Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990
47
Aðventuhá-
tíð Kárs-
nessóknar
KÁRSNESSÖFNUÐUR í Kópa-
vogi heldur sína árlegu aðventu-
hátíð í Kópavogskirkju sunnu-
daginn 9. desember.
Guðsþjónusta safnaðarins verður
kl. 11.00, þar sem sungnir verða
aðventusálmar og altarisganga fer
fram. Um kvöldið kl. 20.30 verður
svo aðventuhátíð safnaðarins í
Kópavogskirkju. Ræðumaður
kvöldsins verður Siguijón Björns-
sön, prófessor. Valdimar Lárussoh
leikari les ljóð m.a. úr nýútkominni
bók sinni, Rjálað við rím og stuðla.
Ólöf Ýr Atladóttir les jólasögu.
Af tónlistinni heyrum við söng
kirkjukórsins undir stjórn Guð-
mundar Gilssonar organista. Snorri
Heimisson og Þórarinn Sv. Arnar-
son nemendur í Tónlistarskóla
Kópavogs leika saman á flautur.
Skólakór Kársness syngur undir
stjórn Þórunnar Björnsdóttur.
Að lokinni aðventuhátíð selur
Kópavogskirkja
þjónustudeild Kársnessóknar að
venju kaffi í safnaðarheimilinu
Borgum. Aðventuhátíðin er haldin
til þess að fólk gleðjist saman og
fagni heilögum boðskap jólaföst-
unnar sem lýsir upp hugina í
skammdeginu. Því skulum við fjöl-
menna á aðventuhátíðina nk.
sunnudagskvöld.
Ægir Fr. Sigurgeirsson,
sóknarprestur.
VZterkur og
k-/ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
Bókmennta-
dagskrá í
Listasafni
Sigurjóns
BOÐIÐ verður upp á bókmennta-
dagskrá í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á Laugarnesi sunnu-
daginn 9. desember. Þá verða
kynnt nýútkomin íslensk skáld-
verk og ljóðabækur. Dagskráin
hefst kl. 15.00.
Arnar Jónsson leikari les úr
skáldsögu Gyrðis Elíassonar,
Svefnhjólinu, og úr nýrri ljóðabók
Kristjáns Karlssonar, sem ber heitið
Kvæði 90. Linda Vilhjálmsdóttir les
úr fyrstu ljóðabók sinni, Bláþræði,
og Rúnar Helgi Vignisson les úr
nýrri skáldsögu, Nautnastuldi, sem
er önnur skáldsaga höfundar. Auk
þess verður lesið úr bók Garðars
Sverrissonar um Kristján Jóhanns-
son óperusöngvara. Dagskráin
stendur í um það bil eina klukku-
stund. Kaffistofa safnsins er þá
opin og veitingar á boðstólum.
FRÁSAGNIR
DR. Bi ARNIJÓNSSON
ÆVIBROT eftir Dr. Gunnlawg Þórðarson
Gunnlaugur hefur ávallt verið hress I fasi og talað tæpitungulaust
í þessari bók kemur hann svo sannariega til dyranna eins og hann
er klæddur. Rekinn úr skóla - Að upplifa dauðann - Ritari forseta
íslands - Smiður á Lögbergi - Húðstrýktur fyrir kirkjudyrum.
- Þetta eru nokkur lýsandi kaflaheiti sem segja meira en mörg orð
um það hvers lesandinn má vænta. Fjöldi Ijósmynda prýðir bókina.
A LANDAKOTI
eftir Dr. Bjnrnes Jónsson yfirlækni
Dr. Bjarni Jónsson var um áraraðir fremsti sérfræðingur fslendinga
í bæklunarsjúkdómum og meðferð höfuðslysa. Þetta er saga af merkri
stofnun og líknarstarfi I nærri heila öld þar sem margir af fremstu
læknum landsins koma við sögu. Bókina prýða 60 Ijósmyndir.
CCTRFRrS
oc 1 DCnva
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA