Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.12.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐyiKUD/yQ!UK12. DESEMBER 1990 25 Jólatónleikar „Bamaheilla“ Elly Ameling, Dalton Baldwin og Kór Oldutúnsskólans undir stjórn Egils Friðleifssonar eftir Halldór Hansen Sunnudaginn 16. desember kl. 14.00 munu samtökin „Barna- heill“ gangast fyrir glæsilegum jólatónleikum í Háskólabíói. Hin heimsfræga hollenzka söngkona Elly Ameling mun syngja ljóð og jólalög við undir- leik bandaríska píanóleikarans Daltons Baldwins og með aðstoð kórs Öldutúnsskólans undir stjórn Egils Friðleifssonar. í heimi harðra viðskipta gerist það ekki oft, að heimsfrægir listamenn bjóði þjónustu sína endurgjalds- laust í þágu góðra málefna, en einmitt þetta hafa þau Elly Amel- ing og Dalton Baldwin gert sam- eiginlega af einskæru kærleiks- þeli til í'slands og íslendinga og þá sér í lagi íslenzkra barna. Ágóðinn mun renna óskiptur í sjóð „Bamaheilla“ og þar með stuðla að hagsmunabótum fyrir íslenzk börn. Ég held, að þetta sé einsdæmi í sögu íslenzkrar æsku. Allavega er mér ekki kunnugt um hlið- stæðu, þótt íslenzkir listamenn hafi aldrei látið sitt eftir liggja. Það er mér sérstök persónuleg ánægja að sjá þannig tvö af mínum einlægustu áhugamálum — tónlist og velferð bama — tengjast fyrir tilstilli tveggja yfir- burðalistamanna, sem vart eiga sinn líka, hvort á sínu sviði. Ég veit, að báðum listamönnun- um eru málefni barna, hvar sem er í heiminum, hugleikin, já, meira en það, em þeim heilög. Bæði hafa fyllsta skilning á mikilvægi þess, að sérhvert barn fái tæki- færi til að vinna eðlilega og far- sællega úr þeim efnivið sem það hefur hlotið í vöggugjöf og bæði hafa kynnst því á margendurtekn- um ferðalögum sínum um gjör- vallan heim, hve víða er pottur brotinn í þeim efnum og hve oft fögur orð eru látin koma í stað athafna. En báðir þessir listamenn hafa trú á því að láta hendur standa fram úr ermum og verkin tala eftirminnilega. Því eru þau nú á leið til íslands. Báðum er ljóst, að málefnurri barna á íslandi er betur sinnt en víða annars staðar. En þeim er einnig ljóst, að aðstæður hér em betri en víðast annars staðar til að bæta úr því, sem aflaga fer. Þeim er ljóst að ísland gæti vel orðið öðrum til fyrirmyndar í þeim efnum og það væri innileg ósk beggja. Það er heidur engin tilviljun að jólatónleikar hafa orðið fyrir val- inu. Jójin eru hátíð allra manna, en sérstök hátíð barna. Boðskapur jólanna er unri ljósið, sem skín þeim mun skærar sem myrkrið er svartara, lýsir og iljar í kulda og vegleysu og vekur þann neista til lífsins, sem leyfir mann- inum á stundum að rísa yfir eigin Elly Ameling takmarkanir. Og það er í þeim anda, sem listamennirnir vilja boða til hátíðar til styrktar börn- um á íslandi, sem eru aðstoðar þurfi. Það er þeirra jólagjöf til íslenzkra barna. Og ég vona, að íslendingar kunni að meta þá gjöf og sanna það með nærveru sinni á tónleikunum, því að án þeirra missir gjöfin marks. Sérstakar þakkir vil ég færa kór Öldutúnsskólans og stjórn- anda hans, sem einnig vinna end- urgjaldslaust, sem og Rut L. Magnússon, en hún hefur séð um skipulagningu, og síðast en ekki sist Eimskipafélagi íslands. Án rausnarlegs fjárhagsstuðnings Eimskipafélagsins er vafasamt, hvort tekizt hefði að ýta þessu verkefni úr vör. Dalton Baldwin Elly Ameling fæddist í Rotter- dam í Hollandi og stundaði söng- nám í heimalandi sínu sem og í París hjá Pierre Bernac. Leið hennar til alþjóðaviður- kenningar lá í gegnum hina þekktu söngvakeppni í Genf í Sviss, sem hún vann með yfirburð- um. Fáar söngkonur hafa sungið inn á jafnmargar hljómplötur og Elly Ameling og hún hefur komið fram með öllum frægustu hljóm- sveitum og hljómsveitarstjórum heims og notið sérstakrar virðing- ar og viðurkenningar þeirra. En þekktust er Elly Ameling sem ljóðasöngkona. Hún þykir hafa óvenjulegt næmi á form i tónlist og sérstakt vald yfír öllum þeim blæbrigðum sem ljóðasöngur stendur og fellur með. Hún er jafnvíg á ólíkustu stíltegundir, hvort sem um er að ræða tónlist frá klassíska tímabilinu eða því rómantíska og hefur komið öllum á óvart með því að hafa ekki síður vald á að túlka bandarísk, frönsk, þýzk og suður-amerísk dægurlög sjálfri sér og öðrum til dægra- styttingar. Það má segja að Elly Ameling bregði töfraljóma á viðfangsefni sín, hvers eðlis sem þau eru, og lýsi þau upp innan frá af sinni alkunnu snilld. Dalton Baldwin þarf varla að kynna fyrir íslenzkum áheyrend- um, svo oft hefur hann komið hingað og svo dyggilega hefur hann stuðlað að framþróun söng- mála hérlendis. Hann fæddist í Bandaríkjunum og stundaði nám við Juilliard School of Music í New York og Oberlin College. Loks lauk hanri námi hjá Nadiu Boul- anger í París og Madeleine Li- patti í Frakklandi. Hann hefur lengst verið búsettur í Frakk- landi, þó að hann ferðist án afláts um allan heim. Hann hefði sjálfur gjarnan vilj- að verða söngvari. En til þess þarf náttúrurödd, sem hann vant- aði. Hann sneri því sínu kvæði í kross og ákvað að helga líf sitt því að halda merki hins þýzka og franska ljóðs á lofti sem undirleik- ari söngvara á borð við Gérard Souzay, Jessye Norman, Federica von Stade, José van Dam, William Parker svo einhveijir séu nefndir. Og hvar sem hann fer, hefur Dalton Baldwin lagt sig fram við að rækta hæfileika ungra söngv- ara og við að reyna að koma þeim á framfæri og í hendur afburða- kennara, sem gætu þroskað hæfí- leika þeirra til hins ýtrasta. Af þeirri hlið hafa Islendingar notið góðs, ef til vill öðrum frem- ur. Höfundur er læknir. lliBllllliÉ % ' J,- -Jj- ijjji! «hmbi . . ■-s . É •* ^ 1 Reykjavík 12. desember 1990 I.GUÐMUNDSSON & Co. hf. Þverholti 18,105 Reykjavík. Sími 24020 E E*Sx __ r i 1 i B I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.