Morgunblaðið - 07.12.1990, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
25
Könnun Ungmennahreyfingar Rauða krossins:
Ótti við eyðnismit
minni en í fyrra
ÍSLENDINGAR óttast síður að smitast af eyðni nú en fyrir ári, skv.
könnun Ungmennahreyfingar Rauða kross Islands sem gerð var um
síðustu helgi.
Nú taldi 51,5% aðspurðra að það
ætti á hættu að smitast, en 65,1%
í fyrra. Ungt fólk, 21 árs og yngra,
var hræddast við smit. Þeir sem
höfðu hugsað sér að fara í mótefna-
mælingu voru einnig færri nú en í
fyrra; 42,3% nú en 49,9% fyrir ári.
I bæði skiptin töldu flestir sig lifa
ábyrgu kynlífi (um 80%) en aðeins
39% þeirra sem ekki voru í sambúð
sögðust alltaf nota smokkinn.
Gild svör fengust frá 642 af báð-
um kynjum, 367 í ár en 275 í fyrra.
Meðlimur Ungmennahreyfingar-
innar spurði þátttakendur eftir
spurningalista en viðmælandi fékk
hann ekki í hendur. Var það með
ráði gert til að skapa umræðu.
Könnun þessi, um viðhorf til
eyðni, fór fram á Háskólaballi
föstudaginn 30. nóvember og 1.
desember á Hótel íslandi. í fyrra
var könnunin einnig gerð 1. des-
ember, og er hún miðuð við alþjóða-
lega Alnæmisdaginn, sem er þann
dag. Upphaflega var könnunin unn-
in í samráði við Landlæknisembætt-
ið en í ár fór hún fram á vegum
Ungmennahreyfingar RKÍ. í allt
tóku 23 ungmenni frá URKÍ þátt
í vinnslu könnunarinnar en níu fóru
út og framkvæmdu hana hvort
kvöld. Spurningalistinn var hér-
umbil eins í bæði skiptin, en meiri
áhersla lögð á afstöðu til áróðurs í
JOUEUSE DE FLUTE
fyrra.
Um áróðurinn var fólk almennt
ánægt og taldi 79% viðmælenda
hann hafa haft áhrif á sig. Þó kvart-
aði fólk yfir því í fyrra að um
hræðslufræðslu væri að ræða og
nefndu flestir að þeim þætti áróður-
inn hafa dalað töluvert í ár og
væri það miður. Flestir töldu fjöl-
miðla hafa frætt þá mest um al-
næmi.
Aðeins 13% aðspurðra sögðust
hafa smokk meðferðis, „en við von-
um að við höfum ráðið bót á því
þar sem öllum aðspurðum var boð-
inn smokkur í lok könnunárinnar
og þáðu flestir,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Ungmennahreyfingu
RKÍ.
Bók með teikning-
um Sigmunds
ÚT ER komin hjá Prenthúsinu
9. Sigmund-bókin, sem kallast
því lýsandi nafni Sigmund og
þjóðarsáttin. Hér er um að ræða
úrval Sigmunds úr Morgunblað-
inu siðastliðin 5 ár.
I kynningu útgefanda segir m.a.:
„I fyrsta hluta bókarinnar ber mest
á stjórnmálamönnum, til dæmis
Borgaraflokknum og Albertsmálum
hinum mörgu. Kynlífsumræða og
smokkaáróður fá þó sínar ábend-
ingar, auk þess sem vestfirsk menn-
ing og taktar eru teknir fyrir. Vin-
átta Steingríms og Arafats gleym-
ist ekki, né heldur 16. sætið í
söngvakeppni Evrópu ár eftir ár.“
Síðan segir að þegar á bókina
líði gerist Alþýðubandalagsmenn æ
meira áberandi og undir lokin taka
völdin þjóðarsáttin og þjóðarsætt-
endur.
Sigmund Jóhannsson
Ný bók eftir Guð-
rúnu Helgadóttur
Geisladiskurinn Joueuse de flute.
Geisladiskur
með flaiituleik
Ashildar Har-
aldsdóttur
ÚT ER kominn geisladiskur með
leik þeirra Áshildar Haraldsdótt-
ur flautuleikara og Love Derwin-
ger píanóleikara. Ber diskurinn
nafnið „Joueuse de flute“ (flautu-
mærin).
