðu látnir lausir.
Fyrir miðju er Antonio Inoki, japansk-
ur þingmaður og meistari í fjöl-
bragðaglímu, sem fór til Bagdad til
að fá landa sína lausa. Erlendu
gíslarnir í Irak og Kúvæt og aðstand-
endur þeirra glöddust mjög yfir yfir-
lýsingu Saddams. Hún kom á óvart
þótt margir hefðu verið vongóðir um
að komast heim frá og með jólum
eins og Iraksforseti hafði heitið.
Santiago, Bagdad. Reuter. Frá Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins.
YFIRLÝSING Saddams Husseins íraksforseta um að allir erlendir
gíslar í landinu fái frelsi hefur vakið vonir um að Persaflóadeilan
leysist með friðsamlegum hætti. Yfirlýsingin kom nrjög á óvart en er
hluti af hraðri atburðarás í Persaflóadeilunni frá því Öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti að beita hervaldi færu Irakar ekki frá
Kúvæt og slepptu erlendum gíslum í síðasta lagi 15. janúar. Fyrst
bauðst George Bush Bandaríkjaforseti til þess að senda utanríkisráð-
herra sinn til Bagdad og taka á móti utanríkisráðherra íraka og í
fyrrakvöld gáfu Bandaríkjamenn til kynna að þeir væru reiðubúnir
að skoða hugmyndina um friðarráðstefnu í Miðausturlöndum sem
verið héfur ein aðalkrafa Saddams Husseins. Leiðtogar þeirra ríkja
sem verið hafa í fremstu víglínu andspænis Irökum fögnuðu ákvörðun
Saddams í gær en sögðust bíða þess að loforðið yrði efnt. Þéir lögðu
ennfremur á það áherslu að áfram yrði þrýst á Iraka að kalla her
sinn heim frá Kúvæt.
GATT:
Viðræður um landbúnað-
armál farnar út um þúfur
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
„Hinn mikli leiðtogi, forseti okk-
ar, hefur lagt fyrir þingið tillögu
þess efnis að allir erlendir gestir
geti fafið úr landinu skilmálalaust,“
sagði Latif al Jassim, upplýsinga-
málaráðherra Iraks, á fundi með
erlendum blaðamönnum sem boðað
var til í mikilli skyndingu í Bagdad
í gær. Fáeinum mínútum áður hafði
Saddam Hussein flutt ávarpið til
þjóðarinnar. Þetta virðist hafa borið
að mjög snögglega og fæstir blaða-
menn höfðu hugmynd um þennan
fund og höfðu ekki heyrt ræðu Sadd-
ams. Blaðamaður Morgunblaðsins
spurði Jassim hvort hann byggist
við heitum umræðum á þinginu og
jafnvel andstöðu. „Það verður að
koma í ljós,“ sagði hann og flutti
síðan snöfurlegan fyrirlestur um
helstu _ mannkosti Saddams Huss-
eins. Á leiðinni heim á hótel hló
bílstjóri blaðamanns kaldranalega:
„'Sá maður verður bara einfaldlega
drepinn sem gengur gegn þessu.“
„Við verðum að halda þrýstingn-
um áfram,“ sagði George Bush á
fréttamannafundi í Santiago í Chile
í gær þar s_em hann er í opinberri
heimsókn. „Ég fagna fréttinni ef hún
reynist rétt en það mun ekki breyta
þeirri skoðun minni að það þarf að
framfylgja ályktunum Sameinuðu
þjóðanna skilyrðislaust." Vítalíj
Tsjúrkín, talsmaður sovéska ut- •
anríkisráðuneytisins, sagði að ef
gíslunum yrði í raun sleppt væru það
mjög gleðileg tíðindi sem glæddu
þá von að Saddam gæfi eftir á öðrum
sviðum. Nú eru 2.800 vestrænir
borgarar og japanskir í írak og
Kúvæt. Einnig eru þar 3.300 sové-
skir hernaðarráðgjafar sem ekki
hafa fengið að fara úr landi.
Hlutabréf hækkuðu í verði og ol-
ían lækkaði á fjármálamörkuðum
þegar fréttin um yfirlýsingu Sadd-
ams barst. Fatið af Norðursjávarolíu
seldist á 26,36 dali í Lundúnum
síðdegis í gær, tæpum dal lægra en
sólarhring áður.
*Sjá „Bandarikjastjórn styður
ekki...“ á bls. 26.
Málamiðlunartillögu Mats
Hellströms, landbúnaðarráðherra
Svíþjóðar og formanns landbún-
aðarnefndar GATT-fundarins,
sem hann lagði fram í gær til
lausnar þeirri kreppu, sem samn-
ingar um landbúnaðarmál á fundi
ráðherra aðildarríkja GATT-við-
ræðnanna hafa verið í, var hafnað
seint i gærkvöldi. Hún gerði m.a.
ráð fyrir 30% niðurskurði á út-
flutningsbótum og framleiðslu-
styrkjum í landbúnaði á næstu
fimm árum. Auk þess áttu aðildar-
þjóðirnar að skuldbinda sig til að
heimila innflutning á sem svarar
5% af innanlandsneyslu.
