Morgunblaðið - 08.12.1990, Síða 34

Morgunblaðið - 08.12.1990, Síða 34
34 MORGÚNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 GENGISSKRÁNING Nr. 235 7. desember 1990 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 54,61000 54,77000 54,32000 Sterlp. 106,19700 106,50800 107,61100 Kan. dollari 46,97000 47,10800 46,61300 Dönsk kr. 9,55560 9,58360 9,58020 Norsk kr. 9,37670 9,40420 9,40690 Sænsk kr. 9,77620 . 9,80490 9,80330 Fi. mark 15,26060 15,30530 15,32950 Fr. franki 10,84280 10,87460 10,87980 Belg. franki 1,77560 1,78080 1,77780 Sv. franki 43,17000 43.29640 43,08380 Holl. gyllini 32,59810 32,69360 32,55520 Þýskt mark 36,77440 36,88220 36,71510 ít. líra 0,04881 0,04895 0,04893 Austurr. sch. 5,22810 .5,24340 5,22030 Port. escudo 0,41615 0,41770 0,41810 Sp. peseti 0.57550 0,57720 0,57850 Jap. yen 0,41413 0.41595 0,42141 írsktpund 98,07100 98,35900 98,02900 SDR (Sérst.) 78,45870 78,68860 78,68420 ECU, evr.m. 75,60480 75,82630 75,77910 Tollgengi fyrir desember er sölugengi 28. nóvember. Sjálfvirkur símsvari gengisskráningar er 62 32 70. ■ BROTIST var inn á þrjá staði á Akureyri aðfaranótt fimmtu- dags, litlu var stolið, en töluverðar skemmdir unnar. Brotist var inn í húsnæði Félagsmálastofnunar Akureyrarbæjar við Hafnarstræti 104 og stolið þaðan tæplega 15 þúsund krónum í peningum og tékkhefti. Þá voru nokkrar skemmdir unnar. Einnig var brotist inn í ungbarnaeftirlitið og tjón unnið á eignum, en engu stolið. Þá var brotist inn í iðjuþjálfun geð- deildar FSA við Skólastíg og skemmdir unnar, en fátt fannst þar fémætt. Málið er í rannsókn hjá rannsóknarlögreglunni á Akur- eyri. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 7. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 109,00 93,00 100,67 47,343 4.765.902 Þorskursmár 85,00 85,00 85,00 1,019 86.615 Þorskur stór 113,00 113,00 113,00 0,199 22.487 Ýsa 135,00 80,00 118,76 2,276 270.301 Karfi 49,50 49,50 49,50 0,385 19.058. Ufsi 48,00 25,00 41,46 0,658 27.283 Steinbíturósl. 60,00 60,00 60,00 0,021 1.260 Langa 66,00 62,00 64-,39 0,219 14.102 Lúða 300,00 250,00 288,85 0,152 44.050 Koli 50,00 50,00 50,00 0,010 500 Keila 40,00 40,00 40,00 0,057 2.280 Keila ós. 40,00 40,00 40,00 0,292 11.680 Steinbítur 70,00 69,00 69,76 0,940 65.572 Bland sv. 20,00 20,00 20,00 0,080 1.600 Samtafs 99,39 53,651 5.332.690 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 129,00 50,00 101,41 40,026 4.059.220 Þorskur(ósL) 76,00 76,00 76,00 1,931 146.756 Þorskur smár) 87,00 87,00 87,00 0,657 57.159 Ýsa 157,00 87,00 115,56 9,615 1.111.144 Ýsa (ósl.) 132,00 104,00 112,34 1,475 165.702 Karfi 51,00 50,00 50,47 0,356 17.968 Ufsi 49,00 25,00 41,94 2,258 94.727 Steinbítur 75,00 67,00 69,06 5,764 398.133 Langa 87,00 67,00 77,67 4,233 328.827 Lúða 400,00 270,00 290,20 0,451 130.880 Skarkoli 114,00 40,00 50,43 0,643 32.426 Sólkoli 48,00 48,00 48,00 0,089 4.272 Keila 37,00 37,00 37,00 0,149 5.513 Kinnar 190,00 190,00 190,00 0,013 2.656 Saltfiskflök 240,00 220,00 226,00 0,130 29.380 Lýsa 61,00 61,00 61,00 0,139 8.479 Grálúða 67,00 67,00 67,00 0,437 29.279 Blandað 37,00 37,00 37,00 0,070 2.590 Gellur 335,00 335,00 335,00 0,047 15.912 Undirmál 80,00 73,00 78,72 2,348 184.844 Samtals 400,00 25,00 96,36 70,834 6.825.779 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. 7. desember Þorskur 115,00 78,00 92,14 34;486 3.177.632 Ýsa 129,00 73,00 .116,21 29,077 3.379.172 Karfi 52,00 52,00 52,00 0,167 8.684 Ufsi 39,00 32,00 37,73 0,0454 17.505 Steinbítur 68,00 68,00 68,00 0,600 40.800 Háfur 5,00 5,00 5,00 0,008 40 Langa 80,00 55,00 76,48 3,764 287.870 Keila 49,00 45,00 46,85 6,250 292.800 Skarkoli 90,00 90,00 90,00 0,040 3.200 Koli 60,00 60,00 60,00 0,014 840 Lýsa 37,00 37,00 37,00 0,047 1.739 Blandað 49,00 49,00 49,00 0,200 9.800 Undirmál 60,00 60,00 60,00 0,030 1.800 Samtals 96,10 75,147 7.221.882 Selt var úr dagróðrabátum. I dag verður selt úr Búrfelli og dagróðrabátum. Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur, 27. sept. - 6. des., dollarar hvert tonn Þjóðleikhús Islendinga: Nýtt hús í gamalli skel Menntamálaráðherra svarar fyrirspurn Eiðs Guðnasonar Á 26. FUNDI sameinaðs þings í fyrradag svaraði Svavar Gestson menntamálaráðherra fyrirspurn Eiðs Guðnasonar (A-Vl) um kostnað við breytingar á Þjóðleikhúsi Islendinga. Menntamálaráðherra sagð- ist ekki skorast undan því að fylga því eftir sem væri óvinsælt vegna þess að það væri dýrt. Fyrirspyijandi taldi að milljóna hundruðum hefði betur verið varið í annað. Eiður Guðnason gerði fyrir- spurn til menntamálaráðherra um: 1. Hve hárri fjárhæð nam kostnað- ur við breytingar á Þjóðleikshúsi íslendinga 31. október 1990; a) Hönnunar og stjórnunarkostnaður. b) Kostnaður við verklegar fram- kvæmdir. 2) Hvernig samræmast þessar kostnaðartölur áætlunum um framkvæmd verksins? 4) Er fjármagn tryggt tii verkloka? Umdeild bygging Svavar Gestsson menntamála- ráðherra greindi frá þ'ví að sam- kvæmt upplýsingum frá formanni byggingarnefndarinnar næmi kostnaður við hönnun, stjórn, eftir- lit, nýtingaráætlun og mælingár 140,7 milljónum, og væri hlptur hönnunar yfirgnæfandi í þeirri tölu. Kostnaður við verklegar fram- kvæmdir væri hins vegar 242,8 milljónum. Ráðherrann greindi frá því að samkvæmt endanlegri verká- ætlun frá 26. júlí 1990, hefði verið talið að kostnaður myndi verða 456 milljónir í þessari lotu. Ljóst hefði þá verið - miðað við veitar fjárveit- ingar og ennfremur áformaðar fjár- veitingar í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 1991 - að vantaði 29 milljón- ir. Því til viðbótar hefur síðan kom- ið fram kostnaður upp á 35 milljón- ir. 17 milljónir af fyrrgreindum 35 milljónum, væru vegna þess að unninn hefði verið hluti annarrar lotu. 14 milljónir vegna breyttra aðstæðna, m.a. ófyrirséðar skemmdir á lofti og í kjallara. Einn- ig væru 4 milljónir flýtikostnaður. Samkvæmt verkáætluninni í júlí myndi því kostnaður fara 7,6% fram úr áætlun. Ráðgert væri að ljúka fyrsta lotu verksins í marsmánuði 1991 en um áframhald verksins hefðu engar endanlegar ákvarðanir verið teknar, en þær væru í höndum fjárveiting- arnefndar og Alþingis. Byggingar- nefnd teldi heppilegt að ljúka því sem eftir væri miðsumars 1991 og 1992 meðan leikhúsið væri lokað. Byggingamefndin hefur tjáð menntamálaráðherra að kostnaður gæti numið um 300 milljónum. Menntamálaráðherra sagði fjár- magn til fyrstu lotu vera tryggt - að því frátöldu að enn vantaði 64 milljónir miðað við fjárlagafrum- varpið 1991 en fjármagn til fram- haldsins hefði hins vegar ekki verið tryggt, það væri verkefni fjái'veit- ingarnefndar og Alþingis að fjalla um það. Menntamálráðherrann minnti þingheim á að Þjóðleikhús væri ein þeirra bygginga sem umdeildastar hefðu verið í menningasögu þjóðar- innar. Áratugum saman hefði við- haldskostnaður við húsið ekki verið mikill. En ljóst hefði verið að húsið var að eyðileggjast og slíkt varð að fyrirbyggja. Ráðherrann sagði ævinlega umdeilanlegt hve miklum fjármunum menn vildu vetja í svona verkefni á hveijum tíma. Ræðumaður sagði að í tengslum við þær umræður sem fram hefðu farið mætti skoða að hve miklu leyti það væri eðlilegt að ríkið væri að reka fyrirtæki sem héti Húsameist- ari ríkisins til að annast þjónustu af þessu tagi en hægt væri að fá hjá fjölda aðila um allt land. „Rasshandarlag“ Fyrirspyrjandi Eiður Guðnason þakkaði menntamálaráðherra svör- in - sem reyndar hefðu ekki komið að óvart. Þeim sem til hefðu þekkt hefði verið gjörla ljóst að kostnaður myndi hlaupa fram úr öllum áætl- unum. En þó væru öll kurl hvergi nærri komin til grafar; margt óséð og ógreitt. Hins vegar væri það fáránlegt að nota kostnaðaráætlun frá síðastliðu sumri til samanburð- ar, aðvitað hefði átt að nota hina upphaflegu verkáætlun. Á henni hefði sú ákvörðun byggst að heíj- ast handa. Eiður sagði verkið hafa hlaupið úr böndum, hafa verið illa undir- búið. Á ræðumanni var að skilja Þjóðleikhúsið að unnið hefði verið að þessu verki með vinstri hendi; „rasshandarlag á öllu þessu verki frá upphafi til enda.