Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 14

Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 H Dulargervi skáldskaparins Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Kristján Karlsson: KVÆÐI 90. Almenna bókafélagið 1990. í Kvæðum 90 skipar Kristján Karlsson öllum kvæðum bókarinnar í flokk sem hann kallar Engey í þröngum glugga. Maður freistast til að halda að það sé gluggi í húsi skáldsins sjálfs sem átt er við, út- ^ýni þaðan til Engeyjar. Vissulega blasir það við okkur í ýmsum mynd- um og tilbrigðum, en það er líka horft inn á við, fram og aftur í tíma. Minningarnar gerast ásæknar, glugginn stækkar eftir því sem á bókina líður. í fyrsta ljóðinu, samnefndu kvæðaflokknum, birtist eyjan í líkingu fisks með ugga og sporð. Síðan verður eyjarsporðurinn grár hákarl og blaðka hans grænkar af snertingu við bláan sjóinn. Áður hefur verið skýrt frá bláum og grænum bátum á leið út. Vorliturinn er grænn órói sem kippist við um leið og eyjan hagræðir sér eftir ijósi dagsins. Hún er lifandi í glugganum. Eitthvað vantar þó: ,,einn/ rauður mávur hefði farið vel/ í þessum glugga." I síðasta ljóðinu, Dýrleg ljósin á Skaga, er bæði talað um vatnslita- mynd og olíumálverk og líking verð- ur „rauður bátur fyrir Engey“. Þessi bátur kemur í staðinn fyrir mávinn og myndin í glugganum fullkomn- ast. Litarorð þekkjum við úr fyrri bókum Kristjáns, en hann er mjög örlátur á þau í Kvæðum 90. Þar eru þau yfirieitt í þágu myndarinnar eða til að stjaka burt gráum andblæ fyrri daga (samanber Landnám). Óðru hlutverki gegnir tii dæmis svartur prestur í grænu grasi sem ort er um í Kvæðum (1976), fyrstu ljóðabók Kristjáns. í ljóðaflokki, Við Viðeyjarsund, sem birtist í Kvæðum 81 (1981) leikur skáldið sér líka að litum og þar er líka ort um Eiliðavog eins og í nýju bókinni. Allt eru þetta tengsl sem vitna um samhengi bóka og umhverfi sem hefur orðið skáldinu áleitið yrkisefni. Það getur varla verið nein tilviljun að ljóðum um Reykjavík fjölgar jafnt hjá Kristjáni sem öðrum skáldum, en Reykjavíkurijóð eru þó ekki yfir- gnæfandi í Kvæðum 90. Glugginn „þröngi" á húsi skálds- ins verður eins konar rammi um ytri og innri heim þess, veröld ljóð- anna í bókinni. í Dýrleg ljósin á Skaga, fyrrnefndu ljóði, er borin fram ósk í upphafi: Oftar vildi ég sjá hrikaleg §öll, sagarbjörg, hrokafull opinmynnt fljót og ljósin í Napólí eða San Francisco En grænn sjórinn fyrir köldum nesjum gleður hjartað og ljósin sem kvikna handan flóans á Skaga eru sannarlega dýrieg. Eins ög áður verða ljóð Kristjáns Karlssonar minnisstæð fyrir það hve myndvís þau eru og líka hljómræn. Þau eru ekki alltaf auðskilin. En það er sérstaklega gaman að velta fyrir sér merkingu þeirra, einkum þegar tilgangurinn virðist sá einn 'að blekkja lesandann (átt er við skáldlega blekk-ingu). Slík ljóð eru Einmanaieiki tegundanna, Um bók- menntaleg áhrif og Fuglar fuglar eða fuglar. Einmanaleiki tegundanna birtist fyrst í Ljóðaárbók 1988 og er þar meðal sérkennilegri ljóða. Fjallar þetta ljóð um að góðir ljóðalesendur séu sjaldgæfir eða dýrategundir sem eru að deyja út eða hverfa? Margt er vissulega líkt með skyldum. Þriðja erindi er gáta, en eitthvað erviljandi afbakað: „Fyrir keisarann af San Francisco/ vóru gresjur Abyssiníu/ og írans síðustu skjólin." Og hver er þessi afríski ókapi fímmta erindisins sem fjölgar þegar öðrum villtum tegundum fækkar? Samkvæmt orðabók er hér um að ræða jórturdýr, skylt gíraffa, en með stuttan háls. Er hann kannski táknmvnd nýrra skálda eða á hann eitthvað sameiginlegt með ljóðales- endum, gæti þeim kannski fjölgað? Svona má spyija, en aðalatriðið er að njóta ljóðsins. Um bókmenntaleg áhrif dregur dár að þessu sígilda viðfangsefni bókmenntafræðinga og annarra. Inn í þá umræðu eru leiddir Steinn Steinarr og Henry de Montherlant og verslunarhættir í'- Reykjavík (Hafnarstræti á árum áður, feitt kjöt). í ljóðinu skiptast á raunsæi- legar mýndir og fjarstæður, einatt er bilíð ékki langt á milli þeirra. Upphafserindið er svona: Eins og margir vita er tilgangsleysi eitthvert algengasta dulargervi skáldskap- arins hef ég einhveiju gleymt? Fuglar fuglar eða fuglar er kannski um sönglist. í ljóðinu kveð- ur að lómi og himbrima og útburði sem vælir. Þessum fuglum er ekki treystandi, síst útburðinum. Léttleiki, spaug sumra ljóða í Kvæðum 90 kemur þó ekki í veg fyrir alvöru bókarinnar, glímu skáldsins við tilvistarlegan vanda sem meðal annars felst í alkunnum staðreyndum lífsins. Vitaskuld er ég að tala um dauð- ann nefnist eitt ljóðanna. Það er eitt af feigðarljóðum bókarinnar. í Kristján Karlsson því er á kunnáttusamlegan hátt leik- ið með andstæður draums og veru- leika. „Vitaskuld er ég að tala um dauðann/ hann er eitt af því sem ég/ á ódreymt ...“, stendur í þriðja erindi. í fjórða erindi segir ljóðmað- urinn að sig hafí aldrei dreymt hrafn. Það er mið nótt og hann heyrir í hrafni fyrir utan vegginn, lágt krunk. Vissan um að hann sé ekki að dreyma er dálítið málum blandin í ljóðinu. í öðrum ljóðum er gustur dauðans nærri, stundum í ljósum táknum ljóðmálsins. Eitt þessara ljóða er Sunnudagur, dæmi af mörgum um að hugurinn fer á flug út fyrir hinn þrönga glugga, sækir sér minningu og vinnur úr henni: Tómir sporbaugar raðast sunnu- dagar lífs míns einn af öðrum í fjarvíddarteikn, eftir kennslubók 2 meðan aðrir dagar renna þvert út i nafnlausar víddir hverfa sunnudagar mínir inn í uppréttan sporbaug 3 á forstofuvegg einhversstaðar í æsku minni; þó að ég haldi mig kannast við þetta anddyri, svartur frakki hangir við myrkan spegil, fær það ekki staðizt. I ijóðinu Þórarinn sem er minn- ingarkvæði er enn vikið að dauðan- um, söknuður ljóðsins breytist í lok- in í áþreifanlegan ugg: „dauði sem vinnur hægt er/ líka hér ég heyri þögn hans/ kulið leggst að mér.“ Svipaða þanka má flnna í Það var einhvern tíma og 3/4. Kvæði 90 er bók sem ekki opnast lesandanum við fyrsta lestur. í henni eru þversagnir, táknsæi, gaman- semi (spaug og jafnvel ádeiluskop), sérstaklega myndrík ljóð á köflum. Myndmál sumra þeirra er torráðið, stundum eru ljóðin innhverfari en við eigum að venjast, jafnvel einka- legri og kalla á þekkingu sem venju- legur ljóðalesandi hefur ekki til að bera. Sum ljóðin eru aftur á móti útleit- in og vekja grun um að skáldið gæti hugsanlega snúið sér að slíkri tjáningu að einhveiju leyti. Ég nefni Gestkomur, fyndna minningu um dreng í íslenskri sveit. Ég hef líka í huga ljóð eftir Kristján sem birst hafa í blöðum að undanförnu og ekki eru í Kvæðum 90. En þetta breytir ekki þeirri niðurstöðu að ljóð skáldsins stefna ekki í átt til einföld- unar. í Formála Þýðinga, V bindi ís- lenzks ljóðasafns (1977) orðaði Kristján Karlsson skoðun sína að nýjasti skáldskapurinn væri að ein- faldast um of „og að nú væri þörf á samsettari ljóðagerð en tíðkast". Sjálfur hefur hann unnið gegn ein- földum lausnum með ljóðum sem eru állra síst fljótort. Samsettur skáldskapur er ekki eina leið ljóðagerðar. En Kristján Karlsson sannar eftirminnilega áhrifamátt hans og lífsmágn með Kvæðum 90. t i ta i c i i i i 4

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.