Morgunblaðið - 07.12.1990, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
Hvolsvöllur:
Nýtt félag
stofnað
Hyolsvelli.
Á fullveldisdaginn var stofnað
á Hvolsvelli nýtt félag sem feng-
ið hefur nafnið Oddafélagið. Fé-
lagi þessu er ætlað að hefja hið
forna frægðarsetur Odda á
Rangárvöllum aftur til vegs og
virðingar með því að efla þar
smám saman miðstöð fræða og
fræðslu á sviði náttúruvísinda og
sögu.
Héraðsnefnd Rangárvallasýslu
ákvað í sumar að stuðla að þessu
jíf alefli og í því skyni er félagið
stofnað. Það er gert í samvinnu við
marga áhugamenn um endurreisn
i Odda.
Áhugi er fyrir því að valin verði
ýerkefni sem ekki er sinnt sem
skyldi annars staðar á landinu.
Þannig yrði Oddi ekki aðeins lyfti-
^töng Rangárvallasýslu heldur
einnig öllu landinu, eins og staður-
/ inn var til forna.
Á fullveldisdaginn söfnuðust
stofnendur Oddafélagsins saman í
Oddi.
Odda og gengu til kirkju. Þar
hlýddu þeir á hugleiðingu séra
Sváfnis Sveinbjörnssonar. Þá var
ekið á Hvolsvöll þar sem hinn eigin-
legi stofnfundur félagsins fór fram.
Á fundinum kom fram áhugi fyrir
því að umhverfismálaráðstefna
gæti orðið eitt af fyrstu verkefnum
félagsins.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Fyrsta stjórn félagsins var kjörin,
hana skipa: Þór Jakobsson formað-
ur en hann er helsti áhuga- og
hvatamaður að stofnun félagsins,
Friðrik Friðriksson, Árni Bjömsson,
Jón Þorgilsson, Friðjón Guðröðar-
son, Sváfnir Sveinbjarnarson og
Drífa Hjartardóttir.
- S.Ó.K.
ATHYGLISVERÐAR
íseft
SKUGGSJA
BÓKABÚÐ OLÍVERS STEINS SF
MYNDIR ÚR LÍFI PÉTURS EGGERZ,
FYRRVERANDI SENDIHERRA
GAMAN OG ALVARA
PÉTUR EGGERZ
Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem
lítill drengur í Tjarnargötunni f Reykjavík,
þegar samfélagið .var mótað af allt öðrum
viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann
um það, er hann vex úr grasi, ákveður að
nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis-
þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur
hefur kynnst miklum íjölda fólks, sem
hann segir frá í þessari bók.
KENNARI Á FAR ALDSFÆTI
MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI
AUÐUNN BRAGI SVEINSSON
Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara-
starfi sfnu f öllum hlutum landsins. Hann
greinir hér af hreinskilni frá miklum fjölda
fólks, sem hann kynntist á þessum tíma,
bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá
kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán
stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol-
ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi
og í Ballerup í Danmörku.
SONUR SÓLAR
RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI
ÆVAR R. KVARAN
Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton,
sem dýrkaði sólarguðjnn og var langt á
undan sinni samtfð. Meðal annarra rit-
gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf-
steinn Björnsson miðíll; Vandi miðilsstarfs-
ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði
Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun-
ar; Ermótlætiílífinu böl?; Himnesk tónlist;
Hefur þú lifað áður?
BÍLDUDALSKÓNGURINN
ATHAFNASAGA PÉTURS J. THORSTEINSSONAR
ÁSGEIR JAKOBSSON
Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem
var frumherji í atvinnulífi þjóðarinnar á
síðustu áratugum nftjándu aldar og fyrstu
áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns,
sem vann það einstæða afrek að byggja upp
frá grunni öílugt sjávarpláss; hetjusaga
manns, sem þoldi mikil áföll og marga
þunga raun á athafnaferlinum og þó enn
meiri í einkalffinu.
Skáldsaga eftir Birg-
ittu H. HaUdórsdóttur
SKJALDBORG hefur gefið út
skáldsöguna Myrkraverk í mið-
bænum eftir Birgittu H. Hall-
dórsdóttur.
