Morgunblaðið - 07.12.1990, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
21
■ SKJALDBORG hefur gefið út
fjórar bækur í flokknum um Skó-
fólkið. Bækurnar eru eftir James
Driscoll og heita Dáti, Þrammi,
Kalli og Margot. Vilborg Dag-
bjartsdóttir þýddi bækurnar.
■ SKJALDBORG hefur gefið út
þijár bækur um Fríðu framhleypnu
eftir Lykke Nielsen. í Fríðu fram-
hleypnu segir frá Fríðu sem er 9
ára og er í þriðja bekk. Hún er
freknótt og framhleypin. í bókinni
Fríða framhleypna í fríi er Fríða
á ferðalagi um Evrópu í bíl ásamt
Osk, bestu vinkonu sinni. Úr því
verður ekkert venjulegt ferðalag.
Fríða er nefnilega alveg viss um
að þær muni upplýsa glæpamál.
Þriðja bókin heitir Svei ... Fríða
framhleypna og í þessari bók kem-
ur Fríða, ásamt bekkjarsystrum
sínum, upp um smyglara.
Upplyfting í kvöld?
MUNDU EFT1R OSHNUM
Hann eykur stemninguna.
Skoppað upp eftir
vinsældalistanum
eftir Guðrúnu Egilson
Samfélag okkar gerist stöðugt
undarlegra, og leikreglurnar mót-
sagnakenndari. Við skulum skoða
tvö dæmi.
í fyrsta lagi vilja allir foreldrar,
að börn þeirra hljóti sómasamlega
menntun. Eigi að síður er litið á
menntamenn sem hálfgerða varga
í véum.
í öðru lagi höfum við lengi
haft óvinsæla ríkisstjórn. Þá fyrst
öðlast hún vinsældir, sem um
nemur, þegar hún ætlar að knýja
ólög í gegn á Alþingi.
Ekki er hlaupið að því að fá
botn í þessar mótsagnir. Hins veg-
ar er ljóst, að ríkisstjórnin hefur
fundið blóraböggul í áróðursstríði
sínu, sem hefur þann tilgang ein-
an að lengja þrásetu hennar. Mér
finnst ég ekki geta setið .undir
þessu lengur, sem einn hinna óal-
andi og ófeijandi í samfélaginu —
menntamannanna.
Ég ætla ekki að ijalla um laun
mín, beija mér á bijóst og bera
mig saman við aðra, sem hafa
minni menntun. í huga mínum er
menntun annað og meira en fjár-
festing og kennslustarfið annað
og meira en brauðstrit.
En hvernig get ég horft framan
í nemendur mína og miðlað þeim
þekkingu, ásamt ýmsu öðru, sem
ég met mest í mannlegum sam-
skiptum, ef yfirboðarar mínir taka
ekki meira mark á mér en svo,
að þeir bijóta á mér lög?
Hvernig geta foreldrar ætlast
til þess, að við kennarar veitum
börnum þeirra veganesti út í lífið,
ef þeir líta á okkur sem úrhrök,
sem óvinsæl ríkisstjórn þurfi ekki
annað en troða fótum til að skoppa
upp eftir vinsældalistanum?
Höfundur kenniríslenzku við
Verziunarskólalslands.
Guðrún Egilson
■ IÐUNN hefur gefið út skáld-
söguna Ég vildi gjarnan ganga í
buxuni eftir Lara Cardella. Bók
þessi kom út á Ítalíu í fyrra og
varð þar tilefni heitra deilna en
Lara Cardella var aðeins 19 ára
gömul er hún vann til fyrstu verð-
launa í bókmenntasamkeppni með
þessari sögu af baráttu ungrar
stúlku við misrétti og undirokun. í
kynningu útgefanda 'segir: „Hér er
á ferðinni nærfærin og einlæg lýs-
ing á uppvexti og þroska Annettu,
stúlkunnar sem vill. afneita hefð-
bundnu hlutverki konunnar og
ganga í buxum. En það gera engir
í samfélagi sveitaþorpsins nema
karlmenn og dræsur, og fálmkennd
uppreisn Annettu verður skammlíf
og afleiðingarnar átakanlegar."
Nanna Rögnvaldsdóttir þýddi
bókina.
■ ALMENNA Bókafélagið hefur
•gefið út bókina Sérstæð sakamál,
íslensk og norræn, og gefur for-
lagið hana út í samvinnu við
íþróttasamband lögreglumanna.
Jóhanna S. Sigþórsdóttir valdi og
skráði sakamálin í bókina. í kynn-
ingu útgefanda segir m.a.: „Hin
tuttugu mál sem bókin segir frá
eiga það öll sameiginlegt að vera
sérstæð og spennandi en eru að
öðru leyti mjög ijölbreytileg. Sum
segja frá furðufuglum sem leika á
náungann með ótrúlegum klækja-
brögðum og komast oft æðilangt í
því efni, önnur eru ískyggilegri þar
sem teflt er um líf og dauða, nokk-
ur hreinn harmleikur. Sjö þessara
mála eru íslensk unnin upp úr opin-
berum gögnum, viðtölum og blöð-
um, þrettán eru frá hinum Norður-
löndunum. Af heitum úr íslenska
hlutanum mætti nefna Þýskur
bankaræningi í Breiðholti, Kókaín-
salarnir í Hveragerði, Gullránin í
miðbænum og úr þeim erlenda
Svikapresturinn, Bankaræningi
tekur gísl og Nótt þjáninganna.
Bókin Sérstæð sakamál er 187 bls.
að stærð í stóru broti og skreytt
ljósmyndum. Hönnun kápu var í
höndum Grafít. Setningu og um-
brot annaðist Ritsmiðjan sf. Prent-
un og bókband: Prentsmiðja Arna
Valdemarssonar.
LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER
SOMÆEgpe^
GOLFEFNI
LITAVER • LITAVER • LlfAVER • LITAVER
AUK/SlA k9d2-500