Morgunblaðið - 08.12.1990, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
29
Tónskóli Sigursveins gengst fyrir þrennum jólatónleikum á morgun.
Söngfélags
Skaftfellinga
SÖNGFÉLAG Skaftfellinga stend-
ur fyrir Vinastund á aðventu
sunnudaginn 9. desember kl. 16.00
í Skaftfellingabúð, Laugíivegi 178.
Þar flytur kórinn undir stjórn Vio-
letu Smíd nokkur lög tengd jólunum
og börnin munu syngja jólalög. .Þá
leikur búlgörsk kona, Ilka Petrova,
á flautu með kórnum og eins leika
þær Ilka og Violeta saman á ftautu
og píanó. Pavel Smíd jr. leikur einn-
ig á píanó og nemendur úr Söngskó-
lanum í Reykjavík syngja einsöng.
Lesið verður ljóð og Skaftfellingurinn
sr. Guðmundur Örn Ragnarsson flyt-
ur jólahugvekju. Að lokum verða ljós-
in tendruð.
Þrennir j ólatónleikar
Tónskóla Sig’ursveins Aðventu-
Vinastund
TÓNSKÓLI Sigursveins gengst
fyrir þrennum jólatónleikum á
morgun, sunnudaginn 9. desem-
ber.
Jólatónleikar forskólanema verða
í sal Fellaskóla kl. 13.00. Þar koma
fram allir nemendur forskólans í
hópum en sameinast einnig í einum
kór og flytja ásamt strengjasveit
Lítinn söngleik um tvö íslensk þjóð-
lög.
Jólatónleikar yngri deildar skól-
ans verða í Hraunbergi kl. 14.30
og í Norræna húsinu kl. 17.00. A
þessum tónleikum koma fram nem-
endur í hljóðfæraleik bæði sem ein-
leikarar og í hópum. Allir eru vel-
komnir á þessa tónleika.
messa í
Höfnum
AÐVENTUMESSA verður haldin
í kirkjunni í Höfnum sunnudaginn
9. desember kl. 14.
I messunni munu bömin úr barna-
starfínu sýna helgileik og fermingar-
drengir lesa úr ritningunni. Prestur
verður sr. Jóna Kristín Þorvaldsdótt-
ir og organleikari Svanhvít Hallgr-
ímsdóttir
Að messu lokinni býður leikfélagið
í Höfnum kirkjugestum í kirkjukaffi
í Félagsheimilinu. Þar munu börnin
úr barnastarfinu syngja.
Aðventukvöld í
Grindavíkurkirkju
Vönduð, íslensk framleiðsla á góðu verði
Góður staðgreiðsluafsláttur.
Greiðslukjör allt að 30 mán.
Opið virka daga kl. 9-19.
Opið laugardaga kl. 10-18.
húsgögn
Bíldshöfða 8,
símar 686675 og 674080.
HORNSÓFAR
SÓFASETT
Nú fer hver að verða síðastur að
panta sérsmíðaðan sófa fyrir jól.
AÐ VENTUK V ÖLD verður í
Grindavíkurkirkju sunnudag-
inn 9. desember kl. 20.30. Flutt
verður blönduð dagskrá í tali
og tónum.
Kór Grindavíkurkirkju og Barna-
kór Grindavíkur syngja. Undirleik
á píanó annast Frank Herlufsen,
en stjórnandi er Siguróli Geirsson.
Þeir Siguróli og Frank leika sam-
leik á fagott og píanó, og Frank
leikur einnig einleik á píanóið.
Börnin úr æskulýðsstarfinu
syngja undir stjórn Svanhvítar
Hallgrímsdóttur, sem einnig leikur
á gítar. í stað ræðu flytja ferming-
arbörn helgileik í formi samtals-
þáttar, talkórs og almenns safnað-
arsöngs. Þá mun Sigurrós Einars-
dóttir fermingarbarn syngja ein-
söng. Stjórnandi helgileiksins er
séra Jóna Kristín Þorvaldsdóttir. ,
í fréttatilkynningu frá sóknar-
nefnd Grindavíkurkirkju segir að
starfsfólk kirkjunnar vænti góðrar
þátttöku Grindvíkinga, og er fólk
hvatt til að eiga saman ánægjulega
kvöldstund í kirkjunni.
Stórólfshvolskirkja.
Aðventu-
samkoma í
Stórólfs-
hvolskirkju
HINN árlega aðventusamkoma
Stórólfhvolskirkju verður hald-
in 2. sunnudag í aðventu 9. des-
ember kl. 21.00.
Kór Stórólfshvolskirkju syngur
jólalög og sálma og einnig mun
barnakór Hvolsskóla syngja jólalög.
Kórarnir eru undir stjórn Gunnars
Marmundssonar, tónmenntakenn-
ara. Margrét Björgvinsdóttir flytur
jólahugleiðingu og sr. Stefán Lárus-
son fer með bæn. Þá munu gestir
frá Tónlistarskóla Rangæinga leika
á hljóðfæri.
Aðventusöng-
ur Drengja-
kórs Laugar-
neskirkju
AÐVENTUSÖNGUR Drengja-
kórs Laugarneskirkju verður á
sunnudag kl. 21 í Laugarnes-
kirkju. Flutt verður aðventutón-
list eftir J.S. Bach, Praetorius
o.fl,
Bjöllukór Laugarneskirkju kem-
ur einnig fram svo og Guðrún
Hrönn Harðardóttir fiðluleikari og
Hrafnkell Orri Egilsson sellóleikari
en þau annast undirleik ásamt org-
elleikara. Stjórnandi er Ronaid
Turner.
Fyrr um daginn verða messur
bæði kl. 11 og 14.
Laugarneskirkj a
„...kjörbók ársins fyrir
laxveiðimenn ...gat
einfaldlega ekki lagt
hana frá mér fyrr en ég
var búinn að lesa hana. “
Sigurdór Sigurdórsson
í ritdómi í DV.
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI18, SÍMI 91 -25188
AF FISKUM OG FLUGFM
KRISTJÁN GÍSLASON
Heillandi frásögn af veiðiskap í ám landsins þar sem íslensk nátt-
úra lifnar fyrir hugskotssjónum lesandans, blíð og grimm, nísk og
gjafmild - allt eftir atvikum. Kristján Gíslason hefur fengist við
stangveiði í áratugi og er íslenskum veiðimönnum að góðu kunnur, ekki
síst fyrir að hafa skapað ýmsar laxaflugur sem vinsælar eru.
Frásögn hans er lífleg, krydduð ósvikinni glettni og skírskotar bæði
til byrjenda og þrautreyndra veiðimanna. Kristján lýsir heimagerðu
flugunum sínum í máli og litmyndum og réttir þannig lesandanum veið-
arfærin beinlínis í hendurnar. Fjöldi mynda prýðir bókina.
AUK kS07-43