“ Aldrei hefði verið um það deilt að nauðsynlegt hefði verið að gera lagfæringar á Þjóðleikhúsinu en ekki hefði verið nauðsynlegt að „rústa húsið að innan og byggja nýtt innan í skelinni." Hér væri beinlínis verið að leika sér með fé skattborgaranna og þessum . millj- ónahundruðum hefði betur verið á annan veg varið. Eiður greindi frá því að sér hefði verið tjáð að for- maður „hinnar svokölluðu bygging- arnefndar" hefði svarað með mikl- um endemum í sjóvarpsviðtali kvöldið áður og öll málsvörn heldur í lakara lagi og miðað við aðstæður tryði hann þessu vel. Að endingu sagði Eiður Guðna- son þessar framkvæmdir vera enn eitt dæmið um óskiljanlegar og óskynsamlegar opinberar fram- kvæmdir, þar sem upphaflegar kostnaðaráætlanir væru sem gam- ansögur sem menn skemmtu sér við að hafa í flimtingum. - En þeg- ar upp væri staðið væri enginn ábyrgur en ríkið og skattborgaranir verr staddir en áður. Geta sjálfum sér um kennt Svavar Gestsson menntamála- ráðherra sagði það myndu verða fróðlegt að hafa um þessi mál ítar- lega umræðu en hann kynni ekki við fyrirspyijandi færi fram með þessum hætti, þar sem enginn kost- ur gæfist til að fara yfir málið í heild. Þetta mál væri allt opið. „Al- þingi hefur getað fylgst með þessu máli, lið fyrir lið, í smáatriðum, - allan tímann." Menn hefðu ekki við neinn annan að sakast en sig sjálfa ef menn skorti upplýsingar. Menntamálaráðherra taldi vera ærnar ástæður til að kanna fleiri ríkisbyggingar og ríkisstofnanir í heild - lið fyrir lið - hönnunar- kostnað, stjórnunarkostnað, nýting- aráætlunarkostnað. Svavar Gestson menntamálaráð- herra sagðist aldrei myndu skjótast undan ábyrgð þótt hann hefði stað- ið menn í ræðustól Alþingis að því athæfi; laumast undan ábyrgð þeg- ar um erfiða hluti væri að ræða; hluti sem reynt væri að gera óvin- sæla, auðvelt að gera tortryggilega vegna þess fyrst og fremst að þeir væru dýrir. Undan þessum áróðri' hefðu stjórnmálamenn yfirleitt hrokkið, ekki verið tilbúnir til leggja á sig þá vinnu sem fælist í því að fylgja eftir framkvæmdum af þeim toga sem hér um ræddi og kostuðu verulega fjármuni. Niðurstaðan væri að opinberar stofnanir og byggingar allt í kringum landið væru að grotna niður. Eiður Guðnason kvað að ekki koma sér að óvörum að þetta mál vekti nokkuð heitar tilfinningar ráð- herrans; þetta væri í eðli sínu hið versta mál. Þessu máli hefði verið haldið á leyndarstigi alltof lengi; þegar ákvörðun var tekin um endur- bætur á þjóðleikhúsinu var fæstum þingmönnum ljóst hvað það var sem gera átti. „Það átti að byggja nýtt hús innan í því gamla“. Eiður Guðnason lýsti sig reiðubúinn til að ræða þessi mál ítarlegar og sagð- ist vera honum hjartanlega sam- mála um stöðu embættis Húsa- meistara ríkisins - án þess að hann væri að leggja dóm á þá einstakl- inga sem þar störfuðu. Það emb- ætti ætti að leggja niður og um það hefði Alþýðuflokkurinn flutt tillög- ur en Eiður minntist þess ekki að þær hefðu hlotið sérstakan stuðning Alþýðubandalagsins. . Svavar Gestsson menntamála- ráðherra sagði þessi mál koma til umræðu í tengslum við aðra og þriðju umræðu fjárlaga og þá gæf- ist tími til að ræða um þau betur. Varðandi embætti Húsameistara ríkisins sagði hann að fleiri fleiri hefðu hreyft því máli; fulltrúar allra flokka hefðu verið með það meira og minna á vörunum, jafnvel í til- löguformi. Það væri umhugsunar- efni hvers vegna svo illa hefði geng- ið að þoka þessu mikla stefnumáli í framkvæmd. Eiður Guðnason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.