Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 08.12.1990, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 Oddur Guðbjömsson bóndi - Minning var þá farskóli og frændfólkið frá Rauðsgili var vikum saman á Húsa- feili og við vorum saman annan eins tíma á Rauðsgili á móti. Þá strax kom það fram að Oddur var vandaður, skemmtilegur og góður félagi. Hann verður örugglega betri en enginn að hitta þegar yfrum kemur. Ég votta Ingibjörgu og börnum þeirra innilega samúð mína við frá- fall Odds sem hefði átt að koma miklu seinna. Kristleifur Þorsteinsson í dag, 8. desember, fer fram út- för Odds á Rauðsgiii frá Reykholts- kirkju. Oddur fæddist á Rauðsgili í Hálsasveit 22. desember 1922. Foreldrar hans voru hjónin Guð- björn Oddsson og Steinunn Þor- steinsdóttir. Guðbjörn var sonur Odds Þorleifssonar, bónda á Dag- verðarnesi og Steinunnar Filipus- dóttur konu hans. Steinunn móðir Odds var dóttir Þorsteins Magnús- sonar bónda á Húsafelli og Ástríðar Þorsteinsdóttur konu hans, Jakobs- sonar, Snorrasonar prests á Húsa- felli. Þau hófu búskap á Rauðsgili árið 1918. Eignuðust þau sjö börn, þtjá syni, Þorstein, Tryggva og Odd, og ijórar dætur, Ástríði, Steinunni, Kristínu og Ingibjörgu. Oddur var miðja vegu í röðinni. Börnin ólust upp við lítil efni, en þó næg. Krepp- an sem ríkti á unglingsárunum og lauk í umbyltingu stríðsáranna, kom síður niður á lífskjörum til sveita. Upp úr kreppunni kallaði borgarlífið á unga menn til starfa sem gáfu skjótteknar tekjur. Oddur var í Reykholtsskóla og átti létt með nám. Vafalaust hefði átt vel við hann að stunda langskólanám, hefðu'vindar staðið til þeirrar áttar á þeim tíma. Hann var bókhneigður og valdi fremur lestur góðra bóka í ró og næði heldur en mötun fjöl-' miðla. Á seinni árum sökkti hann sér tíðum í ættfræðiathuganir og hefur unnið töluvert starf á því sviði. Ber öll sú vinna vitni um nákvæmni og vandvirkni. Oddur t Eiginmaður minn, STEFÁN LÍNDAL GÍSLASON, lést 30. nóvember. Útförin hefur farið fram. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Ebba Skarphéðinsdóttir. t Systir mín, SIGRÚN HELGADÓTTIR frá Grímsey, Hátúni 10a, Reykjavík, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 10. des. nk. kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir. Guðlaug Helgadóttir. Fæddur 20. desember 1922 Dáinn 1. desember 1990 Oddur var bráðhagur maður og vel verki farinn. Hann var góðut' námsmaður á sinni stuttu skóla- göngu. Hann hafði mikinn áhuga á ættfræði og sögu’ og var fjölfróður um þau efni og naut þar hins skarpa minnis síns. Hann var fríður maður og vel á sig kominn. Hann fæddist á Rauðsgili 20. desember 1922. Foreldrar hans voru þau hjónin Guðbjörn Oddsson frá Dagverðarnesi í Skorradal og Steinunn Þorsteinsdóttir frá Húsa- felli. Guðbjörn var af Bergsættinni alkunnu og hefur eflaust tekið að arfi úr þeirri ætt listfengi sem kom fram í framúfskarandi smekkvísi og listfengi í öllu sem hann gerði. Guðbjörn var smiður jafnframt bú- skapnum. Steinunn var þrekmann- eskja full af mannkærleik og hlýju, vel að sér og fluggreind. Börnin urðu sjö og var Oddur fjórði í röð- inni. Oddur átti alla ævi heima á Rauðsgili svo að hæfileikar hans nýttust