Á geisladisknum er frönsk
flaututónlist eftir tónskáldin Fauré,
Poulenc, Roussel, Dutilleux, Gaub-
ert og Sancan sem öll störfuðu í
Parísarborg á fyrri hluta aldarinn-
ar.
Sænska hljómplötufyrirtækið
Intim Musik gefur geisladiskinn út
en Hekla hf., Kaupþing hf., Sjóvá-
Almennar tryggingar hf., Spari-
sjóður Reykjavíkur og nágrennis
og Vátryggingafélag íslands hf.
styrktu útgáfuna.
Japis hf., Brautarholti 22, Rvk.
sér um dreifingu geisladisksins hér-
lendis og verður hann fáanlegur í
öllum helstu hljómplötuverslunum
landsins. Einnig verður honum
dreift um Norðurlönd, England,
Holland og Frakkland.
Áshildur Haraldsdóttir er ungur
flautuleikari, ættuð af Skólavörðu-
stíg í Reykjavík. Hún hefur tekið
þátt í og sigrað í tónlistarkeppni
hér heima og erlendis. Áshildur býr
nú og starfar í París.
(Fréttatilkynning)
IÐUNN hefur gefið út nýja bók
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Und-
an illgresinu nefnist hún og er
fyrir börn og unglinga.
í kynningu útgefanda á efni bók-
arinnar segir: „Enginn gat vitað
yfir hvaða leyndarmáli gamla gráa
húsið bak við stóru gömlu tijákrón-
urnar bjó. Marta María hafði ekki
átt heima lengi í þessu dulúðuga
húsi þegar forvitni hennar vaknaði.
Skrýtnu íbúarnir á efri hæðinni
valda henni heilabrotum og ýmsir
furðulegir hlutir eiga sér stað. Það
er heldur ekki einleikið hvað hana
svimar oft í kollinum. Hvað er á
seyði? Enginn segir neitt, enginn
veit neitt fyrr en einn góðan veður-
dag þegar minnst varir ...“
Gunnar Karlsson gerði myndirn-
ar. Bókin er prenuð í Odda hf.
Guðrún Helgadóttir
Ný barna og unglingabók
eftir Andrés Indriðason
MUNDU mig, ég man þig, heitir
ný bók eftir Andrés Indriðason
sem Mál og menning hefur gefið
út. Bókin er ætluð fyrir börn og
unglinga.
Bókin inniheldur sex smásögur
sem allar fjalla um 12 ára krakka,
viðfangsefni þeirra og áhugamál.
Flestar söguhetjurnar lenda í ein-
hvers konar erfiðleikum en finna
lausnir og læra eitthvað nýtt um
tilveruna. Þetta er bók sem tekur
á gamansaman hátt á málum sem
koma öllum við og er ætluð jafnt
fyrir stelpur og stráka, segir m.a.
í kynningu útgefanda.
Andrés Indriðason
NÝ KARLMANNAFÖT OG BUXUR
allarstærðir, verð kr. 9.900-12.900.
Terelynbuxur, mittismál 76-136 cm, verð kr. 1.000-4.400.
Gallabuxur, allar stærðir, verð kr. 1.650-3.300.
Flauelsbuxur, allar stærðir, verð kr. 1.580-4.250.
Peysur, skyrtur, nærföt, gott verð.
Sendum gegn póstkörfu.
ANDRÉS,
Skólavörðustíg 22, sími 18250.
Opið mánudag til föstudags kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-16.
ANDRÉS, FATAVAL,
Höfðabakka 9c, sími 673740.
Opið mánudag til föstudags kl. 12-18 — Næg bílastæði.
Ekki bara fyrir augað.
Skemmtileg og stílhrein nýj-
ungíloft- ogveggklæðning-
um. Hönnuð með mýkt og
þægindi í huga. Varanleg
lausn, sem gefur umhverf-
inu hlýtt og notalegt yfir-
bragð.
Gefðu sjálfum þér undir
fótinn með ^\#*
Frábær hönnun. Örugggæði.
Mikil ending. Gott að velja.
Einfalt að leggja. Þú átt það
sannarlega skilið undir þína
fætur.
BJORNINN
BORGARTÚNI28 S. 6215 66
AMó ómu(Juíg&
R.UNDA