Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
31
Umbótasinnar í Rússlandi:
Sakaðir um að beita
aðferðum nasista
Moskvu. Reuter.
JIJRI Bjelov, ritari Kommúnista-
flokksins í Leníngrad, hefur vald-
ið miklum úlfaþyt vegna ásakana
um að fijálslyndir umbótasinnar
beiti aðferðum nasista sér til
framdráttar í baráttu um völd í
Rússlandi, stærsta lýðveldi Sov-
étríkjanna.
■ DHAKA. Bráðabirgðastjórn
tók við völdum í Bangladesh á
fimmtudag eftir að Shahabuddin
Ahmed tók við embætti forseta til
bráðabirgða af Hossain Mo-
hammad Ershad, sem sagði af sér
á þriðjudag. Ahmed sagði að aðal-
viðfangsefni sitt yrði að koma á
reglu í landinu og skipuleggja
fijálsar kosningar, sem haldnar
verða eftir þrjá mánuði. Andstæð-
ingar Ershads segja að ríkisstjórn
hans hafi verið ólögleg, spillt og
einráð og hafa nú krafist þess að
Ershad verði leiddur fyrir rétt og
látinn svara til saka fyrir vald-
níðslu. Talsmenn hersins sögðu í
gær að þeir hefðu knúið Ershad til
að segja af sér til að komast hjá
pólitískri upplausn í landinu.
Bjelov sagði að Lýðræðislegt
Rússland, sem er bandalag ýmissa
hreyfinga og hefur talsverð áhrif í
borgarráðum og á rússneska þing-
inu, væri að koma landinu í skelfileg-
ar ógöngur.
„A yfirborðinu er allt slétt og
felít. Engu ofbeldi er beitt og í öllu
er farið að lögum, en það er for-
dæmi fyrir slíku í stjórnmálasög-
unni,“ sagði Bjelov í grein sem birt
var í gær í dagblaðinu Sovietskaya
Rossiya. „Adolf Hitler komst til
valda í þingkosningum árið 1933 —
eftir lýðræðislegum leiðum og lög-
lega — við verðum nú vitni að sam-
bærilegu lýðskrumi og notkun slag-
orða eins og „fullvalda Rússland"
og „endurfæðing þjóðar“,“ bætti
hann við.
Lýðræðislegt Rússland var stofn-
að í þeim tilgangi að heyja sameigin-
lega kosningabaráttu hreyfinganna
sem mynda það fyrir kosningar í
mars sl. Bandalagið átti stóran þátt
í að tryggja kosningasigur Boris
Jeltsíns í embætti forseta lýðveldis-
ins.
>*
Isklumpur úr háloftunum
Bjarne Hansen, í borginni Ringe í Danmörku, virðir fyrir sér gat á
þaki bílasölu hans. Jyliandsposten skýrir frá því að fyrir nokkrum dög-
um hafi ísklumpur úr háloftunum fallið á þakið með þessum afleiðing-
um og er gert ráð fyrir að hann hafi komið úr salerni flugvélar. Fyrir
ótrúlega mildi varð enginn fyrir sendingunni. Starfsmenn Hansens fundu
ísmola á gangstétt við húsið og einnig tók að leka vatn niður úr þak-
inu. Þar fundust leifarnar af klumpinum og vógu þær tvö kíló.
Starfsfólk Radfóstofunnar og Norsk Data á íslandi
kynnir starfsemi fyrirtækjanna ídag 8. desember
á Dvergshöfða 27
Sýning i dag
SÝNT VERÐUR M.A.:
AM Ijósritunarvélar
ANDOVER hússtjórnarkerfi
ARITECH og H0RMANN öryggiskerfi
BOUYER hljóðkerfi
TEKNICARD aðgangskortakerfi
ERICSSON farsímar
HITACHIDENSHI og UWE BISCHKE myndbandseftirlitskerfi
RINO MASTER sjúkrakallkerfi
EINNIG OKKAR ÞEKKTI RÁÐSTEFNUBÚNAÐUR
VERIÐ VELKOMIN A SYNINGUNA
Dvergshöfða 27
Sími 673737
NorskData
Á ÍSLANDI
■ SÓFÍU. ZHELYU Zhelev,
forseti Búlgaríu, útnefndi í gær
Dímíter Popov, 63 ára lögfræð-
ing, forsætisráðherra í bráða-
birgðastjórn sem sitja mun við
völd í landinu þar til kosningar
hafa farið fram snemma á næsta
ári. Popov er forseti borgardóm-
stólsins í Sófíu og mun ekki tengj-
ast neinum stjórnmálaflokki. Hann
var varaformaður nefndar sem
undirbjó fyrstu fijálsu kosningar
í landinu í áratugi er fram fóru
sl. sumar. Popov hefur verið gefinn
-viku frestur til þess að mynda
nýja stjórn og sagðist hann í gær
einbeita sér að því að finna fram-
bærilega og óháða sérfræðinga.
Verkefni stjórnarinnar yrði að
stöðva hnignun og misnotkun
valds. Búlgarska þingið samþykkti
útnefningu Popovs í gær. Hann
tekur við af Andrej Lúkanov sem
sagði af sér í síðustu viku vegna
vaxandi verkfalla og versnandi
efnahagsástands.
í BLÓMINU
FÆRÐU
JÓLA-
SKRAUT í
ANDA
ÖMMU OG
AFA
Nú eins og í fyrra getur
þú fengið jólavörur eins
og amma og afi keyptu
þegar þau voru ung.
Hjá okkur getur þú valið
úr miklu úrvali af fallegu
og vönduðu jólaskrauti,
jólagjafakortum og
jólagj afapakkningum.
Dúkkulísur frá 1920.
kynntu þér úrvalið.,
Amma og afi koma
örugglega.
Skreytingar við ðU
tækifæri.
VISA, EURO, SAMKORT OG
DINERS.
BLÓMIÐ
HAFN ARSTRÆTI15
SÍMI 21330