Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 16

Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 r.UNNAR -BJARNASON -KÁDl INAUTUK öaga 'ISISENZKA'HESISINS* 2aÖlSD FORLAGSBÆKI Depill gistir eina nótt Eríc Hill Martröð á miðnætti JÓLASTJÖRNUR 15% AFSIÁTTUR Nú er tækifærið, góð kaup. arjólastjömur 15% afslætti birgðir endast. Opið alla daga frá kl. 9-22. Marta fer á mölina Bækur KjartanÁrnason Doris Lessing: Marta Quest. Skáldsaga, 352 bls. Birgir Sig- urðsson þýddi. Forlagið 1990. „Tvær konur sátu á verönd í skugga gullregns og pijónuðu. ... Þetta voru frú Quest og frú Van Rensberg. Marta Quest, fimmtán ára, sat á tröppunum í glampandi sólskininu og sveigði bolinn afkára- lega til að varna skjannabjörtu sól- arljósinu að skína á bókina sem hún var að lesa.“ Þessi kyrrláta mynd kemur fyrir strax í upphafi sögunn- ar um Mörtu Quest. Fljótlega kem- ur í ljós að kyrrðin er bara blekk- ing. Marta er þóttafullur unglingur, full af uppreisn. Þessar prjónandi konur fara óskaplega í taugarnar á henni enda í hennar augum hneykslunargjarnar smáboi'gara- frúr sem ekki töluðu um annað en börn, matreiðslu og þjóna. Hún storkar þeim með því að láta bók Havelock Ellis um kynlíf liggja í efstu tröppunni svo titillinn blasir við. Faðir Mörtu er maísbóndi með fyrri heimsstyijöldina, þarsem hann barðist og skrámaðist, á heilanum. Þau hjón eru innflytjendur frá Eng- landi, staðurinn er suðuroddi stórr- ar heimsálfu sem heitir Afríka. S-Afrika reyndist ekki það gós- enland sem Quest-hjónin höfðu talið og kjör þeirra eru kröpp, þó vellyst- ingar samanborið við innfædda. Marta hefur kynnst veröldinni gegnum allrahanda bókmenntir og fræðirit sem hún hefúr fengið að láni hjá Cohen-bræðrunum, sem einsog nafnið bendir til, eru gyðing- ar. Af þeirri veraldarvisku meðal annars, sprettur óánægja hennar með foreldra sína, smáborgara- skapinn og hlutskipti sitt og á end- anum flyst hún til borgarinnar, fer úr maísnum á mölina, 17 áragömul. - Andrúmsloft þessarar bókar er uggvænlegt. íbúar nýlendunnar virðast upptil hópa vera gjörsneydd- ir allri lífshugsjón, þeir æða um í tómi og tilgangsleysi, einkum þó unga kynslóðin þótt hinir eldri séu flestir lítið betur staddir. Jafnvel sveitin er ekki það athvarf sem ætla mætti. Þar er að vísu óspillt náttúra og fjallasýn, meiri tími en samt eru allir að streða við að verða eitthvað annað en þeir eru. Fólk þessarar nýlendu hefur ekki öðlast þjóðarkennd, það er innflytjendur, Bretar eða Búar — ekki hluti sömu þjóðar. Undir niðri krauma botn- lausir kynþáttafordómar í garð inn- fæddra en ekki síður gyðinga. Kvenfyrirlitning birtist í viðhorfi ungu glaumgosanna til ungra glaumkvenna, þær eru „beibíin“ þeirra, eða eru að „gera þá vit- lausa“. í baksviði er Hitler farinn að sýna vígtennurnar norður í Evr- ópu. Ostöðugleiki, einskonar and- • Doris Lessing legt kreppuástand, er því andblær þessarar sögu: Þessvegna verður innantómt skemmtanaæði unga fólksins bæði skiljanlegt en um leið ógnvekjandi. Og Marta Quest, upp- lýst og víðlesin, er með í dansinum með stirnað bros á vör, full af bældri reiði og beiskju. Marta Quest er fyrsta bókin af þremur í bálkinum um Börn ofbeld- isins þarsem sögð er þroskasaga Mörtu. Bókin kom