Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
25
Forseti Islands vanvirtur
eftir Gunnlaug
Þórðarson
í sambandi við hið svokallaða
BHMR-mál hefur sitt hvað ótrúlegt
komið á daginn. Eitt tekur þó flestu
öðru fram sem mörgum hefur yfir-
sést. Það er sú vanvirðing, sem
sumir ráðherranna hafa sýnt.for-
seta Islands. Það var þegár þingrof
var yfirvofandi og ráðherrar ráð-
gerðu í framhaldi af því að sitja
áfram í starfsstjórn og gefa út að
nýju bráðabirgðalög, sem talið var
að yrðu felld á Alþingi. Það sér-
staka við þessar ráðagerðir er sú
lítilsvirðing, sem forseta íslands var
sýnd með þessum fyrirætlunum.
Þeim háu herrum datt ekki í hug,
að forseti íslands gæti haft sínar
skoðanir á málunum.
Þeim var blátt áfram ekki ljóst
að samkvæmt stjórnarskrá lýðveld-
isins er það einkum tvennt, sem
forseti íslands getur gert upp á sitt
eindæmi varðandi Alþingi og ríkis-
stjórn, ef svo má orða það. I fyrsta
lagi að ákveða á hveijum tíma hvort
um starfsstjórn verði að ræða eða
hverjum af forystumönnum flokk-
anna verði falið að mynda ríkis-
stjórn, þegar þing hefur verið rofið.
I öðru lagi að gefa út braðabirgða-
lög, en til þess að þau öðlist gildi
þarf ráðherraábyrgð og undirskrift.
I þessu efni er valdið algjörlega
forseta íslands og ráðherrar geta
ekki ráðskast með það.
Af þessu er ljóst hversu það hef-
ur reynst ófarsælt ríkisstjórn þeirri
er nú situr að ekki skuli vera neinn
lögfræðingur innan hennar. Ef svo
hefði verið má ætla að hinn fjar-
stæði BHMR-samningur hefði ekki
verið orðaður hvað þá gerður.
Glámskyggni í þessu efni sannað-
ist best, þegar fjármálaráðherra og
fleiri ráðherrar stærðu sig af því
að BHMR-samningurinn væri tíma-
„Það sérstaka við þess-
ar ráðagerðir er sú lít-
ilsvirðing, sem forseta
íslands var sýnd með
þessum fyrirætlunum.
Þeim háu herrum datt
ekki í hug, að forseti
Islands gæti haft sínar
skoðanir á málunum.“
mótasamningur sem standa ætti í
5 ár. Sami ráðherra lét sig samt
ekki muna' um, skömmu eftir gerð
samningsins, að virða hann að vett-
ugi með þeirri aðferð, sem mun
vera einsdæmi um lítilsvirðingu fyr-
ir þingræði.
Þá er hitt trúlegt, að ef forseti
íslands hefði haft trausta lögfræð-
inga sem ráðgjafa og verið gerð
Gunnlaugur Þórðarson
grein fyrir hver réttur og skylda
forsetans er samkvæmt stjórnar-
skránni er óvíst að hin dæmalausu
BHMR-bráðabirgðalög hefðu verið
gefin út. Forsetinn hefði að öllum
líkindum bent ríkisstjórninni á að
reyna til þrautar að semja upp á
nýtt við BHMR áður en gripið yrði
til þeirra óþingræðislegu aðgerða
að gefa út bráðabirgðalög, þvert
ofan í dómsniðurstöðu. Ef álit lög-
fróðustu manna hefði legið fyrir
mætti gera ráð fyrir að forseti ís-
lands, frú Vigdís Finnbogadóttir,
hefði ekki látið misnota forsetaemb-
ættið á svo óþingræðislegan hátt
sem og raun varð á með útgáfu
bráðabirgðalaganna og stjórnar-
skráin verið í heiðri höfð.
Frú Vigdís Finnbogadóttir veit
þýðingu orðanna „noblesse oblige“
og myndi án efa ætíð fara eftir
þýðingu þeirra og þá hefðu bráða-
birgðalögin ekki orðið til.
Ráðherrar í núverandi ríkisstjórn
skilja bersýnilega ekki inntak þeirra
orða, að vandi og skyldur fylgja
vegsemd hverri, en bolast áfram
líkt og stjórnarskrá lýðveldisins og
forseti íslands séu ekki til.
Höfundur er fyrrverandi
forsetaritari.
SKEMMTILEGAR OG ÞROSKANDI
BARNABÆKUR Á FRÁBÆRU VERDI!
Stórt letur og litmyndir
Bókaflokkurinn VILTU LESA MEÐ MÉR>>
ARI LÆRIR AÐ SYNDA,
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR ÞRÍR
í þessum skemmtilegu bókum kemur
mynd stundum í stað orðs. Þá er staldrað
við og rétta orðið fundið. Leikur sem
skerpir athygli og skilning. Stefán
Júlíusson þýddi. C Afl |#M
Verð hvorrar bókar er UUV Iml ■
SETBERG
LEIKUR AÐ ORÐUM
HVAÐ m
KLUKKAN?
◄j Bókaflokkurinn LEIKUR AÐ ORÐUM:
BÆKUR FYRIR LÍTIL BÖRN OG UPPALENDUR.
HVAÐ ER KLUKKAN? - VILTU VERA MEÐ MÉR?
eru harðspjaldabækur með framúrskarandi
litríkum og skemmtilegum teikningum.
Skemmtilegar bækur, skýrt og greinargott letur.
Stefán Júlíusson þýddi.
Verð hvorrar bókar er
590 kr.
LEIKUR AÐ ORÐUM
mmw véísLá
Stórt letur og litmyi
ÆVINTÝRABÓKIN
Ævintýrabókin í þýðingu
Rúnu Gísladóttur
inniheldur 9 litrík ævintýri.
Þau eru:
Stígvélaði-kötturinn,
Hans og Gréta,
Frú Hulda,
Hugrakki skraddarinn,
Dvergurinn,
Froskakóngurinn,
Litlu systkinin,
Kiðlingarnir sjö
og Rauðhetta.
Verð
690 kr.
A
2 BABARBÆKUR
BABAR FER í FERÐALAG - BABAR FER Á FÆTUR eru 2 nýjar
harðspjaldabækur um uppáhaldsf ílinn Babar. Ekki mun það draga úr
vinsældum hans að allt næsta ár verða vikulegir þættir um Babar og
félaga í ríkissjónvarpinu. Þýðandi er Þrándur Thoroddsen.
Verð hvorrar bókar er
490 kr.
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA