Morgunblaðið - 07.12.1990, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
MfTQM\ nin/jM/'Dsiot/
IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 7. DESEMBEE 1990
59,
ÍHémR
FOLK
HANDKNATTLEIKUR / ÞYSKALAND
Tekur Jóhann Ingi
við Dankersen?
Jóhann Ingi Gunnarsson hefur fengið tilboð frá Dankersen.
H HINN gamalkunni þjálfari
Pétur Bjarnason hefur tekið við
liði Ármanns í handknattleik af
Theodóri Jónssyni sem að sagði
upp störfum. Pétur þekkir vel til
hjá Ármanni en hann hefur áður
séð um þjálfun þess. Ármenning-
um hefur ekki gengið vel í 2. deild-
inni í vetur og munar þar miklu
um meiðsli lykilmanna. Einar
Nábye sleit liðbönd í ökkla og
Haukur Haraldsson handarbrotn-
aði.
■ ENSKA knattspymublaðið
World Soccer valdi Lothar Matt-
haus knattspyrnumann ársins
1990. Þýska landsliðið var valið það
besta og Franz Beckenbauer,
þjálfari ársins.
I JOSEF Hickersberger, fyrr-
um þjálfari Austurríkis, hefur ver-
ið ráðinn þjálfari Dusseldorf fyrir
næsta keppnistímabil. Hickersber-
ger sagði af sér sem landsliðsþjálf-
ari eftir tap fyrir Færeyjum.
ÞÝSKAfélagið Dankersen hef-
ur farið þess að leit við Jóhann
Inga Gunnarsson að hann taki
við þjálfun liðsins næsta
keppnistímabil. Liðið er nú í 3.
sæti í norður-riðli 2. deildar og
á þokkalega möguleika að
komast í úrvalsdeildia. Jóhann
Ingi segist ekki hafa tekið
neina ákvörðun, enda ekki
fengið tóm til að hugsa málið.
Tilboðið gæti þó verið freist-
andi enda liðið eitt þeirra elstu
og virtustu í Þýskalandi.
Dankersen hafði mikinn hug á
að fá Alfreð Gíslason en hann
hafnaði boði félagsins. „Tilboðið
áhugavert og það vill svo skemmti-
lega til að Dankersen var fyrsta
liðið sem gerði mér tilboð. Þá tók
ég Kiel framyfir en vissulega væri
spennandi að fara aftur út. Það er
hinsvegar of snemmt að segja hvort
af því verður,“ sagði Jóhann Ingi.
Hann hætti sem þjálfari hjá KR en
hefur aðstoðað Fram að undan-
förnu. „Ég hef hjálpað þeim aðeins
en það er ekki hægt að segja að
ég sé þjálfari liðsins,“ sagði Jóhann
Ingi.
HANDKNATTLEIKUR || KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND
KR - ÍR 29:19
Laugardalshöllin, 1. deild karia í handknattieik, — VÍS keppnin, fímmtudaginn 6. desemb-
er 1990.
Gangur leiksins: 2:1, 5:1, 8:5, 11:5, 14:6, 22:9, 22:12, 26:14, 29:19.
Mörk KR: Konráð Olavson 10, Páll Ólafsson (eldri) 8/1, Guðmundur Pálmason og Páll
Ólafsson (yngri) 3, Willum Þórsson 2, Leifur Dagfinnsson, Sigurður Sveinsson og Magnús
Magnússon 1.
Varin skot: Leifur Dagfinnsson 19/3. Utan vallar: 6 mfnútur.
Mörk ÍR: Matthías Matthíasson og Magnús Ólafsson 5, Frosti Guðlaugsson 4, Ólafur
Gylfason og Þorsteinn Guðmundsson 2, Guðmundur Þórðarson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 7. Guðjón Hauksson 1. Utan valiar: 0.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar Viðarsson dæmdu vel.
Áhorfendur: 20 greiddu aðgangseyri.
