Morgunblaðið - 07.12.1990, Page 35
MOftPUNBLABIg FÖSyUDAGUR 7, PKpKMBER 199,0
35
Tónlistarskóli Eyjafjarðar:
Fernir tónleikar haldn-
ir í desembermánuði
Á VEGUM Tónlistarskóla Eyja-
fjarðar verða haldnir fernir
jólatónleikar í desember.
Fyrstu tónleikarnir verða í Prey-
vangi sunnudaginn 9. desember
kL 14. Aðrir tónleikarnir verða í
Samkomuhúsinu á Grenivík laug-
ardaginn 15. desember kl. 15, en
þeir þriðju í Laugarborg sunnu-
daginn 16. desember kl. 14. Fjórðu
og síðustu tónleikarnir, sem eru
sérstakir tónleikar söngnemenda,
verða í Svalbarðseyrarkirkju
fimmtudaginn 20. desember kl.
20.30.
Auk þessa verða nemendur með
tónlistarflutning á aðventukvöld-
um víðsvegar á starfssvæði skól-
ans, svo og á litlu jólunum í sum-
um grunnskólanna. Vill skólinn á
þennan hátt leggja sitt af mörkum
til að auka hátíðleika aðventunnar.
(Fréttatilkynning)
Krossanes:
••
Súlan og Om lönduðu
700 tonnum af loðnu
Tólf hundruð tonnum landað til
bræðslu í verksmiðjunnar í haust
SÚLAN EA og Örn KE lönduðu loðnu hjá Krossanesi í gær, sam-
tals 700 tonnum. Vinnslan tekur tæpa þrjá sólarhringa, en eftir
að henni lýkur verða brædd bein og unnið úr úrgangi hjá verk-
smiðjunni.
verður úr úrgangi hjá verksmiðj-
unni og þar brædd bein.
Fjögur skip hafa landað hjá verk-
smiðjunni frá því hún komst í gang
að nýju eftir endurbyggingu í
síðasta mánuði, en áður höfðu Guð-
mundur Ólafur ÓF og Þórður Jónas-
son EA landað þar. Samtals hefur
um 1.200 tonnum af loðnu verið
. landað hjá verksmiðjunni í haust.
„Við bjuggumst við meiri afla, en
við höfðum að sjálfsögðu einnig
búið okkur undir að Ieikar gætu
farið svona. Við vonum að úr ræt-
ist eftir áramótin og erum tilbúnir
að hefja hér bræðslu þá,“ sagði
Jóhann Pétur.
Súlan EA kom inn í gærmorgun
með 300 tonn og Örn KE kom að
landi skömmu síðar með 400 tonn.
Jóhann Pétur Andersson fram-
kvæmdastjóri Krossaness sagði að
tvo til þijá sólarhringa tæki að
vinna úr aflanum. Hann sagði að
loðnan væru sú besta sem borist
hefði til verksmiðjunnar í haust.
„Þetta var stór og falleg loðna,“
sagði hann.
Jóhann sagði engar uppsagnir
fyrirhugaðar hjá verksmiðjunni þó
svo að útlit sé fyrir að ekki berist
meiri loðna að landi fram yfir ára-
mót. „Við fáum ekki meira af þess-
um fiski, en munum snúa okkur
að öðru,“ sagði Jóhann, en unnið
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Ljós kveikt á Randers-jólatrénu á laugardag
LJÓS verða tendruð á jólatrénu frá Randers á laugar-
dag, 8. desember. Dagkráin hefst kl. 14,45. Randers,
sem er vinabær Akureyrar í Danmörku, hefur síðustu
ár sent Akureyringum veglegt jólatré að gjöf, en
starfsmenn bæjarins komu trénu fyrir í gær. Að venju
verður kveikt á trénu með viðhöfn á Ráðhústorgi og
hefst dagskráin kl. 15.45 er Lúðrasveit Akureyrar
leikur nokkur lög. Þá verða flutt ávörp, en fyrstur
talar ræðismaður Dana á Akureyri, Sigurður Jóhann-
esson, þá Hreinn Pálsson formaður Norræna félagsins
og loks Halldór Jónsson bæjai-stjóri. Kveikt verður á
jólatrénu kl. 16.15 og hefja þá félagar í Lúðrksveit-
inni leik sinn að nýju. Jólasveinar koma í heimsókn
og að lokum verður sungið og gengið í kringum tréð.
