Morgunblaðið - 07.12.1990, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. DESEMBER 1990
/ /
Vegna breytinga
seljum við sýningarinnréttingar
ELDHUSHORNIÐ,
Suðurlandsbraut 20, símí 84090.
í
TILBOÐ
DESEMBER
BARNABOX
HAMBORGARI, FRANSKAR, KÓK, BLAÐRA,
SÆLGÆTI O.FL.
kr. 390.-
NAUTAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 690.-
SVÍNAGRILLSTEIK
MEÐ BAKAÐRI KARTÖFLU, KRYDDSMJÖRI
OG GRÆNMETI
kr. 650.-
MARGT BER AÐ VARAST
________Frímerki____________
Jón Aðalsteinn Jónsson
Þegar ég var að alast upp í
Reykjavík fyrir um 60 ár'um, hlaut
ég eins og flestir unglingar að
komast eitthvað í snertingu við
frímerkjasöfnun. Síðan þá_ hefur
sú söfnun breytzt mikið. Á þeim
árum datt engum unglingi annað
í hug en safna sem flestum
frímerkjum og sem víðast að úr
veröldinni. Ég býst við, að þannig
hafi þetta einnig verið meðal ungl-
inga annars staðar í heiminum.
Vitaskuld voru, svo til einstaka
„alvöru“ safnarar hér á landi, en
þeir voru svo fjarlægir og langt
ofan við okkur unglingana, að við
vissum lítið til þeirra.
Frímerkjasöfnun fólst að mestu
í því að ná saman sem mestu af
stökum frímerkjum, og gæðin
skiptu ekki alltaf miklu máli.
Skipzt var á merkjum, oft merki
á móti merki, enda lítið um verð-
lista í höndum okkar. Ýmsar leið-
ir voru farnar til þess að eignast
frímerki. Leitað var í hirzlum for-
eldra og venzlamanna eftir um-
slögum með frímerkjum á, og með
leyfi þeirra voru frímerkin svo
klippt af og síðan leyst upp af
pappírnum í volgu vatni. Á eftir
voru þau svo þurrkuð og sett í
venjuleg umslög, því að inn-
stungubækur og glær umslög
voru lítt þekkt á þeim dögum.
Einhverjir áttu samt frímerkja-
albúm, sem náðu yfir allan heim-
inn, en ekki þættu þau nú öll
merkileg. Voru aðeins reitir fyrir
örfá merki frá hveiju landi. En
hvað um það. Við gerðum okkur
þau að góðu, enda þekktum við
ekki annað.
Á þessum árum datt, held ég,
fáum eða engum okkar í hug að
varðveita heil umslög eða kort
með frímerkjum á, en vel má vera,
að fallegir stimplar hafi samt
lokkað okkur til að klippa merkið
þannig af, að stimpillinn væri
heill á snyfsinu og geyma það
síðan óuppleyst. Þetta átti svo
eftir að breytast og það svo ræki-
lega, að nú þykir helzt ekkert
frímerkjasafn hæft til sýningar,
nema því fylgi auk merkisins
umslag með merkinu á eða þá
a.m.k. snyfsi með því, þar sem
sjá má stimpilinn. Af sjálfu sér
leiðir, að því eldra sem frímerkið
er, þeim mun örðugra er að ná í
það á heilum umslögum eða á
snyfsum. Hér á landi skiptir þetta
einkum máli um elztu frímerkin,
svonefnd aura- og skildinga-
merki, en vissulega getur einnig
verið erfitt að finna sum frímerki
frá fyrri hluta aldarinnar á um-
slögum.
Stimpillinn Svein(s)staðir úr ei
boðsskrá (2).
Söfnun heilla umslaga og
stimpla hefur sem sagt aukizt
verulega meðal íslenzkra. sem
erlendra frímerkjasafnara á
síðustu áratugum. Þar sem fram-
boð gamalla „klassískra" umslaga
er oftast miklu minna en eftir-
spurnin, hefur verð margra þeirra
rokið upp úr öllu valdi. Þetta
kannast lesendur við af fréttum
af frímerkjauppboðum. Því miður
hefur þetta svo leitt til þess, að
svikahröppum hefur skotið upp
meðal frímerkjasafnara. Mun
þeirra einkum vera að leita í
Þýzkalandi, að því er heimildir
greina. Þeir hafa oft náð í gömul
umslög og síðan útvegað sér
stimpluð frímerki frá sama tíma
og límt þau á umslögin og teiknað
svo þann hluta stimpilsins, sem
vantar, á sjálft umslagið. Þá mun
það og þekkjast að nota hina full-
komnu ljósmynda- og ljósritunar-
tækni okkar tíma til þess að flytja
stimpla á ónotuð frímerki og koma
svo öllu fyrir á gamla umslaginu.