Á bókarkápu segir m.a. um sögu-
efnið: „Ég er hrædd og ég veit
ekki mitt ijúkandi ráð. Það hafa
verið framin tvö morð með stuttu
millibili, hér í Reykjavík. Morð sem
allir telja að séu skýranleg dauðs-
föll. Hið fyrra var haldið sjálfsvíg
en það síðara slys. Ég er hrædd
því ég veit að morðinginn gengur
laus og hefur næsta fórnarlamb í
sigtinu. Ég óttast að áður en yfir
lýkur komi röðin að mér. Ég vil
ekki deyja ...“
Þetta er áttunda bók Birgittu
H. Halldórsdóttur. Áður eru komnar
út: Inga, Háski á Hveravöllum,
Gættu þín Helga, í greipum elds
og ótta, Áttunda fórnarlambið,
Birgitta H. Halldórsdóttir
Dagar hefndarinnar og Sekur flýr
þó enginn elti.
Ný bók eftir Gunn-
hildi Hrólfsdóttur
ÍSAFOLD hefur gefið út bókina
Þegar stórt er spurt ... eftir
Gunnhildi Hrólfsdóttur, en áður
hafa komið út eftir hana fjórar
barna- og unglingabækur.
í kynningu útgefanda segir
m.a.: „Bókin segir frá ævintýrum
þeirra félaganna Tomma og Árna
er þeir dvelja sumarlangt í sveit.
Á bókarkápu má meðal annars
lesa: Þegar stór er spurt verður
oft lítið um svör, segir máltækið,
og víst er að hjá tveimur 11 ára
strákum vakna ýmsar spurningar
um lífið og tilveruna sem ekki er
alltaf auðvelt að svara. Afi og
amma í sveitinni eiga svör við
flestum lífsins gátum og vinirnir
Tommi og Árni koma þroskaðri
heim eftir viðburðaríkt sumar.“
Þegar stór er spurt ... er sjálf-
stætt framhald bókarinnar Þið
hefðuð átt að trúa mér! sem kom
út í fyrra. Bókin er myndskreytt
Gunnhildur Hrólfsdóttir
af Elínu Jóhannsdóttur og unnin
í ísafoldarprentsmiðju hf.
Ný bók eftir Jean M. Auel
KOMIN er út hjá Vöku-Helgafell
fjórða skáldsaga Jean Auel úr
bókaflokknum um Börn jarðar.
Þessi bók nefnist Seiður sléttunn-
ar og í lienni heldur áfram sagan
um stúlkuna Aylu og flakkarann
Jondalar.
_ í kynningu útgefanda segir m.a.:
„í Seiði sléttunnar segir frá er
Áyla og Jondalar ferðast um ókunn-
ar sléttur Evrópu. í veiðimanna-
og safnarasamfélagi ísaldar eru þau
framandi og ógnvekjandi. Leyndar-
dómur umvefur ungu konuna, hún
talar við dýrin með þeirra eigin
hljóðum og hefur yfirnáttúrulegt
vald yfir stórum og kraftmiklum
úlfi sem fylgir henni eins og skugg-
inn. Jondalar vekur ótta en jafn-
framt lotningu vegna útlits síns og
hins stórfenglega fola sem hann
situr. Saman kynnast þau veröld
sem færir þeim bæði sársauka og
ánægju. Þau færast nær sínu íjar-
læga takmarki, að finna sér heim-
ili. Þetta er hrífandi saga sem lætur
engan ósnortinn."
Seiður sléttunnar er 741 blað-
■ BAR/ÍTTAN við heimdrottna
myrkursins heitir bók eftir Frank
E. Peretti sem Fíladelfía-Forlag
gefur út. í kynningu útgefanda seg-
ir m.a.: „Sagan fjallar um átök í
háskólabænum Ashton. Dularfull
samtök ráðgera að leggja bæinn
undir sig. Þau hafa ítök í lögregl-
unni, bæjarstjórninni, viðskiptalíf-
inu, bókstaflega hvarvetna í bæjar-
félaginu. Lokatakmarkið er heims-
yfirráð undir merkjum nýrrar aldar.
Ritstjóri bæjarblaðsins og prestur
lítillar kirkju verða fyrir barðinu á
Jean M. Auel
síða. Álfheiður Kjartansdóttir þýddi
bókina, en henni til aðstoðar var
María Guðjónsdóttir. Prentvinnslu
annaðist G. Ben. prentstofa hf., en
bókin var bundin í Arnarfelli hf.
samtökunum og snúast til varnar,
hvor með sínum hætti.“
■ BÓKAFORLAG Odds Björns-
sonar hefur gefið út bókina Depill
gistir eina nótt eftir Eric Hill.
Ný barnabók um Depil, sem nú fær
að gista eina nótt hjá Stebba vini
sínum. Eins og fyrri bækurnar um
Depil, er þessi bók tilvalin fyrir
börn sem byijuð eru að lesa og
ekki síður fyrir foreldra til að lesa
fyrir börnin segir í tilkynningu frá
útgefanda.