Morgunblaðið - 07.12.1990, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
Baráttufundur mót-
framboðs í Dagsbrún
Fyrsti baráttufundurinn í rúmlega 40 ár
Gestir á sýningn mynda eftir Erró I Gallerí Borg.
Sölusýning á verkum eftir Erró;
Dýrasta myndin seld á 1,4 milljónir
Tuttugu myndir eftir Erró
voru seldar á sýningu sem hald-
in var í Gallerí Borg við Austur-
völl um síðustu helgi. Verðið á
myndunum var á bilinu 345
þúsund upp í 1,4 milljónir
króna. Fjórar af myndunum á
sýningunni eru enn óseldar og
eru þær til sýnis og sölu í Gall-
erí Borg.
Flestar myndanna á sýningunni
voru 50 x 37 sm að stærð en tvær
þeirra voru 100 x 70 sm. Myndirn-
ar voru úr einkasafni og höfðu
aldrei verið sýndar hérlendis áð-
ur.Flestar myndirnar voru unnar
á árinu 1983.
Að sögn Péturs Þórs Gunnars-
sonar hjá Gallerí Borg var mjög
góð aðsókn á sýninguna.
„Að vísu var opnunin ekki fjöl-
menn, eins og alltaf er þegar lista-
maðurinn er ekki sjálfur til- stað-
ar, en síðan var stöðugur straum-
ur fólks alla helgina, “ sagði Pét-
ur Þór í samtali við Morgunblaðið.
Sama verð var á öllum smærri
myndunum eða 345 þúsund en
stærri myndirnar tvær voru seldar
á 1,2 milljónir og 1,4 milljónir
króna.
MÓTFRAMBOÐ til stjórnar-
kjörs í Verkamannafélaginu
Neskirkja.
Jólaglögg
og laufa-
brauðsgerð
í Neskirkju
Á SAMVERUSTUNDINNI
kl. 2-5 laugardaginn 8. des-
ember er ætlunin að halda
i heiðri þann gamla norð-
lenska sið að skera út laufa-
brauð en það er nú almennt
orðinn fastur liður í undir-
búningi jóla á mörgum
heimilum.
Dagsbrún hefur boðað til
kynningar- og baráttufundar
á Hótel Borg á sunnudag. Að
sögn Þóris Karls Jónassonar,
framkvæmdastjóra listans,
mun fundurinn valda nokkrum
þáttaskilum því ekki hafi verið
haldinn opinn baráttufundur
verkamanna í Reykjavík, utan
hinna eiginlegu Dagsbrúnar-
funda, í rúmlega fjörutíu ár.
Þórir Karl sagði, að enn væri
unnið að því að safna félögum á
framboðslistann en til að hann sé
löglegur þarf undirskriftir 120
félagsmanna. Það hafi hins vegar
valdið mótframboðinu erfiðleikum
að þeir sem að því standa hafi
ekki fengið aðgang að félaga-
skrám Dagsbrúnar.
Meðal efnis á fundinum á
sunnudag er útdráttur úr sögu
1. maí sem Pétur Pétursson út-
varpsmaður flytur. Baldvin Hall-
dórsson leikari flytur ljóð, Bubbi
og Megas flytja fundarmönnum
nokkur laga sinna auk þess sem
frambjóðendur verða kynntir.
Hefst fundurinn kl. 15.
Kosningar til stjórnar Dags-
brúnar fara fram í lok janúar.
Greinargerð Ríkisendurskoðunar um endurbætur Þjóðleikhússins:
Heildarkostnaður við 1.
áfanga 40% fram úr áæthin
Formaður byggingarnefndar segir það ekki sanngjarna
niðurstöðu og að byggingarnefnd áætli 7,6% hækkun
Ríkisendurskoðun segir í nýrri skýrslu um endurbætur á Þjóðleikhús-
inu að áætlaður kostnaður við 1. lotu 1. áfanga endurbyggingarinn-
ar nemi 491,2 milljónum króna. Framreiknuð kostnaðaráætlun frá
desember á siðasta ári hafi hins vegar gert ráð fyrir að þessi fyrsti
verkhluti myndi.kosta 315 milljónir. „Þannig er áætlaður kostnaður
við framkvæmdirnar 176,2 milljónum króna hærri en upphaflega
var gert ráð fyrir eða sem nemur 56%,“ segir í greinargerð Ríkisend-
urskoðunar. Stofnunin bendir jafnframt á að ætla megi að heildar-
kostnaður við 1. áfanga allan verði 40% hærri en ráð hafi verið
fyrir gert. Kostnaðaráætlun frá síðasta ári hafi gert ráð fyrir að
heildarkostnaður yrði 632 milljónir kr., framreiknað til verðlags í
október sl. Rikisendurskoðun áætlar að hann verði nálægt 900 millj-
ónum. kr.