Tíu marka sigur síst of stór
Máttlausir ÍR-ingar voru KR-ingum auðveld bráð. Strax í byijun var
ljóst að hverju stefndi, átta mörk skildu liðin að í hálfleik en mest-
ur varð munurinn þrettán mörk. Sóknarleikur beggja liða var mjög bitlaus
í upphafi og fyrsta markið kom eftir rúmar sjö mínútur. ÍR var öllu leng-
ur að taka við sér> skoruðu fyrst á tólftu mínútu og annað
FrostiB. markið eftir átján mínútur. Það eina sem gladdi augað var
Eiðsson markvarsla Leifs sem varði fimmtán skot í fyrri hálfleikn-
skrifar um 0g skoraði eitt mark. Þá var Páll eldri ÍR erfiður og
það virtist sama hvað hann reyndi í sókninni, allt gekk
upp. Síðari hálfleikur var svipaður þeim fyrri en í lokin kom smá vottur
af baráttu upp hjá ÍR-liðinu.
í kvöld
KA og ÍBV leika í 1. deild karla á íslandsmótinu í handknattleik á Akureyri kl. 20.30
í kvöld.
ÍBV og Víkingur leika í 1. deild kvenna í Eyjum kl. 20.00.
Á Húsavík leika Völsungur og HK í 2. deild karla kl. 20.00. Loks leika Fjölnir og
Ögri í 3. deild karla í íþróttahúsi Fjölnis kl. 20.00.
„Sóknarásinn
Sverrisson“
í IMÝJASTA hefti þýska íþrótta-
blaðsins Kickererfjallað um
Eyjólf Sverrisson í heilsíðu-
grein. Hann er sagður nýjasta
stjarnan hjá Stuttgart og liðið
geti að miklu leyti þakkað hon-
um tvo síðustu sigra. Fyrir-
sögnin er „Sturm As Sverris-
son“ eða Sóknarásinn Sverris-
son. Honum er m.a. Ifkt við tvo
þekktustu framherja Kölnar,
Fleming Povlsen og Ralf Sturm,
sem hefur gert flest mörk í
deildinni. „En eina fyrirmyndin
er Van Basten."
MT
Igreininni segir að Jolli, eins og
hann er kallaður, sé hjá Stutt-
gart vegna ábendingar frá Ásgeiri
Sigurvinssyni. Hann Arie Haan,
þáverandi þjálfara
FráJóni liðsins á Eyjólf, er
H. Garðarssyni hann hafði gert sex
i Þýskalandi mörk í leikjum U-21
árs landsliðsins.
Hann sagði að Eyjólfur væri fljótur
og sterkur skallamaður og baráttu-
jaxl sem gæfist aldrei upp. í kjölfar-
ið fylgir svo hin hefðbundna lýsing
á heimalandi Ásgeirs og Eyjólfs;
landi elds og ísa.
I greininni segir að Eyjólfur hafi
komið til Stuttgarts sem áhuga-
maður með samningog fengið tæki-
færi er Mannie Kastl og Fritz Walt-
er méiddust. „Guido Buchwald, fyr-
irliði Stuttgart, benti Daum á hve
sterkur Jolli væri og sagðist oft
vera lengi að jafna sig eftir æfingar
gegn honum.“
Cristoph Daum, þjálfari Stuttg-
art, segist sjá margt sameiginlegt
með Eyjólfi og þeim Povlsen og
Sturm. „Hann hefur hæfileika en
þarf að fínpússa þá,“ segir Daum
Eyjólfur segir í viðtali við blaðið
að hann eigi margt ólært en hann
hafi nógan tíma, enda aðeins 22
ára. Eina fyrirmyndin sé Marco Van
Basten.
í lokin er hann spurður að því
hvort hann fái aldrei heimþrá: „Það
KNATTSPYRNA
Halldór
hætlir
hjá Val
Hatldór Áskelsson, sem leik-
ið hefur með Val tvö
síðustu keppnistímabil, hefur
óskað eftir opnum félagaskipt-
um. Hann segist vera á förum
frá Val en hafi ekki gert upp
hug sinn. „Ég kveð Val með
vissum söknuði og á margan
hátt líkaði mér vel hjá félaginu,
einkum þegar Ingi Björn Al-
bertsson var þjálfari. Hann er
einn besti þjálfari sem ég hef
kynnst og ég ber mikla virðingu
fyrir honum,“ sagði Halldór.