ekki utan hans litla og snotra bús. Þar bjó hann eftir for- eldra sína. Kona Odds var Ingibjörg Jónsdóttir, dóttir Jóns lögreglu- þjóns frá Laug í Biskupstungum. Hún var manni sínum ómetanleg stoð í blíðu og stríðu og hafði lag á að fylla heimilið með glaðværð og notalegheitum. Þau komu til manns þremur efni- legum börnum, Jóni sjómanni og vélstjóra sem Ingibjörg átti fyrir hjónaband en var samt sem þeirra sonur, Birni sjómanni og vélstjóra og Steinunni sem vinnur við hjúkr- un sjúkra. Þessi börn hafa alla tíð sýnt Rauðsgili og foreldrum sínum ræktarsemi. Býsna mörg börn önnur hafa verið hjá þeim Ingibjörgu og Oddi á sumrin og jafnvel allt árið. Þetta fólk telur sig hafa haft gagn og gaman af dvöl sinni á Rauðsgili það best ég veit og hugsar með hlýhug og söknuði til Odds, þessa hægláta, fróða og skemmtilega manris sem kom svo vel fram við alla. Sjálfur kynntist ég Oddi vel frá því’að við vorum börn. í sveitinni t Hugheilar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur vinsemd og sámúð við andlát og útför föður okkar, KRISTJÁNS GÍSLASONAR frá Ytra-Skógarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra og St. Fran- ciskusspítala, Stykkishólmi. Gísli Kristjánsson, Anna Kristjánsdóttir, Bjarni Sveinbjörnsson, Gunnlaugur Kristjánsson, Maria Guðmundsdóttir, Hörður Kristjánsson, Birna Lárusdóttir og barnabörn. hafði góða rithönd og áferðarfal- lega, sem naut sín í þessum verkum. Á meðan Guðbjörn bóndi hélt fullu starfsþreki, sótti Oddur vinnu í Reykjavík um hríð. Stundaði hann m.a. smíðavinnu hjá Kristni vagna- smið, sem-var athafnaskáld á Grett- isgötunni. Vann Oddur þar í hópi sveitunga sinna og lærði ýmis verk sem síðar komu að notkum. Hann átti þó ekki langt að sækja srftíða- gáfuna, þar sem faðir hans var hagur smiður, bæði á tré og járn. Smíðaði Guðbjörn ýrnsa hluti fyrir sig og granna sína, svo sem skeifur og kerruhjól. Guðbjörn missti sjón fyrit' aldur fram, og þar kom að hann þurfti að treysta á syni sína við bústörfin. Oddur reyndist laginn við bústörfin og svo fór að hann tók við búinu að Guðbirni látnum 1959. Bjó hann um skamma hríð með móður sinni þar til hann kvæntist eftiriifandi konu sinni Ingibjörgu Jónsdóttui;, 53 sem staðsettar eru fyrir neðan heimatúnið. Þegar ég minnist þessa tíma nú, finn ég hversu góður andi ríkti á heirriilinu. Fólkið var samhent, hjálpsamt og jákvætt. Óþarfa arga- þras kom aldrei til. Þannig hefur alltaf ríkt sérstaklega gott samband á milli Rauðsgils og nágrannanna á Steindórsstöðum, en Oddur og systkinin þar voru systkinabörn. Tvö af Steindórsstaðasystkinum hafa látist á þessu ári, þau Þor- steinn og Ástríður. Er því mikið skarð höggvið í frændgarðinn á stuttum tíma. Á seinniárum hefi ég notið þeirra stunda sem ég hef átt á Rauðsgili. Sátum við Oddur oft saman og ræddum hin ólíkustu mál. Hann hafði ágæta kímnigáfu, og þá for- vitni, sein gerir það að verkum að menn spytja umfram það sem kom- ast rná af með. Þrátt fyrir að heils- an bilaði nú á síðustu árum var Reyndist hjónaband þeirra farsælt. Þau eignuðust tvö börn, Steinunni, sem lærði píanóieik og sjúkraþjálf- un, og Björn, sem er vélvirki. Ingi- björg átti fyrir soninn Jón