Morgunblaðið - 08.12.1990, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
35
Selfosskirkja
Aðventukvöld
í Selfosskirkju
AÐVENTUKVÖLD verður í Sel-
fosskirkju suiinudaginn 9. des-
ember kl. 20.30.
Organisti kirkjunnar, Glúmur
Gylfason, leikur á orgelið og stjörn-
ar kirkjukórnum og barnakór kirkj-
-unnar sem flytja fjölbreytt aðventu-
og jólaefni. Heiðrún Hákonardóttir
söngkona syngur einsöng og ferm-
ingarbörn aðstoða við að flytja að-
ventukynningu. Halldór Blöndal al-
þingismaður flytur hugvekju
kvöldsins.
Eftir samkomuna er kirkjugest-
um boðið tii kaffidrykkju í safnaðar-
heimilinu í boði kvenfélags kirkj-
unnar. Kvenfélagskonur hafa á boð-
stólum ýmsán jólavarning að
ógleymdu laufabrauðinu, sem þær
hafa verið að baka undanfarna
daga.
Leiðrétting
MISTÖK urðu við vinnslu fréttar
af gjöfum til Fáskrúðsbakkakirkju,
sem birtist í Morgunblaðinu á
fimmtudag.
Fram átti að koma, að Hjörleifur
Sigurðsson frá Hrísdal var fæddur
9. maí 1919 og lést 23. júlí 1989.
Sonur hans, Sigurður Grétar, fædd-
ist 21. maí 1945 og lést 28. maí
árið eftir.
Beðist er velvirðingar á mistök-
, unum.
Blönduós:
Grönn-
kynning og
námskeið
MANNRÆKTIN verður með
kynningu á Grönn-vörum á Hótel
Blönduósi mánudagskvöldið 10.
des. kl. 20.30 og kl. 21.00 verður
svo haldinn fyrirlestur um.hug-
myndirnar sem búa þeim að baki.
Rætt verður almennt um fyrir-
bærið matarfíkn og Grönn-nám-
skeiðið kynnt. Allir eru velkomn-
ir.
Grönn-námskeið verður síðan
haldið í sömu viku. Það stendur
yfir 12.-14. des. (3 klst. hvert
kvöld) ásamt laug. 15. des. kl. 9-17.
Lögð er áhersla á gagnkvæman
trúnað og nafnleynd. Fyrirlesari og
leiðbeinandi er Axel Guðmundsson.
Aðventukvöld í
Hvalsneskirkju
ÁRLEGT aðventukvöld Hvals-
nessafnaðar verður haldið í
Hvalsneskirkju næstkomandi
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Gunnar Eyjólfsson skátahöfðingi
og leikari með fleiru flytur ræðu
kvöldsins. Kirkjukór Hvalsneskirkju
syngur aðventu- og jólasálma.
Lúðrasveit Tónlistarskóla Sand-
gerðisbæjar leikur jólalög. Guð-
mundur Hallvarðsson leikur einleik
á gítar, auk þess sem nemendur
Tónlistarskólans koma fram. Allir
hjartanlega velkomnir.
(Frcttatilkynning)
í Árbæjarsafni verður opin sýning á sunnudag, þar sem meðal ann-
ars er hægt að sjá hvernig jólahald var áður fyrr.
Jólasýning í Árbæjarsafni
JÓLASÝNINGU Árbæjarsafns
verður fram lialdið á morgun,
sunnudag. Þá koma nokkrir jóla-
sveinar í heimsókn og gestum
gefst m.a. tækifæri til a kynnast
jólahaldi fyrr á tímum.
Jólasýningin verður frá kl. 13-16
á sunnudag. Klukkan 14-14.30
dansa jólasveinarnir með gestum í
kringum jólatré, í Árbænum verður
laufabrauðaútskurður og kerta-
steypa sýnt jólatré vafið lyngi og
skreytt með heimatilbúnu föndri. I
kirkjunni verður aðventumessa
klukkan 15.30. í Prófessorsbú-
staðnum verða sýningar, Jólahald
á stríðsárunum og Jól í Reykjavík
um 1920. Þá geta gestir prentað
jólakort, krambúðin verður opin og
í Diilonshúsi er opið kaffihús.
Keflavíkurkírkja:
Aðventukvöld
AÐ VENTUK V ÖLD verður í
Keflavíkurkirkju sunnudaginn 9.
desember kl. 20.30. Barnakór
syngur undir stjórn Hlífar Kára-
dóttur, fermingarbarnakór og
kór Keflavíkurkirkju syngja und-
ir stjórn Einars Arnar Einarsson-
ar.
Einnig koma fram hljóðfæraleik-.
ararnir úr tónlistarskólanum. Ein-
söngvari er Jóhann Smári Sævars-
son, Sverrir Guðmundsson og
Steinn Erlingsson syngja dúett.
Ræðumaður verður Árni Ragnar
Árnason. Sóknarpresturinn Ólafur
Oddur Jónsson flytur bæn og bless-
un. Systrafélagið býður upp á kaffi
og piparkökur í Kirkjulundi að lok-
inni aðventuhátíðinni.
Keflavíkurkirkja
Gunnlaugur Guðmundsson
Merkin þín og þekktra íslendinga
Fjórir forystumenn Sjálfstæðisflokksins,
Davíð Oddsson, Geir Hallgrímsson, Jón Þorláksson og
Ólafúr Thors, hafa Venus í Vatnsbera. Það er athyglisvert frá
stjamspekilegu sjónarmiði að margir hafa séð nýjan
Ólaf Thors í Davíð Oddssyni, en báðir eru með Sól í Steingeit.
Hefurðu áhuga á að vita hvað stjömumar segja um þig?
Langar þig til að kynnast betur innsta eðli ýmissa
þjóðkunnra manna?
Stjömumerkin er bók um stjömumerkin þín og um
stjömumerki þekktra Islendinga, lifandi stjömuspeki. Greint
er ffá öllum stjörnumerkjum og fjallað um tilfinningar,
hugsun, ást, vinnu og framkomu í öllum merkjunum. Fjallað er
um afstöður milli pláneta, um húsin, um eðli mannlýsinga
og kennt að lesa úr stjömukortum. Handbók þeirra sem
áhuga hafa á stjömuspeki, bók um þig.
IÐUNN
VANDAÐAR BÆKUR
♦ í 45 Á R ♦