Þeir sem taka þátt í skurðin-
um þurfa aðeins af hafa með
sér hníf og bretti. Ingibjörg
Þórarinsdóttir skólastjóri Hús-
stjómarskóla Reykjavíkur leið-
beinir og sér um steikingu.
Kökumar verða seldar við
vægu verði.
Jólalögin verða leikin og
Viggó Nathanaelsson mun
sýna kvikmynd sem ekki hefur
verið sýnd opinberlega áður
m.a. frá fyrstu innsetningu
Asgeirs Ásgeirssonar í emb-
ætti forseta íslands og eftir-
minnilegri för í Landmanna-
laugar. Boðið verður upp á
óáfenga jólaglögg og pipar-
kökur ásamt kaffisopa.
Þann 15. desember er jóla-
fundurinn. Gengið verður í
kringum jólatréð og Frank M.
Halldórsson sýnir litskyggnur
frá margbreytilegum jólaund-
irbúningi í Houston Texas. Þá
verður framreiddur jólamatur.
Þeir sem ætla að taka þátt í
laufabrauðsgerðinni þurfa að
skrá sig hjá kirkjuverði, það
þurfa einnig þeir að gera sem
ætla að vera með á jólafundin-
um.
■ VEITINGAHÚSIÐ Casa-
blanca heldur í dag, laugardag, upp
á þriggja ára starfsafmæli sitt. í
tilefni af því hafa Magnús Schev-
ing og félagar frá World Class
samið sérstakt afmælisatriði sem
frumflutt verður þetta kvöld. Ýmis-
legt annað verður að gerast s.s.
pizzukynning frá Horninu einnig
verður boðið upp á Coke og Pripps
frá Vífilfelli. Heiðursgestir kvölds-
ins verða félagar úr Grandklúbbn-
Listmálarafélagið hefur tekið
upp þá nýbreytni að efna til
sérstakrar aðventusýningar, se
er sölusýning myndverka og
hefst hún í Listhúsi, Vesturgötu
17 í dag.
Þessir listamenn eiga myndverk á
aðventusýningunni: Bjöm Birnir,
Ámi Johnsen, formaður bygging-
amefndar, segir að ekki sé sama
hvar borið sé niður í þeim áætlunum
sem gerðar hafi verið? „Áætlun
Ríkisendurskoðunar um heildar-
kostnað við fyrsta áfanga er ekki
sanngjörn miðað við framgang
verksins," sagði hann. „Stjómvöld
ákváðu að hafa lokun Þjóðleikhúss-
ins sem stysta svo reksturinn stöðv-
aðist ekki of lengi í húsinu sjálfu.“
Ekki óeðlilegt
Benti Árni á að frumáætlunin
sem gerð hafí verið á síðasta ári
hafi tekið breytingum þar sem
hönnunarvinnu hafi ekki verið lok-
ið. Þegar byggingamefndin hafi
Bragi Ásgeirsson, Einar G. Bald-
vinsson, Elías B. Halldórsson, Guð-
munda Andrésdóttir, Hafsteinn
Austmann, Jóhannes Jóhannesson,
Jóhannes Geir, Kjartan Guðjóns-
son, Kristján Davíðsson, Pétur
Már, Helga Magnúsdóttir og
Kristín Geirsdóttir.
hins vegar gengið frá samningum
við verktaka í sumar hafi verið
gerð lokakostnaðaráætlun sem hafi
farið um 7,6% fram úr fyrri áætl-
un. „Það er ekkert óeðiilegt," sagði
hann. Nýverið hafi byggingar-
nefndin skilað skýrslu um verkið
þar sem fram kemur að kostnaður-
inn við 1. áfanga geti orðið 790
milljónir. Þar muni talsvert á áætl-
un nefndarinnar og mati Ríkisend-
urskoðunar upp á 900 milljónir.