Fiskmarkaður Norðurlands, Dalvík:
Fiskverð hefur farið hækk-
andi frá því starfsemin hófst
FISKVERÐ hefur farið hækk-
andi á gólfmarkaði Fiskmiðlunar
Norðurlands á Dalvík frá því
markaðurinn hóf starfsemi í vor
og var meðalverð fyrir þorsk þar
Signý Pálsdóttir ráðin leikhússtjóri LA:
Eg á mér þann draum að
setja upp óperu á Akureyri
SIGNÝ Pálsdóttir hefur verið ráðin leikhússtjóri Leikfélags Akur-
eyrar. Hún tekur við starfinu 1. apríl næstkomandi og er samningur-
inn til þriggja ára. Signý var leikhússtjóri LA. í fjögur ár, frá 1982-
1986. Síðustu ár hefur hún starfað sem leikhúsritari i Þjóðleikhúsinu,
að undanskildu einu ári, er hún var markaðssljóri hússins.
„Það má kannski líta á dvölina í
Reykjavík sem náms- og kynnis-
dvöl, sú reynsla sem ég öðlaðist í
Þjóðleikhúsinu var mjög góð fyrir
mig og kemur eflaust að notum hér
fyrir norðan," sagði Signý.
„Mér líkaði vel að búa á Akureyri
og leikhússtjórastarfið er spennandi,
þetta er skapandi starf, bæði að
fást við verkefnaval og eins mannar-
áðningar. Ég hef lagt nokkrar hug-
myndir fyrir leikhúsráð og það var
vel tekið í þær og ég vona að ein-
hveijar þeirra komist til fram-
kvæmda. Sumar þessara hugmynda
eru nokkuð stórtækar, ég á mér t.d.
þann draum að hægt verði að setja
upp óperu á Akureyri, ég vona að
það geti einhvern tíma orðið,“ sagði
Signý.
Signý er fædd árið 1950, hún lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík árið 1969 og stundaði
tungumálanám við HÍ einn vetur,
en hélt síðan til Danmerkur og lauk
EA-prófí í leikhúsfræðum frá Kaup-
mannahafnarháskóla í janúar árið
1975. Hún var kennari í Stykkis-
hólmi í 7 ár, þýddi og skrifaði leik-
rit og vann með áhugaleikhópum
um árabil, áður en hún réðist til
Akureyrar sem leikhússtjóri 1982.
Síðustu ár hefur hún einnig unnið
að þáttagerð fyrir útvarp.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Signý Pálsdóttir, nýráðin leik-
hússtjóri á Akureyri, en hún
gegndi áður þeirri stöðu á árun-
um 1982-1986.
í síðasta mánuði rúmar 90 krón-
ur. Mikil eftirspurn hefur verið
eftir fiski á markaðnum og næg-
ir það magn sem markaðurinn
hefur yfir að ráða engan veginn
til að anna henni. Seld voru 236,6
tonn af fiski á gólfmarkaði Fisk-
miðlunar Norðurlands í síðasta
mánuði og var heildarverðmæti
hans röskar 19,1 milljón króna.
Hallsteinn Guðmundsson starfs
maður Fiskmiðlunar Norðurlands á
Dalvík sagði að alltaf vantaði fisk
á markaðinn, eftirspurnin væri mun
meiri en framboðið. Haustið hefur
ekki verið sérlega gjöfult, þannig
að fisk hefur einnig vantað á mark-
aðmn af þeim sökum.
I síðasta mánuði voru seld á
markaðnum tæp 237 tonn af fiski
fyrir 19,1 milljón króna, en til sam-
anburðar voru seld 410,3 tonn í
júlí og var verðmæti aflans 27,1
milljón króna. Septembermánuður
var slakastur, en þá voru einungis
seld 144,7 tonn af fiski á gólfmark-
aðnum fyrir 10,8 milljónir króna.
Um tuttugu bátar frá Vopna-
firði, Bakkafirði og Raufarhöfn eru
í föstum viðskiptum á markaðnum
og er aflanum ekið að austan. Eyja-
fjarðarbátar hafa í litlum mæli selt
afla sinn á markaðnum, en annað
veifið leggja togbátar þar upp afla.
Fiskurinn er að mestu seldur Norð-
lendingum, en Hallsteinn sagði að
töluvert væri um að Siglfirðingar
og Sauðkrækingar keyptu físk á
markaðnum og eins væri nokkuð
um að fískur væri keyptur þar fyr-
ir frystihús Kaldbaks á Grenivík.
Meðalverð á þorski var rúmar
90 krónur í síðasta mánuði og sagði
.Hallsteinn að frá því markaðnum
var hleypt af stokkunum í lok apríl
á þessu ári hefði verðið mjakast
upp. „Við gætum selt mun meiri
fisk, það vantar mikið magn upp á
að við náum að anna eftirspurn-
inni,“ sagði Hallsteinn.
m
sem
iolanjafirnar fást