Aðal- stein, sem er vélstjóri. Gekk Oddur honum í föðurstað. Steinunn, móðir Odds, bjó með þeim meðan henni entist aldur allt til ársins 1973. Hélt hún Iandsmóð- urlegu yftrbragði á heimilinu, sem gerði það að verkum að fólk laðað- ist að því. Ingibjörg hefur viðhaldið þeim hefðum og er hún vinsæl og vel látin af sveitungum sínum. Það er raunar mikil gæfa þegar slík samheldni ríkir sem raun varð á héf, þegar búskapur og bændastétt á í vök að veijast. Þeim Oddi og Ingibjörgu búnað- ist vel í sambúð sinni. Oddur var farsæll bóndi. Hann vann töluvert að ræktun jarðarinnar, en jók lítið við húsakost utan hlöður. Hann var natinn við skepnur, einkum hesta og fé, Ingibjörg annaðist kýrnar. Það var líka með eindæmum hve laginn hann var að ná inn góðum heyjum. Sá eiginleiki virðist vera arfgengur. Sá sem þetta ritar, systursonur Odds, átti því láni að fagna að dvelj- ast á Rauðsgili á sumrin frá 6 til 15 ára aldurs. Á því skeiði náði ég að kynnast þeirri þróun sem bú- skaparhættir í ísienskum sveitum hafa gengið í gegn um; frá þeirri bjartsýni og baráttuhug sem ríkti, á meðan þjóðin var að betjast við að brauðfæða sig, í kjölfar fólks- fjölgunar í lok stríðsins og þar til því takmarki var náð á miðjum sjö- unda áratugnum. Ólíku er nú saman að jafna við það hugarfar sem nú ríkir í sveituni landsins, þar sem öll framleiðsla er nánast talin til óþurfta. Oddur hafði gott lag á að láta okkur krakkana vinna. Hvert verk hafði sinn tilgang, okkur var treyst fyrir' þeim og laun okkar voru ekki síst ánægja með vel unnin störf. Ég minnist þess nú með þakk- læti að þarna lærðum við dyggðir vinnunnar. Krakkamir voru oft 4-5 saman á sumrin. Þar við bættust systkin Odds og makar þeirra, sem oft dvöldu til lengri eða skemmri tíma á sumrin við heyskap. Það var skemmtileg tíð. Svo komu töðu- gjöldin (með súkkulaði). Síðan tóku við hauststörf, göngur og réttir, ust þau hjónin um allt land eftir að hann kenndi meinsins, sem dró hann að lokum til dauða. Ég hitti Odd viku fyrir andlát hans á spítal- anum á Akranesi. Hann var léttur í skapi, og kunni skil á flestum tíðindum úr héraði og frændgarði yfirleitt. Þannig hafði það líka alltaf verið. Rauðsgilsheimilið hefur jafnan verið sá staður sem systkin hans og afkomendur þeirra hafa safnast um. Það hefur verið okkar ættaróð- al, þótt ekki teljist það til stórbýla. Aldrei hefur þar heyrst minnst á gestanauð, þótt næturgestir hafi fat'ið á þriðja tuginn. Þvert á móti hefur fremur verið kapp á milli bæjanna um hvor hefði betur í þeim efnum. Samheldni þeirra Ingibjargar var heilsteypt. Þrátt fyrir að þau væru að mörgu leyti ólík, fórst þeim það vel, því þannig spönnuðu þau stærra svið í sameiningu. Víst hefði ég kosið að fá að njóta samvista við Odd enn um stund. Atvikin banna þó lengri fund. Hann hverfur nú á vit feðra sinna með bestu kveðjum þeirra sem eftir sitja. Snorri Tómasson KENWOOD ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEÐ KENWOOD HEIMILISTÆKIN Rafmagns- og steikarpannan frá KENWOOD er nauðsynleg í hverju eldhúsi Verð frá kr. 8.610,- Fullkomin viðgerða- og varahlutaþjónusta Heimilis- og raftækjadeild HEKLAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.