Hefur þetta oft verið svo listilega
gert, að jafnvel hinir virtustu og
reyndustu vottorðagjafar hafa lát-
ið blekkjast. M.a. hafa þessir
„framleiðendur" beint iðju sinni
að gömlum sænskum umslögum
og hafa fjölmörg þeirra verið „af-
hjúpuð" á liðnum árum. Sérstök
nefnd á vegum Alþjóðasambands
frímerkjasafnara hefur um nokk-
urt skeið verið starfandi við að
uppræta þetta „illgresi í flóru
frímerkjasöfnunarinnar" og það
með verulegum árangri. Samt má
lengi búast við, að óprúttnir
kaupahéðnar freistist til þess að
halda áfram að selja áköfum söfn-
urum með góð fjárráð svikna
vöru.
Að því er ég bezt veit, hefur
lítið verið gert að því að „fram-
leiða“ gömul íslenzk bréf eða
snyfsi á framangreindan hátt. En
engu að síður er sjálfsagt fyrir
ii (1) og svo aftur úr upp-
ísl. safnara að vera vel á verði,
ef falleg gömul ísl. umslög eru
boðin til sölu. Hafa verður og í
huga, að þeir eru margir erlendis,
sem áhuga hafa á frímerkjum
okkar og umslögum, ekki sízt á
öðrum Norðurlöndum. Og aldrei
er að vita, hvenær þessar falsanir
skjóta upp kollinum.
Á liðnu hausti rakst Magni R.
Magnússon á kunnuglegan hlut í
þýzkum uppboðslista, sem hann
taldi sig hafa séð áður í safni
þekkts erlends safnara. Þetta var
4 sk. almennt frímerki, fíntakkað,
á „lúxus“ bréfsnyfsi, eins og seg-
ir í listanum, stimplað á Sveins-
stöðum í Þingi 14/11 ? Er tekið
fram, að þetta sé óvenjufallegt
eintak. Þessu fylgdi svo vottorð
um, að það væri ekta. Áætlunar-
verð var hér sett 1400 þýzk mörk
eða rúmar 50 þús. ísl. krónur.
Þegar mynd af þessu snyfsi var
borin saman við ljósrit af frímerki
því, sem setið hafði í áðurgreindu
safni, kom í ljós, að hér var um
sama frímerki að ræða. En nú
hafði orðið á veruleg breyting,
sem hlaut að hækka verð merkis-
ins til muna.
í safninu var það stakt, svo að
nokkuð vantaði á stimpilinn, en
nú var það komið á pappír, svo
að stimpillinn sást allur. Enginn
vafi leikur á því, að um eitt og
sama frímerki er að ræða, enda
ætti það að sjást sæmilega vel á
þeim myndum, sem hér fylgja.
Hér er því um hreina fölsun að
ræða, og tilgangurinn auðvitað
sá einn að ná með þessum hætti
hærra verði fyrir þetta 4 sk.
frímerki. Sem betur fer mun þetta
ekki hafa tekizt að þessu sinni,
því að Magni benti fyrirtækinu
á, að hér væri um mjög svo vafa-
saman hlut að ræða. Varð það til
þess, að þetta frímerki var dregið
til baka og ekki boðið upp. Þess
vegna má segja, að margt megi
varast og ekkert síður í frímerkja-
heiminum en á öðrum vettvangi.
Gærufóðraðir m/rennilós.
Stáltá.
Stærðir 41-46.
VINNUSKÓR úr leðri
Reimaðir m/stáltá. Lágir m/stáltá.
Stærðir 41-46. Stærðir 41-46.
Verð: 4.995,- Verð: 4.595,-
Verð: 8.195,-
5% staðgreiðsluafsláttur
Póstsendum samdægurs
’mÆ
—"sköruin
VELTUSUNDI1
21212
Plata með
Bootlegs
KOMIN er út plata og geisladisk-
ur með hljómsveitinni Bootlegs
en á henni eru 12 rokklög, flest
þeirra frumsamin. Á geisladiskn-
um eru tvö aukalög og þar á
meðal Jólarokk.
Það var ,Nick Cathcart-Jones sem
stýrði hljóðritun plötunnar í Stúdíó
Sýrlandi og Gijótnámunni. Þeir sem
skipa Bootlegs eru: Kristján
„Stjúni“ Ásvaldsson, trommur,
Ingimundur „Elli“ Þorkelsson,
bassagítar, Guðmundur Hannes
„G.H.H.“ Hannesson, gítar, Jón Örn
„Nonni“ Sigurðsson, gítar og Jón
„Júníor" Símonarson, söngur.