„Ríkisendurskoðun gerir ráð fyrir
20 - 25% fráviki, sem við teljum
ástæðulaust, þar sem við emm nú
komnir fyrir vind í skipulagningu
og framgangi verksins," sagði Árni.
Ónógur undirbúningur
Ríkisendurskoðun telur að of
skammur tími hafi verið ætlaður
til undirbúnings og hönnunar fyrir
endurbygginguna. Framkvæmdir
hafi hafist þrátt fyrir að nýtingará-
ætlun og verkhönnun hafi hvergi
nærri verið lokið.
„Gjalda verður varhug við því að
láta fara fram útboð þegar fyrir
liggur að verklýsing, hönnun og
teikningar eru jafn skammt á veg
komnar og raunin var,“ segir í
greinargerðinni og telur Ríkisend-
urskoðun óeðlilegt af samstarfs-
nefnd um opinberar framkvæmdir
skyldi samþykkja að framkvæmdir
hæfust þrátt fyrir ónógan undirbún-
ing. Telur stofnunin jafnframt að
meðferð málsins sýnist ekki sam-
ræmast lögum um skipan opinberra
framkvæmda.
Þá gagnrýnir Ríkisendurskoðun
ágreining sem upp hafi komið á
milli byggingarnefndar og verkefn-
isstjóra annars vegar og Húsam-
eistara ríkisins hins vegar um vald-
svið, ábyrgð og hlutverkaskipti, og
telur að sá ágreiningur hafí tafið
framgang verksins og aukið kostn-
að.
Hár hönnunarkostnaður
Ríkisendurskoðun segir að hönn-
unarkostnaður og umsjón nemi nú
178 milljónum króna. Megi rekja
það að hluta . til endurhönnunar
vegna breyttra forsendna, ónógs
undirbúnings og tímaskorts.
Árni tók undir þá niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar að hönnunar-
kostnaður væri hár. „Þetta hús er
all flókið að innri gerð og þjóðfélag-
BÓKAÚTGÁFAN Hildur hefur
gefið út bókina í afskektinni eftir
Guðmund Halldórsson frá Bergs-
stöðum.
í kynningu útgefanda segirm.a.:
„Þessi nýja skáldsaga Guðmundar
Halldórssonar frá Bergsstöðum ger-
ist á heiðarbýli í byrjun fyrra stríðs.
Aðalpersónur sögunnar eru hjón sem
strita hörðum höndum fyrir lífsbjörg
ið gerir miklar kröfur til slíkra
bygginga. Það er dýrt að sinna
slíkunp kröfum á lágmarkstíma,"
sagði Árni og benti jafnframt á að
þetta væri umfangsmesta endur-
bygging sem átt hefði sér stað á
einu mannvirki á íslandi. Sagði
hann ennfremur að skýrsla Ríkis-
endurskoðunar væri vönduð og í
henni margar góðar ábendingar.
Rétt að ljúka
fullnaðarhönnun
í skýrslunni segir einnig að í ljósi
reynslunnar við 1. áfanga endur-
byggingarinnar sé óráðlegt að ráð-
ast í framkvæmdir við 2. lotu fyrr
en fullnaðarhönnun áfangans liggi
fyrir. Árni sagði að byggingarnefnd
hefði tekið af skarið í sumar um
að ljúka hönnun arkitekta við 2.
lotu áður en ráðist yrði í samræmda
hönnun annarra aðila. „Þetta er
éðlileg ráðlegging Ríkisendurskoð-
unar en hún segir líka að það sé
grundvallaratriði að ekki verði farið
út í framkvæmdir á einstökum
verkþáttum fyrr en hönnun liggur
fyrir. Það höfum við gert og höfum
m.a. lagt til að síðari hluti verksins
verði ekki allur unninn næsta sum-
ar heldur skipt á milli næsta og
þamæsta sumars," sagði Ámi.
sinni og barna sinna, en hrekkur þó
ekki til. Ómegð vex og skuldir hlað-
ast upp. Hreppsnefndin er sem á
nálum um að fá þau á sveitina með
alla ómegðina. Talið er að svipaðir
atburðir og lýst er í þessari nýju
skáldsögu Guðmundar frá Bergs-
stöðum hafi gerst vítt og breitt um
landið í tíð þeirra sem nú eru á efstu
árum.“
Bókin er 208 blaðsíður.
um.
Aðventusýning List-
málarafélagsins
Skáldsaga eftir Guð-
mund Halldórsson