Morgunblaðið - 07.12.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
JÓDYNUR
....
KHFORLBGSBŒKUR/
Depill gistir
eina nótt
Enc HiJJ
REYKVIKINGAR!
Ásgeir Hannes Eiriksson,
þingmaður Borgaraflokksins og
fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinga-
nefnd Alþingis, verður á Kaffi-
Hress í Austurstræti í dag, föstu-
daginn 7. des., kl. 12.00-14.00.
Komió og spjallið við þingmann
Reykvíkinga.
HITAMÆLASTÖÐVAR
Fáanlegarfyrir 1 til 26
mælistaði, með eða án
aðvörunar. Mælisvið:
-200+850, 0+1200 og
+400 +176° C. Hitanemar
af mismunandi lengdum
og með mismunandi
gengjur.
Fyrir algengustu rið- og
jafnstraumsspennur,
hægt er að fylgjast með afgashita, kælivatns-
hita, smurolíuhita, lofthita, kulda íkælum, lest-
um, sjóogfleira.
±lL
SöMuíjEígjyir <J<!í)(rD®®(Q)[ra
Vesturgotu 16 - símar 91-14680 - 13280 - Teleíax 26331
Kúbönskum stj órnar erindrek-
um vísað úr landi í Panama
Panamaborg. Reuter.
PANAMASTJÓRN ákvað á mið-
vikudag að reka tvo kúbanska
stjórnarerindreka úr landi og
veitti þeim frest fram að helgi
til að koma sér burt. Sögðu
stjórnvöld að samskipti kúb-
anska sendiráðsins við Manuel
Noriega, fyrrum einræðisherra,
sem nú situr í fangelsi á Florída
í Bandaríkjunum brytu í bága
við venjur og reglur sem giltu
um starfsemi sendiráða.
í yfirlýsingu utanríkisráðuneytis-
ins í Panamaborg sagði að í kúb-
anska sendiráðinu hefði stjórn
Guiliermo Endara, núverandi for-
seta, verið brugguð launráð. For-
sprakki þess hefði verið Luis Ant-
onio Gomez Perez,panamískur und-
irróðursmaður sem hefði leitað
skjóls í sendiráðinu eftir innrás
Bandaríkjamanna sl. desember.
Hefði hann farið í smiðju til Nor-
iega og hringt nokkrum sinnum
þeirra erinda í hann í fangelsið en
upp komst um áformin þegar
bandaríska sjónvarpsstöðin CNN
komst fyrir nokkru yfir segulbands-
upptökur af símtölum Noriega.
Stjórnarerindrekarnir sem vísað
var úr landi eru Guillermo Mendez
Perez hagfræðiráðgjafi og Oscar
Braulio Gutierrez viðskiptafulltrúi.
Að þeim burtreknum eru aðeins
eftir í kúbanska sendiráðinu ræðis-
maður og sendiráðsritari en sendi-
Reuter
Bandarískir hermenn handtaka lögreglumann sem gekk til liðs við
Eduardo Herrera Hassan ofursta, fyrrum lögregluforingja, við töku
aðalstöðva lögreglunnar í Panamaborg.
herranum og öðru sendiráðsfólki
hafði áður verið vísað úr landi.
Þá gerðist það á miðvikudag í
Panamaborg að bandarískar her-
sveitir umkringdu aðalstöðvar lög-
reglu landsins eftir að Edúardo
Herrera Hassan ofursti, fyrrum
yfirmaður lögreglunnar, hafði náð
þeim á sitt vald. Hann var sakaður
um að hafa skipulagt byltingu og
fangelsaður í október en slapp í
fyrradag. Hópur lögreglumanna
sem er honum hliðhollur réðst inn
í aðalstöðvarnar með honum. Eftir
nokkurra stunda umsátur um bygg-
inguna gafst Herrera upp. Endara
forseti sagði að framganga banda-
rísku sveitanna og uppgjöf Herrera
væri sigur fyrir lýðræðisþróunina í
Panama.
Ítalía:
Mikið manntjón er logandi
herflugvél flýgur á skóla
Bologna. Reuter.
ÍTÖLSK herflugvel flaug á skóla
á Norður-Italíu í gær, með þeim
afleiðingum að tólf manns hið
minnsta týndu lífi og meira en
hundrað slösuðust. Eldur hafði
komið upp í vélinni áður en hún
skall á skólann.
Flugvélin lenti á annarri skólans,
sem er skammt frá Bologna. Um
200 nemendur á' aldrinum 15-18
ára voru í skólanum.
Sjónarvottar sögðu að maisgir
nemendanna hefðu stokkið út um
glugga á annarri hæðinni til að
sleppa undan eldinum og reyknum
sem lagði af vélinni. Hún var
smíðuð á Ítalíu og af gerðinni
Macchi 326.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
tólf manns hið minnsta hefðu farist
í slysinu en ekki var vitað hversu
margir þeirra voru nemendur. Að
minnsta kosti þrír krömdust þegar
vélin gerði gat á múrsteinsvegg
skólans. Gatið var um fimm metrar
að þvermáli.
Meira en hundrað manns, aðal-
lega nemendur, voru fluttir á
sjúkrabílum á tvö sjúkrahús í Bol-
ogna. 1 öðru þeirra voru að minnsta
kosti fjórir alvarlega slasaðir á gjör-
gæsludeild.
Nokkrir sjónarvottar sögðu að
eldur hefði kviknað í flugvélinni
áður en hún hrapaði. Talsmaður
ítalska flughersins sagði að flug-
maðurinn hefði tilkynnt í talstöð
skömmu fyrir slysið að hann hefði
misst stjórn á þenni og ætlaði að
skjóta sér út. Hann hafði farið í
æfingarflug frá Verona, um 100
km frá Bologna. Flugmaðurinn og
var fluttur á sjúkrahús, slasaðist
lítilsháttar á baki.
„Vélin var logandi áður en hún
flaug á skólann. Hún sveif niður,
snerist allt í einu til vinstri og skall
á byggingunni,“ sagði sjónarvottur
við skólann. Skólastúlka, sem var
á annarri hæðinni, sagði að þegar
vélin skall á skólanum hefði kenn-
ari sinn hrópað: „Farið út! Farið
út!“ „Við stukkum út um gluggana
og það var mikill troðningur. Nem-
endurnir svifu út eins og fiskar,
dauðir fiskar,“ bætti hún við.
VERÐBREYTINGAR-
STljÐULL
FYRIRARIÐ 1990
Samkvœmt ákvœðum 26. gr. laga nr. 75 frá
14.september 1981 um tekjuskatt og eignarskatt
hefur ríkisskattstjóri reiknað verðbreytingarstuðul fyrir
árið 1990 og nemur hann 1,1916 miðað við 1,0000
áárinu 1989.
Reykjavík30. nóvember 1990
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
>aga
■lsiíhNZKAcHr.srsiNS‘l 2a öL‘n