„Ástæðan fyrir brottför minni
er fyrst og fremst framkoma
stjórnannanna í minn garð
vegna meiðsla minna,“ sagði
Halldór.
Halldór stundar nám í Ha-
skólanum á Akureyri og Þór og
KA hafa rætt við hann en hann
sagðist ekki hafa tekið ákvörð-
un.
Eyjólfur Sverrisson gerir það gott
hjá Stuttgart.
er sjaldan en þó annað slagið. En
ég fer heim um jólin og þá fá for-
eldrar mínir að sjá nýja fjölskyidu-
meðliminn. Son minn, Hólmar, sem
er fjögurra mánaða."
1. DEILD KARLA
Fj. leikja U J T Mörk Stig
VÍKINGUR 14 14 0 0 350: 290 28
VALUR 14 11 1 2 341: 299 23
STJARNAN 14 10 0 4 347: 329 20
FH 14 8 2 4 340: 325 18
KR 14 4 6 4 328: 326 14
HAUKAR 12 7 0 5 281: 289 14
IBV 12 4 3 5 291: 284 11
KA 13 .4 1 8 302: 291 9
GRÓTTA 14 3 1 10 304: 328 7
SELFOSS 14 2 3 9 279: 321 7
FRAM 13 1 4 8 264: 300 6
ÍR 14 2 1 11 298: 343 5
IMBA-deildin
Boston Celtics — Denver Nuggets ...148:140
Indiana Paeers — Phoenix Suns...126:121
Portland — Orlando Magic........119:110
Atlanta — San Antonio Spurs.....110:108
Milwaukee — Cleveland...........113:109
(Eftir framlengdan leik)
Utah Jazz — Detroit Pistons.....106: 85
Washington — Golden State.......104: 98
LA Clippers — Dallas Mavericks...93: 89
FELAGSMAL
Aðalfundur
Aðalfundur knattspyrnudeildar
Fram verður haldinn föstudaginn
14. desember kl. 20.30 í Framheim-
ilinu. Venjuleg aðalfundarstörf.
ISI / IÞROTTAMENN ARSINS
, , , , Morgunblaðið/Sverrir
íþróttasamband Islands heiðraði í gær þá íþróttamenn sem sérsamböndin innan ÍSÍ töldu hafa skarað fram úr á árinu: Efri röð frá vinstri: Ólafur Eiríks-
son (íþróttir fatlaðra), Bjarni Friðriksson (júdó), Broddi Kristjánsson (badminton), Pétur Guðmundsson (frjálsar íþróttir), Bjarni Sigurðsson (knattspyrna), Ágúst
Húbertsson sem tók við verðlaunum Úlfars Jónssonar (golf), Ólafur Frímannsson, tók við verðlaunum sonar síns Ólafs H. Ólafssonar (glíma), Ólafur Viðar
Birgisson (skotfimi), Þorvarður Sigfússon (blak) og Ómar ívarsson (karate). Neðri röð frá vinstri: Steinar Sigurbjörnsson, sem tók við verðlaunum föður síns,
Sigurbjörns Bárðarsonar (hestaíþróttir), Páll Kolbeinsson (körfuknattleikur), Guðmundur Helgason (lyftingar), Sigríður Ólafsdóttir (siglingar), Guðmundur Hrafn-
kelsson (handknattleikur) og Linda Steinunn Pétursdóttir (fimleikar). Fjarverandi voru Valdemar Valdemarsson (skiði), Kjartan Briem (borðtennis), Ragnheiður
Runólfsdóttir (sund) og Einar Siggeirsson (tennis). Bjarni Friðriksson var valinn júdómaður ársins í tólfta sinn og hefur enginn íþróttamaður svo oft orðið fyrir
valinu hjá sérsambandi sínu.