fyrst út árið 1952. Doris Lessing er löngu kunn hér á landi og það fer að verðá árlegur viðburður að út komi bók eftir hana á íslensku. í Mörtu Quest velur hún þá frásagnaraðferð að vita allt sem fram fer, bæði fyrr og síðar, er alls- staðar nálæg og viðstödd í hverju hugskoti. Skýringar við orð og gjörðir persónanna er þannig hluti af leiknum. Frásögnin er öll hin raunsæislegasta. Fæst af þessu er þó hægt að finna sögunni til for- áttu því sögumaður er í hvívetna samkvæmur sjálfum sér, jafnvel þarsem hann segir um of. í raun gerist ekki ýkja margt á þessum 35 tugum síðna. Þeim mun meiri list er að halda athygli lesend- anna, viðhalda lífi frásagnarinnar með annarskonar spennu en sprett- ur af sjálfum atburðunum. Þetta tekst Doris Lessing með ágætum í þessari sögu. Spenna tómleikans og viðvarandi niðurbæld óánægja Mörtu verða þeim mun magnaðri sem lengra líður á söguna. Þar að auki hefur hún á köflum ótrúlega skýra — og skelfilega — skírskotun til íslensks nútíma. Þýðing Birgis Sigurðssonar er víðast bæði liðug og þjál. Orðaval er fjölskrúðugt og Birgir er óhrædd- ur við að grípa til „útlægra" orða til að liðka málfar, s.s. ergelsi eða beibí. Á fáeinum stöðum virtust tök frummálsins í fastara lagi, t.d. þeg- ar sagt er móðir og sonur í stað mæðginin, eða ég og Matty í stað við Matty. Einnig fannst mér tísku- orðið gagnvait koma óþarflega oft fyrir, þarsem víða hefði mátt nota önnur orð, aðrar forsetningar: til, um, frammifyrir eða tiltæki einsog / garð e-s. Prófarkalestur hefði mátt vera betri. ■ BÓKAFORLAG Odds Björns- sonar hefur gefið út bókina Síðustu fréttir eftir Arthur Hail- ey. í. kynningu útgefanda segir m.a.: „Síðustu fréttir segja frá hinni þrungnu spennu, sem liggur í loft- inu á fréttastofu CBA sjónvarps- stöðvarinnar. Tveir reyndustu fréttamennirnir, sem báðir voru í Víetnam ungir menn, eru þar í sviðsljósinu. Skelfilegur atburður í NIÐURHENGD LOFT CMCn rli tyrir niðurhengd lott, er úr galvaniscruöum mðlmi og eldþolið. CMC kertl er auövelt I uppsetningu og mjög sterkt. CMC kerfi er fest meö stillanlegum upphengjum sem þola allt aö 50 kg þunga. CMC kerti taest i mörgum geröum bæðl sýnllegt og faliö og veröiö er ótrulega tágt. 8 CMC kerfi er seretaklegá hannad Hnngiö eflir fyrir ioftplötur frá Armstrong irekari upplýsingum Emkeumboe á l.l.ndi Þ. ÞORGRIMSSON & CO Armúla 29 - Reykavík - sími 38640 lífi fjölskyldu annars þeirra færir sögusviðið vítt um heim þar sem skæruliðaforingi frá Kolumbíu set- ur á miskunnarlausan hátt svip á atburðarásina." Prentun og bók- band: Prentverk Odds Björnsson- ar hf. ■ BÓKAFORLAG Odds Björns- sonar hefur gefið út bókina Mar- tröð á miðnætti eftir Sidney Sheldon. í kynningu útgef- anda segir að í þessari bók hafi Sidney Sheldon tekið upp þráð- inn um Cath- erine Douglas úr bókinni Fram yfir miðnætti. Sidney Sheldon Það er grískur auðjöfur, Demiris, sem hefur örlög hennar í hendi sér, en hann þarf einnig að afmá spor sem ekki mega sjást. Atburðarásin er hröð og spenna mikil, því öll meðul eru notuð til þess að koma fram vilja sínum, segir í frétt frá útgefanda. Prentun og bókband: Prentverk Odds Björnssonar hf. t I c c f: i I i i ( . i i t <

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.