Þegar fulltrúar Evrópubanda-
lagsins höfðu í gærkvöldi gert grein
fyrir afstöðu sinni til mögulegra
efnisatriða tillögunnar þótti ljóst að
enginn grundvöllur væri fyrir frek-
ari viðræðum. Fundinum lauk því
í fullkominni óeiningu um framhald
landbúnaðarviðræðna. Nokkrir full-
trúanna höfðu í hótunum að mæta
ekki til frekari viðræðna um þennan
málaflokk. Reiknað er með því að
Mialda áfram viðræðum um aðra
þætti samkomulagsins á morgun.
Á fundi Norðurlandanna í gær-
kvöldi lýstu Svíar einir yfir stuðn-
ingi við tillöguna en ísleijdingar,
Norðmenn og Finnar sögðu að hún
væri að mörgu leyti meingölluð.
Bandaríkjamenn sögðu að tillagan
gengi að þeirra mati ekki nógu
langt en hún gæti gagnast sem
grundvöllur frekari viðræðna. Full-
trúar Evrópubandalagsins höfðu í
fyrstu tekið í sama streng en höfn-
uðu tillögunni svo eins og áður seg-
ir. Samkvæmt tillögunni þurfti EB
að hækka tilboð sitt um niðurskurð
um 50%, og er talið að t.d. Frakkar
hafi alls ekki getað fallist á það.
íslenski læknirinn fær
fararleyfí eftir örfáa daga
- sagði forseti íraska þingsins á fundi með Jóhönnu Kristjónsdóttur
STJÓRNVÖLD í írak hafa heitið því að Gísli Sigurðsson læknir fái
á næstu dögum leyfi til að halda úr landi. Það var forseti íraska
þingsins, Saadi Meliti Saleh, sem gaf þetta loforð á fundi með
Jóhönnu Kristjónsdóttur, blaðamanni Morgunblaðsins, í gærmorgun
þar sem hún talaði máli Gísla Sigurðssonar. „Eg geri mitt besta.
Islenski læknirinn fær fararleyfi eftir örfáa daga, jafnskjótt og
gengið hefur verið frá formsatriðum," sagði þingforsetinn. Líkt
og fram kemur hér að ofan barst sú frétt á hádegi í gær að Sadd-
am Hussein íraksforseti hefði beðið þingið uin samþykki fyrir því
að öllum erlendum gislum yrði leyft að halda úr landi.
Gísli Sigurðsson læknir, sem Jóhanna Kristjónsdóttir hélt til
varð innlyksa í Kúvæt og írak, er Bagdad, höfuðborgar íraks, um
Persaflóadeilan blossaði upp 2.
ágúst síðastliðinn, sagði að Saadi
Mehti Saleh þætti maður hreinn
og beinn og gæfi afdráttariausari
svör en ýmsir aðrir háttsettir menn
í landinu. „Orð þingforsetans
benda til þess að það sé aðeins
spurning um fáa daga hvenær ég
fæ að fara og ég er afskapldga
glaður.“
síðustu helgi eftir að þau boð höfðu
borist frá Bagdad að hún hefði
fengið vegabréfsáritun. Jóhanna
hafði haft samband við Hameed
Saeed, skáld og ritstjóra stjórnar-
málgagnsins „Byltingarinnar",
sem hún þekkir vel og grennslast
fyrir um hvort hann hefði einhverj-
ar upplýsingar um mál Gisla Sig-
urðssonar. Á hinn bóginn hafði hún
Gísli Sigurðsson Iæknir.
ekki leitað eftir slíkri áritun.
Viðræður Jóhönnu Kristjóns-
dóttur og Saadi Mehti Saleh fóru
fram á skrifstofu hans í íraska
þinginu og var fundur þeirra hálfri
klukkustundu lengri en áformað
hafði verið. Að sögn Jóhönnu lét
hún þingforsetann fá nafn Gísla
Sigurðssonar, og greindi frá stöðu
hans og dvalarstað. Þingforsetinn
óskaði einnig .eftir upplýsingum
um eiginkonu Gísla og börn og
spurði sérstaklega hvort hann ætti
foreldra á lífi.
Þegar fundinum lauk kvaðst
Jóhanna hafa spurt þingforsetann
hvað gerast myndi í máli Gísla
Sigurðssonar. „_Eg set það af stað
umsvifalaust. Ég vona að móðir
hans og Islendingar gleðjist mjög
fljótlega."
Sjá einnig „Blaðamaður
Morgunblaðsins ... “ á
miðopnu.