Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 39 360 manns á fjölskylduhá tíð Tvistsins á Hvolsvelli Hvolsvelli. Kvikmyndasýning fyrir börn í Norræna húsinu FÉLAGSMIÐSTÖÐIN Tvistur- inn í Hvolsvelli hélt sína árlegu fjölskylduhátíð föstudagskvöld- ið 30. nóvember. Rúmlega helmingur hreppsbúa var sam- an kominn í félagsheimilinu Hvoli til að taka þátt í hátíðinni. Skemmtunin hófst með bingói, þá var tískusýning, þar sem sýnd- ur var fatnaður frá Kaupfélagi Rangæinga, dansatriði frá Dans- skóla Auðar Haralds, sýnd voru atriði úr Kardemommubænum og loks var hæfíleikakeppni en hana vann Karólína Smáradóttir. Þá var boðið upp á kaffi og heitar vöfflur og að lokum lék unglingahljóm- sveitin Bjargvætturinn fyrir dansi. Hátíð þessi er haldin til fjáröfl- unar fyrir félagsmiðstöðina Tvist- inn sem hefur verið starfandi hér í fjögur ár. Tvisturinn hefur opið hús einu sinni í viku fyrir hvern aldurshóp. Þá geta krakkarnir gert ýmislegt sér til dægrastytt- ingar s.s. farið í borðtennis, snó- ker, spilað, dansað og fleira. Um- sjónarmenn Tvistsins eru hjónin Katharína Snorradóttir og Smári Eggertsson. _ s.Ó.K. Karólína Eggertsdóttir sigurvegari í hæfileikakeppninni. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir TVÆR norskar barnamyndir verða sýndar sunnudaginn 9. desember kl. 14.00. Fyrri myndin heitir „Fra ei kos dagbok“. Ein kýrin í fjósinu skrif- ar dagbók og lýsir lífinu í fjósinu. En hún á sér dagdrauma og þar er lífíð allt öðru vísi. Síðari myndin heitir „Den hvite Selen“ og þar er sagt frá hvíta selnum Kotic sem lifir í Berings- hafi. Friðurinn er rofinn þegar skinnaveiðimenn koma með byssur sínar. Aðgangur er ókeypis og börn fá ávaxtasafa í hléi. í sýningarsal Norræna hússins er sýningin Frá Finnum — bygg- ^ ingar — list — hönnun Finnsk húsagerðarlist og hönnun á 9. ára- tugnum. Opið daglega kl. 14-19. I anddyri er sýningin Heila- mynd, list með leisergeislum. Sýn- ing frá Hologramsafninu í Stokk- hólmi. _____ ______ Leiðrétting Þau leiðu mistök urðu að röng mynd birtist við frétt frá Hvolsvelli um nýstofnað félag, Oddafélagið. Myndin sem birtist var af Stórólfs- hvolskirkju í stað Odda. Morgun- blaðið biðst velvirðingar á því. FUNDIR - MANNFAGNAÐUR Aðventukvöld Bessastaðasóknar verður í Bessastaðakirkju sunnudaginn 9. desember kl. 20.30. Sr. Bragi Friðriksson þjónar fyrir altari. Álftaneskórinn syngur und- ir stjórn John A. Speight, organisti Þorvaldur Björnsson. Lesin verður jólasaga. Fermingar- börn aðstoða við athöfnina og tendra að- ventuljós kirkjugesta. Kirkjugestir fá afhent kerti í upphafi helgistundar. Sóknarnefnd. Jólafundur Húsmæðrafélags Reykjavíkur verður haldinn í Domus Medica við Egilsgötu nk. þriðjudag, 11. desember, kl. 20.30. Dagskrá: Barnakór úr Austurbæjarskóla syngur. ÁsgeirJakobsson, rithöfundur, les jólasögu. Glæsilegt jólahappdrætti. Kaffihlaðborð. Fundinum lýkur svo með jólahugvekju, sem sr. Gylfi Jónsson flytur. Jólafundurinn er opinn öllum. Ágóði rennur til styrktar Vímulausrar æsku. Stjórnin. Ættarmót Ættarmót afkomenda Brynjólfs Einarssonar og Valgerðar Guðmundsdóttur, ábúenda á Sóleyjafbakka í Hrunamannahreppi, verður haldið á Flúðum í Hrunamannahreppi dagana 22.-23. júní 1991. Afkomendur þeirra hjóna, vinsamlegast hafið samband við eftirtalda aðila: Brynjólf Pálsson, sími 98-66609 Guðjón Sigurðsson, sími 98-63324 Ester Steindórsdóttur, sími 91-676018 Gísla Gíslason, sími 91-36207 Valdimar Ólafsson, sími 91-30315 Eirík Brynjólfsson, sími 91-78896 Bryndísi Brynjólfsdóttur, sími 98-21624, 98-21022. Vegna takmarkaðs gistirýmis í húsum eru væntanlegir þátttakendur beðnir að hafa samband við ofangreinda aðila fyrir 15. fe brúar 1991. Undirbúningsnefndin. A TVINNUHÚSNÆÐI Til leigu nálægt Landakoti tilvalið hús fyrir starfsemi, s.s. lækna, arki- tekta, endurskoðendur eða skrifstofur fé- lagasamtaka. Laust 1. febrúar 1991. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir ára- mót merkt: „N - 3982“. Til leigu verslunarhúsnæði 255 fm á jarðhæð í Borg- artúni 31. Upplýsingar hjá Sindra-stál hf., sími 627222. Kópavogur - Kópavogur Sjálfstæðiskvennafélagið Edda heldursinn árlega jólafund laugardag- inn 8. desember í Hamraborg 1, 3. hæð. Fundurinn hefst með borðhaldi kl. 19.00. Eddukonur fjölmennið og takið með ykkur gesti. Sjálfstæðiskvennafélagið Edda. Tilboð óskast í 45 tonna varanlegan þorskkvóta. Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Mbl. merkt: „Þorskur - 9329“. . KVÓTI Kvóti til sölu Tilboð óskst í 40 tonna kvóta. Upplýsingar í síma 20130. Kvóti - kvóti Tilboð óskast í 60 tonn af þorski, 30 tonn af ufsa og 30 tonn af ýsu. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt: „K - 8606“ fyrir 10. desember. F É L A G S S T A R F Akranes - jólaf undur Sjálfstæðiskvennafélagið Báran heldur sinn árlega jólafund mánu- daginn 10. desember kl. 20.00 í Sjálfstæðishúsinu við Heiðargerði. Að venju verður boðið uppá jólamat og skemmtiefni. Konur hvattar til að mæta vel. Nýir félagar velkomnir. Nefndin. Á Seltjarnarnesi Laugardaginn 8. desember verður haldið jólahóf í félaginu okkár kl. 21.00 á Austurströnd 3. Allir velkomnir, bæði félagsmenn og aðrir gestir. Jólastemning, ef þú lætur sjá þig. Stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga. Sjávarútvegs- stefnan Huginn helduropinn félagsfund í Lyngási 12 þriðjudaginn 11. desember þar sem rædd verða sjávar- útvegsmál. Hannes H. Giss- urarson og Markús K. Möller ræða mál- in, en þeir eru þekkt- ir fyrir að vera á öndverðum meiði um þessi mál. Fundurinn hefst kl. 20.30, Stjórnin. Wélagslíf I.O.O.F. 8 = 1721295 = 5,0 O MÍMIR 599012107 = 11 Frl □ GIMLI 599010127 - 1 Atkv. Frl. Opiö hús verður i dag í Þríbúð- um, Hverfisgötu 42, kl. 14.00- 17.00. Kaffi, rjómapönnukökur og jólastemmning. Gunnbjörg Óladóttir syngur einsöng. Allir velkomnir. l/erslunin Hátúni 2. í Jötu færðu plötu Glæsilegir áletraðir postu- línsplattar með segulstáli. „Drottinn blessi heimilið", kross- ar. Erlendar biblíuhandbækur, NlV-studie Bible. Sjón er sögu ríkari. Velkomin I Jötu. Félagið Zíon vinir ísraels Fundur verður haldinn í sam- komuhúsinu Völvufelli 11 í dag kl. 15.00. Dagskrá: Laufskálahátíðin í tali og myndum. Kaffi o.fl. Allir velkómnir. UftEndí H ÚTIVIST Sunnudagsganga 9. des. kl. 13. Flekkuvík - Kálfatjörn Róleg strandganga á vestan- verðum Reykjanesskaga, sem allir geta tekið þátt í. Skoöaður rúnasteinninn á Flekkuleiði og Kálfatjarnarkirkja. Bróttför frá BSÍ - bensínsölu. Stansað á Kópavogshálsi og við Sjóminja- safnir í Hafnarfirði. Einnig er hægt að veifa rútunni á stoppu- stöðum straetisvagna á Hafnar- fjarðarvegi. ' Áramótaferð Útivistar Nú fer hver að verða síðastur að panta I áramótaferðina í Bása. Pantanir skulu sóttar í síðasta lagi miðvikud. 19. des. Sjáumst.! Útivist. FERÐAFÉLAG ÍSIANDS ÓLDUGÖTU 3 & 11798 19533 Sunnudagsferð 9. desember kl. 13. Undirhlíðar - Óbrynnishólar Ekið að Vatnsskarði og gengið um Undirhliðarnar að gígrústum Óbrynnishóla. Hressandi ganga fyrir alla. Verð 800,- kr., frítt f. börn m/fullorðnum. Brottför frá Umferðarmiöstöðinni, austan- megin (stansað á Kópavogshálsi og v/kirkjug. Hafnarfirði). Missið ekki af síðustu ferðum ársins. Esja um vetrarsólstöður sunnu- daginn 16. des. kl. 10.30 og blys- för í Elliðaárdal laugardag 30. des. Áramótaferðin í Þórsmörk er 29.des.-1.jan. er alltaf jafn vinsæl. Frábær gistiaðstaða í Skagfjörðsskála, Langadal, í miðri Þórsmörk. Pantanir óskast sóttar í síðasta lagi 14. des. Gerist félagar í F.l. Ferðafélag Islands. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænastund í kvöld kl. 20.30. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá vikunnar framundan: Sunnudagur: Alemnn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Björn Ingi Stefánsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Þriðjudagur: Jólasamvera fyrir eldri safnaðarmeðlimi kl. 15.00. Miðyikudagur: Biblíulestur kl. 20.30. Föstudagur: Æskulýðssam- koma kl. 20.30. Laugardagur: Bænastund kl. 20.30. Hvftasunnukirkjan Völvufelli Sunnudagur: Sunnudaga- skóli kl. 11.00. Hvítasunnukirkjan Ffladelfía Almenn samkoma í dag kl. 16.30. Ræðumaður Bjöm Ingi Stefánsson. Sunnudagaskóli á sama tíma. Allir hjartanlega vel- komnir. Hvitasunnukirkjan Vöivufelli Sunnudagaskóli í dag kl. 11.00. Hvítasunnukirkjan í Kelfavík Sunnudagaskóli í dag kl. 13.30. Almenn samkoma kl. 16.00. Allir hjartanlega velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Jólasamvera fyrir eldri safnaðar- meðlimi í dag kl. 15.00.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.